Dagur - 21.09.1999, Side 5

Dagur - 21.09.1999, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 - 21 LÍFIÐ í LANDINU Fréttaöftunljós- vakans sainþættist „Mér finnst alltaf munaður að geta hlustað á svæðisútvarpsstöðvar og það efni sem þær hafa uppá að bjóða, “ segir Finnbogi Hermannsson. Ti! vinstri á myndinni er Arnar Páll Hauksson. mynd: brink Norrænir útvarpsmenn funda á Akureyri. Svæðis- stöðvum ríkisútvarps lagðar auknar skyldur á herðar Á Akureyri var í síðustu viku haldinn fundur forstöðumanna svæðissstöðva ríkisútvarpa á Norðurlöndunum. Um 40 manns sóttu fundinn, en þeir eru haldnir á tveggja ára fresti og eru þar tekin fyrir ýmis fagmálefni hverju sinni. Að þessu sinni var rætt um samþætt- iningu fréttaöflunar við útvarp og sjón- varp, en sú þróun hefur átt sér stað á Norðurlöndunum og er að verða að- veruleika hér, meðal annars með sam- eingu fréttastofu Útvarps og Sjón- varps.Þá eru svæðisstöðvar Ríkisút- varpsins í vaxandi mæli að taka að sér- fréttavinnslu fyrir Sjónvarpið, en svo hefur ekki verið fram til þessa.Þetta hefur til dæmis orðið að veruleika á Eg- ilsstöðum þar sem fréttamenn Rfkisút- varpsins annast fréttaöflun við báða miðlana. Styrkir útvarp og sjónvarp „Ég tel að þessi þróun sé af hinu góða. Hættan er auðvitað sú að það dragi úr fjölbreytni á því efni sem stöðvarnar eru að senda frá sér, en reyndin er sú, til dæmis í Noregi, að þetta hefur verið að styrkja bæði útvarp og sjónvarp," segir Finnbogi Hermannsson, forstöðum. Ríkisútvarpsins á Isafirði, en Dagur ræddi við hann og Arnar Pál Hauksson, sem veitir Ríkisútvarpinu á Akureyri forstöðu. „Svæðisstöðvarnar þurfa ekki miklu að bæta við sig í mannahaldi til þess að geta sinn báðum miðiunum. Þetta er því afar hagkvæmt fyrirkomu- lag. Hjá mér vestur á Isafirði þyrfti að auka starfshlutfall tæknimanns úr hálfu starfi í heilt og bæta við einu stöðugildi fréttamanns sem gæti sinnt báðum miðlum,“ segir Finnbogi. I starfi ríkisútvarps á Norðurlöndun- um gegna svæðisstöðvarnar veigamiklu hlutverki. Stöðvarnar í Noregi eru um tuttugu talsins og fleiri í Svíþjóð. Þær senda allar út á sérstökum rásum og annast bæði fréttaöflun og eins dag- skrárgerð fyrir landsrásir. Svæðisstöðin í Kalmar í Smálöndum í Svíþjóð, í heima- héraði barnabókahöfundarins Astrid Findgren, framleiðir til dæmis mikið af barnaefni sem þykir afar frambærilegt. Þannig gegna stöðvarnar menningarleg- um skyldum, sem eru í ríkum mæli á herðar þeirra lagðar. Mikið hlustað á svæðisútvarp Arnar Páll Hauksson segir að íslending- ar kunni vel að meta útsendingar svæð- isstöðva útvarps. Hlustun á útsendingar sé að jafnaði um 25% til 30% og fari á góðum degi upp í 40%. Það sé jafnframt ljóst að þegar heimurinn smækki sífellt og daglegar fréttir komi víðar að - aukist jafnframt gildi nærmiðlunar sem svæðisútvarpsstöðvarnar Ieggi sig eftir þ.e. fréttum úr hinu daglega umhverfi. „Mér finnst alltaf munaður að geta hlustað á svæðisútvarpsstöðvar og það efni sem þær hafa uppá að bjóða - en ekki eingöngu fréttir og fréttatengt efni sem lýtur að málefnum á höfuðborgar- svæðinu. Landsbyggðarfólki finnst stundum mikil áhersía lögð á að segja frá áætlun strætisvagna í borginni og færð í Ártúnsbrekkunni," segir Finnbogi Hermannsson. -SBS. Fyrlrtaks morgunlelkfraii Sl/OJMA ER LIFIÐ „Morgunstund gefur gull í mund,“ segir gamalt íslenskt mál- tæki í merkingunni að sá sem fari snemma á fætur verði Ioð- inn um Iófana, en orðið mund merkir lófi. Margir fara í bað eða sturtu áður en þeir halda út í daginn og skola þá af sér svefndrungann. Það er líka í þrifnaðarskyni því að að sofandi maður skilar talsverðu magni af svita í værðarvoðirnar. Morg- uninn er víða annatími á baðstöðum. Margir hafa stundað sömu sundlaugina í áraraðir og oft sérstæð í sund- laugunum. Fátt er betra fyrir spennta vöðva en heitt bað. Sundlaugarnar geta verið hrein- ustu heilsubrunn- ar. Heitu pottarnir eru tilvaldir fyrir þá sem þurfa að glíma við stirða vöðva að láta líða úr sér. Það, að synda nokkur hundruð metra, getur verið góð morgunleikfimi og komið blóðrásinni á hreyfingu. Góð sundferð mýkir vöðvana og styrkir þá. Þannig eru sundferðir góðar fyrir líkama og sál. myndast samfélög Pjetur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pjetur svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 460 6124 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: pjeturst@ff.is Brúðkaupsafmæli Ýmis tilefni gefast til þess að gera sér dagamun. Brúðkaupsaf- mæli getur verið stór stund í lífi fólks. Giftingarhringurinn er tákn um kærleika og trúnað. Einu sinni heyrði ég af manni sem var rotaður með kökukefli af því að hann gleymdi brúð- kaupsafmæli þeirra hjóna. En brúðkaupsafmælin hafa nöfn, og eru kennd við mismunandi verðmæta hluti. 1 ár: pappírs 13 ár: knipplinga 2 ár: bómullar 14 ár: fílabeins 3 ár: leður 15 ár: kristals 4 ár: blóma 20 ár: postulín 5 ár: tré 25 ár: sill'ur 6 ár: sykur 30 ár: perlur 7 ár: ullar 35 ár: kóral 8 ár: brons 40 ár: rúbín 9 ár: leir 45 ár: safír 10 ár: ál 50 ár: gull 11 ár: stál 55 ár: smargaðs 12 ár: kopar 60 ár: demants ■ HVAD ER Á SEYfil? JAZZ OG GRÚVÍ TÓNAR Það verður glansandi stuð og stemning á ölkeldu- húsinu Gauki á Stöng næstkomandi þriðjudags- kvöld, 21. september, því þá verða í gangi tónleikar númer sautján í hinni alræmdu Stefnumóta-tón- leikaseríu. Að venju er það tónlistar- og menning- arblaðið Undirtónar sem stendur íýTÍr herlegheit- unum og að þessu sinni verður það jazz og alls kyns grúví tónar sem verða í aðalhlutverki. Á Stefnumóti 17 koma fram hljómsveitirnar Drum N Brass (sem sló eftirminni- lega í gegn þegar hún hitaði upp fyrir No Smoking Band í höllinni nú á dögunum), Snurk (sem spilar fönkí freejazz og er skipað tveim meðlimum fönksveitarinnar Funkmaster 2000), Dúetinn 3+4 (sem spilar experimental jazzblöndu) og plötu- snúðurinn DJ Kristín Björk (sem er ein af aðal manneskjunum í kringum hin víð- frægu Tilraunaeldhús-kvöld). Tónleikarnir heljast stundvíslega klukkan 22:00 og er aðgangseyrir 500 kr, en innifalið í honum er hóstastillandi vökvi sem bannað er að auglýsa. Líkt og allir aðrir Stefnumóta-tónleikar eru þeir sendir út beint á tónlistarvefsíðu Coca-Cola [www.coca-cola.is]. Allar frekari upplýsingar um Stefnumót #17 og listamennina sem á því spila veitir Eldar Ástþórsson í síma 552-4466 og 898-2151. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Listasetur í Þýskalandi Miðvikudaginn 22. september kl. 20.00 mun Rithöfundasamband Islands standa lyrir kynningu á Stiftung K.nstlerdorf Schöppingen í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8. Stiftung K.nstlerdorf Schöppingen er listasetur í Westfalen í Þýskalandi sem veitir rithöfundum og myndlistarmönnum vinnuaðstöðu og dvalarstyrki til sex mán- aða. Forsvarsmenn stofnunarinnar hafa mikinn áhuga á að kynna starfsemina fyrir íslenskum rithöfundum og myndlistar- mönnum sem huga hafa á að dvelja og starfa í Schöppingen. Forstöðumaður stofnunarinnar Dr. Josef Spiegel mun kynna starfsemina, tilhögun styrkveitinga og aðstöðu þá sem boðið er uppá. Allir rit- höfundar og myndlistarmenn eru hvattir til að mæta í Gunnarshús nk. miðvikudag. Hagsaga á íslands Þriðjudaginn 21. september flytur Guð- mundur Jónsson lektor við sagnfræðiskor Háskóla Islands fyrirlestur sem hann nefnir: „Hvernig bagsaga er stunduð á Is- landi? íslenskar hneigðir i alþjóðlegu ljósi.“ Fundurinn verður haldinn í Þjóð- arbókhlöðu á 2. hæð í hádeginu (12:05- 13:00) og er hluti af fyrirlestraröð Sagn- fræðingafélags íslands sem nefnd hefur verið: Hvað er hagsaga? Eru allir áhuga- menn um sögu hvattir til að koma á fundinn og taka þátt í umræðum um efn- ið. Guðmundur Jónsson er annar ritstjóra Hagskinnu, rits um sögulegar hagtölur, og er nú um þessar mundir í samstarfi við hóp fræðimanna sem hafa á pijónun- um að vinna að rannsóknum á íslenskri verslunarsögu. Athygli skal vakin á því að fundarmenn geta fengið sér matarbita í veitingasölu Þjóðarbókhlöðunnar og neytt hans meðan á fundinum stendur. Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ Kaffistofan opin 10-13. Matur í hádeg- inu. Skák í Ásgarði kl. 13 í dag. Haust- ferð til Þingvalla 25. sept., kvöldverður í Básnum og dansað á eftir. Staðfesta þarf ferðina í síðasta lagi í dag. LANDIÐ Aðalfundarboð Skákfélags Akureyrar Aðalfundur Skákfélags Akureyrar verður haldinn fimmtudaginn 23. september kl. 20 í íþróttahöllinni á Akureyri, gengið inn að norðvestan. Dagskrá, venjuleg að- alfundarstörf. Húsnæðismál félagsins og umræða um skákþing Norðlendinga.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.