Dagur - 23.09.1999, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 23. september 1999
2. árgangur - 30. Tölublað
Gera upp verslun
Guolaugs
Uimið er að endurgerð
Verslunar Guðlaugs
heitius Pálssonar á
Eyrarbakka. Húsið
verður fært í það horf
sem var 1919. Hug-
myndir um verslunar
rekstur.
Hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir
og Magnús Karel Hannesson á
Eyrarbakka keyptu á síðasta ári
húsið Sjónarhól á Eyrarbakka,
þar sem Guðlaugur heitinn Páls-
son kaupmaður verslaði í ára-
tugi. A þeirra vegum hefur Jón
Karl Ragnarsson trésmiður á
Eyrarbakka unnið að endurgerð
hússins og hefur húsið verið faert
í það horf að ytra útliti sem á því
var, þegar Guðlaugur eignaðist
það árið 1919.
Húsið eins og það var 1919
Húsið er upphaflega byggt árið
1887 af Þórdísi Símonardóttur,
ljósmóður. I áranna rás var því
breytt á ýmsa vegu og það stækk-
að. Guðlaugur Pálsson byggði
við húsið og ofan á það árið
1949, þar sem var æ síðan íbúð
hans og fjölskyldu hans. Þessi
viðbygging hefur nú verið tjar-
lægð og nú stendur húsið eftir
endurgera. Þau hafa notið góðrar
aðstoðar ættingja og vina við
ýmsa þætti verkefnisins og er sú
hjálp ómetanleg, að sögn Magn-
úsar. A undanförnum árum hef-
ur vakning átt sér stað í hús-
verndunarmálum á Eyrarbakka
og má víða sjá merki þess í þorp-
inu. Mjög mörg gömlu húsanna
á Bakkanum hafa verið endur-
gerð á síðustu árum og um þess-
ar mundir er verið að
endurbæta nokkur hús
við aðalgötuna, þar á
meðal Sjónarhól.
Ka upmaöur af lífi og
sál
„Guðlaugur Pálsson
var kaupmaður af Iífi og
sál,“ segir Magnús Karel
Hannesson.“Guðlaugur
starfrækti verslun sína
allt til dauðadags, í des-
ember 1993, en þá var
hann 97 ára gamall og
hafði þá staðið á sama gólfinu frá
1919 eða í 75 ár. Guðlaugur
mundi vel tímana tvenna og upp-
lifði miklar breytingar á verslun
og mannlífi á Eyrarbakka í gegn-
um árin. Hann tengdi saman for-
tíð og nútíð og verslunin hafði
alltaf sinn heillandi blæ og var
mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn,“ segir Magnús Karel.
-SBS
Sjónarhóll á Eyrarbakka. Hæð hefur verið tekin ofan
afhúsinu og það fært í upphaflegt horf. Á litlu
myndinni er Guðlaugur Pálsson í verslun sinni, en
hann verslaði á Eyrarbakka frá 1919 til
dánardægurs, hausdð 1993.
eins og það var þegar Guðlaugur
hóf verslunarrekstur í því árið
1919. Magnús Karel segir að
hugmynd sín og Ingu Láru sé að
endurgera verslunarinnrétting-
arnar í húsinu, svo þar megi reka
verslun með svipuðum hætti og
Guðlaugur gerði í áratugi.
Innréttingar verslunar hans
voru gefnar til Byggðasafns Ar-
nesinga í Húsinu á Eyrarbakka
fyrir nokkrum árum og eru þar
hluti af verslunarsýningu safns-
ins. Magnús segir auðvitað tals-
verðan kostnað við endurgerð
hússins, en þau Inga Lára hafa
ekki leitað eftir opinberum
styrkjum vegna þessa verkefnis,
heldur sé það alfarið fjármagnað
af þeim sjálfum. Segir hann verk-
efni þetta í raun grundvallast á
áhuga þeirra á endurgerð gam-
alla húsa, en þetta er þriðja hús-
ið á Eyrarbakka, sem þau hjón
Tollvöru-
geymsla í Þor-
lákshöfn
Nú hefur verið hafist handa við
byggingu tollvöruskemmu í Þor-
lákshöfn. Er hún á hafnarsvæð-
inu við Skarfaskersbryggju gegnt
Kuldabola, hinni nýju frysti- og
kæligeymslu Isfélagsins. Um er
að ræða 450 fermetra stálgrind-
arhús með um 6 metra lofthæð.
Búið er að grafa fyrir grunni
og er verið að keyra uppfyllingu
í hann þessa dagana. Hafnar-
sjóður Þorlákshafnar stendur að
byggingunni. Er þetta liður í að
auka enn frekar þjónustu stað-
arins við sjávarútveg og sigling-
ar. Búist er við að hægt verði að
hefja notkun hússins í kringum
20. nóvember og því verði fulll-
okið þann 20. desember nk. Var
verkið boðið út í alútboði.
Verktaki er Virki ehf í Hafnar-
firði. Menn vona að byggingin
verði til þess að ýta undir að
Þorlákshöfn verði gerð að aðal-
tollhöfn sem fýrst. Þingmenn
Suðurlands, undir forystu
Guðna Agústssonar, hafa hreyft
því máli á Alþingi með þingsá-
lyktunartillögu. -HS
Þessa dagana er verið að hefjast handa viðframkvæmdir við tollvörugeymslu í Þorlákshöfn. Með stórvirkum
vinnuvélum var verið að taka grunn byggingarinnar í gærmorgun, þegar þessi mynd var tekin, Ljóst er að
tollvörugeymsla mun miklu breyta í athafnalffi í Þorlákshöfn. mynd: hjörtur sandholt.
Vitinn á Dyrhólaey, byggður fyrir
72 árum.
Endurbætur
á Djrhóla
eyjarvita
Unnið hefur verið í sumar við
endurbætur á vitanum á Dyr-
hólaey í Mýrdal, en hann var
reistur árið 1927. Er þetta
stærsta verkefnið í viðhaldi vita-
byggingar sem unnið hefur ver-
ið í sumar. Markmið Siglinga-
stofnunar með þessu viðhalds-
verkefni er að eiga a.m.k. einn
vita þar sem híbýli vitavarðar
eru í því sem næst upprunalegu
horfi. Er þannig verið að varð-
veita hluta af sögu íslenskra
vita.
„Það er stefna Siglingastofn-
unar að sinna viðhaldi á hveij-
um vita fyrir sig á fimm ára
fresti. Reynt er því að komast í
viðhald á um 20 vitum á hverju
ári,“ segir í fréttabréfi Siglinga-
stofnunar," Til sjávar." -SBS
Víkiiigasveitm
í Þorfakshöfn
Mikið uppistand varð við fjölbýl-
ishús í Þorlákshöfn aðfaranótt
þriðjudags. Hringt var í neyðar-
línuna frá einum íbúa hússins
og sagt að menn vopnaðir hagla-
byssum væru fyrir utan, beij-
andi húsið að utan og freistuðu
þeir þess að komast inn til við-
komandi.
Lögreglan á Selfossi mætti á
staðinn um miðnætti og var
nærliggjandi götum lokað. Hafði
síðan lögreglan samband við vík-
ingasveitina sem mætti um eití
leytið vopnuð hríðskotabyssum.
Grunur lék á að þarna væru á
ferðinni innheimtuaðgerðir eit-
urlyfjasala og fulltrúar víkinga-
sveitarinnar töldu sig gruna
hverjir þarna væru á ferð. Ríkti
hernaðarástand við fjölbýlishús-
ið fram eftir nóttu og spígspor-
uðu víkingasveitarmenn jafnt á
húsþökum sem annars staðar
við húsið.
Ekki létu innheimtumennirnir
sjá sig og endaði málið á frið-
sáelanhátt. -HS