Dagur - 25.09.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 25.09.1999, Blaðsíða 5
ro^tr. FRÉTTÍR n n n *■ n ' 'j i> o i *> t r n r» ». n «s * n> u k \ _t\ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1999 - S Innherjar gætu þurft að segja til narns í tengsluin við raf- ræna verðbréfaskrán- ingu er til ahugunar hjá Verðbréfaþingi að aflétta nafnleynd í innherj aviðskiptum. Framundan er að Verðbréfa- skráning Islands taki formlega til starfa en í kjölfarið má búast við því að öll viðskipti með verðbréf sem skráð eru á Verðbréfaþingi og skráning þeirra verði í raf- rænu og tölvutæku formi. I tengslum við þá tækninýjung er m.a. til athugunar hjá Verðbréfa- þingi hvort aflétta eigi nafnleynd á viðskiptum innherja með hlutabréf, þ.e. þeirra stjórnenda og starfsmanna sem skilgreindir eru sem innherjar innan hvers hlutafélags og taldir eru búa yfir meiri upplýsingum um rekstur- inn en almennir hluthafar. Til þessa hafa nöfn innherjanna ekki verið birt hér á Iandi, enda þótt þau hafi verið tilkynnt til Stefán Halldórsson, framkvæmdastjóri Verðbréfaþings íslands. Verðbréfaþings. Að sögn Stefáns Halldórssonar, framkvæmda- stjóra Verðbréfaþings, tíðkast það í flestum kauphöllum er- lendis að innherjaviðskipti fari fram íyrir opnum tjöldum. „Þetta hefur verið til umræðu hjá Verðbréfaþingi í nokkurn tíma en menn hafa ekki talið tímabært að breyta þessu fyrr en allir sætu við sama borð. Hand- virkur frágangur viðskipta hefur helst staðið í vegi fyrir þessu og verulegar tafir hafa orðið í mörg- um tilvikum á því hvenær upplýs- ingar berast hluthafaskrá hvers félags og hvenær þær upplýsing- ar berast síðan Verðbréfaþingi. Nú hvílir skyldan á innheijunum sjálfum að tilkynna viðskiptin til hlutaskrár félagsins,“ sagði Stefán og lagði áherslu á að eng- ar ákvarðanir lægju fyrir um af- nám nafnleyndar. Sýnileg viðskipti Með tilkomu Verðbréfaskráning- ar verður ekki hægt að eiga hlutabréfaviðskipti öðruvísi en að þau fari í gegnum rafræna skráningu. Uppgjör viðskiptanna fer fram strax daginn eftir að þau áttu sér stað og því verður það úr sögunni að tilkynningar um inn- herjaviðskipti berist nokkrum vikum eftir að þau áttu sér stað. íslenskur verðbréfamarkaður er enn að þróast og hlutabréfa- viðskipti, einkum þau stærri, hafa verið sveipuð leyndarhulu. Því má reikna með að svokallað- ir innherjar veigri sér við að til- kynna kaup eða sölu þeirra á bréfum. Aðspurður tók Stefán undir þetta og sagði að fjárfestar gætu talið það íþyngjandi að koma svona fram í dagsljósið. En fyrst aðrar þjóðir geti búið við þessa reglu mætti ætla að ís- Ienskir íjárfestar ættu að geta það líka. „Það mætti líka segja á móti að einmitt á Islandi, þar sem ná- lægðin er meiri í öllum samskipt- um, væri meiri þörf á að allar reglur séu skýrar og upplýsingar liggi ljósar fyrir. Það er ekkert óeðlilegt við það að stjórnandi eða lykilmaður vilji kaupa eða selja bréf í eigin hlutafélagi. En alla jafna er það ekki heppilegt að slíkir menn eigi skammtíma- viðskipti með bréfín í því skyni að hagnast á verðbreytingum. Það gæti vakið tortryggni um að þeir séu að misnota aðgang að upplýsingum,“ sagði Stefán og benti á að í sumum löndum, t.d. Noregi, væri innherjum meinað að eiga viðskipti 30 daga fyrir birtingu árs- eða milliuppgjöra. - B]B 58% veðja á KR-sigur Samkvæmt niðurstöðum spurn- ingar Dags á Vísi.is síðustu daga telja 58% aðspurðra að KR sigri í úrslitaleiknum í bikarkeppn- inni í knattspyrnu á Laugardals- velli á morgun. Þar með eru 42% þeirra sem þátt tóku í spurningaleiknum á því að Skagamenn sigri í leiknum. Spurt var: Tekst KR að sigra í bikarkeppninni í knattspyrnu? Þátttaka var með miklum ágæt- um enda áhuginn gríðarlegur á leiknum. Ný spurning Dags hefur verið sett á fréttavef Vísi.is. Hún er eftirfarandi: Samræmist það starfsemi i'þróttafélaga að þau reki vínveitingastaði? Niðurstöður þeirrar atkvæða- greiðslu verða birtar í Degi um næstu helgi. Munið slóðina www.visir.is Grunur uin lðgbrot í grænmetisdreiftngu Forsvarsmeim Sölufé- lags gardyrkjiunaima, Ágætis og Banana íhuga að áfrýja hús- leitarheimild, sem S amkejjpni s stofium fékk, til Hæstaréttar. Starfsmenn Samkeppnisstofn- unar og hópur lögreglumanna gerðu á fimmtudag húsleit í húsakynnum þiggja dreifíngar- aðíla grænmetis, að fenginni húsleitarheimild með dómi Hér- aðsdóms Reykjavíkur. Stjórn- endur fyrirtækjanna Sölufélags garðyrkjumanna, Agætis og Ban- ana ehf. eru grunaðir um brot á samkeppnislögum. Georg Ottóson, stjórnarfor- maður SG og Banana ehf., segir aðspurður að þess hafi verið gætt að halda rekstri fyrirtækj- anna aðskildum. Forsvarsmenn fyrirtækjanna íhugi nú að áfiýja úrskurði Héraðsdóms til Hæsta- réttar en ákvörðun þar að lút- andi verður tekin um helgina. „Þetta eru mjög harkalegar að- gerðir og komu okkur verulega á óvart. Eg er ekki lögfróður en við höfum verið í þeirri trú síðustu fjögur ár sem við höfum rekið fyrirtækin að við værum innan lagaramma Samkeppnisstofnun- ar. Ef svo er ekki munum við að sjálfsögu fara að þeim ábending- um sem koma frá Samkeppnis- stofnun. Eg vona að þetta skaði ímynd fyrirtækjanna sem minnst, en svona umræða er aldrei góð fyrir fyrirtæki," sagði Georg Ottósson. Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppnisstofnun vildi ekki staðfesta ástæður húsleitarinnar, annað en að staðfesta að grunur léki á að samkeppnislög væru brotin og vísa til þess að dómari hefði taiið rökin fyrir húsleit réttmæt. Um er að ræða sjálf- stæða athugun Samkeppnis- stofnunar, en ekki kæru frá þriðja aðila. Guðmundur vísar til 40. greinar samkeppnislaga, en þar segir: „Samkeppnisstofnun getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfs- stað fyrirtækis og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafí verið gegn Iögum þessum eða ákvörðunum samkeppnisyfirvalda." Guðmundur verst frétta af til- urð rannsóknarinnar og árangri húsleitarinnar. „Við lögðum hald á gögn og erum nú að vinna í því að fara í gegnum þau og meta hvort eitthvað í þeim bendir til brota á samkeppnislögum. Ég vil leggja áherslu á að það hefur enginn verið dæmdur, en jafn- framt liggur fyrir að rík ástæða var til að fara út í þessa aðgerð." - fþg/gg Kafarar mynda £1 Grillo Kafarar hófu í gær að skoða flak breska olíuskipsins EI Grillo, en austúr til Seyðisfjarðar hafði ver- ið fluttur stór vinnuprammi ásamt tækjum sem er staðsettur á sjónum ofan við flakið, við hlið- ina á mengunarvarnargirðing- unni sem er full af olíu sem stöðugt Iekur úr flakinu. Við könnunina er einnig notuð neð- ansjávarmyndavél. Kafararnir, sem eru 6 talsins, telja að það verði ekki stórmál að ná allri olíu úr skipinu, en uppi hafa verið hugmyndir að lyfta skipinu af hafsbotni til þess m.a. að komast að öllum tönkum þess. Það yrði mjög dýr aðferð. Varðskip kom austur til Seyðisfjarðar aðfara- nótt föstudags, til aðstoðar við þær aðgerðir sem nauðsynlegt er að framkvæma til þess að stöðva olíumengunina. - GG Sameining samþykkt Yfírgnæfandi meirihluti félagsmanna í Eflingu - stéttarfélagi og Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, samþykkti sameiningu félaganna í allsherjaratkvæðagreiðslu. Talning fór fram í fyrradag. Á kjörskrá Iðju voru 2204 og sögðu já 93,22%. Atkvæði greiddu hins vegar aðeins 32,8%. Hjá Eflingu voru 12.470 á kjörskrá. Samþykk sameiningu voru 92,74%. Atkvæði greiddu aðeins 22,54%. - grh Fleiri handtökur og kyrrsetningar Listinn yfír haldlagðar og kyrrsettar eignir vegna stóra fíkniefnamáls- ins svokallaða lengist með degi hverjum, ásamt því að nú hefur sjötti einstaklingurinn verið handtekinn, maður fæddur 1972. Lögreglan verst allra frétta, en Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrota- deildar Ríkislögreglustjóra, segir aðspurður að sífellt bætist við lausa- fjármunir sem reynt verður að gera upptæka sem afrakstur ólöglegr- ar starfsemi. „Um Ieið hefur borið á því að fólk er að reyna að skjóta eignum undan með því að skrá þær sem eign annarra. Það gefur augaleið, að fólk sem tekur þátt í slíku er að kalla yfir sig sjálfstæða refsiábyrgð," segir Jón. - FÞG Engidalsskóli einsetinn Ný og glæsileg við- bygging við Engi- daísskóla í Hafnar- firði var tekin í notkun í gær þegar bæjarstjórinn, Magnús Gunnars- son, afhenti skóla- stjóranum, Hjör- dísi Guðbjörns- dóttur, lyklavöldin. Fyrst fékk Magnús lyldana frá verktak- anum Friðjóni & Viðari og kom það í hlut Friðjóns Skúlasonar af skila verkinu til bæjar- stjórans. Með þessu er Engidals- skóli annar einsetni skólinn í Hafnarfirði. Auk viðbyggingar var eldra húsnæði endurbætt sem og lóðin í kring. Heildarkostnaður við fram- kvæmdina er um 370 milljónir króna, sem er undir fyrstu áætlunum. MYND: E.ÓL.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.