Dagur - 25.09.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 25.09.1999, Blaðsíða 6
6 - LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1999 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: elías snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: í.goo KR. A MÁNUÐl Lausasöluverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is - gunnarg@dagur.is Sfmar auglýsingadeildar: (reykjavík)S63-i615 Amundi Amundason (AKUREYRI)460-6191 Gunnar Gunnarsson 460-6192 Gréta Björnsdóttir Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyro ssi 6270 (reykjavíK) Eiirn deyr á dag í fyrsta lagi Nýbirtar niðurstöður úr hóprannsókn Hjartaverndar sýna með sláandi hætti hve risavaxið heilbrigðisvandamál reykingar eru. Samkvæmt rannsókninni deyr um einn Islendingur á dag af völdum reykinga, eða um 370 manns á ári. Þetta þýðir að rekja má fimmta hvert dauðsfall til reykinga og ef einungis er skoð- að fólk á „besta aldri“ þá er ljóst að þriðja hvert dauðsfall fólks á aldrinum 35 - 69 ára má rekja til reykinga. í ððru lagi Það er fróðlegt að reyna að gera sér í hugarlund viðbrögð sam- félagsins ef þessar dánartölur væru tilkomnar af einhveijum öðrum ástæðum. Ef t.d eitt banaslys yrði á dag í umferðinni, eða eitt sjálfsvíg, eða eitt dauðsfall vegna matareitrunar eða mengunar svo einhver dæmi séu tekin. Slíkt yrði meðhöndlað sem neyðarástand sem kallaði á umfangsmildl og skjót við- brögð. Samt tökum við því af umburðarlyndi, nánast af æðru- leysi, að á hverjum degi hefur einn fslendingur reykt sig í hel. Þá er ekkert sagt um hvað það kostar skattgreiðendur að borga fyrir nauðsynlega en dýra og flókna heilbrigðisþjónustu vegna reykingatengdra sjúkdóma! 1 þriðja lagi Hér á landi hafa menn staðið í ýmis konar tóbaksvömum og reglur hafa verið settar um reykingar á vinnustöðum og á al- mannafæri. Þetta hefur þó borið sorglega lítinn árangur og reglur um reykleysi eru víðast virtar að vettugi. Niðurstöður Hjartaverndar ættu að brýna bæði stjórnvöld, foreldra og allan almenning til að styrkja varnirnar til mikilla muna. Reykingar íslendinga eru enginn venjulegur heilbrigðisvandi, þær eru ekkert annað en hamfarir. Við þeim þarf að bregðst sem slík- um. Birgir Guðmimdsson Uppskrift að eilifti Tifi Það fór hrollur um Garra þeg- ar hann las að fimmta hvert dauðsfall sé af völdum reyk- inga. Tölfræðin er ólygin og samkvæmt ítarlegum og áreið- anlegum útreikningum deyja 80 af hundraði af einhveijum öðrum orsökum en reyking- um. Það er að segja ef yfirleitt er gert ráð fyrir að fólk deyi í svona reiknikúnstum. Ef rýnt er í fréttaflutninginn um þá fífldirfsku að vera nikótínisti og reykja sjálfan sig ofan í gröfina, er hvergi getið um að aðrir fari yfir landamærin miklu. Því sýnist það vera ávísun á eilíft Iíf, að hætta að svæla tóbak og venja sig á svo hættulega fíkn. Garri er svo mikill bindindismaður á tóbak, að hann hef- ur oftar hætt að reykja en flestir aðrir. Alltaf þegar vísindin og tölfræðin bjóða honum eilíft líf hérna megin grafar er slökkt í síð- ustu sígarettunni og heilbrigt líferni tekur við. Keyptur er nýr skokkgalli og ársáskrift að kropparæktinni Kynþokkabót og Stína frænka lánar fúslega hundinn sinn svo maður geti nú tekið út þegar hlaupið er gegnum grillbrækjuna hjá ná- grönnunum. Þama sitja þeir með illa grillaða kjúklinga, kúluvambir og bjórkippur og menga tilveruna með sígarett- um og vindgangi sem stafar af óhóflegri nautnasýki. Hættumar Þegar Snati hennar Stínu hleypur tignarlega, með Garra hangandi í bandi á eftir sér, fram hjá þeim biðsölum dauð- ans sem nágrannarnir hreiðra um sig í, vorkenna þeir vesal- ingunum sem eru að reykja, éta og drekka sig í hel. Ef þeir lifa ekki nógu lengi til að bilað hjarta og ónýt Iungu geri út af við þá, mun sprelllifandi kjúklingabakterían á grillinu áreiðanlega gera það fljótt og vel. Alltaf þegar Garri hættir að reykja fyllist hann þakklæti fyrir að vera ekki eins og hinir þrælar fíknarinnar og sýnir þeim mikla umhyggju. Allir öskubakkar út í tunnu og reykingar bannaðar í helm- ingnum af garðin- um, hvað sem kerl- ingin á efri hæðinni íjasar. I vinnunni og Iionsklúbbnum eru fluttir magnað- ir fyrirlestrar um skaðsemi reykinga en erfitt er að telja bridsfélögunum hug- hvarf því þeir eru steinhættir að láta vita hvar spilakvöldin eru haldin. En þegar frá Iíður tekur Garri eftir því að fólk sem aldrei reykir deyr líka. Þetta veldur heilabrotum og hugar- angri og draumsýnin um eilífa jarðvist hverfur. Því ekki að njóta lífsins meðan það varir og hvernig verður það betur gert en að teyga af nægtahorni nautnanna, þangað til næsta áróðurshrina gegn reykingum hefst. Vonandi verður Snati hennar Stínu enn lifandi þá svo að hægt verið að hætta að reykja með stæl. GARRl JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar Sú var tíðin að mjólkin flaut og freyddi eftir bikarúrslitaleiki í fótbolta. Þá var keppt um mein- hollan mjólkurbikarinn og jafn- vel gagnkynhneigðustu bindind- ismenn hrifust þegar Iæraprúðir og stæltir sveinar jusu og gusuðu nýmjólkinni allt um kring og mjólkurtaumarnir runnu niður sveitt en sigurglöð andlitin. A morgun fer fram úrslitaleik- ur í bikarkeppninni. En að þessu sinni eru sigurlaunin ekki sjálfur mjólkurbikarinn og af umræðu síðustu daga um samtvinnun öls og íþrótta mætti ætla að hér væri tekist á um bjórbikarinn eða bús- bikarinn. Alltént er öruggt að ekki verður skálað í mjólk að leik loknum á Laugardagsvelli. En það var reyndar ekki heldur gert þegar mjólkurbikarinn var og hét, mjólkin var þar aðeins til út- vortisnota og ekki var að sjá að leikmenn létu svo mikið sem Hvér stal mjóLkur Mkamiun? mjólkurdropa inn fyrir sínar var- ir í öllu sullumbullinu. Þannig að það hefur kannski ekki svo mikið breyst þrátt fyrir allt. Leik- menn fagna sigri með kampavíni og öli, eins og þeir hafa flestir gert frá því fót- boltalandið byggðist. Mjólk var góö Sitthvað annað hefur hinsvegar breyst í boltan- um á fáum árum. Áratugum saman var spilað fyrir ánægjuna og árangurinn. Nú er reyndar líka spilað fyrir árangur og ánægjuna, en einnig og ekki síð- ur fyrir aurana. Ungmennafél- agsandinn er löngu horfinn úr íþróttinni og áhugamennskan að mestu leyti líka. Fótboltinn snýst ekki síst, eins og annað í þessu samfélagi, um peninga. Knatt- spyrnumenn gegna margvísleg- um hlutverkum þessa dagana. Þeir eru (þegar vel tekst til) eins og áður að skemmta sér og öðrum. En þeir eru líka orðnir Iaunþegar inni á vellinum og gegna um leið hlutverki hluta- bréfa, þeir eru fjáríestingar fyr- ir félagið sitt og ganga kaupum og sölum ef svo ber undir. Og sjálfsagt ekkert við það að athuga, að þeirri forsendu gef- inni að boltinn sé orðinn bisniss og viðurkenndur sem slíkur. Og ef bisnessvæðing fótboltans verður til þess að Ieikmenn skapi sér atvinnu, hafi meiri ánægju af því að spila, Ieiki þar af leiðandi betur og auki þannig skemmt- anagildi íþróttarinnar fyrir áhorf- endur, þá er þetta örugglega allt til góðs og hægt að skála fyrir því á næsta fótboltapöbb, þannig að hann skili líka hagnaði ekki síður en rekstur knattspyrnudeildar félagins. En þá er líka rétt að vera ekki að hræsna með því að flagga verulega gömlum ungmennafél- agsgildum og frösum á borð við ræktun lýðs og lands, heilbrigð sál í hraustum líkama, markmið- ið að vera með, að taka tapi með sæmd og mjólk er góð. Svoleiðis píp kemur aldrei til með að hækka verð á hlutabréfum veru- lega. Áfram KR! Áfram ÍA! SDs^tr sváirad Hverju spáirþú um bik- arúrslitaleik KR ogÍA? Björn S. Lárusson fréttaritari Útvarpsá Skaganum. “Þetta verður markaleikur. Markamask- ína Skaga- manna fer í gang í þess- um leik og hann fer 3 - 2 fyrir Skag- ann. Mörkin skora þeir Kári Steinn Reynisson, Stefán Þórðarson og Ragnar Hauksson. Ég held að aldrei hafi verið jafn mikil stemmning í kringum bikarleik einsog nú, bæði hér á Skaganum og eins í vesturbænum. Stemmningin hér í bæ er mikil og eins er mikið fjallað um KR-inga í fjölmiðlum. En sem betur fer upplifum við ekki stemmningu eins og nú ger- ist með KR-ingar nema á þrjátíu ára fresti.“ Sigtirjón Magnús Egilsson blaðamaðurog KR-ingur. “Þetta verður öruggur og sanngjarn sigur KR- inga, þrjú mörk gegn engu. Mörk- in skora þeir Einar Þór Daníelsson, Sigurður Orn Jónsson og Þor- móður Egilsson, sem ekkert mark hefur skorað í sumar og skuldar því í rauninni eitt slíkt. Það hefur sýnt sig í sumar að KR-ingar eru sannkallaðir Islandsmeistarar og það í öllum flokkum og því er eðlilegt að búast við sigur þeirra í þessum bikarleik." Eðvarð Ingólfsson söknarprestur á Akranesi. “Mínir menn vinna þenn- an Ieik með tveimur mörkum gegn einu. Pálmi Har- aldsson skor- ar annað markið og Ragnar Hauksson hitt. Ég tel að við Skagamenn getum unað vel við árangur okkar manna í deild- inni í sumar, en nú eru þeir í flórða sætinu. Ég er viss um að Olafur Þórðarson muni gera góða hluti með liðið í náinni framtíð." Bubbi Morthens tónlistannaður. “Úrslit Ieiks- ins verða tvö mörk gegn engu og mörkin skora þeir Bjarki og Gummi Ben. Svona fer nú leikurinn vegna þess að Skagamenn eru einfaldlega lé- legir, það sýndi sig til daemis afar vel í Ieiknum á móti ÍBV. Það voru líka mistök hjá þeim að fá Ólaf Þórðarson inn sem þjálfara, þó það sé lfka engin spurning að hugur Akurnesinga stefni til þess að gera virkilega góða hluti í bolt-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.