Dagur - 25.09.1999, Page 10

Dagur - 25.09.1999, Page 10
FRÉTTIR nan Tilboð Kr. 17.990,- • Motorlift 2000 • Rofi á vegg • Tvær fjarstýringar • Neyðarstop HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is ^SUZUKI 1 1 1 Komdu i reynslu- akstur! SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is Hefur þú séð svona vevð á 4x4 bíl? • Mest seldi bíllinn í Japan(l), annað árið í röð. • Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll. • Skemmtilegur bíll meomiklum staðalbúnaði: ABS hemlalæsivörn (4x4), rafdrifnu aflstýri, loftpúðu samlæsingu, o.m.fl. Ódýrasti 4x4 bíllinn á Islandi ilMlllllliltllllllMIIIII llllllllllllilllllllllll GL 1.099.000 KR. GL 4x4 1.299.000 KR. Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll * Askrifta ■'v ■- % . Y ‘ rsíminn er 8oo 7080 Úr verslun KEA Nettó a Akureyri. Verðköimimiu leiddi í ljós að 1% verðmuuur er á Nettð á Akureyri og í Reykjavík þar sem verslimin á Akur- eyri er ódýrari en ekki var mælanlegur munur á verslunum Hagkaups á Akureyri og í Reykjavík Verðkönnun Neytendasamtak- anna, í samstarfi við verkalýðsfé- lögin á Eyjafjarðarsvæðinu, sem gerð var 14. september sl. leiddi í ljós að lægsta vöruverðið er í KEA-Nettó, en næst koma Hag- kaup, KEA í Hrísalundi og Hrað- kaup í Kaupangi. Um beinan verðsamanburð er að ræða, en ekki var lagt mat á þjónustustig, sem er mismunandi. Könnunin var gerð f sex verslunum á Akur- eyri, þ.e. auk áðurgreindra versl- ana, í KEA í Sunnuhlíð og KEA í Byggðavegi og í Svarfdælabúð á Dalvík. Könnunin var gerð sam- tímis í öllum verslununum og ekki tilkynnt að um verðkönnun væri að ræða heldur höguðu þátttakendur sér eins og þeir væru í verslunarferð. Með þess- um hætti telja Neytendasamtök- in að vöruúrval verslananna end- urspeglist best á þeim tíma sem verðkönnun er gerð, og einnig er komið í veg fyrir misferli. Verðkönnunin leiddi í ljós að 1 % verðmunur er á Nettó á Ak- ureyri og í Reykjavík þar sem verslunin á Akureyri er ódýrari en ekki var mælanlegur munur á verslunum Hagkaups á Akureyri og í Reykjavík. Hæsta verðið í úrtakinu er í KEA í Sunnuhlíð en þar er einnig mesta verð- hækkunin frá síðustu verðkönn- un Neytendasamtakanna 29. júní sl., eða 6,1% en 2,2% í Hag- kaupum sé miðað við að meðal- verð sé 100 í þeim verslunum sem f könnuninni voru. Mesta verðlækkunin er í KEA Nettó, eða 1,6% og 1,2% í Hraðkaup- um. I KEA í Hrísalundi og Svarf- dælabúð lækkaði verð um 0,4%frá könnuninni 29. júní sl. - GG Norræn skoðun á viimulyftimi Hér má sjá körfulyftu að störfum en óhöpp hafa verið hvað tíðust í notk- un slíkra vinnulyftna. - mynd: vinnueftirutið Á fundi forstjóra norrænu vinnueftirlitsstofnananna á síð- asta ári var ákveðið að gera átak í að kanna ástand færanlegra vinnulyftna. Tilhögunin verður sú að samdægurs á næstunni munu eftirlitsmenn á Islandi, í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð skoða vinnulyftur í sínu Iandi. Sömu öryggisatriðin verða tekin til athugunar með sömu vinnuaðferð. Hér á landi mun skoðunin fara fram á veg- um Vinnueftirlits ríkisins í öllum landshlutum samtímis, eins og áður sagði. Ekki verður gefið upp hvaða dag þetta verður. Að sögn Hauks Sölvasonar, deildarstjóra farandvinnuvéla- deildar Vinnueftirlitsins, hefur þróunin orðið sú á undanförn- um árum að dregið hefur úr notkun vinnupalla og Iausra stiga í byggingarvinnu og notkun vinnulyftna stóraukist að sama skapi. Vinnan fer oftast fram í margra metra hæð og því er tölu- verð hætta á alvarlegum slysum og óhöppum. Að sögn Hauks eru 355 vinnulyftur skráðar f notkun hér á landi, þar af eru 243 á höf- uðborgarsvæðinu. Markmiðið með átakinu er þríþætt; að draga úr hættu á slysum og óhöppum, hjálpa þeim, sem bera ábyrgð á vinnu- lyftunum, til að hafa öryggisbún- aðinn í Iagi og gera tilraun með samræmt skoðunarátak á Norð- urlöndum. Sameiginlegar niðurstöður í öllum löndunum verða birtar op- inberlega. Þær verða m.a. notað- ar til að gera forvarnarstarf markvissara og einnig til að bera ástand þessara mála saman í við- komandi löndum. — BJB

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.