Dagur - 30.09.1999, Page 2

Dagur - 30.09.1999, Page 2
2 - FIMMTVDAGUR 3 0 . SEPTEMBEK 1999 FRÉTTIR Fræðslumiðstöð Reykjavikur og námsflokkarnir kynntu í gær tölvunámskeið fyrir eldri borgara sem fram fara í nokkrum grunnskól- um borgarinnar á næstunni. - mynd: teitur Ungir kenna og aloraðir læra Fræðslumiðstöð og Náms- flokkar Reykjavíkur bjóða öldruðum borgarbúum að læra á tölvur hjá nemend- um í sex grunuskólum borgarinnar. „Það er búið að tala um það svo lengi sem ég hef verið í stjórnmálum að reyna að efla tengsl barna við eldra fólkið í borginni. En einhvern veginn hefur það nánast aldrei gengið upp, þar til nú að þetta samband er komið á. Það er búið að undirbúa mörg verkefni í þessa veru, en fyrst og fremst er hér að fara af stað tölvunámskeið fyrir eldri borgara í 6 grunnskólum í borginni, þar sent nem- endur valdir af tölvukennurum skólanna kenna öldruðum á tölvur,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir, formaður Fræðsluráðs í gær, þar sem þessi nýjung var kynnt í tölvustofu Langholtsskóla. Tölvukennsl- an verður einnig {boði í Breiðholtsskóla, Hagaskóla, Háteigsskóla, Hólabrekku- skóla og Rimaskóla. Námskeiðin eru fimm sinnum 90 mínútur og kosta 3.700 krónur. Ahersla verður Iögð á tölvupóst og notkun Netsins. Engar kröfur eru gerðar um vélritunarkunn- áttu eða annað, þótt slíkt geti komið sér vel. Á viðráðanlegu verði Sveinsína J. Jónsdótir var fyrst til að skrá sig í námskeiðið, hafði reyndar áður viðrað þá skoðun sína að opna þyrfti eldri borgurum aðgang að tölvunám- skeiðum á viðráðanlegu verði. En hvað vakti áhuga hennar fyrir tölvunámi? „Það vildi nú svo til að krakkamir mínir voru að endurnýja og gáfu mér gömlu tölvuna. Eg fékk þá áhuga á að læra eitthvað á hana og finnst þetta gott tæki- færi. Vona að ég geti kannski í framtíð- inni notfært mér frístundirnar til að finna áhugaverð efni gegnum tölvuna sem þannig stytta mér stundir, því nú hefur maður orðið svo góðan tíma til að gera það sem áður var ekki tími til.“ Sveinsína sagði sér lítast mjög vel á það að unglingarnir komi inn i þessa kennslu. „Kannski getur það Iíka orðið til að brúa lítillega bilið sem orðið hefur millí kynslóðanna." MiMll tölvuáhugi meðal aldraðra Jón Helgason, formaður framkvæmda- nefndar Árs aldraðra, sagðist binda miklar vonir við að þetta. „Þetta kemur beint inn á það sem kannski er einna brýnast fyrir aldraða til að fylgjast með og vera í góðu sambandi við umheiminn og jafnframt að tengja saman kynslóð- irnar." - Taldi Jón þetta verkefni vel und- irbúið og hafið á þann hátt að líklegt sé að þetta verði árangursríkt. Þetta gefi jafnframt fyrirheit um að aldraðir komi til með að eiga kost á tölvunámi á við- ráðanlegum kjörum. í tilraunaverkefni sem efnt var til f samvinnu við tölvuskóla fyrr á árinu hafi gífurlegur áhugi meðal aldraðra fyrir tölvunámi komið glöggt í ljós og jafn- framt að finna þyrfti leið til að gera þeim þetta ekki allt of dýrt. Þetta hafi síðan byrjað f Garðabæ í fyrravetur og tekist mjög vel. „Og hefur nú vaxið svona miklu örar en ég þorði nokkurn tíma að vona. Um Ieið gegnir þetta þvf gífulega mikilvæga hlutverki að tengja kynslóð- irnar saman. Sumir segja að tölvur ein- angri fólk, en tölvurnar eru Iíka tæki til að auka mannleg samskipti," sagði Jón, sem sagðist aðspurður hafa farið á tveggja daga tölvunámskeið fyrir nokkrum árum, en nú þurfa meiri fræðslu, þegar tími gæfist til. - HEI jDnptr Pottverjar hafa mikinn áhuga á nýja fisksölurisanum, eða SÍS, eins og þeir kalla nýja SÍF hf. í pottinum í gærmorgun voru menn að ræða stöðu Friðriks Páls- sonar, íýrrum forstjóra SH, sem nú er orðinn stjórnarformaður nýja risans sem veltir litlum 50 milljörðum króna. Fall er farar- heill, varð einum pottveija að orði og átti þá við brotthvarf hans frá Sölumiðstöðmni síðastliðið vor. Upp frá þvl hefur vegur Friðriks vaxið á ný. Ekki nóg með að hann er stjómarformaður SÍF h.f. heldur er hann einnig stjómarformaður Landssímans, sem rúllar 12 milljörðum til og frá árlega. Með báðum þessum virðulegum stól- um töldum telja pottveijar óhætt að fara að tala umFriðrikmikla... Pottverjar kíktu á vefsíðu Lund- únablaðsins The Times, sem sagði frá því sl. laugardag að Ólafi Ragnari Grímssyni forseta hefði mistekist að bræða hjarta Dorrit Moussaieff. í gær var komin önn- ur grein, merkt Alex O’Connell og Hildi Helgu Sigurðardóttur, með fyrirsögninni „Icelandic leader who fell in love falls again“. Pott- verjum fannst fyrirsögnin í þeim anda að Bretar væru að gcra gys aó forseta voram, en líklega cra þeir á enska Tímanum bara fúlir yfir því að samband Ólafs Ragn- ars og Dorrit sé alvarlegra en frétt þeirra um síðustu helgi gaf í skyn. Pottverjum fannst cinnig athyglisvert að sjá nafn Hildar Helgu spyrt við þessa frétt, en hún hefur þótt helsti sérfræðing- ur okkar í brcska aðlinum... Ólafur Ragnar Grímsson. FRÉTTAVIÐTALID GunnarPáll Pálsson forstöðumaðurliagdeildarVerslun- armannafélags Reykjavíkur Um 20% kaupmáttar- aukninghjá staifsfólki í smásöluverslun og 50% hjá fjármálafyrirtækjum. Launataxtar úr takti við raunveruleikann. Maikaðs- laun í stað lágmarkslauna. Launaleiðréttingar sam- kvæmtlaunakönnun. Skipt- ar skoðanir í atvinnulífinu. 1 Um 29% laimamuniir á - Hverjar voru lielstu niðurstöður í kjara- vísitölu VR d úrunutn 1990-1998 sem þið voruð að hynna? „Það er í fyrsta lagi að launahækkanir eru mjög mismunandi eftir atvinnugreinum. Kaupmáttaraukinn hefur verið þetta frá 20% í smásöluverslun og upp í 50% hjá fjármála- fyrirtækjum. Mönnum dettur í hug að skýr- ingar á þessu séu m.a. einkavæðing og þensla sem skapaðist í kringum það og þegar menn fóru að keppast um starfsfólk. Þá er hugsan- legt að við höfum náð hærra hlutfalli af sér- fræðingum inn í félagið okkar sem áður stóðu kannski fyrir utan það.“ - Hvað með aukningu kaupmáttar launa? „Það er ljóst að 3-4 síðustu ár hafa verið mesta tímabil kaupmáttaraukningar lýðveld- istímans.ÍMiðað við þessi ár og reynsluna í 30 ár þariá undan, þ.e. verðbólgutíminn, þá kemst ég að þeirri niðurstöðu að almennir launþegar tppa á verðbólgu. Eg kemst líka að þeirri niðurstöðu að launaliður kjarasamn- inga er úr takt við raunveruleikann. Við erum t.d. með taxtana á bilinu 66-84 þúsund krón- ur á mánuði á sama tíma og meðal dagvinnu- laun í VR eru 161 þúsund krónur á mánuði. Af þeim sökum hefur m.a. komið fram sú hugmynd að hverfa frá því sem við köllum kjarasamninga Iágmarkslauna yfir í marks- aðslaunasamninga. I nágrannalöndunum sjá- um við þetta útfært jjannig t.d. að það er ekki kveðið á um neinar kauphækkanir í kjara- samningum. Þess í stað eiga menn að fá leið- réttingar á launum miðað við launakannanir sem gerðar séu. Þannig að launakönnunin verður í rauninni „launataxtinn.11 - Er þetta eitthvað setn menn eru að gæla við gerð komandi kjarasamninga? „Já. Ég hef lagt til að við mundum hafa kannski hefðbundna kauphækkun í upphafi samningstímans en að þessi markaðslaun yrðu hugsanlega tekin upp að ári. Það má líka hugsa sér einhverja blöndu þannig að yrði einhverskonar lágmarkskauphækkun uppá 2%. Ég hallast þó frekar að því að það mundi frekar halda kauphækkunum niðri.“ - Hafið þið eitthvað rætt þessa nýjung við atvinnurekendur? „Já, við höfum að kynnt þetta. Þeir sjá þessu helst til foráttu að það séu ekki til nógu vandaðar launakannanir hér á landi. Það segja þeir að minnsta kosti. Án þess að ég geti nokkuð fullyrt það þá held ég að það sé ágreiningur innan þeirra raða hvernig eigi að milli kynja fara í þessa kjarasamninga. Ég held að iðnað- urinn og fiskvinnslan vilji stefna þessu í mið- stýrða samninga. Ég hugsa að aðrir hlutar at- vinnulífsins væru tilbúnir að skoða einhverj- ar svona nýjar leiðir." Hvað kom út úr kjarakönnun ykkar? „Það er um 29% launamunur á milli kynja í heildarlaunum. Launamunurinn er hins- vegar um 18% á milli kynja þegar fer saman sama starf og sami vinnutími og þessi launa- munur fer vaxandi. í peningum talið eru heildarlaun karla 214 þúsund á mánuði, en 164 þúsund hjá konum. Við höfum m.a. brugðist við þessu með auglýsingum í sjón- varpi til að reyna að minnka þennan mun. Það hefur einnig verið rætt hvernig sé hægt að binda það í kjarasamninga. Það er ljóst að atvinnurekandinn ákveður þennan launa- mun. Við höfum þá trú að hann sé kannski að gera það ómeðvitað vegna þess að hann hefur ekki nógu góða mælikvarða á vinnu- framlag einstaklingana. Þannig að við erum að reyna að pína atvinnurekendur til að taka faglega á starfsmannamálum, starfsmati og framlagi einstakra starfsmanna." — GRH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.