Dagur - 30.09.1999, Blaðsíða 12

Dagur - 30.09.1999, Blaðsíða 12
12 - FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999 Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio ctipfstophep UiíiBm gesuRRection Fimmtud. kl. 21 & 23 :'.|=i| B.í. 16 Fimmtud. kl. 19 Miðctuei'ð: Yncjri en 6 tirci 400 Iti*. -El.tli'i en 6 cim 650 lci-. QDS D I G I T A L ULJffiU DIGITAL Sýnd kl. 21 Sýnd kl. 17 lottasta hetja sem sett befur verið sama er komin á huita tjaldið! Maltheuv Broderick og Rupert Everet fara á kostum í frábærri myni). Sýnd kl. 18 og 21 - B.i.14 Sýnd kl. 19 - B.i.16 I^ir ÍÞRÓTTIR Úrslit leikja í gærkvöld Handbolti 1. deild karla ÍR - Stjarnan 23-18 Haukar - Fram 28-29 Valur-HK 21-15 Afturelding - FH 29-22 ÍBV - Fylkir 24-23 Víkingur - KA 17-27 Fótbolti Meistaradeild Evrópu Lazio - Maribor 4-0 B. Leverk. - Dynamo Kiev 1-1 Barcelona - Arsenal 1-1 AIK Solna - Fiorentina 0-0 Rosenborg-Bor. Dortmund 2-2 Boavista - Feyenoord 1-1 Króatia Zagreb-Sturm Graz 3-0 Man. United - Marseille 2-1 Ármann Björnsson. Ármanntil Stabæk eða LUleström? Armann Bjömsson, markahrókur Sindra frá Hornafirði, hefur verið við æfingar hjá norska liðinu Lil- leström undanfama viku. I spjalli við Dag sagðist Armann vera ánægður með dvölina hjá félaginu og sagði að það hafi boðið honum samning, sem hann eigi eftir að skoða nánar. Til stóð að Ármann færi einnig til að sýna sig og skoða aðstæður hjá fyrstudeildarliðinu Haugasund en af því varð ekki þar sem Lilleström vildi hafa hann lengur til skoðunar. Dagur hefur heimildir fjTÍr því að Stabæk hafi einnig áhuga á að skoða Hornfirðinginn sem skoraði 36 mörk fyrir Sindra í sumar. Vignir er hér í hörkuglímu við bandarískan júdókappa. Frábært hjá Vigni Vignir Go Stefansson, júddkappi lir Ár- manni, sem nú stund- ar æfingar og keppni í Texas í Bandaríkjun- um, er heldur betur að gera þad gott í keppnum vestra. Enn og aftur er Vignir G. Stef- ánsson, júdókappi, að ná frábær- um árangri á júdómótum í Bandaríkjunum. Vignir, sem keppir fyrir háskólann í Dallas í Texas, tók fyrr í mánuðinum þátt í stórmóti í Louisianafylki og vann þar enn einn sigurinn í -73 kg flokki. Alls voru níu þátttak- endur skráðir til keppni á mót- inu í hans flokki, þar af sex með svart belti og vann Vignir allar sínar viðureignir á Ippon, eða fullnaðarsigri. Eftir mótið var Vignir valinn í „Texas All-Star“ liðið, sem keppti við sjö önnur fylkis- og háskólalið. Það er ekki að því að spyija, að lið Vignis vann þá keppni og tapaði Vignir þar ekki einni einustu glímu. Helgina 18.-19. september keppti Vignir svo á mjög sterku móti í Boston, þar sem mættir voru keppendur frá öllum fylkj- um Bandaríkjanna, auk kepp- enda frá Kanada og frá „Tht Olympic Training Center" í Kali- forníu, þar sem bestu júdómenn Bandaríkjanna æfa. Tíu júdómenn voru þar skráð- ir til keppni í -73 kg flokki og var lágmarksgráða svart belti. Keppnin varð því mjög hörð og endaði með því að Vignir stóð uppi sem sigurvegari, eftir að hafa aftur unnið allar sínar jglím- ur með fullnaðarsigri. I úr- slitaglímunni lenti hann á móti Kanadamanni og vann hann eft- ir 90 sek. Eftir mótið var Vignir valinn „maður mótsins", fyrir framúrskarandi árangur. Ami Gautur til Stabæk? Árni Gautur Arason gæti veriö á leiðinni til Stabæk. Góður kostur, segja forráða- menn Stabæk. Þjálfar- ar Rosenborgar ekki sammála um íslend- inginn. Jöm Jamtfall ekki ndgu góður fyrir meistarana. Eins og Dagur greindi frá í sumar hefur norska liðið Stabæk áhuga á landsliðsmarkverðinum, Árna Gauti Arasyni. Frode Olsen, markvörður Stabæk, hefur ekki staðið undir væntingum eftir að hann fór í fylu þegar félagið neit- aði að selja hann til Wimbledon í vor. Framkvæmdastjóri Stabæk, Tom Schelvan, sagði í samtali við Dag að meiri líkur en minni væru á því að Olsen yfirgæfi Stabæk eftir tímabilið og Islendingurinn hjá Rosenborg, Árni Gautur Ara- son, væri góður kostur. Ámi Gautur fyrir Olsen Nú er komin upp sú staða að svo gæti farið að Rosenborg og Sta- bæk skipti á markvörðum. Olsen færi til Rosenborgar, þar sem hann var fyrir 10 árum, og Árni Gautur kæmi í staðinn til Sta- bæk. Forráðamenn Rosenborgar eru langt frá því ánægðir með frammistöðu aðalmarkvarðar síns, Jörn Jamtfall, en svo virðist sem Nils Arne Eggen, þjálfari liðsins, treysti Árna Gauti ekki ennþá til að taka við af honum þrátt fyrir að Árni hafi staðið sig mjög vel í þeim leikjum sem hann hefur leikið fyrir meistarana. Norska íþróttapressan er ekki í vafa um að Islendingurinn eigi að verja mark Rosenborgar. Það er markvarðarþjálfari liðsins, Ola By Risa, líka. En það er ekki hann heldur Nils Arne sem velur liðið og þar við situr. Betri kostur I spjalli við Dag í gær sagðist Árni Gautur aðeins hafa heyrt af áhuga Stabæk í gegnum Islend- ingana sem þar léku, Pétur Mart- einsson og Helga Sigurðsson. Sjálfur sagðist hann ekkert hafa heyrt frá forráðamönnum Bærum Iiðsins. Hann sagði þó að Stabæk væri betri kostur en varamanna- bekkurinn hjá Rosenborg. Samningur Árna Gauts við norsku meistarana rennur út eftir næstu leiktíð. Hann er því með góða samningsstöðu þar sem hann hefur vakið athygli bæði í Noregi og í Evrópu með frammi- stöðu sinni í Meistarakeppninni í fyrra. En hvað hyggst Arni Gaut- ur gera? „Eins og staðan er í dag reikna ég bara með því að klára samning minn hérna. Eg verð bara að berj- ast enn meira fyrir sæti í liðinu. Ég var náttúrlega ekkert ánægður þegar mér var kippt út fyrir leik- ina í Meistarakeppninni. En svona er þetta bara. Það kemur svo væntanlega í Ijós hvort Ros- enborg býður mér nýjan samning eða hvort ég fer eitthvað annað.“ - GÞÖ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.