Dagur - 30.09.1999, Qupperneq 3

Dagur - 30.09.1999, Qupperneq 3
n e f. j i ií 'i R v 'c 'I 9 í. v « ili ii i\ *v M M t *í — C FIMMTUDAGVR 30. SEPTEMBER 1999 - 3 Tkyur FRÉTTIR Mörg stórmál biða Alþingis í haust Alþiiigismeim eru sammála um að um- hverfis- og virkjaiia- mál, sala bankanna, efnahagsmál og vax- andi verðbólga og hyggðamálin verði heitu málin á haust- þinginu Alþingi verður sett á morgun, föstudag, en síðan hefst þing- haldið á mánudagskvöld þegar forsætisráðherra flytur stefnu- ræðu sína og umræður um hana hefjast strax á efdr. Að venju verður þeim útvarpað og sjón- varpað. Strax á þriðjudag hefjast svo hin venjulegu þingstörf. Við spurðum nokkra alþingismenn hvaða mál þeir teldu að yrðu aðal mál Alþingis á þessu hausti. Valgerður Sverrisdóttir alþing- ismaður sagði að mörg merkileg mál yrðu til meðferðar á Alþingi í haust. Hún nefndi þar til Schengen-málið, flutning Byggðastofnunar yfir til iðnaðar- ráðuneytisins sem hún telur afar mikilvægt mál og að miklar vonir séu bundnar við að þessi breyting verði farsæl. „Síðan er það auðvitað stóra málið hvort við ætlum að halda Valgerður Margrét Sverrisdóttir. Frímannsdóttir. áfram að nýta auðlindir okkar til Iandsins eða ekki. Inn í þá um- ræðu hljóta atvinnumálin að spinnast. Byggðamálin almennt munu án vafa verða til umræðu og tengjast flutningi Byggða- stofnunar. Loks má ekki gleyma einkavæðingu bankanna og öllu sem því fylgir,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir. Ný lög um lunliveríismat „Það hljóta að verða miklar um- ræður á Alþingi um sölu- og einkavæðingu bankanna og hvort um sé að ræða dreifða eignarað- ild eða ekki. Þá hljóta efnahags- málin og verðbólguþróun síðustu mánaða að verða mikið rædd og viðbrögð við því. Þá hlýtur að verða farið yfir kjaramálin ekki síst í ljósi nýrra frétta um að lítið hafi gengið að jafna kjör milli kynja,“ sagði Margrét Frímanns- dóttir, talsmaður Samfylkingar- innar. Hún segir að það gefi augaleið Steingrímur J. Hjáimar Sigfússon. Jónsson. að umhverfismálin verða fyrir- ferðarmikil strax á fyrstu vikum þingsins og Fljótsdalsvirkjun þá fyrst og fremst. „Menn hljóta líka að gera þá kröfu að lög um umhverfismat, sem átti að breyta samkvæmt EES ákvæðum í mars á þessu ári en var ekki gert verði afgreitt. Við hljótum að gera kröfu til þess að frumvarp sem samið var af nefnd og Iá fyrir í mars til að fullnægja þessum samþykktum, verði af- greitt nú í þingbyrjun," segir Margrét Frímannsdóttir. Stærsta þjóðfélagsvanda- málið „Það eru fjögur mál sem ég tel að standa muni upp úr í umræðunni á haustþinginu. Það eru í fyrsta lagi umhverfis- og virkjanamálin. I öðru lagi nefni ég einkavæðingu bankanna og hraklega frammi- stöðu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Eg nefni efnahagsmálin og verðþensluna og í Ijórða lagi nefhi ég mál sem ég tel að verði fyrirferðarmikið en það er hin geigvænlega staða í byggðamál- unum,“ sagði Steingrímur J. Sig- fússon, formaður VG. Hann segir að þessi þungi straumur fólks til höfuðborgar- svæðisins sé svo alvarlegt mál að hjá því verði ekki komist að ræða það. Hann segist telja að þessir fólksflutningar kosti þjóðina tugi milljarða á hverju ári og þetta sé eitt stærsta sameiginlega þjóðfé- Iagsvandamál sem við sé að glíma um þessar mundir. Mikil endumýjim „Eg á von á því að, fyrir utan fjár- lögin, sem tengjast svo mörgu, verði það virkjana- og umhverfis- mál og að sjálfsögðu bankamál. Salan á Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins sem og fyrirhuguð sala á viðskiptabönkunum. Eins getur orðið mikil umræða um Schengen-málið,“ sagði Hjálmar Jónsson alþingismaður. Hann segir að mikil endurnýj- un hafi orðið í hópi alþingis- manna og sömuleiðis ný flokka- skipan að hluta til. Þess vegna séu ýmsir í stjórnarandstöðunni sem vilji taka þar forystuna í að veita stjórnarflokkunum og ríkis- stjórninni aðhald. „Þess vegna gæti þetta orðið hið fjörugasta þinghald," sagði Hjálmar Jónsson. - S.DÓR Styrkirtil náms Sjávarútvegsráðherra, Arni M. Mathiesen, hefur veitt tvo styrki til framhaldsnáms £ greinum í sjávarútvegi. Guðmundur Olafs- son, sem er að hefja doktorsnám í fiskifræði við Dalhousie háskól- ann í Nova Scotia í Kanada, hlýtur annan styrkinn. Rann- sóknir Guðmundar munu bein- ast að hrygningu íslensku sum- argotssíldarinnar í samanburði við hrygningu síldarstofna í norðanverðu Atlantshafi. Guð- mundur mun vinna að rann- sóknum sínum við Dalhousie háskólann og í samvinnu við sér- fræðinga Hafrannsóknastofnun- ar. Margrét Bragadóttir, sem er í meistaranámi við matvælaskor Háskóla Islands, hlýtur hinn styrkinn. Margrét er starfsmaður Rnnsóknarstofnunar fiskiðnað- arins en í náminu mun hún m.a. sækja námskeið við Kaupmanna- hafnarháskóla. Rannsóknarverk- efni Margrétar hefur bæði hag- nýtt og vísindalegt gildi en það fjallar um náttúrurlega þráa- hindrun í loðnuafurðum. - GG Vinstri grænir með aðalfimd Aðalfundur Vinstri hreyfingar- innar - græns framboðs í Reykjavík verður haldinn í kvöld í Iðnaðarmannahúsinu við Hall- veigarstíg. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa flytja þing- menn flokksins í borginni ávörp, þau Ögmundur Jónasson og Kolbrún Halldórsdóttir. Einnig verða kjörnir fulltrúar á lands- fund flokksins í næsta mánuði. Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Ingibjörg Pálmadóttir heiibrigðisráðherra voru á meðal þeirra sem kynntu stefnumótun til framtiðar í heilbrigðistækni. mynd: tbtur Milljarða sóknarfæri MikiII áhugi virðist vera fyrir því að skapa góð starfsskilyrði fyrir iðnað á sviði heilbrigðistækni hérlendis. I nágrannalöndunum veltir þessi iðnaður um 1/3 af heildarútgjöldum til heilbrigðis- þjónustunnar. Til að standa jafn- fætis þessum þjóðum ætti veltan í heilbrigðistækni að vera yfir 20 milljarðar á ári en var tæpir 5 milljarðir árið 1998. Stjórnvöld og hagsmunaaðilar telja því að eftir miklu sé að slægjast í þessari atvinnugrein. Stefnumótiui I fyrradag var kynnt framtíðar- stefnumótun á sviði heilbrigðis- tækni. Þar kom fram að ráðherr- ar heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytis og iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytis hafa lýst yfir stuðningi við stofnun vinnuhóps sem fær það verkefni að byggja upp sam- starfsvettvang um heilbrigðis- tækni. I þessum vinnuhóp munu eiga sæti fulltrúar frá viðkomandi ráðuneytum, Samtökum iðnaðar- ins, Rannsóknarráði Islands, Ný- sköpunarsjóði atvinnulífsins og fyrirtækja á sviði heilbrigðis- tækni. Þarna er um að ræða sam- starf milli fyrirtækja og stofnana um þróun og markaðssetningu heilbrigðistækni í því skyni að reyna að margfalda veltuna í þessari atvinnugrein. Með því er einnig lagt til að fyrirtæki nýti sér þá þekkingu og reynslu sem sé til í .háþróuðu heilbrigðiskerfi lands,-. manna. í þessum efnum horfa menn til þeirrar reynslu og ár- angurs sem náðst hefur á sam- starfsvettvangi iðnaðar og sjávar- útvegs. Forgangsverkefni Tillaga þess efnis kom fyrst fram í verkefnisstjórn sem var á vegum ráðuneytanna tveggja, Rannsókn- arráðs Islands, Samtaka iðnaðar- ins, Heilbrigðistæknifélags Is- lands og fleiri aðila. Jafnframt hafa þessar stofnanir staðið fyrir úttekt sem nær til rannsókna, þróunar og framleiðslu á lyfjum, stoðtækni, lækningatækjum og lækningavörum, sérhæfðum hug- búnaði í heilbrigðisþjónustu, heilsuvörum.og erfðatækni. - GRH Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í fyrradag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjaness yfir einum mannanna sem grunaðir eru um rán í versluninni STRAX í Kópa- vogi fyrr í mánuðinum. Um leið var varðhaldið framlengt um viku, eða til 22. október næst- komandi. Auk gruns um STRAX-ránið er maðurinn grun- aður um aðild að tveimur inn- brotum auk nokkurra óaf- greiddra afbrotamála, s.s. fíkni- efnamála og þjófnaðar. Sáttauefnd sjávarút- vegsius Árni Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að end- urskoða og koma með tillögur til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Beðið hefur verið eftir þessari nefndarskipan með óþreyju af hagsmunaaðilum sjávarútvegsins. Er nefndinni ætlað að taka tillit til hagsmuna sjávarútvegsins, byggðanna og almennings í landinu. Nefndina skipa Friðrik Már Baldursson, rannsóknaprófessor við Hag- fræðistofnun Háskólans, sem jafnframt er formaður, Kristján Skarp- héðinsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðu- neytinu, og þingmennirnir Árni Steinar Jó- hannsson, Kristinn H. Gunnarsson, Sig- hvatur Björgvinsson, Tómas Ingi Olrich og Vilhjálmur Egils- son. Starfsmaður nefndarinnar er Kristín Haraldsdóttir, lög- fræðingur í sjávarútvegsráðu- neytinu. Nefndin fær góðan tíma, því hún á að skila tillögum til ráðherra fyrir 1. september á næsta ári. Kratar skamma stjómina Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur samþykkti nýlega á fundi sínum harðyrta ályktun þar sem ríkisstjórnin fær kaldar kveðjur. I ályktuninni segir m.a.: „Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur, stuðningsfélags Samfylkingarinnar, Iýsir fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórn Dav- íðs Oddssonar vegna þeirrar verðbólguskriðu og skuldasöfn- unar heimila og þjóðarinnar allrar sem teflir stöðugleika efnahagslífsins og afkomu heim- ilanna í tvísýnu. Með veikum tökum á ríkisfjármálum á und- angengnu hagvaxtarskeiði hefur ríkisstjórnin búið illa í haginn fyrir komandi tíð. Ennfremur hefur ríkisstjórnin með fálm- kenndri einkavæðingu opin- berra fyrirtækja og stofnana ýtt undir óvissu og þenslu í íslensku efnahagslífi, en eina ástæðu mikillar útlánaþenslu fjármála- stofnana má rekja til sölu á hlutafé ríkisbankanna." Síðan segir: „Með hverri viku sem líð- ur verður landsmönnum æ bet- ur ljós sá vandi sem við blasir, en ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa til þessa kosið að stinga .höj'ðinu.£.saadinn."...... . Friðrik Már Baldursson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.