Dagur - 30.09.1999, Side 9

Dagur - 30.09.1999, Side 9
8 -FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999 FIMMTUDAGVR 30. SEPTEMBER 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING k. J Trúlega hefur framtíð byggðar í Hrísey aldrei verið eins ðviss og ein- mitt þessa dagana. íbúar eyjarinnar, 232 talsins, standa nú frammi fyrir því að þetta litla samfélag hrynji eftir að lífs- björgin hefur verið flntt úr eyjunni yfir til Dalvfkur. Sá flutníngur fer fram í nafni hagræðingar, rekstrarhagkvæmni og hinnar miskunnarlausu arð- semiskröfu. Fiskvinnslufyrirtækið Snæfell, dótturfyrirtæki KEA, hyggst sameina á einn stað frum- vinnslu sína og fullvinnslu, sem þýðir að pökkunarstöð sem starf- rækt hefur verið í Hrísey mun flytjast til Dalvíkur og tengjast vinnslunni þar. Þung ímdiralda Sú mynd sem blasir við heima- mönnum í Hrísey er ekki glæsileg og er greinilega mjög þung undir- alda gegn KEA, sem mörgum finnst að sé að koma aftan að Hríseyingum og hafa af þeim lífs- björgina. Borgarafundur í Hrísey á dögunum samþykkti áskorun til stjórnarmanna í Kaupfélagi Ey- firðinga um að koma á borgara- fund út í eyju og svara fyrir þessa ákvörðun og var sá fundur hald- inn í fyrrakvöld undir fundar- stjórn sveitarstjórans, Péturs Bolla Jóhannessonar. Til fundar- ins var einnig boðið Benedikt Guðmundssyni hjá Atvinnuþró- unarfélagi Eyjafjarðar, en hann hafði tekið saman skýrslu um áhrif þess á Hrísey, að Snæfell dragi sig þaðan út. Af hálfu KEA komu á fundinn þau Jóhannes Geir Sigurjónsson, stjórnarfor- maður, Guðný Sverrisdóttir, odd- viti í Grýtubakkahreppi og stjórn- armaður í KEA og Snæfelli, Rögnvaldur Skíði Finnbjörnsson, bæjarstjóri á Dalvík og stjórnar- maður í KEA og Snæfelli og Ei- ríkur Jóhannsson, kaupfélags- stjóri KEA og stjórnarformaður Snæfells. Það kom í hlut Benedikts Guð- mundssonar að setja málin i byggðasamhengi og sýna hvað brotthvarf pökkunarstöðvarinnar myndi í raun þýða íyrir samfélag- ið. Boðskapur hans var ekki upp- örvandi. Benedikt gengur út frá þeirri megin forsendu í skýrslugerð sinni að þeir sem missi vinnuna vegna brotthvarfs Snæfells muni flytja úr eyjunni og tekjutap sveit- arfélagsins verði því samsvarandi. Kortlagning hans er athyglisverð. Stærsti laimagreiðandinn Snæfell er stærsti launagreiðand- inn í Hrísey og eru flestir starfs- mannanna 44ra ófaglærðir, ein- hverjir eru iðnmenntaðir og ein- hverjir með tæknimenntun. Fólk- ið hefur nokkuð langan starfsald- ur hjá fyrirtækinu (áður Útgerðar- félagi KEA) eða um 15 ár að með- altali og sá sem unnið hefur lengst hjá félaginu hefur unnið þar í 43 ár. Mikill meirihluti þessa fólks á síðan fasteignir í Hrísey en allir starfsmenn Snæfells búa í eyj- unni, 36 þeirra í eigin húsnæði, 5 í Ieiguhúsnæði og 3 í foreldrahús- um. Það gefur því auga leið að missi þetta fólk lífsviðurværi sitt gæti það aukið enn á vandræði þess að þurfa að selja fasteignir sínar við verði sem væntanlega yrði kaupanda hagstæðara en selj- anda. Margföldimaráhrif Benedikt kynnti einnig útreikn- inga Atvinnuþróunarfélagsins varðandi Iaunagreiðslur og marg- földunaráhrif af brotthvarfi Snæ- fells. Beinar launagreiðslur fyrir- tækisins hafa verið um 78 millj- ónir króna að meðaltali sl. tvö ár. Benedikt taldi eðlilegt að athug- uðu máli að reikna með margföld- unarstuðlinum 1,3 vegna þessarar starfsemi, þannig að ætla má að rétt rúmar 100 milljónir króna í launagreiðslur í Hrfsey megi rekja til starfsemi Snæfells, beint eða óbeint. Samkvæmt þessu hlutfalli telur Atvinnuþróunarfélagið óhætt að áætla að um 23 íbúar til viðbótar við starfsmenn Snæfells og þeirra fjölskyldur hafi lífsviður- væri sitt af starfsemi fyrirtækisins. Þar með er heildartala þeirra sem byggja afkomu sína á starfsemi fyrirtækisins komin upp í 100 manns! Síðan segir í skýrslu At- vinnuþróunarfélagsins: „Ef Snæfell hættir allri starf- semi í Hrísey myndu 43 ársverk af rúmlega 100 hverfa úr atvinnulífi eyjunnar að öðru óbreyttu. 100 af 232 íbúum sem með einum eða öðrum hætti hafa Iífsviðurværi sitt af starfsemi Snæfells þyrftu að finna sér önnur störf sem eldd eru fyrir hendi í Hrísey. Eftir stæði sveitarfélag með um 130 íbúa og tæplega 60 ársverk. Launasumma í sveitarfélaginu væru um 105 m.kr. og meðallaun tæplega 14% undir landsmeðaltali í stað þess að vera 2,2% undir landsmeðaltali." Heimamenn fengu engar góðar fréttir á fundinum. Ákvörðunin um að flytja pökkunarstöðina stendur. væri að þjálfa upp verkkunnátt- una í Hrísey, byggja þar verk- smiðju og setja upp vélar auk þess sem ljóst væri að framboð vinnu- afls í eyjunni yrði að öllum líkind- um mun stöðugra en á Dalvík. Efasemdir uiit stjómendur Tengdar þessu voru efasemdir um að eins mikið tap gæti verið á ein- ingu Snæfells í eyjunni og menn vildu vera láta. I því.sambandi var bent á ótrúlega háar afskriftir og fjármagnskostnað sem fært væri á Hríseyjardeildina og auk þess tal- að um að Dalvíkingar væru Iátnir selja Hríseyingum hráefnið til pökkunar nánast á markaðsverði, sem auðvitað væri allt of hátt. Miklum efasemdum um stjórn- visku stjórnenda fyrirtækisins hafa líka fyrri ákvarðanir Snæfells valdið. Hver fundarmaðurinn á fætur öðrum Iýsti því yfir að al- mennt starfsfólk hafi verið fullt efasemda þegar ákveðið var að staðsetja pökkunarstöðina í Hrís- ey og frumvinnsluna á Dalvík, en stjórn fyrirtækisins hafi hins veg- ar fullyrt kröftuglega að þetta væri hagkvæmt. Nú, eftir tuga og hundruð milljóna útgjöld og íjár- festingu, kæmu menn hins vegar og héldu allt öðru fram og leggðu til einhverjar leiðir sem þeir full- yrtu jafn kröftuglega að væru hag- kvæmar. Fundarmönnum þótti sem sporin hræddu í þessum efn- um, og ekki væri ástæða til að trúa því að stjórnendur hefðu frekar rétt fyrir sér nú en síðast. Raunar var allan fundinn stutt í þá samsæriskenningu að KEA/- Snæfell hefði allan tfmann viljað flytja vinnsluna frá Hrísey, og ein- faldega ekki þorað að taka skrefið til fulls 1997. Síðan væri meint stórtap á Hríseyjareiningunni notað til að réttlæta flutning nú. Hnípnir stjómarmenn Stjórnarmenn KEA voru frekar hnípnir á þessum fundi og aug- ljóst að þeim þótti þetta erfítt mál. Allir voru fullkomlega með- vitaðir um áhrif þess fyrir Hrísey, en töldu það skyldu sína að standa að rekstri Snæfells með þeim hætti sem tryggði fyrirtæk- inu líf. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður KEA, Iagði áherslu á það í sínum málflutn- ingi að staðreyndir málsins væru einfaldlega þær að Snæfell hefði ekki úr nægum kvóta að spila til að starfrækja tvö fullbúin frysti- hús á sama svæðinu. Fyrirtækinu væri einfaldlega ekki stætt á að gera slíkt. Hins vegar ítrekaði Jó- hannes það sem hann hefur áður sagt að KEA væri tilbúið til að koma að einhverjum nýjum rekstri í þeirri aðstöðu sem fyrir Samfélag fellur sainan Augljóslega myndi niðurstaða af þessu tagi gerbreyta öllum innviðum og forsendum þess FélagsheimiHð Sæborg var þétt setið í fyrrakvöid eins og sjá má. Þar brá líka fyrir andlitum þingmanna. myndir: birgir guðmundsson . . Stjórnarmenn í KEA við háborðið. F.v. Eiríkur Jóhannsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Guðný Sverrisdóttir og Rögnvaldur Skíði Finnbjörnsson. samfélags sem nú er í Hrísey. Samkvæmt útreikningum At- vinnuþróunarfélagsins mætti gera ráð fyrir að útsvarstekjurnar minnkuðu um helming og sam- tals myndu tekjur hreppsins minnka um tæp 40% eða úr tæp- um 44 milljónum í tæpar 27 milljónir. I skýrslunni er lauslega skoðað hvað þetta gæti þýtt fyrir einstaka málaflokka s.s. hita- og vatnsveitu, en báðar myndu þær tapa um 17% af tekjum sínum. Augljóslega er fullkomin óvissa um starfsemi annarra stofnana s.s. grunnskólans og veruleg hætta er á að samfélagsgerðin falli hreinlega saman. Alvöruþnmgið andrúmsloft A fundinum í fyrrakvöld lá það því fyrir eftir að Benedikt Guðmunds- son hafði Iokið máli sínu, að hægt væri að fullyrða með fræðilega út- reiknuðum hætti að hrun blasti við í Hrísey. Raunar hefði ekki þurft slíka greiningu til að skynja alvöru málsins á þessum fundi, rafmagnað loftið sagði sína sögu. Engum stökk bros á vör allan fundinn - nema þegar Ásgeir Heið- arsson fundargestur lét það flakka að svarfdælskir bændur hefðu bet- ur látið verða af því að flá lifandi Jóhannes Geir Sigurgeirsson og aðra KEA-stjóra á fundi hér um árið þegar þeir kynntu ákvörðun sína um að leggja af sláturhús á Dalvík. Þá hló salurinn. Og klapp- aði. Jóhannes Geir hafði fyrr um kvöldið nefnt dæmi' af reiði svarf- dælsku bændanna til stuðnings þeim málatilbúnaði sínum að þó sárt sviði núna gæti komið í ljós síðar að ákvörðunin sem tekin var hafi einmitt verið rétt. Finnst þeir sviknir Augljóst er á málflutningi heima- manna á þessum fundi að þeim finnst KEA vera að svíkja sig og flytja lífsbjörgina frá þeim og til annars sveitarfélags. Þröstur Jó- hannsson flutti m.a. skörulega ræðu um það hvernig útgerð og kvóti hafi í áföngum verið færð úr eyjunni og upp á land í tíð Kaup- félagsins. Efnislega var þessi ræða samhljóða grein sem Þröstur skrifaði hér í Dag í fyrradag og birtist í Akureyrarblaðinu. Góður rómur var gerður að máli Þrastar, en í heildina tekið var áberandi hvað heimamenn stöldruðu í raun við fá atriði, sem þeir komu aftur og aftur að. Heimamenn áttu þannig erfitt með að trúa því að það gæti í raun og veru verið hag- kvæmara að flytja pökkunarstöð- ina til Dalvíkur í ljósi þess að búið ■ hendi er í Hrísey. Hann benti líka á að það sem Hrísey þyrfti á að halda núna væri aukin Qölbreytni í atvinnulífinu, það sem væri að gerast núna sýndi kannski betur en margt annað galla þess að treysta um of á einn stóran at- vinnurekanda - sem þar að auki væri að verulegu Ieyti utanaðkom- andi. Jóhannes hvatti menn því til að fara að leita að nýjum mögu- leikum og liafa fjölbreytnina að leiðarljósi. S veitarstj ómarmeim Guðný Sverrisdóttir og Rögnvald- ur Skíði Finnbjörnsson eru bæði sveitarstjórnarmenn í nágranna- sveitarfélögum og fengu á sig nokkra gagnrýni sem slík. Bæði bentu á að þau hefðu líka skyldur sem stjórnarmenn í þessu fyrir- tæki og gætu ekki skorast undan ábyrgð þótt málin væru erfið. Ekkert KEA... Eiríkur Jóhannsson kaupfélags- stjóri var m.a. spurður út í tap- rekstur KEA og Snæfells og kom þá fram hjá honum að hið gríðar- iega tap sem varð á báðum þess- um fyrirtækjum á síðasta ári væri algjörlega óásættanlegt og gerði kröfuna um hagræðingu og hag- kvæmni í rekstri enn brýnni en nokkru sinni. Það yrði hins vegar ekki gert þannig að allir yrðu sátt- ir. Spurningunni um skyldur KEA gagnvart búsetuþróun vítt um Eyjaljörð svaraði Eiríkur einfald- lega á þann veg að það yrði engar skyldur hægt að uppfylla ef það yrði ekkert KEA! Hins vegar sagði hann menn þrátt fýrir allt vera að reyna að haga þessari vamarbar- áttu þannig að það væri byggt upp í leiðinni og nefndi hann í því sambandi sameiningu kjötvinnsl- unnar vítt um land sem gæti gef- ið mikið af sér. Þá svaraði Eiríkur þeim vangaveltum sem fram höfðu komið um háan fjármagns- kostnað og afskriftir þannig að í Hrísey væri einfaldlega stuðst við sömu reglur og annars staðar í fyrirtækinu og að allar ákvarðanir varðandi flutninginn hafi verið teknar eftir að reksturinn var skoðaður fyrir íjármagnsgjöld og afskriftir. Eiríkur tók undir með Jóhann- esi Geir að KEA og Snæfell vildu taka þátt í uppbyggingu í eyjunni, þótt það yrði ekki gert undir merkjum Snæfells. At viimufu 11 trú i Eins og sjá mátti á þessum fundi eru málefni Hríseyjar í miklu uppnámi. Ymsar hugmyndir eru á sveimi, um að nýta sér vistvænt umhverfi eyjunnar og að koma upp sælgætisverksmiðju þar, en það mál bíður nú svars frá Ný- sköpunarsjóði. Hins vegar er Ijóst að ekkert er í hendi varðandi þann bráðavanda sem blasir við þegar pökkunarverksmiðjan fer. Eins og \ið sögðum frá í blaðinu í gær hefur stjórn Byggðastofnunar boðist til að kosta til svæði^ins at- vinnuráðgjafa sem myndi í sam- ráði við sveitarstjórn leita ein- hverra ráða. Á meðan bíða eyja- skeggjar í óvissu. Þeir bíða raunar líka eftir nýrri og stærri Hríseyjar- ferju. I bili á spurningin sem einn fundargesturinn hvíslaði að mér fullkomlega rétt á sér - Hvaða fólk skyldi það verða sem nýja ferjan mun flytja milli Iands og eyjar?

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.