Dagur - 30.09.1999, Page 2
18 — FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999
LÍFIÐ í LANDINU
L. A
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURÐÓRSSON
Hákon Aðalsteins-
son.
Jón Kristjánsson.
Eiríkur vörubílsstjóri
Sem kunnugt er munaði litlu að Eiríkur Sig-
fússon vörubifreiðarstjóri æki á ljóslausan
lögreglubíl sem stóð aftastur í röðinni þegar
bílalest forseta Islands stöðvaði á Fjarðar-
heiði í niðaþoku í síðustu viku. Þarna mun
litlu hafa munað að stórslys hlytist af og var
atvikið mjög umrætt og lögreglan játaði að
hafa gert ákveðin mistök. Síðan var það að
Hákon Aðalsteinsson, hagyrðingur og skóg-
arbóndi að Húsum í Fljótsdal, var í föruneyti
Olafs Ragnars Grímssonar forseta yfir Hell-
isheiði eystri og enn var dimm þoka og þá
orti Hákon:
Þung er í skuuti þokan grú
þekur útsýn tilfjallsins brúna.
Framundan liggur heiðin hd
hvar skyldi Eirikur vera núna?
Jón Kristjánsson þingmaður Austfirðinga orti
þegar hann heyrði vísu Hákonar:
Þótt forsetinn sjúlfur kinkaði kolli
og kannaði liðið sem þarna var.
Afjallið hxgði ‘ann Húkon með hrolli
hann hélt að Eiríkur væri þar.
„Þú veist jaíh vel
og ég að leiðinleg-
asti fylgifiskur
sumra lands-
byggðarmanna er
þreytandi raus um
afæturnar suður í
Reykjavík, sem Iifi
eins og blóm í
eggi á púli heiðar-
legrar alþýðu út á
landi, skemmti sér
í skólum og drekki
rauðvín á kvöldin
eins og pempí-
ur...“ Illugi Jök-
ulsson í svari til
Karls Th. Birgis-
sonar, vegna Eyja-
bakkadeilna, í
Austurlandi
Vel valið
Hinir svo kölluðu ljósku brandarar fara fyrir
brjóstið á mörgum konum. Nú eru í umferð
svipaðir brandarar sem snúið er upp á karl-
menn eins og þessi: Eitt sinn var ungur mað-
ur sem átti þrjár kærustur en gat ekki ákveð-
ið hverri þeirra hann ætti að giftast. Til að fá
úr því skorið lét hann hverja þeirra fá eina
milljón króna og fylgdist síðan með því sem
gerðist. Sú fyrsta keypti ný föt handa sjálfri
sér. Síðan fór hún í rándýra hárgreiðslu,
nudd, hand-og fótsnyrtingu og sagði síðan:
„Eg vil vera falleg af því að ég elska þig.“
Önnur konan keypti myndbandstæki, geisla-
spilara, golfsett og tennisspaða og gaf unga
manninum. „Ég keypti þessar gjafir handa
þér vegna þess að ég elska þig svo mikið.“ Sú
þriðja notaði peningana til að fjárfesta í
hlutabréfum og fyrr en varði hafði hún tvö-
faldað fjárhæðina. Hún færði unga mannin-
um aftur upphaflegu milljónina og fjárfesti
áfram fyrir hagnaðinn. „Ég er að fjárfesta í
framtíð okkar vegna þessa að ég elska þig
sagði hún við manninn.“ Nú var honum
vandi á höndum. Hann íhugaði hverning
þær höfðu varið peningunum og ákvað að
íokum að giftast þeirri sem var með stærstu
brjóstin.
Þremenningarnir sem
sigruðu í vísindakeppn-
inni í Grikklandi. Þeir
heita: Tryggvi Þorgeirs-
son, Páll Melsted og
Sverrir Guðmundsson.
Sigruðu með nýrri
uppgötvun
„Við komumst að því að dreifing
vetrarbrauta er ekki jöfn heldur
sjáum við mikinn þéttleika af fyrir-
bærum á hringlaga svæði í kring-
um miðju vetrarbrautarþyrpingar-
innar. Það er alveg nýtt. Við héld-
um að þama væri um veik þyngd-
arlinsuáhrif að ræða. Svo höfum
við reyndar heyrt þá kenningu að
þyrpingin dragi til sín gasríkar
vetrarbrautir. Við það að falla inn í
þyrpinguna þéttist gasið og það
verður mikil ný stjömumyndun. I
bakgrunninn skoðum við ungar
ljósuppsprettur og þá ættum við
að sjá þessar vetrarbrautir á leið-
inni,“ segja félagarnir Páll Melsted
og Sverrir Guðmundsson.
Brautir í óraQarlægð
Páll og Sverrir eru tveir þriggja íslendinga sem
hlutu ásamt öðrum ungum vísindamönnum
fyrstu verðlaun í vísindasamkeppni á vegum Evr-
ópusambandsins sem haldin var í Grikklandi ný-
lega. I hópnum með þeim var Tryggvi Þorgeirs-
son, sem nú er í námi í þýsku og frönsku erlendis,
en þeir þrír unnu verkefnið undir handleiðslu Vil-
helms Sigfúsar Sigmundssonar kennara. Verkefn-
in, sem tóku þátt í keppninni, voru samtals 57 frá
yfir 30 löndum. Islenska verkefnið heitir Vetrar-
brautarþyrpingin MS1621+2640 og var markmið
þess að kanna dreifingu vetrarbrauta sem eru í
óraíjarlægð og handan þyrpingarinnar. Páll út-
skýrir:
„Við skoðuðum ekki vetrarbrautina í sjónauka.
Við notuðum engin slík tæki. Við
sóttum upplýsingar á Netið og
fengum upplýsingar ffá íslenskum
stjarneðlisfræðingum. Svo sóttum
við á Netinu gögn ffá kanadískum
vísindamönnum sem hafa verið að
skoða sömu þyrpingu en þeir voru
að gera aðrar rannsóknir. Fyrsta
skrefið var að samræma gögnin og
síðan fórum við út í grunnútreikn-
inga á vetrarbrautarþyrpingunni
og eiginleikum hennar, til dæmis
stærð, massa og fjölda vetrar-
brauta."
18 tíma við tölvuna
Þremenningamir hafa unnið að
verkefninu frá því snemma í vor.
Þeir sigruðu Hugvísi með þessu
verkefni og héldu svo áfram með það og sendu í
keppni þessara ungu evrópsku vísindamanna.
Gríðarlegur tími fór í verkefnið, páskafrí og annar
frítími en Iengsti samfelldi tíminn var 18 klukku-
stundir. Það var Sverrir sem afrekaði það að sitja
svo lengi inni í tölvustofunni í MR án þess að
Ieggja sig. Hann skrapp nánast ekkert út, sat yfir
verkefninu 98-99 prósent tímans.
- Hvað ætlið þið að gera núna?
„Við erum á krossgötum. Það er ekki hægt að
halda áfram með þessa þyrpingu en það er önnur
sem væri gaman að skoða. Hún er nær okkur, það
er auðveldara að rannsaka hana og reyndar búið
að rannsaka hana mjög mikið. Það væri gaman að
leita að þessum sömu áhrifum þar,“ svara þeir.
- GHS
Þrír ungir vísinda-
menn úrMR sigruðu
í vísindakeppni í
Gríkklandi á dögun-
um með nýjum upp-
götvunum í
stjameðlisfræðinni.
SPJflLL
■ FRÁ DEGI
Sumir auka hamingju fólks hvar sem
þeir koma; aðrir strax og þeir fara.
Oscar Wilde
Þau fæddust 30. september
• 1826 fæddist Jón Borgfirðingur Iög-
regluþjónn.
• 1882 fæddist þýski eðlisfræðingurinn
Hans Geiger.
• 1905 fæddist breski kvikmyndaleik-
stjórinn Michael Powell.
• 1910 fæddist Jón G. Sólnes alþingis-
maður.
• 1922 fæddist Magnús H. Magnússon
ráðherra.
• 1928 fæddist bandaríski rithöfundur-
inn Elie Wiesel, sem hlaut friðarverð-
laun Nóbels 1986.
• 1957 fæddist bandaríska leikkonan
Fran Drescher.
Þetta gerðist 30. september
• 1568 var Eiríkur 14., konungur Sví-
þjóðar, sviptur krúnunni vegna geð-
veiki.
TIL DAGS
• 1791 var Töfraflautan eftir Wolfgang
Amadeus Mozart og Emanuel Schika-
neder frumsýnd í Vínarborg.
• 1935 var söngleikurinn „Porgy og Bess“
frumsýndur í Boston í Bandaríkjunum,
og kolféll í það skiptið.
• 1939 var í fyrsta sinn í sögunni sjón-
varpað frá fótboltaleik.
• 1946 voru 22 nasistaleiðtogar dæmdir
íyrir stríðsglæpi af stríðsglæpadóm-
stólnum í Núrnberg í Þýskalandi.
• 1982 tóku Israelsmenn upp nýjan
gjaldmiðil, sikilinn, í staðinn fyrir
pund.
• 1986 var tilkynnt að Ronald Reagan og
Mikhaíl S. Gorbatsjev ætluðu að hittast
í Reykjavík.
Vísa dagsins
Slettir krúka á svaninn saur,
sjálf er hún dökk sem áður
og hann, semfyrrum, undir aur
alskær, mjallafáður.
Steingrímur Thorsteinsson
Afmælisbam dagsins
Bandaríski rithöfundurinn Truman
Capote fæddist í New Orleans þann
30. september árið 1924. Foreldrar
hans skildu þegar hann var á bams-
aldri og var hann alinn upp hjá ömmu
sinni og afa. Hann gekk í fínan einka-
skóla, en að Ioknu stúdentsprófi var
hann búinn að fá nóg af skólastofríun-
um og fór að skrifa. Ein þekktasta
saga hans er Breakfast at Tiffanys sem
var kvikmynduð árið 1961. Hann var
mikill sællífismaður og þekktur í sam-
kvæmislífinu. Truman Capote Iést í
Los Angeles 25. ágúst áríð 1984.
Kom að þeim í rúminu
Maður nokkur sat á bar, starði fjarrænn út í
loftið og hellti ofan í sig hveijum bjómum á
fætur öðrum. Kunningi hans kom auga á
hann og spurði hvort eitthvað væri að. „Jú,
en það hefði samt getað orðið verra,“ svaraði
hann. „Hvað kom eiginlega fyrir,“ spurði
kunninginn. „Hann Þórður kom í gær heim
úr ferðalaginu einum degi fyrr en til stóð og
kom að konunni sinni í rúminu með honum
Þorláki, besta vini mínum. Þetta endaði
með ósköpum. Þórður tók upp byssu og
drap bæði Þorlák og konuna sína og skaut
síðan sjálfan sig á eftir. Nú eru þau öll þijú
steindauð.“ Kunninginn sagði: „Það er
aldrei! En af hveiju segirðu að það hefði get-
að orðið verra?“ „Jú, sjáðu til. Ef Þórður
hefði verið einu degi fyrr á ferðinni þá hefði
hann komið að mér í rúminu með konunni
sinni.“
Veffang dagsins
Ef einhvern langar til að búa til heilt
tungumál, þá eru ágætarleiðbeiningar til
þess á www.zompist.com/kit.html