Dagur - 30.09.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
S öngur j ar ð arinnar
Listamaðurinn Robert
Dell ermikill islands-
vinur. Hann kom keyr-
andi á bílnum sínum
frá New York tilAkur-
eyrarþarsem hann setti
upp nokkurverk eftir
sig íListasafniAkureyr-
arvið opnunina ræddi
hann um verkin, hug-
myndafræðina og tækn-
inasemerábakvið
þau.
„Ég vinn mikið á nóttinni við
skúlptúruna mína og hafa ná-
grannar mínir talað um að þeir
minni þá á norðurljósin. Það er
stórkostlegt að vinna hér á Iandi
vegna þessa síbreytilega veðurs
sem héma er,“ segir bandaríski
listamaðurinn Robert Dell.
Robert hefur unnið við rann-
skóknir við hinn virta tæknihá-
skóla Massachusetts (MIT).
Hann kom í fyrsta skiptið til Is-
lands árið 1988 þegar hann fékk
Fullbright-styrk til þess að rann-
saka hvemig nota mætti hveri til
þess að framleiða rafmagn fyrir
skúlptúr sem hann vara að vinna
að. Þá kynntist hann Jóhannesi
Zoega sem þá var framkvæmda-
stjóri Hitaveitu Reykjavíkur.
„Hitaveitan útvegaði mér vinnu-
stofu og aðstoð, en í staðinn vann
ég skúlptúr fyrir þá sem núna
stendur við Perluna £ Reykjavík.
Ég kom hingað til lands núna til
þess að vera með innsetningu á
Geysisvæðinu Geysi og til þess að
sýna verk eftir mig í listasafninu á
Akureyri. Það má segja að ég hafi
keyrt frá New York til Akureyrar
þar sem besti gámurinn sem til
var undir verkin var bíllinn
minn.“
Samspil ljóss og vatns
Robert Dell fékk leyfí frá Nátt-
úmvemd ríkisins til þess að vera
með innsetningu á Geysissvæð-
inu í dag, fimmtudag. Hann seg-
ist ætla að taka þijú verk með sér
á svæðið og þau verða sett þar
upp í nokkra klukkututíma. Hann
verður tekinn upp á myndband.
Skúlptúrinn byggir á samspili
Ijóss og vatns. Robert hefur fund-
ið aðferð til þess að nýta orkuna
úr hvernum til raforkufram-
Ieiðslu. Þannig er skúlptúrinn
sjálfu sér nógur. „Það eru tvær
tegundir af málmum og þegar
Listamadurinn setur upp verk sín við
Geysi í dag. Skúlptúrarnir framleiða
rafmagn sem þeir nota til þess að
gefa frá sér Ijós. Til þess að geta
haldið sýningar í listasöfnum hefur
listamaðurinn hannað sérstakan
hverahermi.
heit gufa leikur um þá verður
annar þeirra óstöðugur en allt
Ieitar að jafnvægi þannig verður
til rafmagn vegna hitamismunar-
ins. Þegar kalt er í veðri er meiri
orka því þá kólnar yfirborðið
hraðar. A daginn þegar kannski er
heitt þá er minna að gerast. Það
fer eftir því hvernig veðurskilyrðin
eru hversu mikil orka verður til.
Ég læt rafmagnið síðan búa til
önnur sjónræn áhrif og nota til
þess Ijósdíóður, kvarts og fjótandi
kristala. Það er í eðli sínu kól-
esteról sem er fítu atóm þegar
þau hitna snúast þau eins og
gormur og þá breystast litirnir.
Bandaríski iistamaðurinn Robert Dell hefur unnið rannsóknir við Tæknihá-
skóla Masssachusetts. Hann flutti erindi í Listasafninu á Akureyri við opnun
sýningar á þremur verkum sínum. myndir: bilu.
Það er skúlpúr sem byggir á
þessu á Listasafninu á Akureyri."
Afstaða til náttúruimar
Robert minnir á að við lifum á
tæknivæddum tímum en ekki í
heimi goðsagna eða þjóðsagna.
„Fyrir mörgum árum höfðum við
jörðina og það var hægt að skýra
samband manns og náttúru með
goðsögum. Þannig að ég nota
tækni dagsins í dag til þess að
búa til nýja tegund af goðsögum.
Ef maður gæti gert jörðina að
einu lífrænu formi sem væri ljós
sem skipti litum. Þannig kæmist
það kannski inní undirmeðvit-
undina að jörðin væri að breytast
og þá fa ri fólk kannski að hugsa
um það að það skipti einhverju
máli hvemig við umgengjumst
hana.
Hverinn er síbreytilegur og því
er hann eins og hjartaslag jarðar-
innar. Þetta er mín persónuleg af-
staða til náttúrunnar. Ég er að
skapa Iífræna eftirmynd af jörð-
inni. Þannig að jörðin geti talað
til baka. Því má segja að verkin
séu eins og söngur jarðarinnar.
Eitt af verkunum á MIT, nokkr-
um skúlptúrum komið fyrir og
það var eins og þeir töluðu saman
um veðrið." -PJESTA
Þarf að klippa kiær
ákanínum
SVOJVA
ER LIFIÐ
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyija,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann ld. 9—12.
Síminn er
460 6124 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
pjeturst@ff.is
Lesandi blaðsins skrifaði eftirfarandi bréf: „Nýlega eignaðist
ég ósköp blíðar og góðar kanínur. Þetta er í fyrsta skipti á
ævinni sem ég eignast gæludýr og þess vegna kann ég ekki
almennilega um þær að hirða. Ég hef rekið mig á það að
starfsfólk í gæludýrabúðum veit ekkert alltof mikið um kan-
ínur, þó að það geti hugsanlega romsað upp úr sér öllu
mögulegu um fiska. Ég hef fengið að láni á bókasafninu
tvær handbækur um kanínur á ensku, því ekkert íslenskt
lestrarefni er til um kanínuhald. I þessum bókum kemur
ekkert fram um það hvort og hvernig á að þrífa kanínurnar
sjálfar. Þess vegna spyr ég þig: Þurfa kanínur að fara í bað
eins og til dæmis hundar? Hvernig á að baða þær?“
I Gæludýraverslun Norðurlands fengust þau svör að feld-
urinn á kanínunum sé þannig að dýrin sjá sjálf um að þrífa
hann. Það megi strjúka þeim með rökum klút ef þurfa þykir.
Það sé oft nauðsynlegt að klippa klær dýranna en kanínur
sem gangi mikið lausar fái ekki langar neglur. Kanínur eru
nagdýr og þurfa að vera í búri, og yfir vetrartímann þarf búr-
ið að vera innan húss en það má geyma það á skjólsælum
stað utan húss yfir sumartímann. Gott er að hafa sag á botn-
in búrsins. Af öllum gæludýrum getur komið lykt og eru kan-
ínur engin undantekning. Það þarf að þrífa búr dýrsins
reglulega og sérstaklega vel út í hornin þar sem þau gera
þarfir sínar. Mörgum hefur tekist að venja kanínur á að gera
þarfir sínar í kassa með kattasandi. Þá er sandurinn hafður í
horni búrsins. Kanínur Iifa á heyi, grænmeti eða þurrmat.
Starfskonan í gæludýraversluninni sagði að minni lykt kæmi
af dýrum sem ætu frekar þurrmat.
HVAD ER Á SEYDI?
FJÖLSKYLDUSTUNDIR í KEFLAVÍKURKIRKJU
Opið hús verður í Kirkjulundi á þriðjudagsmorgnum milli
10 ogl2 fýrir aðstandendur bama undir grunnskólaaldri.
Fyrsta fjölskyldustundin verður 5. október n.k. Umsjón með
fjölskyldustundunum hafa Lilja G.Hallgrímsdóttir, djákni,
og Laufey Gísladóttir, kennari. Börnum verða kenndar bæn-
ir, Iesið fyrir þau og sungið með þeim. Boðið verður upp á
safa, kex, eða ávexti. Fundimir verða færðir í nýja safnaðar-
heimilið þegar það verður opnað. Nánari upplýsingar veitir
djákni í símum 421-4327 og 855-0834.
Liija G. Hallgrímsdóttir.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Nan Golden í Listasafni Islands
Fimmtudaginn 30. september verður
opnuð sýning á Ijósmyndum bandarísku
listakonunar Nan Golden í Listasafhi Is-
lands. Þetta em ljósmyndir sem hafa farið
sigurför um heiminn á undanfömum
ámm, og sýning þeirra hér á landi er
stórviðburður í íslensku menningarlífi.
Sýningin stendur til 24. október.
Evrópa gegn krabbameini
Vikan 4. -10. október verður helguð bar-
áttunni gegn reykingum ungs fólks. Átak-
ið er á vegum Framkvæmdastjómar Evr-
ópusambandsins og heilbrigðisyfirvalda.
Markmið vikunnar er að vekja ungmenni
til vitundar um um vamir gegn krabba-
meini og um þeirra eigin afstöðu til tó-
baksneyslu, en árlega látast um 500.000
manns af völdum hennar. Nánari upplýs-
ingar um átaksvikuna og viðburði hennar
veitir Krabbameinsfélag Reykjavíkur í
síma 562-1414.
LANDIÐ
Atvinnu- og staðar-
dagskrárfulltrúi ráðinn
Rúnar Óli Karlsson, landfræðingur, hefur
verið ráðinn atvinnu-og staðardagskrár-
fulltrúi Isafjarðarbæjar. Starf hans felst í
að vinna eftir nýsamþykktri stefnumótun
í atvinnumálum og hrinda í framkvæmd
Staðarframkvæmd 21 (Local Agenda 21)
fyrir sveitafélagið. Staðarffamkvæmd 21
er samstarf Umhverfisráðuneytisins og
Sambands íslenskra sveitafélaga.
„Vegggígjur" á Café Karólínu
Laugardaginn 2. október opnar Kristján
Pétur Sigurðsson sýningu sína á „vegg-
gígjum“ á Café Karólínu í Listagilinu á
Akureyri. „Vegggígjumar" em allar nýjar
og unnar með tiltölulega blandaðri tækni
í tré, ljósmyndir, málma og gler. Sýningin
er opin á opnunartíma Café Karólínu.
Opnunardaginn 2. október kl. 16:00 verð-
ur smá „húllumhæ" með ljóðalestri,
hljóðfæraslætti og söng.
Bingó hjá Baldursbrá
Hið árlega októberbingó kvenfélagsins
Baldursbrár verður í Glerárkirkju, sunnu-
daginn 3. október, kl. 16:00. Allur ágóði
rennur til kaupa á steindum glugga í
Glerárkirkju. - Glæsilegir vinningar.
Ráðsfundur 1. ráðs ITC á íslandi
Laugardaginn 2. október verður haldinn
ráðsfundur 1. ráðs ITC á íslandi. Fund-
urinn verður á Hótel Húsavík. Markmið
samtaka ITC er að vinna að þjálfun í for-
ystu og málvöndun í þeirri von að með
betri tjáskiptum taldst að efla skilning
manna á meðal um veröld alla. Tvær af
ellefu deildum ITC á Islandi eru á Norð-
urlandi; Fluga í suður-Þingeyjarsýslu og
Hnota á Þórshöfh og nágenni. Málefhi
fundarins em félagsmál og fræðslufyrir-
lestrar m.a. um ferð á heimsþing ITC í
Japan í sumar. Fundurinn hefst kl. 11:00
og stendur til kl. 17:00. Fundurinn er öll-
um opinn.