Dagur - 14.10.1999, Síða 2
2 - FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999
SUDURLAND
Byggingu stafkirkju miðar vel
Unnið í Noregi við
smíði stafkirkju sem
verður þjóðargjöf
Norðmauua til íslend-
iuga í tilefni af
kristnitökuafmæliuu.
Kirkjau rís á Skausiu-
um í Eyjum. Smíðiu
er vaudaverk, segir
kirkjusmiðuriuu
norski.
Nú er unnið af fullum krafti við
að setja saman stafkirkjuna,
þjóðargjöf Norðmanna til Islend-
inga í tilefni af þúsund ára af-
mæli kristnitökunnar á íslandi í
bænum Lom í Guðbrandsdal í
Noregi. A dögunum kom Sverre
Sorumgárd yfirsmiður kirkju-
byggingarinnar til Eyja, til þess
að kynna sér aðstæður, hvar
kirkjan á að standa á Skansinum.
Sverre átt fund með Arna John-
sen, formanni bygginganefndar,
Ólafi Ólfssyni, bæjartæknifræð-
ingi, Páli Zóphoníassyni, bygg-
ingatæknifræðingi og Arsæli
Sveinssyni, byggingameistara.
MiMll áhugi
Stafkirkjan er sett saman í Nor-
egi en verður síðan flutt í eining-
um til Vestmannaeyja, þar sem
endanleg samsetning hennar fer
fram. Það er fornminjaráðuneyti
Noregs sem er verkkaupi og hef-
ur yfirumsjón með framkvæmd
byggingarinnar. Ráðuneytið sér
einnig um gerð heimildarmyndar
um bygginguna. Sverre hefur
aldrei áður komið að byggingu
stafkirkju, enda stafkirkja ekki
verið reist frá grunni í 800 ár.
Hinsvegar er aðal starf hans fólg-
ið í því að reisa bjálkahús, auk
þess sem hann og fyrirtæki hans
hefur unnið að endurbótum eldri
kirkna í Rússlandi. Stafkirkja fær
nafn sitt af aðal burðarstoðum
kirkjunnar, sem eru heilir tijábol-
ir útskornir og skreyttir á ýmsa
vegu, en síðan er þiljað með stór-
um borðum á milli. Að sögn
Sverre hefur stafkirkjubyggingin
vakið mikla athygli í Noregi og
dagblöð þar í landi verið iðin við
að fjalla um kirkjubygginguna.
Einnig hefur norska ríkissjón-
varpið fylgt byggingu kirkjunnar
vel eftir í þeim tilgangi að gera
heimildarmynd um bygginguna
frá fyrsta spæni og þar til hún
hefur risið á kristilegum undir-
stöðum sínum á Skansinum.
Sjónvarpið hefur því myndað
verkið alveg frá því að tré hefur
verið valið, það fellt og komið í
sögunarmylluna, komið í hendur
smiðanna og síðan á sinn stað í
krikjunni. Einnig hafa skólabörn
komið daglega til þess að skoða
hvernig verkinu hefur miðað. Þá
er er mikill áhugi hjá ýmsum fé-
Iögum og einstaklingum að fylgja
kirkjunni og vera viðstödd vígsl-
una.
Fyrirmyndm frá Holtálen í
Þrándheimi
Sverre segir að bygging kirkjunn-
ar sé mjög mikið nákvæmnisverk.
„Þetta er líkast því sem gerist í
húsgagnasmíði. Þetta er eins og
stórt húsgagn og kröfurnar um
nákvæmni er upp á einn tíunda
Edvin Espelund er einn þeirra hagleiksmanna sem vinna við byggingu
kirkjunnar úti í Noregi.
úr millimetra, en það er mjög um, en það er Edvin Espelund
erfitt í smíði af svo stórum við- sem sér um handverkið, en hann
hefur unnið við að gera upp
gamlar kirkjur í Rússlandi. Eins
og ég sagði áðan er erfitt að fá
réttan við í bygginguna, þess
vegna höfum við leitað um allan
Noreg að heppilegri trjástærð til
byggingarinnar. Stafkirkjur sem
til eru í Noregi hafa verið varðar
með trjákvoðu bæði veggir og
þak. Hér á landi eru hins vegar
ólík veðurskilyrði, svo líklega
verður kirkjan pensluð með
heitri tjöru þriðja til fjórða hvert
ár og kostnaðurinn við viðhaldið
mun Iíklegast greiðast úr bæjar-
sjóði. Það er Iíka fyrirsjáanegt að
við sjáum fram á fjárhagslegt tap
á þessari framkvæmd, en á móti
kemur að við fáum ómetanlega
reynslu, sem gæti komið okkur
að góðum notum síðar." Gert er
ráð fyrir að lokið verði við smíð-
ina í Noregi sfðari hluta mars á
næsta ári og að hafist verði
handa í Eyjum í byrjun apríl. Og
kirkjan sfðan vígð og afhent Is-
lendingum þann 1. júlí árið
2000. „Við erum dálítið á eftir
áætlun, vegna erfíðleika við að fá
rétt timbur en við munum vinna
það upp. Kirkjan sem reist verð-
ur í Eyjum er mjög lítil, eða um
68 fermetrar og verður sjö og
hálfur metri á hæð. Um 800 voru
stafkirkjur orðnar mun stærri og
hér á Islandi eru heimildir um
stafkirkjur, jafnvel mun stærri en
í Noregi. Fyrirmyndin að kirkj-
unni sem reist verður hér er að
finna í Holtálen í Þrándheimi en
menn telja að kirkjan sem reist
var í Eyjum við landnám hafi ver-
ið mjög Iík henni, þó ekki sé
hægt að færa mjög haldbærar
sönnur á það.“