Dagur - 14.10.1999, Page 4

Dagur - 14.10.1999, Page 4
4 — FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1999 SUÐURLAND Ósvaldur iindirbýr tónlistarveislu Úsvaldur Freyr Guðjónsson, tónlistarkennari í Eyjum. Hann undirbýr nú að setja upp tónlistarsýningu, þarsem lög aiit frá því um 1940 verða rifjuð upp. Lög frá liðniun árum njóta alltaf vinsælda. Á íjalirnar er að fara í Vestmannaeyjum lög frá því fyrir miðja öld- ina, ásamt leik og söngvum sem þeim fylgja. Ósvaldur Freyr Guðjónsson tón- listarkennari, er einn margra Eyjasona, sem leitað hefur aftur til Eyja að loknu námi. Ósvaldur kennir í Tónlistarskóla Vest- mannaeyja og kemur ekki til Eyja til þess að setjast í helgan stein, því hann ætlar að blása nýjum lífsanda í tónlistarlífið og hefur undafarna daga verið að undirbúa tónlistarveislu sem verður yfirferð um tónlistarsöguna frá 1940 til dagsins í dag ásamt dönsum er tengjast tónlistinni. Sneri sér snemma að tropetinum Ósvaldur á Iangt og strangt tón- listarnám að baki. Hann bytjaði í Tónlistarskóla Vestmannaeyja níu ára gamall og sneri sér snemma að trompetinum, sem hefur verið hans hljóðfæri sfðan. Hann flutti til Reykjavíkur 1988 og stundaði nám í ýmsum tónlistarskólum og námi frá blásarakennaradeild Tónlistarskóla Reykjavik.tr lauk hann árið 1997. Ósvaldur hefur verið í nokkrum hljómsveitum og má þar nefna Atta manna bandið. Einnig spilaði hann með Lúðra- sveit verkalýðsins, Sinfónfuhljóm- sveit áhugamanna, Lúðrasveit Reykjavíkur og þar segist Ósvald- ur þó hafa lært mest af því að spila með hinum ýmsu tónlistar- kempum þjóðarinnar, eins og Tómasi R. Einarssyni, Guðmundi R. Einarssyni, Árna Elfar, Friðrik Theodórssyni að Guðmundi Norðdal. Ósvaldur segir að frum- hugmyndin hafi verið að setja upp sýninguna með leikfélaginu, en svo hafi ekki verið nein starf- semi hjá félaginu. „Eg bjó á Dal- vík í eitt ár og þar var sett upp svipuð dagskrá sem þótti takast mjög vel og mig langar til þess að gefa tónlistarmönnum í Eyjum tækifæri til þess að bregða aðeins á leik og efla tónlistalífið í bæn- um og virkja fólkið á staðnum." IJndirlektÍT eru góðar Ósvaldur auglýsti eftir fólki sem reiðubúið væri til þess að taka þátt í svona uppfærslu og segir hann undirtektir hafa verið góðar. „Við hittumst í síðustu viku til þess að bera saman bækur okkar og rúlluðum yfir myndband sem tekið var á sýningunni á Dalvík til þess að gefa fólki hugmynd um hvað héngi á spýtunni. Það er hægt að merkja greinilegan áhuga og vilja til þess að koma þessu af stað, enda mætti fólk á öllum aldri.“ - Hann segir að hljómsveit- in sé byrjuð æfingar og vonast hann til að hægt verði að helja sýningar í nóvember, en gert er ráð fyrir tveimur til þremur sýn- ingum. Síðan er hugmyndin að fara af stað aftur eftir áramótin ef undirtektir verða góðar. - BEG SUÐURLANDSVIÐTALIÐ Hiarðamesbræður í Suðurbyggð Á fundi bæjarráðs Árborgar í síðustu viku kynnti Dæjarstjóri stöðu útboðs vegna gatnagerðar í Suðurbyggð. Lögð voru fram gögn frá bæjartæknifræðingi þar sem fram kom að sex aðilar buðu í gatnagerð í Suðurbyggð. Hjarðanesbræður ehf. voru með lægsta tilboð um 87,8 milljónir króna, sem er 75,4% af kostnaðaráætlun. Að tillögu bæjartæknifræðings samþykki bæjarráð samhljóða að taka tilboði þessu. Karlakór Akureyrax-Geysir á Selfossi Karlakór Akureyr- ar-Geysir heldur tónleika í Selfoss- kirkju á föstu- dagskvöld og hefj- ast þeir kl. 20:00. Eftir tónleika taka félagar í Karlakór Selfoss á móti norðanmönnum í félagsheimili sínu að Gagnheiði 40. Á efnisskránni verður fjöldi klassískra karla- kórslaga eftir inn- lend sem erlend tónskáld, auk kórverka úr óperettum og óperum. Stjórnandi Karlakórs-Akureyrar Geysis er Roar Kvam og einsöngvari með kórnum á þessum tónleikum er Þorgeir J. Andrésson. Rætt um samemiugarviðræður Á fundi hreppsnefndar Rangárvallahrepps á dögunum var rætt um stöðu sameiningarviðræðna i Rangárþingi. Upplýsingasöfnun stend- ur yfir frá öllum hreppunum sem Oli Már Aronsson, oddviti Rang- vellinga, annast. KPMG Endurskoðun hefur verið falið að taka sam- an yfirlit yfir fjárhagslega þætti. Eitt af því sem óskað er upplýsinga um eru sérmál hreppanna, það er ef sveitarstjórnirnar vilja leggja fram einhver mál sem taka þarf sérstakt tillit til við sameiningu og eftir hana. Eftirfarandi atriði verða lögð fram af hálfu Rangvellinga, en það eru hitaveitan, eignarhlutur í ERI og afréttarmál. -SBS. Njörður hættir Á fundi sveitarstjórnar Mýrdalshrepps á dögunum var tekið fyrir bréf Njarðar Helgasonar og Sigríðar E. Sigmundsdóttur, þar sem Njörður biðst lausnar frá setu í sveitarstjórn og þeim nefndum sem hann á sæti í. Sigríður óskar eftir lausn sem varamaður í félagsmálanefnd. Ástæður þessara óska eru að þau eru flutt úr sveitarfélaginu. Sam- kvæmt sveitarstjómarlögum skal fyrsti varamaður K-lista, Guðrún Jónsdóttir í Kerlingardal, taka sæti Njarðar í sveitarstjórn. -SBS. Karlakór Akureyrar- Geysir syngur í Selfosskirkju á föstudagskvöldið. Höldum okkur viö grundvallaratriði Ingurm Guð- mundsdóttir formaður bæjarráðs Árborgar Tíu leikskólakennararí þremurleikskólum íÁr- borg hættirog þrír leik- skólastjórarhafa sagt upp. Bæjarráð vísaði mál- inu til Félagsdóms sem kveðurupp sinn úrskurð fljótlega. Jafnaðargeðfor- eldra, segirformaðurhæj- arráðs. - Nú eru nokkrir leikskóla- kennarar á Selfossi hættir störf- utn og nokkrir leikskólastjórar liafa sagt upp. Bæjarstjóm hef- ur hinsvegar snúið sér í þessu máli þannig að vísa því til dóm- stóla. Þykir ykltur koma til greina á þessutn timapunkti að grípa til einhverra sérstakra úr- ræða til að bjarga málum tíma- bundið? „Þú spyrð hvort grípa eigi til einhverra sérstakra úrræða. Eg vil byija á að segja að við leituðum eftir því við leikskólakennara að þeir frestuðu sinni útgöngu fram- yfir félagsdóm en það gekk ekki. Við höfum verið með sérstök úr- ræði í gangi sem ganga út á að halda skólunum gangandi þannig að börnin fái í það minnsta pöss- un. Við bæjarfulitrúar fylgjumst grannt með þessu máli á hvetjum degi. Við höfum viljað halda okk- ur við grundvallaratriðin sem eru þau að fá svör við spurningum um samskipti aðila á vinnumark- aði, einsog þeim hvort Ijöldaupp- sagnir starfsmanna á miðjum samningstíma séu réttmætar. Og það er aðeins tilviljun að þessu máli en ekki einhverju öðru var vísað til félagsdóms, það hefðu allt eins getað orðið kennarar eða heilbrigðisstéttir. En það hlaut bara einfaldlega að koma að því að einhver segði hingað og ekki lengra um þessar aðferðir við að sækja sér kjarabætur. Málið var tekið fyrir í Félagsdómi á mánu- daginn og ég vænti þess að niður- staðan komi fljótlega. Frávísunar- krafa Félags íslenskra leikskóla- kennara sem fór alla Ieið fyrir Hæstarétt tafði málið mikið.“ - Krafa leikskólakennara hef- ur verið sú að þeir eigi að fá sörnu laun og grunnskólakenn- arar. Finnst þér sú krafa vera eðlileg? „Við höfum ekki rætt launa- kröfur leikskólakennara á þessu stigi. Það er örugglega hægt að færa rök fyrir því að þeir og marg- ir aðrir launþegar séu ekki of sæl- ir af sínum launum, ég vil hins- vegar leggja á það áherslu að mið- að við gildandi kjarasamninga þá á að ríkja friður á vinnumarkaði." - Ef laun leikskálakennara yrðu hækkuð til samræmis við það sem kennarar í grunnskól- um Árborgar hafa hve ntikið myndi það auka útgjöld bæjar- sjóðs? „Það hefur ekki verið reiknað en ég vil benda á að hækkaður- rekstrarkostnaður leikskóla yki ekki einungis útgjöld bæjarsjóðs heldur myndi hlutur foreldra einnig hækka.“ - í lesendabréfi í héraðsblöðum í sl. viku telja foreldrar ungrar stúlku sem er í einum af leik- skólunum á Selfossi að eðlilegt sé að fá 20% afilátt af leikshóla- gjöldum hennar, þar sent leik- skólakennarar séu ekki lengur til staðar. Telur þú þessa kröfu réttmæta? „Nei, alls ekki. Það er ekkert nýtt að einstakar deildir leikskól- anna hafi ekki á að skipa leik- skólakennurum, það heíur ekki tíðkast að lækka þjónustugjöld þess egna. Það hefur reyndar enginn vakið máls á slíku í bæjar- kerfinu og þess vegna aldrei verið til umræðu." - Hveniig finnst þér foreldrar Itafa tekið þeirri stöðu sem nú er í þessu máli og hvað eru það mörg bönt setn þetta neyðar- ástand snertir? „Eg minni á að það ástand sem þú kallar neyðarástand ríkir í þremur leikskólum af sex. Leik- skólafulltrúi og leikskólastjóm- endur hafa staðið sig vel í því að láta starfsemina ganga með til- tæku starfsliði. Mér finnst að foreldrar hafi tekið þessum að- stæðum sem nú eru ríkjandi í þessu máli með ótrúlegu jafnað- argeði miðað við aðstæður en ég geri mér grein fyrir að svona get- ur það ekki gengið lengi því þetta tekur á og setur margar daglegar áætlanir foreldra úr skorðum. Bæjarráð fundaði með forráða- mönnum foreldrafélaganna fyrir helgina og var fundurinn hugsað- ur til upplýsingar og skoðana- skipta sem ég trúi að hafi verið til gagns fyrir báða aðila.“ - SBS.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.