Dagur - 15.10.1999, Blaðsíða 4
4-'
4 - FÖSTUDAGUR 15.OKTÓBER 19 99
KRINGLAN
Það var mikill handagangur í öskjunni á síðustu metrunum í fyrrakvöld.
ÞcLÖ er handagangur í
öskjunni síðustu dag-
ana Jyriropnun ný-
byggingarKringlunn-
ar. Sumireru þó svo
jyrirhyggjusamir að
þeirbíða tilbúnir eftir
opnunardegi.
Við erum alltaf samir við okkur
íslendingar þegar kemur að því
að opna nýtt húsnæði. Síðustu
sólahringana fyrir opnun þeytast
þreyttir iðnaðarmenn með ofur-
lítinn geggjunarglampa í augun-
um og keppast við að leggja síð-
ustu hönd á verkið. Það tekst
líka venjulega og nýbyggingin í
Kringlunni verður þar engin
undantekning.
Hér er allt á ferð og flugi og
atgangurinn slíkur að meðal-
maurabú væri fullsæmt af. Utan
við hringiðu iðnaðarmannanna
vappa jakkafataklæddir menn,
áhyggjufullir á svip og hugsa:
Ætli það náist. Innst inni vita
þeir að auðvitað næst það þegar
allir leggjast á eitt til að klára
verkið.
Marteinn Geirsson stendur á
miðju gólfi með hvítan hjálm og
íylgist með því að brunavarnir
séu virtar. „Við erum tveir frá
slökkviliðinu og svo tveir frá
Eldvarnareftirlitinu. Eldvarnar-
kerfið er ekki komið í gang, en
það á að prufkeyra það í dag svo
við förum að fara héðan.“
Marteinn segir að brunavarnir
í byggingunni verði góðar þegar
kerfið sé tilbúið og hann er van-
ur að vera á vaktinni þegar verið
er að leggja síðustu hönd á
svona framkvæmdir. „Ég kom
aðeins nálagt því þegar Kringlan
sjálf var opnuð og ég er ekki frá
því að stressið sé meira núna.
Annars er ég ekki fyllilega dóm-
bær á þetta. Maður kemur og er
f nokkra daga þegar mest gengur
á og kerfin ekki tilbúin. Það er
kannski betra að láta aðra um
þennan samanburð."
Reyndur iðnaðarmaður sem
Innréttingum pússlað saman.