Dagur - 15.10.1999, Qupperneq 5

Dagur - 15.10.1999, Qupperneq 5
 <> e P T mjl-'vn .3 * FÖSTUDAGVR 15. OKTÓBER 1999 - S Thgpr einnig vann við byggingu Kringl- unnar glottir við þegar hann er beðinn að bera saman fram- kvæmdina þá og nú. „Þetta er alltaf sama stressið og geðveikin á lokasprettinum." Gísli Ólafsson og Egill Jóns- son munda sagirnar af öryggi í holinu þar sem básar tilvonandi skyndibitastaða gapa tómir eins og munnar sem ekki verður hægt að metta. „Þetta eru stjörnur sem eiga að fara hér í loftið“, segja þeir og horfa til himins. „Það er ótrúlega skemmtilegt að fá á taka þátt í þessu“, bæta þeir við og hlægja. „Þetta Ieit ekki vel út fyrir nokkrum vikum, en núna sýnist okkur þetta ætla að nást.“ Ungur piltur litast um á vinnusvæðinu. Hann lítur hvorld út fyrir að vera iðnaðar- maður, né áhyggjufullur eigandi. Hann heitir Arnór Bogason og vinnur með menntaskólan- um á nýjum MacDonalds í Kringlunni. „Eg ætla rétt að vona það“, segir hann aðspurður um hvort hann haldi að allt verði tilbúið fyrir opnun. „Ég leit hér við í gær og sýnist mikið hafa gerst síðan þá.“ Hann segir það algengt að unglingar vinni með skóla og telur það frekar aukast en hitt. „Útgjöldin aukast eftir því sem maður verður eldri og maður verður að vinna til að mæta kröfum um skemmtun utan skóla - og vinnutíma." Hann er alls óhræddur við freistingarnar, þótt gnótt skyndi- bitastaða verði á svæðinu og hefur ekki orðið var við þrýsting um að halda sig við þá keðju sem maður vinnur hjá. „Eg vann áður niður í Austurstræti og þar var enginn sem skipti sér af því sem maður gerði í matarhléun- um. Hvað ég gerði er hins vegar ekki gefið upp.“ Verslanirnar eru mislangt á veg komnar. Sumar virðast rétt vera fokheldar, aðrar tilbúnar undir tréverk og enn aðrar bíða síðustu tiltektar. Ein er algjörlega tilbúin. Litskrúðugar möppur og nytjahlutir skrifstofunnar blasa við mér í úthugsaðri uppröðun. A merkimiðum söluvörunnar stend- ur „Ordnung & Reda“, röð og regla. Þetta er búð sem stendur undir nafni. Þetta er sænsk verslanakeðja sem selur fallegar skrifstofuvörur um allann heim og Maja Gross var send til Islands frá Stokk- hólmi til að aðstoða íslendinga við uppsetningu búðarinnar. „Hugsunin að baki þessara búða er að selja fallega nytjahluti," seg- ir Maja. „Það er miklu skemmti- Iegra að vinna með fallega hluti í kringum sig og áhuginn á þessum vörum er þvert á öll landamæri. Vörurnar eru ekki bara falleg- ar og vel hann- aðar heldur skiptir ekki síður máli að þær þjóna vel þeim tilgangi að halda öllu í röð og reglu. Röð og regla er mikil- væg til þess að spara tíma sem annars fer í að leita að skjölum og öðru.“ Hún segist ekki vera vön þeim vinnubrögðum Islendinga að gera allt á síðustu stundu. „Við vorum tilbúin með búðina fyrir viku og ég vildi ekki vera í sporum sumra hér í nágrenni við okkur, en mér skilst að svona sé þetta hjá ykkur. Eg held líka að hraði, hugkvæmni og dugnaður Islendinga og röð og regla okkar Svía ætti að geta farið ljómandi vel saman. Það yrði áhugaverð og skemmtileg blanda.“ Björg Asdísardóttir hefur ekki áhyggjur af óreiðueðli landans. „Eg er að vona að við getum breytt óreiðunni í reiðu. Hugsun okkar er að vera með vörur sem sjást, ekki eitthvað leiðinlegt sem maður felur inn í skáp. Þetta eru fallegir hlutir sem virka, eru ein- faldir og vandaðir." Þegar út úr búðinni er komið tekur óreiðan aftur við. Hamrar, sagir og borar í endalausum sam- hljómi. Þetta reddast örugglega. Það gerir það alltaf. „Við vorum tííbúin með búðinajyrirviku og ég vildi ekki vera í sporum sumra hérí nágrenni við okkur, en mérskilst að svona sé þetta hjáykkur. ■ Arnór Bogason leit við til að sjá hvernig gengi að koma nýjum vinnustað sínum i gagnið og leist bara vel á. Úreiðan allt um kring hefur engin árhrifá stöllurnar í versluninni Röð og regla. Búðin ber nafn með rentu og er löngu tilbúin.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.