Dagur - 15.10.1999, Blaðsíða 13
1
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 - 13
’iH
nokkura aðila í húsinu. Menn
hafa haft af því nokkur óþæg-
indi, en við höfum reynt að sjá
til þess að þeir yrðu fyrir sem
minnstri truflun og þetta at
hefur verið unnið í sátt og sam-
lyndi.
Af því að við vorum að ræða
mikilvægi þess að starfsemin sé
í takt við tfmann, þá má benda
á að með þessari nýju byggingu
verður veruleg aukning á veit-
ingarekstri. Við opnum hér nýtt
og glæsilegt veitingasvæði og
hingað koma nýir veitingastað-
ir. Fólk borðar miklu oftar úti
nú, en það gerði fyrir tólf
Við erum með þessari
framkvæmd að styrkja
stöðu okkará þessum
markaði og ætlum okk-
urað halda okkarhlut.
árum.
Akkerisbúðin í nýbygging-
unni er stór útvistar- eða
lífstílsbúð og einnig verða
þarna búðir sem einbeita sér
að einu vörumerki eða vöru-
tegund. Þetta er auðvitað tím-
anna tákn. Því má heldur ekki
gleyma að við höfum líka verið
að taka í gegn ýmislegt í
Kringlunni sjálfri, þannig að
það má segja að þetta sé and-
litslyfting á svæðinu öllu. Það
verður því ný og breytt Kringla
sem blasir við fólki nú um
helgina."
j
i
Einar I. Ha/ldórsson, framkvæmdastjóri húsfélags Kringlunnar, við dularfullt egg, sem sagt er að hafi komið í Ijós þegar grunnur
nýbyggingarinnar var tekinn.