Dagur - 22.10.1999, Page 8
24- FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
T
Líflegar umræður á Netinu
Mannamál nýtir sér kosti þess aö tvinna saman útvarpsþátt og vef-
svæöi á internetinu til aö stuðla að lifandi umræðu um þjóðmálin. í
viðtölum þáttarins er opið fyrir spjallrás beint af einni heimasíðu
Mannamáls og hægt er að kjósa um spurningu vikunnar í Vogarskál-
inni. Einnig er hægt að hlusta á þáttinn af netinu að hluta til eða í
heild eftir á, svo enginn þarf að
missa af honum. Þátturinn er á
dagskrá Bylgjunnar frá kl átta til tíu á
sunnudagskvöldum og hefur slóð-
ina: www.mannamal.is
Gestir þáttarins næsta sunnudags-
kvöld verða þau Guðmundur Árni
Stefánsson, samfylkingarmaður og
Jóhanna Bogadóttir, myndlistarmað-
ur. Umsjónarmenn eru Sævar Ari
Finnbogason og Sigvarður Ari Huld-
arsson.
„Það sem maður sér...“
„Það sem maður sér það á maður"
er yfirskrift sýningar sem Harpa
Björnsdóttir opnar laugardaginn 23.
október, í hinum nýja listsýningarsa:
verslunarinnar MAN að Skólavörðu-
stíg 14. Á sýningunni eru vatnslita-
myndir sem unnar eru á síðustu
árum. Þær eru sjónrænt endurvarp
úr umhverfi og upplifun listamanns-
ins. „Allt sem við sjáum verður eign
okkar í sjónrænum skilningi og við
getum tekið þá sýn fram hvenær
sem við viljum og umbreytt henni. Hinn sjónræni eignaréttur er miklu
meira viröi en hinn efnislegi eignaréttur, því hann lifir með einstak-
lingnum allt til æviloka, ekkert fær honum grandað og enginn getur
tekið hann frá honum," segir Harpa og hún leikur sér með þessa eign
sína.
Skrifa Kofi Annan
(sfirskar konur taka þátt í evröpskri friðarviku sem nefnist Konur fyrir
heimsfriði og hófst þann 16. október og lýkur á laugardag. Markmið
friðarviku er tvíþætt, að auka skilning almennings á eðli friðar og
hvetja til þess að þjóðarleiðtogar heimsins leggi grunn að varanlegum
friði. í því skyni gefst fólki kostur á að skrifa undir bréf til Kofi Annan,
aðalritara Sameinuðu þjóðanna, þar
sem hann er beðinn um að kalla
saman slíkan fund þjóðarleiðtoga.
Af þessu tilefni verður efnt til útisam-
komu á Silfurtorgi á (safirði í dag ki.
17.00. Þar verða lúðrasveit og kór,
auk þess sem konur á öllum aldri
lesa upp fleygar setningar, tilvitnanir
og Ijóð. Rauði krossinn býður fólki að
þrykkja handarfari sínu á dúk og taka
þannig afstöðu gegn ofbeldi.
HVAD ER A SEYDI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SÝNINGAR
Drekar og prinsessur
Sunnudaginn 24. október kl. 14.00
verður fluttur Ieikþáttur í sýningarsal
Norræna hússins, þar sem Prinsessu-
dagar standa nú yfír. Sænska leikkonan
Vanja Nilsson, sem starfar með Folktet-
em í Gautaborg flytur frumsaminn leik-
þátt um Vind prinsessu. Sýningin fer
fram á sænsku og verður túlkað yfír á ís-
lensku. Aðgangur er kr. 100 fyrir böm
og fullorðna.
Sýningin byggist á safni norrænna
sagnaminna og segir frá Vind prinsessu
sem hefur verið fangi ógnvekjandi dreka
um langa hríð og bíður hún í ofvæni eft-
ir að prinsinn komi og bjargi henni úr
prísundinni. Vind litla prinsessa er for-
vitin og hefur frá mörgu að segja. Sýn-
ingin um Vind prinsessu er sjálfstætt
verkefríi sem Vanja Nilsson vann að og
er sprottið upp úr leikhússagnaverkefni
fyrir böm sem var þáttur í magisterprófi
Nilssons í leikhúslistum við leikhúshá-
skólann í Helsingfors.
Músorgskíj í MÍR
Rússneska kvikmyndin Músorgskíj verð-
ur sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10 nk.
sunnudag 24. okt. kl. 15.00. Kvikmynd-
in er fVá árinu 1950 og fjallar um rúss-
neska tónskáldið Modest Petroríts
Músorgskíj, sem uppi var 1835-1881.
Við sögu koma ýmis kunnustu tónskáld
Rússa á nítjándu öld og í myndinni er
lögð mikil'áhersla á tengsl Músorgskijs
við alþýðu manna og samúð hans með
baráttu hinna fátæku fyrir bættum kjör-
um og atvinnufrelsi. Brot úr ýmsum
tónverkum tónskáldsins eru flutt í
myndinni. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Óskar Guðnason með sýningu
Óskar Guðnason myndlistar- og tónlist-
armaður frá Höfn heldur nú sýningu í
Galleríi Regnbogans við Hverfísgötu 54.
Þetta er sölusýning á olíu og collagemál-
verkum listamannsins. Áður hefur hann
haldið þrjár einkasýningar og þetta er sú
^órða og síðasta á þessari öld.
Damasksýning
Dúkur sem ofinn er með mynstri úr
brúðarkjól Margrétar drottningar
fyrstu frá 14. öld og hátíðardúkur í til-
efni árþúsundamótanna eru meðal
sýningargripa á damasksýningu sem
opnuð verður um helgina að Safamýri
91. Það er Ragnheiður Thorarensen
umboðsmaður Georg Jensen Damask
sem heldur sýninguna. Georg Jensen
Damask er rótgróið vefnaðarfyrirtæki
sem rekur sögu sína 5 aldir aftur í tím-
ann og leggur áherslu á listræna hönn-
un sem unnið hefur til ótal verðlauna
og viðurkenninga. Sýningin er opin frá
kl. 14.00-18.00 á laugardag og sunnu-
dag, 23. og 24. okt.
Kötturinn fer sínar leiðir
Um síðustu helgi frumsýndi Leikfélag
Mosfellssveitar „Kötturinn sem fer sínar
eigin Ieiðir'* eftir Ólaf Hauk Símonar-
son, byggt á sögu Rudiard Kipling. Leik-
stjóri er Valgeir Skag^örð. Leikritið hef-
ur áður verið sett á fjalimar og nokkur
lög náð þó nokkrum vinsældum. Þessi
Ieikgerð er þó frábrugðin þeim fyrri þar
Hauks, ásamt því að semja nýtt lokalag
og texta. Leikritið er fjölskylduleikrit og
margar skemmtilegar persónur fylla það
lífi svo sem kötturinn sem leikinn er af
Unni Lárusardóttur. Leikritið „Köttur-
inn sem fer sínar eigin leiðir' var valið
til að fara á leiklistarhátíð í Uddevalla í
Svíþjóð sl. vor, vegna þess að það þykir
mikið augnayndi og skemmtun.
Fjar-skyn
Sýningin Fjar-skyn verður opnuð laugar-
daginn 23. október kl. 18.00 í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3B í Reykjavík. Fjar-
skyn er sýning sex listamanna sem eru:
Anna Júlía Friðbjömsdóttir, Cathrine
Evelid, Helga G. Óskarsdóttir, Ingvill
Gaarder, Ólöf Ragnheiður Bjömsdóttir
og Stine Berger. Sýningin er opin dag-
lega fra kl. 14-18 nema mánudaga og
henni lýkur 14. nóvember. Vakin er
ahygli á breyttum opnunartíma á opn-
unardegi. Aðgangur er ókeypis og allir
vekomnir.
TÓNLIST
Norðurljós
Sunnudaginn 24. október nk. hefst Tón-
listarhátíð Musica Antiqua „Norðurljós"
með tónleikum hins kunna strengjakvar-
tetts Quatuor Mosaiques sem hingað
kemur sérstaklega af þessu tilefni. Qu-
atuor Mosaiques er löngu orðinn þekkt-
ur fyrir túlkun sína á verkum klassísku
meistaranna Hayd'ns, Mozarts, Beet-
hovens, Schuberts, Schumanns o.fl.
Kvartettinn skipa þau Erich Höbarth og
Andrea Bischof fiðluleikarar, Anita Mitt-
erer lágfiðluleikari og Christophe Cin
sellóleikari og eru þijú þau lyrst nefndu
frá Austurrfki, en sá síðast nefndi frá
Frakklandi. Þau hafa haldið tórileika
víða um heim, gefið út um 20 geisla-
diska sem hlotið hafa einróma lof gagn-
rýnenda og eftirsótt tónlistarverðlaun.
Tónleikamir verða í Listasafni Islands
og hefjast kl. 20.00.
Kórsöngur og tónleikar í Salnum
Snælandsskóli heldur kórtónieika í
Salnum laugardaginn 23. okt. kl. 20.00
í tilefni 25 ára almælis síns. Þeir eru
jafnframt útgáfutónleikar. Stjómandi er
Heiðrún Hákonardóttir.
Mánudaginn 25. okt. kl. 20.30 verða
tónleikar í Salnum. Þar spila Guðný
Guðmundsdóttir á fiðlu og Gerrit Schuil
á píanó verk eftir Mozart, K.o: Runólfs-
son, Arvo Part o.fl.
Jónas Ama endurtekinn
Söngur Bjargræðistríósins á textum
Jónasar Ámasonar úr ástkærum leikrit-
um verður endurtekinn laugardags-
kvöldið 23. október kl. 20:00 í Kaffileik-
húsinu, vegna fjölda áskorana. Þetta er
liður í tónleikaröðinni „Óskalög land-
ans“ þar sem þemað verður íslenskir
höfundar. Kvöldstundin hefst með Ijúf-
fengum kvöldverði kl. 20:00 og söng-
skemmtunin kl. 21:30. Miðapantanir
eru allan sólarhringinn í Kaffileikhúsinu
í sfma 551 9055.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna heldur
tónleika í Neskirkju sunnudaginn 24.
október, kl. 17.00. Stjómandi á tónleik-
unum er Gunnsteinn Ólafsson og ein-
leikari á selló er Sigurður Halldórsson.
Á efnisskránni er konsert fyrir selló og
semjValgeir samdi ný lög_yið texta Qlafs._hljómsveit'eftir Edwart^ El^r og sinfójij
nsíl unHnfrgiA
ía í d-moll eftir César Franck. Sveitina
skipar áhugafólk í hljóðfæraleik auk
nokkurra tónlistarkennara og nemenda.
FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR
Dagur Sameinuðu þjóðanna
Næstkomandi laugardag kemur hingað
til lands framkvæmdastjóri alheimssam-
taka UNIFEM, Noeleen Fleyser. Hún
mun verða heiðursgestur á hátíðar-
morgunverðarfundi UNIFEM sunnu-
daginn 24. október, degi Sameinuðu
þjóðanna, sem haldinn verður í Vikinga-
sal Hótel Loftleiða kl. 10:30.
Dagskráin er sem hér segir: Formaður
UNIFEM á íslandi, Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir, setur fundinn. Noel-
een Heyser, flytur ávarp. Brot úr dansin-
um ÆSA - Ijóð um stríð eftir Lám Stef-
ánsdóttur við tónlist eftir Guðna Franz-
son.
Hlé
Þrír tónlistarmenn frá Afríku leika á
ásláttarhljóðfæri. Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir segir frá ráðstefnunni Kon-
ur og lýðræði og svarar fyrirspumum.
UNIFEM er þróunarsjóður Sameinuðu
þjóðanna til styrktar konum í „þróunar-
löndurn". Sjóðurinn var stofnaður 1976
í kjölfar lyrstu kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna sem haldin var í Mexíkó
1975 fyrir tilstuðlan kvenna sem störf-
uðu innan SÞ.
Diskó, pílukast og skák
Diskóstuð með DT og Binna verður á
Grand Rokk bæði föstudags- og laugar-
dagsktöld 22. og 23. okt. Á morgun,
laugardag kl. 13.00 verður félagamót í
pílukasti og kl. 14.00 sama dag verður
fjórða og síðasta Johny Walker skákmót-
ið þar sem sigurvegarar fá vegleg verð-
laun.
Fundur um borgaralega fermingu
Kynningarfundur lyrir unglinga sem
áhuga hafa á borgaralegri fermingu vor-
ið 2000 og aðstandendur þeirra verður
haldinn laugardaginn 23. október kl. 11 -
12:30. Fundurinn verður í Kvennaskól-
anum, Fríkirkjuvegi 9, nýbyggingu, 1.
hæð, stofum 3 og 4. Á fundinum verður
næsta námskeið Siðmenntar til undír-
búnings borgaralegri fermingu kynnt.
Gerð verður grein fyrir einstökum efnis-
þáttum námskeiðsins og umsjónarkenn-
arar verða kynntir. Ennfremur vcrður
greint frá tilhögun væntanlegrar athafn-
ar næsta vor. Kjörin verður nefnd for-
eldra og forráðamanna til að hafa um-
sjón með athöfninni.
Ellíðaámar og lífríki þeirra
Mánudaginn 25. október heldur Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag fræðslufund í
stofu 101 í Odda og hefst hann kl.
20.30. Fyrirlesari er Gísli M. Gíslason,
prófessor og vatnalíffræðingur. Fyrirlest-
urinn ber heitið „Elliðaámar og lífríki
þeirra" og verður einkum fjallað um
botndýralíf og lískigengd.
OG SVO HITT...
Félag eldri borgara Asgarði,
Glæsibæ
Kaflistofa opin alla rírka daga frá kl.
10:00-13:00. Matur í hádeginu. Göngu-
Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði
laugardag ld. 10:00. Upplýsingar á skrif-
stofu félagsins í síma 588-2111 milli kl.
9;00 til 17:00 alla virka daga.
uíUi iAa-í n&m! ” ■
Bamaheill 10 ára
Skemmtun verður fyrir böm og aðstand-
endur þeirra 24. október í tilefni 10 ára
afmælis Barnaheilla. Hún verður haldin
í sal Ráðhúss Reykjavíkur og stendur frá
ld. 15.00-17.00. Einar Gylfi Jónsson
formaður félagsins býður gesti vel-
komna, Þórhildur Líndal umboðsmaður
bama flytur ávarp og kynnir verður
Edda Heiðrún Backman, leikkona.
Mörg böm af ýmsuni þjóðemum flytja
dagskrá af ýmsu tagi, með tónum, upp-
lestri og dansi. Má þar nefna japönsk
böm sem syngja, rússnesk lesa ljóð,
thailensk og filippísk dansa og 3 systkini
frá Kosovo syngja saman. Fjögurra og
fimm ára leikskólaböm syngja Meistara
Jakob á sex tungumálum og íslenskir
bamakórar syngja
Vetrarfagnaður
Breiðfirðingafélagið heldur vetrarfagnað
laugardagskvöldið 23. október í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14 og hefst dag-
skráin ld. 22.00.
LANDIÐ
TÓNIJST
Opið hús á Selásnum
Tónlistarskóli Austur-Héraðs á Egils-
stöðum hefur fengið viðbótarhúsnæði á
Selási 20. Þetta er vistlegur salur sem
getur tekið allt að 70 manns í sæti. I til-
efni þessa verður opið hús í Selásnum
laugardagskvöldið 23. október, þar sem
kennarar og nemendur flytja tónlistarat-
riðí og bomar verða fram léttar veitingar.
Tónlist frá Skælskör
Á Akranesi er nú staddur fríður hópur
tónlistamema frá Skælskör í Danmörku.
Þau munu halda tónleika í Grunnskóla
Akraness í kvöld kl. 20.00.
SÝNINGAR
Ljósmynda- og sögusýning
Húsnæði leikskólans Iðavalla við Gránu-
félagsgötu á Akureyri, verður 40 ára
þann 24. október nk. Haldið verður upp
á afmælið fyrsta vetrardag, 23. október.
Þá verður opnuð á leikskólanum ljós-
mynda- og sögusýning. Formleg opnun
hefst kl. 13:00, þar sem ýmsir boðsgestir
verða, s.s. bæjarstjórinn, bæjarstjóm,
skólanefnd, eldra starfsfólk o.fl. Sýning-
in er svo opin fyrir almenning frá kl.
13:30 til 16:00.
Ef fólk á minningar eða myndir frá Iða-
völlum frá fyrri tíð, er það hvatt til þess
að taka þær meðferðis um leið og sýn-
ingin verður skoðuð.
FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR
Fyrsta vetrardagsball
í Félagslundi
Félag harmoníkuunnenda á Selfossi
heldur fyrsta vetrardagsball í Félags-
lundi Gaulveijabæjarhreppi laugardags-
kvöldið 23. október. Söngvari með
hljómsveitinni verður Hjördís Geirsdótt-
ir sem þarna heldur upp á 40 ára
söngafmæli sitt.
Það besta
áskjánum
Ruslpóstur
Norska kvikmyndin Ruslpóstur (Budbringeren eða Junk mail)
segir frá ungum bréfbera sem kemst í hann krappann, þegar
hann tekur upp á því að hætta að bera út póstinn og fleygir
honum á skuggalegan stað, sem á eftir að hafa alvarlegar af-
leiðingar. Myndin er sýnd á Stöð 2 á fostudagskvöld kl. 22.25 og
er bönnuð börnum.
Box f beiuni
Prinsinn Naseem Hamed sem hefur lagt mótherja sína í 32 bar-
dögum, mætir Cesar Soto frá Mexíkó í beinni á Sýn í kvöld kl.
23.00 þar sem heimsmeistaratitillin ku vera í húfi.
Spennumynd frá Higgins
Mary Higgins Clark er þekktur spennusagnahöfundur og hafa
margar bíómyndir verið gerðar eftir sögum hennar. Eina slíka
er að finna í Ríkissjónvarpinu á laugardagskvöldið kl. 22.20.
Moonlight becomes you fjallar um tískuljósmyndara sem rann-
sakar dularfullt lát stjúpmóður sinnar.
Það besta á hádegi
í kvikmyndinni As good as it gets
eða eitthvað sem ekki getur orðið
betra, leikur Jack Nicholson ein-
dæma sérvitran náunga með full-
komnunaráráttu, sem engan veginn
getur umgengist annað fólk. Sýnd á
Bíórásinni á hádegi á sunnudag.
Ojni
h\4 á\a anirUpjí.t^ dntomftddtHil tú dFOI