Dagur - 23.10.1999, Side 8
Vm-LAUGARDAGUR 2 3. OKTÓBER 1999
T^mí-
Kirkjustarf__________________________
Sunnudagur 24. október
AKUREYRARKIRKJA
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimili kl. 11:00.
Messa kl. 14:00. Sopi og spjall eftir messu,
þar sem kirkjugestum gefst kostur á að
ræða efni predikunarinnar.
Biblíulestur í Safnaðarheimilinu mánudag kl.
20:00 í umsjá sr. Guðmundar Guðmunds-
sonar héraðsprests.
GLERÁRKIRKJA
Sunnudagaskóli Glerárkirkju fer í heimsókn
til Svalbarðskirkju. Foreldrar eru hvattir til
að koma með börnunum. Farið með rútu frá
kirkjunni kl. 13.30. Messa verður í Lög-
mannshlíðarkirkju kl. 14.00.
KFUM OG KFUK, SUNNUHLÍÐ
Almenn samkoma kl. 20:30. Kjellrún og
Skúli Svavarsson, kristniboðar, tala og sýna
myndir frá Kenyu, en þar hafa þau dvalið
undanfarin tvö ár. Fundur í yngri deild
KFUM og K mánudag kl. 17:30 fyrir drengi
og stúlkur 8 ára og eldri.
HVÍTASUNNUKIRKJAN, AKUREYRI
Bænastund kl. 20:00 laugardag.
Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11:30.
Kennsla fyrir alla aldurshópa. Yngvi Rafn
Yngvason predikar. Kl. 16:30 verðurvakn-
ingasamkoma. Katrín Harðardóttir mun
predika. Barnapössun. Fyrirbænaþjónusta.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, AKUREYRI
Messa laugandag kl. 18. Messa sunnudag kl. 11.
HJÁLPRÆÐISHERINN, AKUREYRI
Sunnudagaskóli kl. 11. Bæn kl. 16:30. Sam-
koma kl. 17. Unglingasamkoma kl. 20.
Heimilasamband kl. 15 mánudag.
SJÓNARHÆÐ, HAFNARSTRÆTI
Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13:30. Al-
menn samkoma á Sjónarhæð kl. 17.
Barnafundur kl. 18 mánudag.
SELFOSSKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Hádegis-
bænir kl. 12:10 þriðjudag til föstudags.
EYRARBAKKAPRESTAKALL
Barnaguðsþjónusta í Stokkseyrarkirkju kl.
11. Messa kl. 14. Sóknarprestur.
LÁGAFELLSKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Lágafells-
sóknar. Organisti Jónas Þórir. Barnastarf í
safnaðarheimilinu kl. 11. Jón Þorsteinsson.
PRESTSBAKKAKIRKJA l HRÚTAFIRÐI
Guðsþjónusta kl. 13:30. Minnst verður
Finns Jónssonar, fræðimanns á Kjörseyri,
og fjölskyldu hans. Barnastund. Organisti
Pálína Skúladóttir. ÁS og GLÁ.
ÓSPAKSEYRARKIRKJA f BITRUFIRÐI
Guðsþjónusta kl. 16. Organisti Pálína
Skúladóttir. ÁS
ÁRBÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11 árdegis með þátttöku
AA-manna. Barnaguðsþjónusta kl. 13. For-
eldar - afar - ömmur eru boðin velkomin
með börnunum. Yngri deild æskulýðsfé-
lagsins kl. 20-22. „Kirkjuprakkarar“. 7-9 ára
kl. 16-17 á mánudögum. T.T.T. Starf fyrir
10-12 ára kl. 17-18 á mánudögum. Eldri
deild Æskulýðsfélagsins kl. 20-22.
BREIÐHOLTSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa á sama
tíma. Altarisganga. Yngri barnakórinn syng-
ur. Organistí: Daníel Jónasson.
DIGRANESKIRKJA
Kl. 11. Messa. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Létt-
ur málsverður eftir messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová.
Barnakór Fella- og Hólakirkju syngur. Nýr
hökull verður tekinn í notkun sem hannaður
er af Sigríði Jóhannsdóttur og Leifi Breið-
fjörð. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Um-
sjón Margrét Ólöf Magnúsdóttir. Prestarnir.
Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl.
17-18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á
mánudögum kl. 20-22. Bænastund og fyrir-
bænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bæna-
efnum í kirkjunni.
GRAFARVOGSKIRKJA
Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11.
Prestur sr. Sigurður Arnarson. Umsjón:
Hjörtur og Rúna. Sunnudagaskóli í Engja-
skóla kl. 11. Prestur sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir. Umsjón: Signý, Guðrún og Guðlaug-
ur. Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14.
Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari.
Þórður Guðmundsson guðfræðingur prédik-
ar. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænar-
efnum í kirkjunni alla virka daga frá kl. 9-17
í síma 567-9070.
HJALLAKIRKJA
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Hjörtur
Hjartarson þjónar. Kór Hjallaskóla kemur í
heimsókn. Stjórnandi er Guðrún Magnús-
dóttir. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.
Barnaguðsþjónusta i kirkjunni kl. 13 og í
Lindaskóla kl. 11. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl.
20.30. á mánudögum. Prédikunarklúbbur
presta í Reykjavikurprófastsdæmi eystra er
á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Umsjón Dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson.
MINNINGARGREINAR
Guðmundur Hákonarson
KÓPAVOGSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Guðni Þór Ólafsson. Organisti: Hrönn
Helgadóttir.
SELJAKIRKJA
Krakkaguðsþjónusta kl. 11. Mikill söngur og
fræðsla fyrir krakka. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Organisti er
Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur.
K.F.U.K fundir á mánudögum. Kl. 17.15
stelpustarf á vegum KFUK og kirkjunnar fyr-
ir 6-9 ára og kl. 18.30 fyrir 10-12 ára.
Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12.
ÁSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta
kl. 14:00. Altarisganga. Kaffi eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA
Barnamessa kl. 11:00. Léttir söngvar, bibl-
íusögur, bænir, umræður og leikir við hæfi
barnanna. Tónlistarmessa kl. 14:00 með
þátttöku Cleakheaton flute orchestra frá
Huddersfield í Englandi.
TTT æskulýðsstarf fyrir 10-12 ára kl. 17:00
mánudag.
DÓMKIRKJAN
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Hjalti
Guðmundsson þjónar. Dómkórinn syngur
undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar.
Æðruleysismessa kl. 21:00 tileinkuð fólki i
leit að bata eftir tólfsporakerfinu. Sr. Karl V.
Matthíasson prédikar. Anna Sigríður Helga-
dóttir syngur við undirleik Bræðrabandsins.
ELLIHEIMILIÐ GRUND
Guðsþjónusta kl. 10:15. Prestur sr. Magnús
Björnsson. Organisti Kjartan Ólafsson. Karl-
menn leiða söng. Einsöngur Björn Björns-
son, baritón.
GRENSÁSKIRKJA
Barnastarf kl. 11:00. Ferð kirkjukórs, org-
anista og sóknarprests í Skálholt. Messa í
Skálholtsdómkirkju kl. 14:00. Tónleikar kl.
17:00. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA
Fræðslumorgunn kl. 10:00. Biskup hinna fá-
tæku. Guðmundur biskup góði: Gunnar F.
Gunnarsson, sagnfræðingur. Messa og
barnastarf kl. 11:00. Félagar úr Mótettukór
syngja. Organisti Hörður Askelsson. Sr. Sig-
urður Pálsson.
LANDSPÍTALINN
Messa kl. 10:00. Sr. Ingileif Malmberg.
HÁTEIGSKIRKJA
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.
Messa kl. 14:00. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA
Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00.
Bragi Bergsveinsson flytur hugvekju og
kynnir starf Gideonfélagsins. Tekið við sam-
skotum til félagsins. Kaffisopi eftir messu.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11:00.
Umsjón Lena Rós Matthíasdóttir og Bryndís
Baldvinsdóttir. Tónleikar í kirkjunni kl. 20:00.
Margrét Bóasdóttir og Björn Steinar Sól-
bergsson flytja íslenska kirkjutónlist.
LAUGARNESKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór
Laugarneskirkju syngur, organisti Gunnar
Gunnarsson. Hrund Þórarinsdóttir stýrir
sunnudagaskólanum með sínu fólki. Leifur
Ragnar Jónsson guðfræðingur prédikar.
Messukaffi og djús fyrir börnin á eftir.
Vinnudagur í kirkju og safnaðarheimili kl.
17:45. Kl. 19:00 er Pálínboð. Hver fjölskylda
leggur sitt af mörkum á hlaðborð. Morgun-
bænir mánudag kl. 6:45.12 sporahópur
mánudag kl. 20:00.
NESKIRKJA
Félagsstarf aldraðra kl. 13:00 laugardag.
Samverustund i safnaðarheimilinu. Dans-
hópur sýnir og kennir létta hringdansa fyrir
aldraða. Kaffiveitingar.
Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Átta til níu ára
starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Prestur sr. Magnús Björnsson. Tónleikar
Sinfoníuhljómsveitar áhugamanna kl. 17:00.
11 1,10-12 ára starf mánudag kl. 16:00.
Kirkjukór Neskirkju æfir mánudag kl. 19:00.
Nýir félagar velkomnir. Fótsnyrting á vegum
Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16.
Uppl. Ísima551 1079. Mömmumorgnar alla
miðvikudaga kl. 10-12.
SELTJARNARNESKIRKJA
Messa kl. 11:00. Barnastarf á sama tíma.
Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestur sr.
Sigurður Grétar Helgason.
Æskulýðsfélagið kl. 20-22.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN
Guðsþjónusta kl. 14:00. Barnastarf á sama
tíma. Maul eftir messu.
MESSUR ERLENDIS
Messa í London, sunnudag 24. okt. kl.
15:00 í Fulham Palace Chapel. Prestur sr.
Jón A. Baldvinsson. Biskup íslands vísiterar
söfnuðinn. Næsta lestarstöð er Putney
Bridge.
FRIÐRIKSKAPELLA
Kyrrðarstund i hádegi mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu að
stundinni lokinni.
■■
Fæddur 16. september 1930 á
Húsavík. Foreldrar Hákon
Maríusson, sjómaður og Olöf
Kristjánsdóttir, húsmóðir.
Guðmundur missti móður sína
á fyrsta ári og ólst upp hjá
móðurafa og móðurömmu,
Kristjáni Jónssyni og Hólmfríði
Friðfinnsdóttur í Kvíabekk til
14 ára aldurs. Hann flutti með
föður sínum og móðursystur,
Fjólu Kristjánsdóttur, sem
annaðist heimili fyrir feðgana
að Asgarðsvegi 1 (húsið Sel)
Hálfbróðir Guðmundar, Sverr-
ir Hákonarson, f. 1941, ólst
þar upp frá 6 ára aldri. Gangn-
fræðingur frá Laugaskóla
1949.
Guðmundur kvæntist 15.
maí 1955 Stefaníu Halldórs-
dóttur frá Bala á Húsavík.
Börn þeirra eru:l) Hákon Óli ,
f. 8. júní 1961, kona hans er
Guðlaug Baldvinsdóttir. bætur
þeirra eru: Björg 12 ára og
Stefanía 9 ára. 2) Dóra Fjóla,
f. 19. febr. 1966, gift Stefáni
Geir Jónssyni. Börn þeirra eru
Hanna Jóna 10 ára og Guð-
mundur Arni 4 ára.
Guðmundur starfaði við sjáv-
arútveg og byggingarvinnu
framan af æfinni, síðan við
síldarsöltun og verslun. Starfs-
maður hjá Mjólkursamlagi KÞ
1955-1961. Framkvæmdastj.
við Höfðaver hf. síldarsöltun.
Frkvstj. fyrir Prjónastofunni
Prýði frá 1972-1997. Vara-
maður í bæjarstjón Húsavíkur
frá 1954-1958 og síðan aðal-
maður til 1970. I stjórn og for-
maður Alþýðufl.félags. Húsa-
víkur um árabil og einnig í
mörg ár í flokksstjón Alþýðu-
flokksins. Formður stjórnar
Fiskiðjusamlags Húsavíkur í
mörg ár og í stjórn Höfða hf.
útgerðarfélags. Framkv.stj
Hlöðufells um skeið. Guð-
mundur var mjög virkur í
Bridsfélagi Húsavíkur til fjölda
ára. Hann var virkur í verka-
lýðsmálum um langan tíma og
sat í stjórn Verkalýðsfélags
Húsavíkur.
Útförin fór fram frá Húsavík-
urkirkju laugard.16. septem-
ber s.l.
Föstudaginn 8. okt. s.l. átti ég
langt samtal í síma við Guðmund
Hákonarson. Ahugi hans á vel-
ferð Húsavíkur var einlægur sem
ætíð áður. Hann undraðist að 80
einstaklingar voru á brott á s.l. 8
mánuðum. Nú er hann sjálfur
farinn í þá ferð, er bíður okkar
allra. Guðmundur hafði barist
hetjulega við illvígan sjúkdóm í
mörg ár. Stundum virtist, sem
endalokin væru skammt undan,
en mikill vilji, og gott skap, sem
einkenndi hann ætíð, máttu sín
mikils í allri baráttunni. Síðustu
orð mín við hann voru hvort
hann gæti gengið utandyra. „Eg
er með ónota stingi, við sjáum
bara til“, og svo kveðjuorð. Enda-
lokin voru við næsta leiti.
Guðmundur kom úr umhverfi,
þar sem vinna og aftur vinna var
stunduð hvenær, er færi gafst.
Störfin voru tengd sjósókn, land-
búnaði eða almennri verka-
mannavinnu. Hann missti móð-
ur sína á fyrsta ári. Faðir hans
var sjómaður. Hann sótti sjó suð-
ur eins og títt var á þeim árum.
Síld á sumrum og við réttir og
sláturverk á haustin. Guðmund-
ur elst upp hjá afa og ömmu í
móður ætt fram um fermingu.
Þá tekur Fjóla móðursystir hans
við heimili fyrir Hákon mág sinn
og Guðmund, í húsinu Seli á
Húsavík Guðmundur ólst upp
við mikil og góð kynni af sjó-
mennsku og landbúnaði. Hann
var fjöldamörg ár í sveit á Langa-
vatni í Reykjahverfi og hafði þar
gott atlæti. Síðar á sjó. A ung-
lings árum hans var frjálst að
leika sér á túnum beggja afanna
og sinna skepnum eftir atvikum
vor og haust. Frelsi fyrir ungling-
ana til leikja var algert, á túni eða
í fjörunni. Heyskapur var yndi
unglinga á Húsavík á uppvaxtar-
árum hans. Einnig að stokka og
beita línu.
Ekki þurftu menn að sitja lengi
að umræðum með Guðmundi til
þessa að komast að því að mál-
efni Alþýðuflokksins voru honum
mjög hugleikin. Segja má að
hann hafi gersamlega helgað sig
hugsjónum jafnaðarstefnunnar
alla sína tíð og barist fyrir henni
hvar sem við var komið. Þessa
hugsjón fékk hann þegar sem
unglingur og vék ekki frá henni.
Sameiningin nú milli gamalla
hugsjónaflokka var honum mjög
hugleikin og vildi hann veg
hennar sem mestan. Það gladdi
hann mjög að vel tókst til við síð-
ustu kosningar á Húsavík.
Guðmundur var í eðli sínu fé-
lagslyndur og naut sín vel við spil
og spjall. I mjög langan tfma spil-
aði hann brids og var vel liðtæk-
ur á því sviði. Ahugi hans á
hagsmunum og atvinnu fólksins
var ekki eingöngu bundin við
Húsavík. Hann var eldheitur bar-
áttumaður fyrir því, að almenn-
ingur gæti lifað við góð kjör hér á
landi og réttmætur jöfnuður
ríkti. Hann hafði mikinn beyg af
þeirri þróun síðustu ára sem
kvótakerfið var að leiða yfir þjóð-
ina. Hann kallaði flóttann utan
af landi þjóðflutninga og var-
hugaverðan. Sanngjarn jöfnuður
í lffskjörum yrði að ríkja í Iand-
inu, og möguleikar til þess að
njóta sín.
Það er svo að jafnaði, að hug-
sjónamenn þurfa á stuðningi að
halda heimavið sem út á við.
Guðmundur naut þess í ríkum
mæli frá konu sinni Stefaníu
Halldórsdóttur, og síðar syni og
dóttur. Heimilisfriður er rofinn
með símtölum í tíma og ótima.
Þessu öllu var mætt með still-
ingu og velvild á heimili þeirra í
tugi ára. Liðsinni var þeim eðlis-
lægt.
Minningin um hcilsteyptan
drengskaparmann mun lifa með-
al þeirra, sem þekktu til Guð-
mundar. Eg votta fjölskyldunni
dýpstu samúð.
Jón Ármann Héðinsson.
^ýFAKAKSTo^
/SLANDS
Markmið Útfararstofu Islands er að veita trausta og persónulega
þjónustu, Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenaer sólarhrings
sem er. Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla
þá þætti er hafa ber í huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar
Útfararstofu íslands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við
útfararþjónustu um árabil.
Utfararstofa Islands sér um:
Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í
samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef
með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
- Prest.
- Dánarvottorð.
- Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara
og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
- Líkbrennsluheimild.
- Duftker ef líkbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning kistu út á land eða utan af landi.
- Flutning kistu til landsins eða frá landinu.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Útfararstofa íslands - Suðurhlíð 35 -105 Reykjavík.
Sími 581 3300 - allann sólarhringinn.
ÍSLENDINGA^TTIR
íslendingaþættir birtast í Degi
alla laugardaga.
Skilafrestur vegna minningagreina er til
þriðjudagskvöids.
Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.
Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á
tölvutæku formi.