Dagur - 04.11.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 04.11.1999, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 4. nóvember 1999 2. árgangur - 36. Tölublað Samiðum Bakkahverfi Fossmenn og Árborg semja. Nýtt íbúða- hverfí á bökkum Ölfus- ár rís, þar sem verða 350 íbúðir og 1.200 maims munu eiga samastað í tilveruuni. Bæjaryfírvöld ánægð. Gengið hefur verið frá samn- ingum um kaup og uppbygg- ingu nýs byggingalands á Sel- fossi, sem er í landi Selfossjarð- arinnar, milli Eyrarvegs og Olf- usár. Samningar voru undirrit- aðir sl. mánudag og eru þeir milli byggingafélagsins Foss- manna ehf., sem eignast hafa tvo þriðju hluta þessa lands og Sveitarfélagsins Arhorgar, sem hefur eignast þriðung svæðis- ins. Eru samningar þess efnis að Fossmenn muni sjá um alla skipulagsvinnu á svæðinu, gatna- gerð og slíkar framkvæmdir, en það er nýlunda á Selfossi að slíkt sé í höndum einkaaðila. I hinu nýja byggingalandi áforma Foss- menn að byggja hverfi fyrir um 350 íbúðir, þar sem um 1.200 manns geta átt sér sér samastað í tilverunni. Reiknað er með að hverfið muni byggjast á áratug. Garðyrkjuskól- iimlqniiir Nemendur Garðyrkjuskóla ríkis- ins á Reykjum í Ölfusi munu kynna aðalverkefni sín fyrir al- menningi í húsakynnum skólans miðvikudaginn 10. nóvember og fimmtudaginn 11. nóvember, frá kl. 10:30 báða dagana. Þetta er í fýrsta skipti, sem vcrkefnin eru kynnt á þennan hátt og því er vænst góðrar þátttöku fólks í græna geiranum svonefnda. Fimmudaginn 11. nóvember frá klukkan 17 til 20 verður síðan haldið málþing í skólanum um stöðu og framtíð garðyrkju- menntunar hérlendis. Ný lög um skólann gefa honum meðal ann- ars möguleika á afmörkuðu há- skólanámi í garðyrkjufræðum. Samtímis er hugað að því námi sem nú þegar er boðið upp á og stöðu þess innan framhaldsskól- anna. A málþinginu verður tæki- færi til að ræða og viðra hug- myndir, skiptast á skoðunum. Nauðsynlegt er að þeir sem áhuga hafa á að sitja þetta mál- þingi skrái sig til þátttöku hjá endurmenntunarstjóra skólans fyrir 10. nóvember. -SBS. Guðmundur Sigurðsson. Reykvíkingar sýna áhuga. Nýjimg í sveitarfélaginu „Hér er um að ræða nýjung við uppbyggingu nýrra hverfa í sveit- arfélaginu," segir í minnispunkt- um sem forystumenn Arborgar, þar á meðal Karl Björnsson bæjar- stjóri létu frá sér fara sl. mánudag. „Fordæmi eru um slíkt hjá nokkrum sveitarfélögum sem hafa gefist vel. Bæjaryfirvöld telja kosti þessa fyrirkomulags augljósa fyrir sveitarfélagið. Arborg þarf ekki að Ieggja fé til kaupa á landi eða binda (jármagn í gatnagerð. Fram- boð lóða eykst og um leið fjöl- breytni f vali á byggingalóðum. Sveitarfélagið mun áfram bjóða Karl Björnsson. Kostirnir augljósir fyrir sveitarfélagið. lóðir í sinni eigu á þeim bygginga- svæðum sem skipulögð eru hverju sinni. Markmiðið er að anna ávallt eftirspurn eftir öllum tegundum Ióða. I því sambandi verður fljót- lega úthlutað íbúðalóðum í Suð- urbyggð á Selfossi," segja bæjaryf- irvöld á Selfossi. „Hinir nýju byggingamöguleikar sem skapast með íbúðasvæðinu í Fosslandinu hafa þegar kallað fram eftirspurn eftir lóðum þar og fram kemur greinilegur áhugi fólks á þessu byggingalandi," segir Guðmundur Sigurðsson á Sel- fossi, en hann er einn af þeim sem að Fossmönnum standa. Hinir eru Steinar Árnason og svo eigendur J.A.-Verktaka, byggingameistar- arnir Jón Ami Vignisson og Gísli Agústsson. Hentar vei uiulir íbúðabyggð „Það er ekki síst fólk af höfuðborg- arsvæðinu sem hefur sýnt lóðum á þessu svæði áhuga," segir Guð- mundur Sigurðsson og segir að svæði þetta henti einkar vel undir íbúðabyggð. „Náttúran með nær- veru Ölfusár er heillandi yfir að líta og víðáttan sem tekur við fyrir vestan og norðan svæðið er ein órofin heild og blasir við frá byggðinni. Sólarlag er óvíða feg- urra en á þessu svæði og um 60 metra breiður árbakkinn er með vel varðveitta villta náttúru og úti- vistarsvæði sem býður upp á fjöl- breytileika sem tengist vel ánni með fuglalífi og þeirri mildu fisk- gengd sem þar er á sumrin." A þessum tímapunkti gera Foss- menn sér þær væntingar að fram- kvæmdir við fyrstu húsin í hinu nýja hverfi á bökkum Ölfusár geti hafist f maí næsta vor. Hverfinu hefur enn ekki verið gefið nafn, en hugmyndir hafa vaknað um að nefna það Bakkahverfi og götu- nöfnin yrðu þá til dæmis Arbakki, Lækjarbakki og svo framvegis. Þykir mönnum að þau nöfn hæfi hverfinu vel, sérkennum þess og staðháttum. -SBS. Þórður Rafn Sigurðsson útgerðar- maður um borð í Dala-Rafni, þar sem verið er að hífa sorpgáminn góða um borð. Umhverfis vemd i verM Fyrsti sorpgáumurinn settur um borð í íslenskt fiskiskip. 1 sama skipi er ísþykknivél. Útgerðarmenn Dala-Rafns VE hafa ætíð verið framsýnir og snöggir að tileinka sér nýjungar. Á dögunum var verið að hífa um borð í skipið sorpgám, sem er sérhannaður til þess að taka við sorpi sem til fellur frá áhöfn- inni, en þetta er fyrsti sorpgám- ur sinnar tegundar sem tekinn er í notkun á íslensku skipi. En fleira hafa eigendur skipsins verið að koma fyrir um borð í skipinu sem til nýjunga telst, því þeir hafa tekið í notkun ís- þykknivél sem framleiðir ís úr sjó. Dala-Rafn er þó ekki fyrsta skipið sem tekur slíka ísþykkni- vél í notkun, því slík vél mun einnig vera um borð í Bylgjunni VE. Ekkert sorp í sjóímui Þórður Rafn Sigurðsson, út- gerðarmaður Dala-Rafns, segir þetta Iið í að vernda umhverfið og þann fisk sem í sjónum synd- ir. „Með tilkomu gámsins er engu sorpi hent f sjóinn, hcldur sett í gáminn og hann losaður í landi. Gámurinn sem tekur um 1500 Iítra er framleiddur í Kanada af Sæplasti og er held ég fyrsti gámurinn sem kemur til landsins og settur um borð í ís- lenskt skip.“ Þá segir Þórður að það sé nú mikill munur á því að geta framieitt ís um borð í skip- inu. „Fyrir það fyrsta geturn við búið til ís eftir þörfum hverju sinni og þar af leiðandi kælt fiskinn á tveimur tímum, sem tók hátt í sólarhring með ís sem fenginn var í landi áður. Vélin tekur um 3.000 Iítra og er um það bil tvo tíma að framleiða það magn. Þetta tryggir auk þess mun meiri ferskleika hráefnis- ins, sem er krafa dagsins. Verðmætaaúkning Þórður Rafn segir að unr leið fái kaupandi aflans ferskari vöru og útgerðin hærra verð. „Eg gæti trúað því að verðmætaaukningin með tilkomu fsþykknivélarinnar sé á bilinu tíu til fimmtán pró- sent. Þessi vél er framleidd af Brunnum í Hafnarfirði og bygg- ir að miklu lcyti á íslensku hug- viti og hönnun," sagði Þórður / dag kemur út hljómplatan Leikur að vonum, þar sem Ólafur Þórarinsson, títtnefndur Labbi í Glóru, syngur lögin sfn. Rætist þar með draumur Labba um sólóplötu, en í brjósti hans hefur draumurinn búið í um aldarfjórðung. En Labba er sitthvað fleira til lista lagt en að geta sungið og leikið. Tvisvar í viku fer hann suður til Reykjavíkur og æfir þar fimleika, sem margur myndi telja gott hjá manni á hans aldri. Sjá viðtal við Labba á bls. 3, um þetta merkilega tvíeðli hans. mynd: teitur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.