Dagur - 11.11.1999, Síða 5
Tfc^wr
FÍMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Brúðkaupsferð
til Parísar
„Brúðkaupsferðina okkar fórum við
til Paríaar og skoðuðum þar helstu
merkisstaði borgarinnar," segir Lilja
Ragnarsdóttir. Þann 14. ágúst síðasta
sumar gekk hún að eiga Ivar Agnar
Rúdolfsson - en brúðkaupið var með
pomp og prakt í Kópavogskirkju, þar
sem sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson gaf
þau saman. Gestir í þrúðkaupinu
nálguðust hundraðið.
„Við kynntumst í útilegu í Þórs-
mörk sumarið 1997,“ segir Lilja, en
hún er tannfræðingur að mennt og
starfar á tannlæknastofu Barkar
Thoroddsen. ívar er hagfræðingur að
mennt og hann vinnur hjá fyrirtæki
föður síns, Kaupseli, sem meðal ann-
ars flytur inn bamableyjur. - Bæði
eru þau 36 ára, saman eiga þau dótt-
urina Sólveigu Veru, sem er eins árs,
en fyrir á Lilja soninn Sigurjón, sem
er sex ára. „Framtíðarmarkmiðin eru
engin önnur en þau að taka þátt í
lífsdansinum og vera hamingjusöm,"
segir Lilja.
„Við kynntumst í útilegu í Þórsmörk, “
segir LHja Ragnarsdóttir, sem hér er með
eiginmanni sínum, ívari Agnari Rúdolfs-
syni. (barna <§ fjölskylduuósmyndir:
GUNNAR LEIFUR JÓNSSON.]
Gefin voru saman
afsr. Pálma Matthí-
assyni í Háteigs-
kirkju þann 17. júlí
sl. þau Ása Fanney
Rögnvaldsdóttir og
Svanur Baldursson.
Heimili þeirra erað
Bústaðavegi 73 í
Reykjavík. (uós-
MYNDAST. MYND,
HAFNARFIRÐI.)
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband þann 24. júlí sl. afsr.
Bryndísi Möllu Elidóttur i Minn-
ingarakapellu Jóns Steingríms-
sonar, þau Fanney Ólöf Lárus-
dóttur og Sverrir Gíslason.
Heimili þeirra er að Skaftárvöll-
um 6 á Kirkjubæjarklaustri.
(UÓSMYNDAST. MYND,
HAFNARFIRÐI.)
Gefin voru saman af
sr. Guðmundi Óskari
Óiafssyni, þann 24.
júii sl. í Kálfatjarnar-
kirkju, þau Rakel
Linda Kristjánsdóttir
og Hjörleifur Krist-
jánsson. Heimili
þeirra er að Sörla-
skjóli 54 í Reykjavík.
(UÓSMYNDAST. MYND,
HAFNARFIRÐI.)
Gefin voru saman afsr. Halldóri
Reynissyni í Neskirkju þann 22.
mai sl. þau Böðvar Markan og
Kristín Ármannsdóttir. Heimili
þeirra er að Álagranda 10 í
Reykjavík. (uósmyndastofa
SIGRÍÐAR BACHMAN.)
95
Ég held ég gangi heim
66
SVOiMA
ER LIFIÐ
Pjetur St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
460 6124 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
pjeturst@ff.is
Nútímamaðurinn býr í tilbúnum veruleika, sem hann hefur lít-
il sem engin áhrif á. Tækniþróunin stjórnar lifnaðarháttum
fólks og margar hverjar gera það að verkum að maðurinn
hreyfir sig sífellt meira. Margir lifa í heimi íjarstýringa, lyftna
og einkabíla. I vikublaðinu Austurlandi í fyrri viku var grein frá
staðardagskránefnd 21 í Fjarðabyggð, þar sem nefndin hvetur
fólk til þess að láta börnin sín ganga í skólann. Börnum sé ekki
greiði gerður með því að keyra þau alla skapaða hluti. Víða er
því þannig háttað að fullorðnar fyrirmyndir barnanna hreyfa
sig vart spönn frá rassi nema í búri úr gleri og stáli og nota bif-
reiðina sem yfirhöfn. Börn og fullorðnir gerast afvön því að
ganga og eiga hreinlega í vandræðum með að setja ann fótinn
fram fyrir hinn.
Gönguferðir eru góð útivist og holl hreyfing. Víða um land
er því þannig háttað að hægt er að fara í góða göngutúra um
fallegt svæði án þess að kosta neinu til. Hérlendis eru mögu-
leikarnir nær óteljandi. Ferðafélög leggja mikið upp úr skipu-
lögðum gönguferðum fyrir hópa allt árið. Hin síðari ár hefur
fjöldi leiðsögumanna bæst í hóp þeirra sem fyrir voru sem hef-
ur hefur orðið til þess að nú gefst fólki kostur á að fara gang-
andi um einstök svæði undir góðri leiðsögn og fræðast þannig
um landið og sögu þess betur en annars er kostur.
Margir hoppa og skoppa í Iíkamsræktarstöðvunum, hjóla
þar á þreldijólum eða hlaupa á hlaupabrautum, fara svo inní
nýju og fínu bílana sína eftir á og keyra fáeina kílómetra heim
til sín. Flestir vilja komast á bílunum sínum sem næst þeim
stað sem þeir eiga erindi á og þar með skapast alræmd vand-
ræði með bíiastæði. Þeir eiga kannski erindi á þrjá til fjóra
staði en vilja komast á milli á bílnum, því er bifreiðum lagt
víða uppá gangstétt-
um, en í 27. grein um-
ferðarlaganna er lagt
blátt bann við að
stöðva eða leggja öku-
tæki á gangstétt eða
gangstíg, sama á við
um umferðareyjar.
Enda skapar það
hættu gangandi veg-
farendum, sem þurfa
að fara út á götur þar
sem oft er hröð um-
ferð. En vfða er hægt
að Ieggja nenni maður
að leggja á sig það erf-
iði að ganga nokkra
metra.
■ HVAfl ER Á SEYÐI?
BYRJAÐU í DAG AÐ ELSKA
Hljómsveitin Geirfuglarnir sendir frá
sér aðra plötu sveitarinnar föstudaginn
12. nóvember. Hún ber hið ljúfa heiti
Byrjaðii í dag að elska. Á plötunni eru
12 frumsamin lög eftir meðlimi sveitar-
innar. Til að fagna þessum merkilega
árangri mun hljómsveitin halda útgáfu-
tónleika í Kaffileikhúsinu í kvöld . Hús-
ið verður opnað kl. 21.30 og byrjar dag-
skráin með léttri upphitun sem fim-
leikafélagið Rósin sér um, því næst
mun Dónadúetlinn kynda mannskapinn upp fyrir hápunkt kvöldsins sem er að sjálf-
sögðu hinir óaðlaðandi, óferjandi og útdauðu Geirfuglar. Tónleikarnir verða teknir
upp af RAS 2 og sendir út síðar.
Þar sem Kaffileikhúsið er ekki stór staður, er aðdáendum Geirfuglanna bent á að
mæta tímanlega.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Upplestur í Gerðarsafni
I dag verður upplestur á vegum Ritlist-
arhóps Kópavogs í Gerðarsafni. Ólafur
Gunnarsson, rithöfundur, les úr nýút-
kominni skáldsögu sinni, Vetrarferðin.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Heilsugæsla og mannfræði
Föstudaginn 12. nóvember kl. 12.00
flytur Veena Das, prófessor í mannfræði
við New School of Social Research í
New York og við Delhi háskóla á lnd-
landi, opinberan fyrirlestur á vegum
Mannfræðistofnunar Háskóla íslands í
stofu 101 í Odda. I fyrirlestri sínum,
sem hún nefnir „Public Goods and Pri-
vate Terrors: Biomedicine, Poverty and
the Globalization of Health", mun Das
fjalla um tvenns konar skilning á heil-
brigðismálum og spennuna þar á milli;
annars vegar er litið á heilsugæslu sem
hnattræn gæði almenningi til handa og
hins vegar sem einstaklingsbundið verk-
efni. Veena Das er heimskunn fyrir
rannsóknir sínar og ritstörf. Hún hefur
gegnt margvíslegum ábyrgðarstörfum,
m.a. setið í alþjóðlegri nefnd um mál-
efni fórnarlamba Bhopal slyssins og í
siðanefnd UNESCO um líftækni. Fyrir-
lesturinn er á ensku og öllum heimill.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Kaffistofa opin alla virka daga frá kl.
10:00-13:00. Matur í hádeginu. Brids í
dag fimmtudag kl. 13.00. Bingó í kvöld
kl. 19.15. Allir velkomnir. Árshátíð FEB
verður haldinn laugardaginn 13. nóvem-
ber. Fjölbreytt skemmtiatriði. Hljóm-
sveit Hjördísar Geirs leikur f)TÍr dansi.
Sala aðgöngumiða og borðapantanir á
skrifstofu félagsins. Upplýsingar á skrif-
stofu félagsins í síma 588-2111 milli kl.
9:00 til 17:00 alla virka daga.
LANDIÐ
Holdleg og andleg miðstöð
Annar fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni
Byggð og menning verður í kvöld er
Árni Daníel Júlfusson sagnfræðingur hjá
ReykjavíkurAkademíunni flytur fyrirlest-
ur sem nefnist: Holdleg og andleg mið-
stöð - Eyrarbakki og Skálholt á 18 og 19
öld. Fyrirlesturinn verður í Byggðasafni
Árnesinga, Húsinu á Eyrarbakka, og
hefst kl. 20.30. Aðgangseyrir er kr. 650
og eru kaffiveitingar í hléi innifaldar í
verði. Nánar má fræðast um fyrirlestrar-
röðina á heimasíðu Byggðasafns Árnes-
inga og er slóðin http://www.south.
is/husid/frettir.html