Dagur - 18.11.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 18.11.1999, Blaðsíða 2
2 - FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 ro^ftr SUDURLAND RAN G ARVALLA- HREPPUR Ásahreppur með í hitaveitu Á fundi hreppsnefndar Rangárvallahrepps nýverið var kynnt að stjórn Hitaveitu Rangæinga hefði á fundi nýlega með þeim sveit- arstjórnum sem aðild eiga að veitunni lagt til að Ásahreppur yrði samþykktur sem eignaraðili að veitunni með framlagi að upphæð 12 milljónir kr. sem jafngiltu 4% af reiknuðu verðmæti hennar. Tillagan fékk jákvæðar móttökur á áðurnefndum hreppsnefndar- fundi. - Þá var kynnt að stjórn Hitaveitu Rangæinga hefði lagt til að gjaldskrá yrði hækkuð um 5% til jafns við þróun verðlags í ár. Þess var getið að gjaldskráin hafi ekki hækkað frá árinu 1993 og jafngildi það 35% raunlækkun. Fram kom á þessum hreppsnefnd- arfundi hjá þeim sem til máls tóku að æskilegt væri að halda í við hækkanir á gjaldskrá vegna óhagstæðs samanburðar við önnur hitaveitusvæði. Stjórn veitunnar mun því taka þessa tillögu til um- fjöllunar á ný. Tilhoð í tryggingar Á hreppsnefndarfundinum var lagt fram bréf frá Vátryggingafélagi Islands hf. með boði um frekari lækkun iðgjalda trygginga Rangár- vallahrepps ef samið er um tryggingaverndina til nokkurra ára. Hreppsnefnd tók hinsvegar þann pól í hæðina að leita eftir tilboð- um í tryggingapakkanN allan og var tillaga þess efnis samþykkt samhljóða. Bætt unglingamenning Bætt unglingamenning var yfirskrift erindis frá Sigurgeiri Guð- mundssyni, skólastjóra Grunnskólans á Hellu. Sigurgeir vekur at- hygli á hugsanlega óæskilegum áhrifum sjónvarpsstöðvar sem er á kapalkerfi sjónvarpsstöðva í byggðarlaginu. I bréfinu ræddi Sigur- geir jafnframt um dvöl unglinga á skólalóð á kvöldin um helgar og ýmsa óæskilega fylgifiska, svo sem áfengisneyslu og reykingar. Sig- urgeir fór fram á það að sveitarstjórnin athugi hugsanlegar leiðir til úrbóta til dæmis betri lýsingu skólalóðar, opnun félagsmið- stöðvar um helgar og fleira slíkt. Máli þessu var vísað til Fræðslu- og æskulýðsnefndar. Vínveitingar Kristjáns X Hreppsnefnd fjallaði á þessum fundi sínum um umsókn um leyfi til áfengisveitinga vegna veitingastaðarins Kristjáns X á Hellu. Kristján Ragnar Erlingsson sækir um almennt leyfi til áfengisveit- inga þar, er gildi til 2ja ára. Einnig sækir Kristján um að fá að hafa staðinn opinn frá kl. 11:30 til kl. 23:00 á virkum dögum og frá kl. 12:00 til kl. 03:00 að nóttu á föstudögum og laugardögum. Sam- þykkt samhljóða að veita leyfi til eins árs til almennra áfengisveit- inga. Umsókn um opnunartíma samþykkt með fyrirvara um ákvæði lögreglusamþykktar Rangárvallasýslu. Tilboð í fomleifaskráningu Á hreppsnefndarfundinum var jafnframt kynnt tilboð Fornleifa- stofnunar Islands um tilboð um aðalskráningu fornleifa í Rangár- vallahreppi. Kostnaður er áætlaður rúmar 2,5 millj. kr. og er þá miðað við að verkið verði unnið í einum áfanga og unnið á næsta ári. Einnig er í boði að skipta verkinu í fleiri áfanga á nokkur ár, ef mál þróast svo. Afgreiðslu þessa erindis frestað. ÚTVARP SUDIJKLANDS FM 96,3 og 105,1 Fimmtudagurinn 18. nóvember 07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H. 09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs. 12:00-13:00 Með matnum. Tölvukailinn 13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds 17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason 18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Soffía Sig. 19:00-22:00 Sporlröndin. Fanney og Svanur 22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjartan Björnsson Föstudagurinn 19. nóvember 07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H 08:20-09:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún 09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs. 12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn 13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds 17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason 18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Soffia S. 19:00-20:00 Islenskir tónar. Jóhann Birgir 20:00-22:00 Dýsel. Unnar Steinn 22:00-01:00 Lífið er Ijúft. Valdimar Bragason Laugardagurinn 20.nóvember 09:00-12:00 Morgunvaktin. Valdimar Bragason 12:00-13:00 íslenskt tónlistarhádegiJóhann Birgir 13:00-16:00 Vanadísin. Svanur Gísli 16:00-19:00 Tipp topp. Gulli Guðmunds 19:00-22:00 Draugagangur. Kiddi Bjarna 22:00-01:00 Bráðavaktin. Eyvi og Anton Sunnudagurinn 21.nóvember 10:00-11:00 Heyannir. Soffía Sigurðardóttir 11:00-13:00 Kvöldsigling (e). Kjadan Björnsson 13:00-14:00 Grænir Tónar. Skarphéðinn 14:00-15:00 Mjólkurbú Flóarmanna 70 ára Valdi- mar Bragason 15:00-17:00 Árvakan. Soffía M . Gústafsdóttir 19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir 20:00-21:00 Elvis frá A-Ö. Jói og Halli 21:00-22:00 Spurningakeppni HSK. Valdimar 22:00-24:00 Sögur og sígild tónlist. Friðrik Erlings. Mánudagurinn 22.nóvember 07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H 09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs. 12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn 13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds 17:00-19:00 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason 19:00-20:00 Með matnum. Tölvukallinn 20:00-21:00 Spurningakeppni HSK (e). Valdimar 21:00-22:00 MBF 70 ára (e). Valdimar Bragason 22:00-24:00 Inn í nóttina. Tölvukallinn Þriöjudagurinn 23.nóvember 07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H 09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffía M. Gústafs. 12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn 13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds 17:00-19:00 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason 19:00-22:00 Skeggjaða beljan. Vignir Egill 22:00-24:00 i minningu meistarana. Jón Hnefill Miövikudagurinn 24.nóvember 07:00-09:00 Góöan dag Suðurland. Sigurgeir H 09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffia M. Gústafs. 12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn 13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds 17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason 18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands Guðrún Halla 19:00-20:00 Meðmatnum Tölvukallinn 20:00-22:00 Árvakan (e) Soffía M. Gústafsdóttir 22:00-24:00 Meira en orð. Sigurbjörg Grétarsd Fimmtudagurinn 25.nóvember 07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H 09:00-12:00 Allt Önnur Ella. Soffia M. Gúsfafs. 12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn 13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds 17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason 18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún 19:00-22:00 Sportröndin. Fanney og Svanur 22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjartan Björnsson Frá Vestmannaeyjum. Utsvar verði 12 prósent Bæjarráð Vestmaima- eyja samþykkír álagn- ingu opinberra gjalda. Sorpgjöld lögð á. Úr- ræðaleysi, segir minnihlutinn. Á fundi bæjarráðs Vestmanna- eyja á dögunum var fjallað um álagningu gjalda fyrir næsta ár, það er útsvars, fasteignagjalda, holræsagjalds og sorpeyðingar- gjalda. Samþykkti bæjarráð að útsvar f’yrir árið 2000 verði 12,04% og að fasteignaskattur fyrir árið 2000 breytist á fast- eignum, lóðum, lendum og hlunnindum sem nemur breyt- ingu á fasteignamati 1. desember 1999. Fasteignaskattur af hús- næði verði 0,4% á íbúðir og íbúð- arhús, útihús og mannvirki á bú- jörðum, sem tengd eru Iandbún- aði og sumarbústaðir, en á allar aðrar fasteignir 1,35%. Holræsagjald á íbúðarhús- næði, útihús og mannvirki á bú- jörðum sem tengd eru landbún- aði og sumarbústaðir 0,20% en á aðrar fasteignir 0,30%. Þá hefur bæjarráð samþykkt að leggja 5.500 kr. sorpeyðingargjald á hverja íbúð og 2.500 kr. sorp- hirðu- og sorppokagjald. Þá var samþykkkt að veita 7% stað- greiðsluafslátt af fasteigna-, hol- ræsa- og sorpgjöldum og afslátt- ur er veittur af gjöldum ef að- stæður hvers og eins krefjast þess. Tillögur þessar voru sem áður segir samþykktar með atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði. Ragnar Oskarsson, bæjarfulltrúi Vestmannaeyjalist- ans, var á móti og lét bóka eftir- farandi: „I tillögu sjálfstæðis- manna að álagningarreglum fyrir 2000 er gert ráð fyrir hækkun skatta á íbúa Vestmannaeyja. Þessi hækkun er enn ein sönnun þess hvernig fjárhag Vestmanna- eyjabæjar er illa komið undir stjórn sjálístæðismanna. Ur- ræðaleysi þeirra speglast í ofan- greindri tillögu um gjalda- stefnu.“ -SBS. Stjómsýsluhús ris Bygging stjómsýslu- huss í Þorláhshöfn gengiu' vel. Fullhúið í fehrúar. Bæjarskrif- stofur, söfn og bariki. Nú er unnið af fullum krafti við að múra og leggja í gólf hins nýja menningar- og stjórnsýsluhúss sem er að rísa í Þorlákshöfn. Er annar áfangi byggingarinnar á seinni stigum og verður honum lokið í febrúar á næsta ári. Þá er fyrirhugað að sveitarfélagið Ölf- us flytji sig með sínar skrifstofur í nýja húsnæðið, en húsnæði það sem skrifstofur sveitarfélagsins eru nú í er löngu sprungið utan af starfseminni. Einnig er ætlun- in að Landsbanki Islands flytji um svipað Ieyti í húsið, en hann er nú til húsa í allt of litlu hús- næði. Þá er ætlunin að drjúgur hluti neðri hæðarinnar fari undir bóka- og minjasafn, utan þess pláss sem Landsbankinn hefur til afnota. Að sögn Sigurðar Jónssonar, byggingarfulltrúa Ölfuss, hefur annar verkhlutinn gengið vel, litlar sem engar tafir orðið og verkið því vel á áætlun. Mun húsið á endanum svo og um- hverfi þess verða hið glæsileg- asta. Umhverfi hússins er hann- að af Landmótun ehf. og sam- kvæmt lýsingum Sigurðar Jóns- sonar kemur það til með að verða mjög skemmtilegt og gjörbreytir í raun nánasta umhverfi hússins. Hönnunin utanhúss tekur einnig mið af því að í bígerð er að breyta innkomunni í þorpið; færa hana vestar og meira frá hafnarsvæðinu, Sú breyting mun væntanlega fylgja í kjölfarið á lagningu Suðurstrandarvegar. - HS Fróðlegix fyrirlestrar Áfram heldur fyrir- lestraröðin í Húsinu á Eyrarbakka, þar sem á næstunni verð- ur m.a. fjaUað um þéttbýlisríki og dvergríki á íslandi. í þessum mánuði heldur áfram fyrirlestraröð sú sem nú stend- ur yfir um sagnafræðileg efni og er í Húsinu á Eyrarbakka. Þeg- ar hefur hér í blaðinu verið sagt frá tveiniur fyrstu fyrirlestrun- um. í gær 17. nóvember, flutti Davíð Ólafsson, sagnfræðingur í ReykjavíkurAkademíunni, fyr- irlesturinn Menningargerð í mótun - þéttbýlisvæðing í spegli íslenskra dagbóka á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. „Davíð mun bera saman dagbækur bænda og þéttbýlis- búa á áratugunum fyrir síðustu aldamót, og greina breytingar á menningargerð vegna byggða- þróunar og samfélagsbreytinga á þessum tíma. Eins og þær birtast í sjálfstjáningu dag- bókanna," segir í fréttatilkynn- ingu. Fjórði og síðasta fyrirlestur- inn í Húsinu í þessari lotu verð- ur síðan þann 25. nóvember kl. 20.30 þegar Axel Kristinsson, sagnfræðingur í Reykjavíkur- Akademíunni, flytur fyrirlestur- inn Dvergríki á sunnanverðu Is- landi - Ríki Árnesinga á 11. og 12. öld. „Einhvern tíma seint á I 1. öldinni eða snemma á þeir- ri 12,, myndaðist dvergríki á sunnanverðu íslandi. Það var hið fyrsta af mörgum sem áttu eftir að spretta upp í landinu á næstu 100 til 150 árum. Ríki þetta í Árnesþingi er venjulega kennt við Haukdælaætt, sem fór með stjórnartaumana allt frá upphafi og þar til það leið undir lok með tilkomu kon- ungsvalds á íslandi... Sagn- fræðingar eru nú að mestu hættir að segja söguna útfrá æviatriðum kónga og keisara. Er ekki kominn tími til að segja sögu Árnesþings á þjóðveldisöld fremur en aðeins sögu Hauk- dæla? Má kannski gera því skóna að fólkið sem þar bjó hafi frekar litið á sig sem Árnesinga en Islendinga?,“ segir m.a. í fréttatilkynningu um fyrirlest- urinn. -sps.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.