Dagur - 18.11.1999, Blaðsíða 4
4 — FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
Dagftr
SUÐURLAND
Rurímeð
sýningu í Eyjum
Rún opnar sýningu í Gallerí gamla áhalda-
húsinu á homi Vesturvegar og Græðisbraut-
ar laugardaginn 20. nóvember ld 16. Þetta
er önnur sýningin af tveimur f E\jum á
þessu hausti sem Eimskipafélag Islands
styrkir, en fyrr í haust höfðu Ráðhildur Inga-
dóttir og Ósk Viljálmsdóttir verið með sam-
sýningu með tilstyrk Eimskips.
Eins og síðastliðinn vetur er enn þá til
staðar áhugi á því að efna til sýngarhalds
myndlistarmanna ofan af fastalandinu í Eyj-
um. Það er Benedikt Gestsson, blaðamaður
á Fréttum í Eyjum, sem frumkvæði befur
haft af þessu sýningarhaldi og með það að
leiðarljósi að myndlistin eigi ekki bara heima
á stór Reykjavíkursvæðinu leitaði hann til
Eimskipafélagsins um hvort það vildi koma
að þessu sýningarhaldi nú og fengust jákvæð
svör við þeirri málaleitan og ákvað Eimskipa-
félagið að styrkja sýningarnar. Eimskipafé-
lagið hefur verið ötull styrktaraðili ýmissa
menningarviðburða og í þvf sambandi er rétt
að geta þess að félagið er stærsti styrktarað-
ili, Reykjavík menningarborg árið 2000.
Rún' mun sýna ljósmyndir í stærðunum
55x75 sm og 60x90 sm. Sýning hennar
verður opnuð laugardaginn 20. nóvember og
verður hún opin tvær helgar, þann 20. og
21., og 27. og 28. nóvember. Opnun sýning- Mynd Rúríar afSigríði baráttukonu Tómasdóttur í Brattholti, en
arinnar mun verða kl. 16.00, en að öðru leyti sýningin er tileinkuð henni. Sýning Rúríar heitir Þann dag mun
verður hún opnin frá kl. 14 til 18. Lokað er í gg
miðri viku, - Sýnt er í gamla Ahaldahúsið á -------------------------------------------
horni Vesturvegar og Græðisbrautar. Húsið
er í eigu Vestmannaeyjabæjar, sem lánar það endur- nenrdur f EyJum að láta >essa sýningau ekki fram hjá
gjaldslaust og er tillegg bæjarins til þess að efla ser lra' Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
sýnigarhald í Eyjum. Skorað er á myndlistarunn- -SBS.
Iþróttahús vlgt á Hellu
Nýtt íþróttahús verður vígt á
Hellu næstkomandi laugardag.
Húsið, scm hefur verið í bygg-
ingu í rétt tæp tvö ár, mun bæta
úr brýnni þörf vegna íþrótta-
kennslu á staðnum en hún hef-
ur til þessa farið fram í Hellu-
bíói og að Laugalandi í Holtum.
Iþróttahúsið er sambyggt sund-
lauginni á Hellu en á milli er
tengibygging, þar sem verður
meðal annars félagsaðstaða,
snyrtingar og geymslur. Fram-
kvæmdum við tengibygginguna
er þó enn ekki að fullu lokið, við
áhorfcndapalla og í kjallara þar
sem búningsklefar verða - en
þangað til verða búningsldefar
við sundlaugina nýttir. Iþrótta-
húsið er að flatarmáli um 1.200
fermetrar og er keppnisvöllur
þess í löglegri stærð.
Að sögn Guðmundar fnga
Gunnlaugssonar, sveitarstjóra
Rangárvallahrepps, reikna menn
með að heildarkostnaður við
framkvæmdir þessar verði um
140 milljónir króna. A þessum
tímapunkti stendur kostnaður í
120 milljónum kr. en við er bú-
ist að um 20 millj. kr. bætist við
í þeim verkþáttum sem ólokið
er, en í þá verður farið á næstu
misserum.
-SBS.
. SUDURLANDSVIÐTALIÐ
Óskar eftir bættum laimakjönun
Leikskólakennarar við Heklukot á Hellu hafa sent inn erindi til
hreppsnefndar Rangárvallahrepps, þar sem þeir óska eftir bættum
launakjörum. Á síðasta hreppsnefndarfundi var sveitarstjóra og odd-
vita faíið að leita samkomulags við feikskólakennara og hafa þeir nú
þegar átt einn fund með kennurunum um þessi mál. Að sögn Guð-
mundar Inga Gunnlaugssonar sveitarstjóra byggja leikskólakennar-
arnir körfur sínar á því að þeim hafi verið falið aukið vinnuframlag
og ábyrgð með því að leikskólinn var gerður að fyrsta skólastiginu í
landinu - og það vilja kennararnir nú fá metið til launa.
Fagna fíkniefnalöggu
Á fundi bæjarráðs Árborgar í síðustu viku var lýst yfir ánægju með að
nú skuli ákveðinn lögreglumaður hjá Lögreglunni í Árnessýslu hafa
það sérstaka verkefni að sinna fíkniefnamálum. Bæjarráð samþykkir
að fela bæjarstjóra að leita eftir því að þessi lögreglumaður komi til
fundar við bæjarstjórn. „I tilefni af ábendingum nefndarinnar um
ráðningu vímuvarnafulltrúa vill bæjarráð upplýsa að ýmsir möguleik-
ar varðandi þann þátt eru til umræðu. Vonast er til að þau mál
skýrist á næstu vikum og mun þá verða tekin afstaða til ráðningar,"
segir í fundargerð. -SBS.
Ungmeimafélagiö Dagsbrun 90 ara
Ungmennafélagið Dagsbrún í Austur-Landeyjum, sem varð 90 ára í
fyrri mánuði, býður til afmælisveislu í félagsheimilinu Gunnars-
hólma næstkomandi laugardag milli kl. 13:30 og 17. Þar verður boð-
ið upp á veitingar, til sýnis verða verðlaunagripir í eigu félagsins og
félagsmanna og jafnframt verða sýndar myndir úr starfi félagsins í
áranna rás. Þá hefur félagið látið gera minjagripi sem verða til sölu á
staðnum á vægu verði. I fréttatilkynningu eru Austur-Landeyingar,
heima og heiman, og Dagsbrúnarfélagar fyrr og nú boðnir velkomnir
til samkomu þessarar.
Vantar gögn
frá Geysi
Már Sigurðsson á Hótel Geysi og
Ásborg Arnórsdóttir, ferðamála-
fulltrúi uppsveita Árnessýslu, hafa
sent frá sér tilkynningu þar sem
„eftirlýsir eru þeir sem eiga í fór-
um sínum gamlar myndir, upptök-
ur, greinar, bréf, sögur eða annað
er varðar Geysi í Haukdal, svæðið
þar í kringum og gestakomur í nú-
tíð og fortíð.“ Miklar framkvæmd-
ir standa nú yfir á Geysissvæðinu
við uppbyggingu á menningar- og
þjónustumiðstöð. Eru þeir sem
eiga eða vita um gögn sem nýtast í
því starfi beðnir um að hafa sam-
band við Má í síma 486 8916 eða
Ásborgu í síma 486 8810.
- SBS.
Geysir í Haukadaf
Vil ekki norskar kýr
Ólafía,
Ingólfsdóttir9
varaþingmaður í Vorsahæ.
Ólafía hefur tekið sæti á
Alþingi ístað Guðna
Ágútssonarnæstu tvær
vikumar. Virkjanir eystra
ogfjarvinnslan eru þau
mál sem nú herhátt á
þingi og þarhefur Ólafía
skýra afstöðu.
- Þú hefur nú tekið sæti ú Al-
þingi sem varaþingmaður
Framsóknarflokksins á Suður-
landi. Fyrir hvorn þing-
manna flokksins tehur þú nú
sæti og ekki er þetta í fyrsta
sinn sem þúferð á þing?
„Nei, þetta er í þriðja skipti
sem ég fer til setu á Alþingi. Á
síðasta kjörtímabili tók ég í
tvígang þar sæti fyrir Isólf
Gylfa Pálmason og starfaði þá
fyrir hann í fjárlaga- og um-
hverfisnefndum þingsins. Nú
er ég hinsvegar á þingi fyrir
Guðna Ágútsson, sem mun
næstu tvær vikurnar verða er-
Iendis. Menn voru að segja í
þinginu að hann væri að afla
sér sálarstyrks áður en hann
tæki ákvörðun í því stóra máli
hvort leyfa skuli innflutning
norskra kúa hingað til lands.“
-Já, hver er þín skoðun sem
varaþingmanns og kúabónda
á þvf máli?
„Sú afstaða mín er alveg skýr.
Eg vil ekki heimila innflutning
á norskum kúm, þvf ég tel
alltof mikla áhættu f því
fólgna. Islenska landnámskýrin
hefur reynst okkur vel í gegn-
um aldirnar og meðal annars
skilað okkur mjólk með lágri
frumutölu, en það atriði er
einmitt svo mikilvægt. Það sem
vakir fyrir mönnum í þessum
innflutningshugmyndum þeirra
er að hafa í fjósi færri gripi
sem mjólka meira - og komast
þannig ódýrara frá búskapnum.
En er það endilega víst? Það
skilar mestum og bestum af-
rakstri að menn séu vakandi og
sofandi yfir búskapnum."
- Nú ber hátt á Alþingi
einmitt þessa dagana umræð-
ur um virkjanir á Austur-
landi. Hvaða pól tekur þú þar
í hæðina?
„Ég styð alfarið að virkjað
verði á Austurlandi, um líf og
dauða fyrir byggðir eystra er að
tefla og fórnarkostnaðurinn er
ásættanlegur. Enda hverju töp-
um við með . Eyjabökkum. Mér
finnast rök umhverfisverndar-
sinna ekki trúverðug og þeir
sem kalla sig Umhverfisvinir,
sem eru mestanpart fólk í
Reykjavík, verða að taka tillit
til þess að úti á landi verður að
vera til staðar atvinna svo
fólkið komist af.“
- Á Alþingi munt þú sitja
þessa og næstu viku. Eru ein-
hver sérstök mál sem þú
hyggst hreyfa á þinginu?
„Á mánudag í næstu viku hef
ég í hyggju að bera upp fyrir-
spurn, sem væntanlega verður
beint til samgönguráðherra,
um hvernig efla megi fjar-
vinnslu og -kennslu á lands-
byggðinni. Þar hef ég til dæmis
í huga jaðarbyggðir á Suður-
Iandi, einsog til dæmis Vestur-
Skaftafellsýslu. Ljóst má vera
að landbúnaður þar eflist ekki
mikið frá þvf sem er í dag, en
hinir nýju möguleikar tækninn-
ar geta aftur á móti orðið til
þess að renna styrkari stoðum
undir mannlíf þar eystra - og
raunar víðar.“
-SBS.