Dagur - 23.11.1999, Side 1

Dagur - 23.11.1999, Side 1
Þriðjudagur 23. nóvember 1999 82. og 83. árgangur - 223. tölublað Um 83% vilja stöðugleikaim Sambandsstj ómar- fundur ASÍ. Flestix til- búnir að slá af laima- kröfum fyrir stöðug- leika. Lægstu laun í forgang. Sáttagrunnur í skipulagi ASÍ. Anægja hjá RSÍ. Svo virðist sem launafólk sé tilbú- ið að taka á sig minni launahækk- anir en ella ef það mætti verða til þess að tryggja áframhaldandi stöðugleika í verðlagsmálum. Þá bendir margt til þess að meiri sátt sé að nást innan ASI um leiðir til að setja niður þær deilur sem ver- ið hafa vegna skipulagsmála. I það minnsta tók Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnað- arsambands Islands, þátt í sam- bandsstjórnarfundi ASI sem hófst í gær og lýkur í dag, þriðjudag. Miiini laiuiahækkanir A sambandsstjórnarfundinum í gær var kynnt könnun sem Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur ASI, gerði meðal launafólks. Þar kemur fram að 83% séu tilbúin að tryggja stöðugleika í verðlagsmálum þótt það hafi í för með sér minni launa- hækkanir fyrir við- komandi. Hún segir að það séu einkum þeir sem séu með allra lægstu launin sem ekki séu tilbún- ir til þess að slá af væntanlegum kröf- um sínum til að tryggja stöðugleika. Edda Rós bendir einnig á að það sé stór hluti þeirra sem eru með lág laun sem séu tilbún- ir að slá af kröfum til að viðhalda stöðugleikanum. Lægstu laun 1 forgang I þessari sömu könnun kemur fram að yfirgnæfandi meirihluti er á því að há laun eigi að hækka minna í komandi kjarasamning- um svo hægt sé hækka lágu laun- in. Edda Rós segir að afstaða fólks til þessa sé ekki aðeins bundin við þá sem eru með lág laun heldur sé einnig mikið fylgi við þessa kjarastefnu í röðum þeirra sem hafa einna hæstu launin. Edda Rós segir að miðað við þetta sé greinilegt að launa- fólk vilf ekki fórna þeim árangri sem náðst hefur í efna- hagsmálum. Hins vegar sé fólk meðvit- að um það að vissir hópar hafa setið eftir og því sann- gjarnt að þeir fái kjarabætur vegna þessa og sé jafnvel tilbúið að taka það á sig. í þessari könnun tóku þátt m.a. bankamenn, kennarar, verslunarmenn, opinberir starfs- menn innan BSRB, háskólafólk, iðnaðarmenn, ófagfærðir og launafólk utan sambanda. Sáttagnuinux I drögum að ályktun sambands- stjórnarfundarins um skipulags- mál kemur m.a. fram að það sé nauðsynlegt að ná fram sátt um tvö grundvallarsjónarmið. Annars vegar að allt launafólk eigi aðild að viðurkenndum stéttarfélögum og hins vegar að öll stéttarfélög eigi aðild að sterku Alþýðusam- bandi sem sé samnefnari launa- fólks. Stefnt er að því að tillögur á þessum grunni verði tilbúnar fyr- ir lok apríl á næsta ári. Ánægja hjá RSÍ Guðmundur Gunnarsson, for- maður RSI, segist vera mjög sátt- ur og ánægður með ályktunina um skipulagsmálin ef hún verður samþykkt. Hún ætti einnig að losa um þann ósveigjanleika sem verið hefur þannig að RSI geti verið innan ASÍ og RSÍ sé heimilt að taka á móti Félagi fslenskra símamanna svo dæmi sé nefnt. - GRH gert könnun meðal launa- manna. Fjögur imgmenni breimdust Fjögur ungmenni, tveir piltar og tvær stúlkur á aldrinum fimmtán til sautján ára, brenndust illa þegar gassprenging varð í bifreið í útjaðri í Sandgerðis á sunnu- dagskvöld. Tilkynning barst til Iögreglunnar í Keflavík um klukkan tíu um kvöldið að þau hefðu komið á sjúkrahúsið í Keflavík. Ungmennin voru í fólksbifreið með 1 I kflóa gaskút og þegar önnur stúlknanna ætl- aði að kveikja sér í sígarettu varð sprenging í bflnum. Ungmennin fjögur brenndust öll illa og voru flutt á Landspítalann. Þrjú þeirra voru í gær komin á barna- deild en eitt ungmennanna var enn á gjörgæslu. Sprengingin var mjög öflug því bifreiðin er nán- ast ónýt. Meðal annars gengu hurðir út, þakfestingar losnuðu. Er talin mildi að ekki fór enn verr miðað við hvernig bifreiðín er útleikin. Útgáfuteiti vegna geislaplötunnar Jólasveinar ganga um gátt var haldið í versluninni Kort og bækur í Bankastræt- inu síðdegis í gær. Platan, sem inniheldur leikþætti og lög við kvæði Jóhannesar úr Kötlum, er gefin út af Máli og menningu í samráði við Þjóðminjasafnið. Margir afástsælustu leikurum þjóðarinnar koma fram á plötunni og litu þeir við i teitið ígær. Að auki voru nýju jólasveinabúningarnir til sýnis. - mynd: eól. Afgreiddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 Vigdís Finnbogadóttir er heiðurs- forseti Umhverfisverndarsamtaka íslands. Þjóðfræg stjóm Aðalfundur Umhverfisverndar- samtaka íslands fór fram um helgina. Þar var m.a. samþykkt að skora á ríkisstjórn og Alþingi að Iáta fram fara lögformlegt mat á umhverfisáhrifum vegna Fljótsdalsvirkjunar. Það sé hags- munamál þjóðarinnar að óvil- hallur og sérfróður aðili leggi mat á skýrslu Landsvirkjunar. Því sé mikilvægt að Skipulags- stofnun fái skýrsluna til umfjöll- unar og almenningi gefist kostur á að gera athugasemdir. A fund- inum var kosin ný stjórn þjóð- þekktra íslendinga. Vigdís Finn- bogadóttir er heiðursforseti sam- takanna og með henni í stjórn eru Steingrímur Hermannsson, Guðfinna Bjarnadóttir, Oskar Magnússon, Gunnar G. Schram, Júlíus Sólnes, Ólöf Guðný Valdi- marsdóttir og Steinunn Sigurð- ardóttir. I varastjórn eru Arný E. Sveinbjörnsdóttir og Einar Már Guðmundsson. Skora á Norðmenn Eitt hundrað íslenskir listamenn úr ýmsum greinum hafa sent norsku ríkisstjórninni og for- ráðamönnum Norsk Hydro bréf, þar sem skorað er á þessa aðila að hætta samningum við íslensk stjórnvöld um álver á Reyðarfirði á meðan lögformlegt umhverfis- mat vegna Fljótsdalsvirkjunar hefur ekki farið fram. Lista- mennirnir vona að Norðmenn sýni það í verki að þeir virði leik- reglur um umhverfismat. Listinn var bundinn við 100 nöfn og safnaðist á skömmum tíma, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Um- hverfisvinum. A listanum eru margir af þekktustu listamönn- um þjóðarinnar í tónlist, mynd- list, leiklist, bókmenntum og kvikmyndagerð. in

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.