Dagur - 23.11.1999, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 - 5
FRÉTTIR
L.
Frj álslyndir boða
frumvarpadrlfu
„Þá eru eftir 30 milljarðar sem ekki er hægt að gera grein fyrir. IAð teljum að
þarna sé um það að ræða að sægreifar hafa farið út úr greininni með þetta fé,
segir Guðjón A. Kristjánsson.
Guðjón A. Kristjáns-
son segir von á mörg-
um frumvörpum sem
snerta sjávarútvegs-
stefnuna. Hann boðar
fyrirspum mn hvað
varð af 30 miUjörðum
króna, sem Þjóðhags-
stofnun segir ekki
hægt að gera grein
fyrir í skuldum sjáv-
arútvegsins.
Aukalandsþing Frjálslynda-
flokksins var haldið um helgina.
Þar mætti á annað hundrað
manns og ríkti eindrægni á fund-
inum, enda þótt menn skiptust á
skoðunum, að sögn Guðjóns A.
Kristjánssonar alþingismanns.
Hann segir að í undirbúningi
hjá flokknum séu Qölmörg frum-
vörp um sjávarútvegsmál, sem
lögð verði fram á Alþingi í vetur.
»Við erum m.a. með í bígerð
frumvarp um að afnema teg-
undatilfærsluna, sem hefur í
raun bara verið sjálftöku kvóti,
sem hefur beinst að því að halda
uppi ofveiði á karfastofnunum.
Síðan erum við með hugmynd
sem er enn þá í vinnslu um það
að draga línu undir alþjóðaflot-
ann okkar, sem ég kalla svo, því
ég kalla frystitogarana alþjóða-
flota, enda er hann kominn með
veiðiheimildir hingað og þang-
að,“ segir Gujón Arnar.
30 milljarðar týndir
Hann segir frumvarpið sett fram
til þess að koma í veg fyrir að
þessi alþjóðafloti fái að taka
meira til sín af aflaheimildum frá
bátaflotanum. Guðjón segir að
eins og kerfið er nú, geti komið
upp sú staða að ákveðið verði að
skera niður úthafskarfakvótann
og flotann vanti þá verkefni.
„Og vegna þess að það má
kaupa kvóta hvar sem er og af
hvaða bát sem er frá hvaða
byggðarlagi sem er, þá getur
ákvörðun í London um niður-
skurð á veiðum á úthafskarfa
orðið til þess að það detti niður
öll atvinna í einhverju þorpi út á
landi vegna þess að allur kvótinn
er keyptur burt úr þorpinu. Þetta
er eins fáránlega vitlaust og það
mögulega getur verið,“ segir
Guðjón Arnar.
Hann var spurður hvort vænta
megi frumvarps um kvótafram-
salið, sem hann og félagar hans í
Frjálslyndaflokknum hafa gagn-
rýnt mjög harðlega?
„Við förum í þessi mál öll hvert
af öðru. Eg þarf þó að Ieggja
fram nokkrar fyrirspurnir á þingi
áður en við leggjum fram öil
frumvörpin. Ég þarf þannig að fá
fram ákveðnar upplýsingar sem
ekki hefur verið auðvelt að fá
með öðrum hætti. Þar má nefna
hver séu verðmæti samanlagðra
leigðra og seldra aflaheimilda,
sundurliðað eftir árum og kjör-
dæmum. Skuldir sjávarútvegsins
hafa aukist um 55 milljarða
króna sl. Ijögur ár. Þjóðhags-
stofnun telur að hægt sé að gera
grein fyrir 25 milljörðum í aukn-
um Ijárfestingum. Þá eru eftir
30 milljarðar sem ekki er hægt
að gera grein fyrir. Við teljum að
þarna sé um það að ræða að sæ-
greifar hafa farið út úr greininni
með þetta fé. Þeir sem kaupa af
þeim kvótann skuldsetja sig og
þar liggi þessir 30 milljarðar,"
segir Guðjón A. Kristjánsson.
- S.DÓR
Það verður að meðaltali 13% dýrara
að hafa barn á leikskóla í Reykjavík
eftir ákvörðun leikskólaráðs í gær.
Leikskóla-
gjöldin
nækka
Leikskólaráð Reykjavíkur sam-
þykkti í gær að hækka Ieikskóla-
gjöld í borginni að meðaltali um
þrettán prósent. Rök meirihluta
ráðsins með hækkuninni nú eru
að hlutdeild foreldra í rekstrar-
kostnaði leikskólanna sé með
þessari hækkun færð í svipað
horf og hún var fyrir þremur
árum, eða um þriðjung. Fulltrú-
ar sjálfstæðismanna í leikskóla-
ráðinu hafa lagt til að settur
verði á fót vinnuhópur á vegum
ráðsins til að finna lausn á þeim
vanda sem steðjar að Ieikskólum
borgarinnar vegna skorts á
starfsfólki. Afgreiðslu þeirrar til-
lögu var frestað á fundi ráðsins í
gær.
Fj ármálafyrirtæki
til í aldamótin
INNLENT
Áhersla á að fylgjast
með stærri fyrir-
tækjum á fjármála-
markaði vegna
„2000-vandans“
Lokað á gamlársdag
og 3. janúar
í frétt sem Fjármálaeftirlitið
sendi fjölmiðlum í gær kemur
m.a. fram að undirbúningur ís-
lenskra Ijármálafyrirtækja vegna
2000-vandans sé vel á veg kom-
inn. Það telur að ekki sé ástæða
til að ætla að teljandi áföll verði í
þjónustu fyrirtækjanna um
næstu áramót. Þó sé ekki útilok-
að að tímabundnir hnökrar verði
á starfsemi einstakra aðila. Tæp-
lega 180 aðilar heyra undir eftir-
lit Fjármálaeftirlitsins. Þeirra á
meðal eru lánastofnanir, verð-
bréfafyrirtæki, vátryggingafélög
og lffeyrissjóðir. Mest áhersla
hefur verið lögð á að fylgjast með
stærri og mikilvægari aðilum í
Ijármálakerfinu. Fjármálaeftirlit-
ið hefur birt fjórar stöðuskýrslur
á vefsíðu 2000-nefndarinnar og
sú fjórða fór á vefinn í gær. Slóð-
in er http://2000.stjr.is
Tengt þessu þá sendu fjármála-
fyrirtækin frá sér sameiginlega
tilkynningu í gær þar sem sagt er
að afgreiðslustaðir banka, spari-
sjóða, ýmissa lánastofnana og
verðbréfafyrirtækja, auk Seðla-
banka og Verðbréfaþings, verða
lokaðir 31. desember nk., sem er
föstudagur, og mánudaginn 3.
janúar 2000. Þetta er gert í var-
úðarskyni vegna 2000-vandans
alræmda.
GSM-banM opnaður
Síminn GSM, Sparisjóður Kópa-
vogs (SPK) og Smartkort kynntu
í gær nýjung í bankaviðskiptum
á íslandi, GSM-banka. Með
GSM-bankanum er viðskiptavin-
um SPK gert kleift að stunda
margvísleg bankaviðskipti hvar
sem þeir eru staddir og spara
þannig tfma og fyrirhöfn, að því
er segir tilkynningu frá Lands-
símanum. I GSM-bankanum er
hægt að millifæra á eigin reikn-
ing, reikning annarra eða á
smartkort. Þá er hægt að greiða
gíró- og greiðsluseðla og fá yfirlit
yfir stöðu og færslur bankareikn-
inga, greiðslukorta og smart-
korta. Jafnframt er hægt að fá
upplýsingar um gengi gjaldmiðla
og vísitölur og fletta upp í síma-
skrá.
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Landssímans, opnaði GSM-bankann í gær með
því að millifæra dágóða upphæð frá fyrirtækinu á reikning Slysavarnafélagsins
...................‘ LámisÚjafgar. 'imib: teítúr.-: - ‘H>W ” ' Vi8 V1'
Laus úr gæsluvaxðhaldi
Rúmlega tvítugur karlmaður sem verið hefur í gæsluvarðhaldi í
tengslum við „stóra fíkniefnamálið“ svokallaða var látinn laus í gær.
Lögregla fór ekki fram á að varðhald hans yrði framlengt.
Islaud í stióru FAO
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra sat ásamt íslenskri sendi-
nefnd aðalráðstefnu FAO, mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, um helgina
í Róm, Island tók þar í fyrsta sinn
sæti í stjórn FAO og hefur verið
skipaður sérstakur aðalfulltrúi Is-
lands í Róm til að sinna þar dag-
legum störfum. Fastafulltrúi ís-
lands hjá stofnuninni er sendi-
herra Islands í París, Sigríður Á.
Snævarr. I ávarpi sínu á fundinum
skýrði Guðni frá þeirri ákvörðun
ríldsstjórnarinnar að bjóða FAO að
halda alþjóðlega ráðstefnu á Islandi haustið 2001 um sjálfbærar fisk-
veiðar í vistkerfinu.
Hafísiuu aðeius 17 sjómílur frá laudi
Nýlegt ískönnunarflug Landhelgisgæslunnar leiddi í ljós að hafísinn
var þá aðeins 17 mílur frá landi undan Vestfjörðum, næst landi und-
an Rit milli Hesteyrarljarðar á Jökulfjörðum og Aðalvíkur. Hafísinn
liggur Ijær landi þegar sunnar drcgur og er 34 sjómílur norðvestur af
Rarða en þaðan liggur ísbrúnin í norðnorðvestur samkvæmt ratsjá
Landhelgisgæsluvélarinnar. Ekki voru sjáanlegir borgarísjakar við ís-
röndina. - GG
NIB lánar Laudsvirkjun
Undirritaður hefur verið samningur milli Norræna Ijárfestingarbank-
ans, NIR, og Landsvirkjunar um 20 milljóna Bandaríkjadala lán, eða
sem samsvarar rúmum 1,4 milljörðum króna. Lánið er til 15 ára og
verður það nýtt til að fjármagna hluta af fjárþörf Landsvirkjunar
vegna framkvæmda við Vatnsfellsvirkjun. Landsvirkjun er stærsti lán-
, þegi NIB hér, á landi.en bankinn hefur tekið þátt í að fjármagna flest-
ar af stærstu virkjunum lfindsins.