Dagur - 23.11.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 23.11.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 - 7 ÞJÓÐMÁL ílug að sextáu ánrni liðnuni í síðustu viku sat ég fund sam- göngunefndar Alþingis um Reykjavíkurflugvöll. Nefndin var í heimsókn á Akureyri, sem ég gat ekki vegna annarra starfa tekið þátt í, og því notaði ég mér það að fjarfundabúnaður var í gangi í Landsímahúsinu í Reykjavík. Sams konar búnaður var í gangi á Akranesi, Isafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Egils- stöðum og Höfn í Hornafirði. Fundurinn var byggður upp með fjölda stuttra erinda, en að þeim loknum voru fyrirspurnir. Nokkrar staðreyndir Nokkrar athyglisverðar stað- reyndir komu fram í máli manna á fundinum, einkum flugrekstrarmanna og flugmála- stjóra. I máli hans kom fram að 70% farþega í innanlandsflugi eru landsbyggðarmenn og 95% farþega í innanlandsflugi fara um Reykjavíkurflugvöll. Það er því ljóst að flugvöllurinn gegnir lykilhlutverki í flugsamgöngum landsins. I máli Sigurðar Aðal- steinssonar, flugrekstrarstjóra Flugfélags Islands, kom fram að allar flugleiðir innanlands lengjast sé flugið fært til Kefla- víkurflugvallar og reksturs- kostnaður flugsins mundi hækka um allt að 15%. Einnig kom fram að aðeins brautir og aðflugskerfi Keflavíkurflugvall- ar mundi nýtast innanlands- fluginu, alla aðra aðstöðu vant- ar. Ferðatíminn til Reykjavíkur frá Iandsbyggðinni með flugi mundi Iengjast um allt að einn klukkutíma. Einnig kom fram að sjúkraflug til Reykjavíkur- flugvallar er mjög algengt. Guð- jón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, kvað þaðan vera farnar 40 slíkar ferðir á ári, og ljóst er að frá Austur- landi eru farnar fjórfalt fleiri. Allt eru þetta staðreyndir sem tala sínu máli um mikilvægi Reykjavíkurflugvallar sem sam- göngumannvirkis. Skipulagsmál í Reykjavík Allir voru sammála um það á fundinum að Reykjavíkurflug- völlur heyrði undir skipulag Reykjavíkurborgar og ekki þarf um það að deila. Það er eðlilegt að framtíð flugvallarins sé til umræðu. Staða málsins nú er hins vegar sú að endurbætur eru hafnar á brautum vallarins og unnið verður að endurbygg- ingu og viðhaldi þeirra næstu tvö árin. Hins vegar er aðal- skipulag Reykjavíkurborgar í endurskoðun og málið snýst um hvað verður eftir árið 2016. Það kynni mönnum að finnast nokkur tími til stefnu, en hins vegar hafa borgaryfirvöld ákveðið að láta fara fram skoð- anakönnun um legu vallarins þegar á næsta ári. Sú ákvörðun hefur valdið deilum og finnst mörgum landsbyggðarmönnum sem þeim beri að fá að hafa álit á málinu sem notendur þessa mannvirkis. Helgi Hjörvar, for- seti borgarstjórnar, upplýsti á fundinum að borgaryfirvöld hyggðust kanna vilja lands- byggðarfólks til málsins, en ekki kom fram með hverjum hætti það skal gert. Það er alveg ljóst að málefni flugvallarins eru f einkennilegri stöðu, ef yf- irgnæfandi meirihluti borgar- búa samþykkir að hann skuli í burtu að 16 árum liðnum. Það breytir ekki þörfinni á lagfær- ingu brautanna, en önnur upp- bygging á vallarsvæðinu yrði þá væntanlega í biðstöðu. Það kom fram í ræðu flugmálastjóra að miklir möguleikar eru til bygg- inga og lagfæringa á vallar- svæðinu, ef gengið væri í það verk. Það eru möguleikar á því að hafa sameiginlega umferðar- miðstöð fyrir bíla og flugsam- göngur, sem eru sitt á hvorum staðnum núna. Þannig mætti lengi telja. Þétting byggðar Það er út af fyrir sig ekki und- arlegt þótt byggingarlandið á flugvellinum sé litið hýru auga, enda kom það fram í máli full- trúa samtakanna „Betri byggð“ á fundinum. Bygging íbúðar- hverfa og tilheyrandi á flugvell- inum mundi þétta byggðina í borginni. Hins vegar verður aldrei hjá því komist að sam- göngumannvirki taki rúm í borgum, jafnvel á stærð við Reykjavík. Slík þétting byggðar mundi kalla á enn greiðari leið- ir í gegnum borgina. Það komu einnig athyglisverðar hugleið- ingar fram á fundinum um þau mengunaráhrif sem af flutningi vallarins mundi leiða. Ljóst er að bílaumferð mundi aukast við flutninginn með tilheyrandi út- blæstri. Samtökin „Betri byggð“ bera einnig fyrir sig hávaða- mengun og slysahættu sem leiðir af staðsetningu vallarins. Fram kom í ræðu flugmála- stjóra að hvort tveggja hefur verið athugað í samanburði við þá staðla sem gilda. Hávaði er hvergi yfir viðmiðunarmörkum, og slysahætta er innan þeirra marka sem Bretar setja í svip- uðum tilvikum. Einnig kom fram að það er síður en svo einsdæmi að aðflug sé yfir þétt- býli svo sem allir hafa séð sem flogið hafa milli landa. Nægir ein braut? Helgi Hjörvar var með athyglis- verðar hugleiðingar um þjón- ustustig vallarins. Hann velti fyrir sér hvort ein braut gæti dugað til þess að veita innan- landsfluginu þjónustu. Bar hann Akureyri saman við Reykjavík í þessu tilviki. Sig- urður Aðalsteinsson sagði þá að Eyjafjörður, langur með sínum fjallahring, „lagaði til vindinn" þannig að hliðarvindur væri þar sjaldan vandamál. Sama væri ekki að segja um Reykjavík. Þetta leiddi hugann að því hve Iítið var talað um veðurfarið hér og áhrif þess á flug og lands- samgöngur, svo duttlungafullt sem það getur verið Sannleik- urinn er sá að þægindi vegna staðsetningar Reykjavíkurflug- vallar eru mest áberandi þegar eitthvað er að veðri og flugið verður fyrir truflunum af þeim sökum. Mér finnst líka ein- hvern veginn að menn séu alltaf með sumarfærð í huga þegar talað er um hvort lands- samgöngur gætu komið algjör- lega í staðinn fyrir flugsam- göngur. Sannleikurinn er sá að veður og færð eru viðsjál og all- ir sem ferðast að vetrarlagi vita að ferð, sem tekur til dæmis fjóra til fimm tíma að sumar- lagi, getur tekið miklu iengri tfma í viðsjálu veðri og hálku að vetrarlagi. Eg er því ekki þeirrar skoðunar að landssamgöngur og bættir vegir til fjarlægra landshluta Ieysi af flugið í ná- inni framtíð. Mér finnst að ein- staka menn séu farnir að tala af litlu raunsæi um slíka hluti. Ein höfuðborg Það kann einhverjum að finnast skjóta skökku við í allri lands- byggðarumræðunni að lands- byggðarmenn skuli leggja svo mikla áherslu á að fá sem greiðastar samgöngur til Reykja- víkur, eins og fram kom hjá tals- mönnum þeirra á fundinum. Um það nægir að benda á að það hafa aldrei verið uppi um það kenningar hjá landsbyggðar- mönnum að það eigi að byggja nýja höfuðborg á íslandi. Það er gerð krafa um dreifingu ýmissar opinberrar þjónustu og dreifingu valds, en landsbyggðin vill hafa sem greiðastar leiðir til sam- skipta við höfuðborgina til þess að sinna hinum margvíslegustu erindum í stjórnsýslu, menningu og viðskiptum. Flugsamgöngur eru afar greiðar í dag frá aðal- flugvöllum landsins, þótt vissu- Iega hafi munstrið breyst í flug- inu og flug til nálægari staða lagst af með betri landssamgöng- um. Orsök aukningar farþega- fjölda er að mínu mati aukin ferðatíðni og greið aðkomuleið til borgarinnar. Umræðu er þörf Eg Ieyni því ekki að mér mundi finnast miður ef ákveðið yrði að flytja flugið úr borginni og þá helst á Keflavíkurflugvöll. Þar eru stórverkefni fram undan að bæta aðstöðuna fyrir ört vax- andi millilandaflug. Rétt er að einbeita sér að því sem er til mikilla hagsbóta fyrir byggðirn- ar á Suðurnesjum og ein af undirstöðunum í atvinnulífinu þar um slóðir. Hitt er svo rétt að borgaryfirvöld í Reykjavík hafa þetta mál í sínum hönd- um. Um það er ekki deilt. Ofga- laus umræða um málið er af hinu góða, og það ber að forð- ast að stefna því í pólitískan hnút, eða tilfinningalega deilu. Eg vona að fundur samgöngu- nefndar hafi verið innlegg til málefnalegrar umræðu um mál- ið. Hins vegar sýndi hann að mínu mati að fjarfundir eru ágætir svo langt sem þeir ná, en ég hef ekki trú á því að þeir leysi algjörlega af hólmi þörf fólks fyrir að hittast og ræða málin. Einhvern neista vantar í mannlegu samskiptin í gegn um hinn ágæta sjónvarpsbúnað.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.