Dagur - 23.11.1999, Síða 8

Dagur - 23.11.1999, Síða 8
8- ÞRIÐJUDAGV R 23. NÓVEMBER 1999 ro^r FRÉTTASKÝRING L Annars flokkj Lífsafkoma góð á ís- landi, en velferðar- málin langt á eftir því sem gerist víðast hvar í Evrópu. Skerðing líf- eyris öryrkja vegna tekna máka nánast einsdæmi og arfur fyrri alda. Bætur al- mannatrygginga ern lágar samanborið við grannríkin. Besta leið- in gegn fátækt er hækkun lífeyris. Á ársfundi Tryggingastofnunar ríkisins (TR) sl. föstudag kynnti Stefán Ólafsson forstöðumaður Félagsvísindastofnunar rann- sóknarskýrslu sína „Islenska leið- in. Almannatryggingar og velferð í fjölþjóðlegum samanburði". Skýrslan er afurð samstarfs TR og Háskólans, samkvæmt sérstökum samningi frá því vorið 1996 og ef til vill má segja að niðurstöður rannsóknar Stefáns hitti fyrir skýrslubeiðandann. Meginniður- staðan er nefnilega sú, að jafnvel þótt lífskjör og lífsgæði séu almennt góð á Islandi, þá erum við langt á eftir helstu nágranna- þjóðum okkar hvað velferðarmál- in varðar og sitja tilteknir sérhóp- ar sérstaldega Iangt eftir. Taka má saman nokkrar helstu niðurstöður Stefáns f eftirfarandi kjarna fullyrðinga: Hvorki útgjöld til velferðarmála almennt né al- mannatrygginga sérstaklega eru vandamál á Islandi. Bætur al- mannatrygginga þykja hér á landi Iágar ef ekki nánasarlegar. Vanda- mál vegna lítillar fólksfjölgunar, atvinnuleysis og lágs lffeyristöku- aldurs eru hverfandi hér miðað við önnur vestræn ríki. Hlutverk opinbera geirans er ekki mjög stórt á Islandi og skattheimta ekki mikil. Landsmenn hafa það almennt mjög gott, en fátækt er þó umfangsmeiri hér en í helstu samanburðarlöndum, því vissir hópar, eins og aldraðir sem ein- göngu treysta á lífeyriskerfið og öryrkjar hafa setið eftir. • Samandregið er niðurstaðan að Islenska þjóðin (stjórnvöld íyrir hennar hönd) sé bullandi rík, en nánasarleg gagnvart þeim sem lakast eru settir, án þess að vera neydd til þess af efnahagslegum ástæðum. Þetta er pólitísk stefna. Á meðan útgjöld til velferðarmála eru á Islandi 19,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) er hlut- fallið víða í Evrópu 30-40%, t.d. 29,8% f Þýskalandi og 38,5% í Svíþjóð, en 16,4% í Bandaríkjun- um. „Almannatryggingar Islend- inga eru ódýrustu almannatrygg- ingar sem finnast meðal hagsælli þjóðanna á Vesturlöndum," segir Stefán og „bætur almannatrygg- ínga á íslandi eru almennt lágar samanborið við grannríkin". Það sem mestu munar í lægri útgjöldum á Islandi en í ná- grannalöndunum er tekjuteng- ingin, en þó fyrst og fremst, sam- kvæmt Stefáni, hversu skerðing bóta vegna tekna hefst snemma og rís hratt. „Pólitísk og siðferðileg afstaða“ Meðal helstu veikleika velferðar- kerfisins á fslandi að mati Stef- áns eru, að lífeyririnn er lágur (og munar þar miklu í samanburðin- um við nágrannalönd), að fátækt er heldur meiri hér en á hinum Norðurlöndunum, að afkoma lág- tekjufólks er nokkru lakari en á hinum Norðurlöndunum og síð- an er að nefna þetta umdeilda sérkenni, sem nú hefur ratað í dómsali að frumkvæði öryrkja: bótaskerðingin vegna tekna maka. Að mati Stefáns hefur hópur aldraðra setið eftir: „Óvenju mik- il atvinnuþátttaka og tiltölulega lágir skattar gera það að verkum að eldri borgarar á Islandi hafa álíka háar ráðstöfunartekjur og grannþjóðirnar á Norðurlöndun- um. Þeir sem fýrst og fremst hafa Iífeyri almannatrygginga til að Iifa af búa hins vegar margir hverjir við mjög þröngan kost,“ segir Stefán og bendir á að „markviss- asta leiðin til þess að draga úr fá- tækt í landinu virðist vera sú, að hækka lífeyri almannatrygginga". Hann bætir því við að það sé „pólitísk og siðferðileg afstaða" sem ráði því hvar menn „draga mörkin fyrir öryggisnet samfé- lagsins sem mótar lágmarksh'fs- kjörin1'. Ef til vill má segja að meginnið- urstaða Stefáns sé, að íslending- ar komi vel út úr helstu saman- burðardæmum hvað lífskjör og lífsgæði varðar, en að hér sé fá- tæktin þó heldur meiri en al- mennt gerist meðal norrænna þjóða og tekjuskiptingin ívið ójafnari, auk þess sem „lífskjara- vandi sérhópa“ sé „heldur meiri á Islandi en hjá frændþjóðunum“. Stefán telur að ef það tekst að laga þessa annmarka muni fáar ef nokkrar þjóðir standast íslend- ingum snúning hvað gæði lífs- kjara snertir. En snúum okkur þá að þeim þætti rannsóknarinnar sem mestu athyglina hefur vakið; stöðu öryrkja. Bætur 2.300 öryrkja skertar Stjórn Öryrkjabandaíags Islands (ÖBI) fól Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni að höfða mál gegn TR, fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar, vegna tengingu bóta við tekjur maka. Málið var tekið fyrir í héraðsdómi á dögun- um og krefst ÖBI þess að viður- kennt verði með dómi að skerð- ing á örorkulífeyri vegna tekna maka sé ólögleg og brot á stjórn- arskrá og mannréttindasáttmála. Ragnar bendir á að með laga- breytingu 1993 hefði fallið út heimildarákvæði til að skerða bæturnar og því um ólögmætan gjörning að ræða. Enn fremur hélt hann því fram að skerðingar- ákvæði sem sett var í lög og tók gildi á þessu ári væri andstætt stjórnarskránni. Falli dómur Öryrkjabandalag- inu í vil verður gerð krafa um endurgreiðslu skerðingarinnar aftur í tímann og gæti það kostað rfkissjóð nokkra milljarða króna, en árlega nemur skerðingin um 300 milljónum króna. Bætur ein- hleypra öryrkja eru í heild 67 þúsund krónur, en við sam- búð/hjónaband fellur niður heim- ilisuppbót upp á 21 þúsund krón- ur og er þeirri skerðingu ekki mótmælt. Við sambúð/hjónaband eru tekjur bótaþegans lagðar saman við tekjur makans og deilt í með tveimur og geta bæturnar þá farið niður í 17 þúsund krón- ur á mánuði. Um 2.300 öryrkjar verða fyrir slíkri skerðingu um þessar mundir eða um 36% ör- yrkja. Heilbrigðisráðuneytið hefur túlkað umfjöllun Umboðsmanns Alþingis um málið sér í vil. „Við höfum býsna hreina samvisku í þessum málum. Málið hefur í tví- gang verið til umfjöllunar hjá Umboðsmanni Alþingis og hann hefur komist klárlega að þeirri niðurstöðu að þessi mál séu með- höndluð með réttum hætti,“ seg- ir Jón Sæmundur Sigurjónsson, deildarstjóri í heilbrigðisráðu- neytinu. Hann segir rétt, að umboðs- maður finni að því að lögin og lagatextinn mættu vera skýrari, að sérstök reglugerðarheimild hafi verið felld út úr lögum á sín- um tíma og að ráðherra hafi eftir það stuðst við almenna reglu- gerðarheimild. „Umboðsmanni þykir rétt að gera þetta skýrar. Rauður þráður í gegnum aðra Iöggjöf er gagnkvæm framfærslu- skylda hjóna. Annað hjóna á alltaf heimtingu á tekjum og eignum hins, ef ekki er gerður sérstakur sáttmáli þar um. Þetta prinsipp hefur fullt gildi gagnvart tryggingalöggjöfinni þegar tillit er tekið til tekna viðkomandi og þess vegna skerðast bætur lífeyr- isþega ef hans maki hefur veru- Stefán Ólafsson: Kemst að þeirri niðurstöðu að íslensk þjóð sé bull- andi rík en nánasarleg gagnvart þeim sem lakast eru settir. legar tekjur,“ segir Jón Sæmund- ur. „Arfleifð gömlu fátækraað- stoðarinnar“ Skoðum þá hvað Stefán Ólafsson hefur að segja um þessi mál í rannsóknarskýrslu sinni. Með samanburði kemst hann að því að sú skerðingarregla sé fátíð að skerða lífeyri öryrkja vegna tekna maka þeirra. „Sú regla er arfleifð gömlu fátækraaðstoðarinnar frá fyrri öldum, þar sem framfærslu- skylda var lögð á fjölskylduna eða Bolli Héðinsson: Lýsir víðsýni Trygg- ingastofnunar að láta gera svona skýrslu. ,V\ V

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.