Dagur - 23.11.1999, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÚVEMBF.R 1999 - 11
Ty^fir.
■a dagskrá
Ríkiskaup 50 ára
i tilefni af 50 ára afmæli Ríkis-
kaupa efnir stofnunin til hátíð-
arráðstefnu á Grand Hótel í
Reykjavík í dag kl. 12.00 -
16.15. Geir Haarde fjármála-
ráðherra setur ráðstefnuna.
Arðsemi virkjana
Onnur ráð-
stefna fer fram
í dag á Grand
Hótel undir yf-
irskriftinni
„Arðsemi virkj-
ana - þátttaka
Islendinga í
stóriðju“. Ráð-
stefnan hefst
kl. 13 og er
haldin á vegum
félags viðskipta- og hagfræð-
inga. Finnur Ingólfsson iðnað-
arráðherra setur ráðstefnuna.
íslensk hagstjórn
í dag kl. 16.15 flytur Valur Ingi-
mundarson sagnfræðingur íyr-
irlesturinn „Islensk hagstjórn í
augum útlendinga" í málstofu
sem viðskipta- og hagfræðiskor
stendur fyrir í kaffistofunni á 3.
hæð í Odda, húsi Háskóla Is-
lands.
Stærðfræði og hamfarir
A morgun, miðvikudaginn 24.
nóvember, ld. 15.45 flytur Ró-
bert Magnus, vísindamaður á
Raunvísindastofnun Háskólans,
fyrirlestur sem hann nefnir:
„Stærðfræðileg líkön og ham-
farir" í matstofu Tæknigarðs
Háskólans.
Vísindi og guðstrú
Annar fundur Vísindafélags Is-
lendinga þennan vetur verður
haldinn í Norræna húsinu mið-
vikudaginn 24. nóvember kl.
20.30. Þar flytur Páll Valsson
bókmenntafræðingur erindi
sem hann nefnir „Hulduljóð
Jónasar — að sætta vísindi og
guðstrú." Páll hefur nýverið gef-
ið út ævisögu Jónasar Hall-
grímssonar, skálds og náttúru-
fræðings.
Finnur
Ingólfsson.
Ikrossgátan
Lárétt: 1 mætur 5 kvendýr 7 ágeng 9 ætíð
10 þáttur 12 starfræktu 14 hrinda 16 eðja
17þjálfun 18gubba 19jaka
Lóðrétt: 1 stafn 2 ánægð 3 viðkvæmur 4
vaðall 6 kvæði 8 meltingarfæri 11 rolur 13
kvenmann 15 skel
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hólf 5 Jakob 7 glás 9 rú 10 gorta
12 afli 14fas 16roð 17skref 18 stó 19kar
Lóðrétt: 1 högg 2 Ijár 3 fasta 4 vor
6 búrið 8lokast 11 afrek 13 lofa 15skó
Gengisskráning Seölabanka íslands
22. nóvember 1999
Dollari 71,63 72,03 71,83
Sterlp. 116,07 116,69 116,38
Kan.doll. 48,97 49,29 49,13
Dönsk kr. 9,929 9,985 9,957
Norsk kr. 9,022 9,074 9,048
Sænsk kr. 8,576 8,626 8,601
Finn.mark 12,4173 12,4947 12,456
Fr. franki 11,2554 11,3254 11,2904
Belg.frank. 1,8302 1,8416 1,8359
Sv.franki 46,09 46,35 46,22
Holl.gyll. 33,5027 33,7113 33,607
Þý. mark 37,7488 37,9838 37,8663
(t.líra 0,03813 0,03837 0,03825
Aust.sch. 5,3655 5,3989 5,3822
Port.esc. 0,3683 0,3705 0,3694
Sp.peseti 0,4437 0,4465 0,4451
Jap.jen 0,6779 0,6823 0,6801
írskt pund 93,7449 94,3287 94,0368-
GRD 0,2244 0,226 0,2252
XDR 98,29 98,89 98,59
XEU 73,83 74,29 74,06
Hátt 150 innbrot I bíla um helgina höfðu verið tilkynnt til lögreglunnar I Reykjavík í gær. - sviðsett mynd
A funmta tug
tnnbrota í bíla
í helgardagbók lög-
regliinnar er m.a.
brýnt fyrir eigendum
ökutækja að skilja
verðmæti ekki eftir í
bílum sínum.
I dagbók lögreglunnar í Reykja-
vík um helgina segir hún annríki
ekki hafa verið mikið vegna
skemmtanahalds borgarbúa „og
gesta þeirra á miðborgarsvæð-
inu“. Þó kom til átaka milli
tveggja gesta og dyravarða veit-
ingastaðar aðfaranótt sunnu-
dags. Dyraverðirnir hugðust vísa
fólkinu út af staðnum en sú
beiðni fékk slæmar viðtökur
gestanna tveggja. Þeir voru síðan
fluttir af lögreglu á slysadeild
vegna áverka eftir átökin við
dyraverðina.
Bakkað var á tvo vegfarendur í
Austurstræti aðfaranótt sunnu-
dags og segir lögreglan þá ekki
hafa slasast við óhappið.
31 áhraðferð
Um helgina voru 8 ökumenn
stöðvaðir vegna gruns um akstur
undir áhrifum áfengis og 31
vegna hraðaksturs. Umferðar-
slys varð á Miklubraut við
Grensásveg á föstudagsmorgun
er ljögur ökutæki skullu saman.
Þrennt var flutt á slysadeild til
aðhlynningar. Umferðarslys varð
á Breiðholtsbraut við Suður-
landsveg að kvöldi sunnudags.
Þrennt var flutt á slysadeild.
Reyndi að blekkja lögguna
I dagbókinni segir frá fíkniefna-
máli er lögreglumenn höfðu af-
skipti af manni sem ók bifreið án
þess að hafa til þess gilt ökuskír-
teini. „I fyrstu hafði hann reynt
að Ijúga til nafns en ekki blekkti
það laganna verði að þessu sinni
og mun hann sæta sekt fyrir
aksturinn og vörslu fíkniefna,"
segir í dagbókinni. Þá voru tveir
menn handteknir á laugardags-
morgun eftir að fíkniefni fund-
ust á þeim.
Lögreglu barst tilkynning um
átök milli manna í Þingholtum
aðfaranótt laugardags. Einn var
fluttur slysadeild vegna áverka.
Karlmaður var handtekinn síðar
á Iaugardag vegna málsins.
Mikið var um innbrot í öku-
tæld um helgina einkum í vest-
urborginni. Lögreglu hefur
borist á fimmta tug slíkra til-
kynninga eftir helgina. Af því til-
efni minnir lögreglan forráða-
menn ökutækja á að skilja ekki
eftir verðmæti í bílum sínum.
Einnig eru þeir sem kunna að
hafa upplýsingar um einhver
þessara innbrota beðnir að koma
þeim til lögreglu. Þá var brotist
inní íyrirtæki í vesturborginni og
þaðan stolið nokkrum verðmæt-
um.
Tilraun til íkveikju
Karlmaður var handtekinn þar
sem hann gerði tilraun til að
kveikja í íbúðarhúsi í austur-
borginni. Karlmaðurinn hafði
hellt bensíni framan við húsið er
hans var vart og lögreglu gert að-
vart. Maðurinn reyndi að flýja af
vettvangi en var handtekinn
skammt frá og vistaður í fanga-
geymslu lögreglu. Þá kviknaði í
potti á eldavél í íbúð í Grafarvogi
á föstudagskvöid. Nokkrar
skemmdir urðu vegna elds og
reyks.
Snj óflóðagarður
þykir vera of stór
Þykir ekki ásættan-
legur valkostur að
byggja upp skíðalyftu
að nýju á Seljalands-
dal. Bæjarráð hefur
falið bæjarstjóra að
fara fram á altjóns-
bætur vegna skíða-
lyftu á Seljalandsdal.
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar
ræddi á fundi nýlega um snjó-
flóðavarnir í Seljalandsmúla og
hugsanlegar breytingar á bönn-
un þeirra. Bæjarstjóri, Halldór
Halldórsson, hefur rætt við full-
trúa umhverfisráðuneytis og
Veðurstofu lslands um þetta
mál. Bæjarráð hefur Iagt til við
bæjarstjórn að með tilvísun til
samþykktar bæjarstjórnar frá 2.
september sl. verði verkið boðið
út fyrir komandi áramót.
Bæjarstjóri segir að sér hafi
alltaf þótt þessi garður vera
hrylliega stórt og mikið mann-
virki og hann segist ekki skilja að
á þessu svæði þurfi að byggja svo
stór mannvirki til þess að verja
Seljalandshverfið þó ekki væri
siakað á öryggiskröfum. Minnt
skal á að fyrir nokkrum árum féll
snjóflóð á Seljalandsdal og eyði-
lagði hluta sumarhúsanna sem
þar stóðu. Einn maður fórst.
Byggingakostnaður er áætlaður
240 milljónir króna en útboð til
þessa vegna snjóflóðvarnar-
mannvirkja á Siglufirði, Flateyri
og Neskaupstað hafa numið um
70% af áætlun byggingakostnað-
ar. Garðurinn mundi þá kosta
um 170 milljónir króna ef það
gengi eftir.
Bæjarráð telur að í Ijósi svars
Viðlagatryggingar vegna trygg-
inga á uppbyggingu skíðasvæðis-
ins og skíðalyftu á Seljalandsdal
sé það staðfest að það sé ekki
ásættanlegur valkostur að byggja
upp skíðalyftu að nýju á Selja-
landsdal. Bæjarráð hefur falið
bæjarstjóra að fara fram á
altjónsbætur vegna skíðalyftu á
Seljalandsdal. — GG
k
iiilUU [fiifiiiil!
riaöl
LEIKFELA6 AKlfRFI ÍRAR
Miðasala: 462-1400
mm
á Njálsgötunni
eftir Auði Haralds
Sýnt á
Akureyri
miðvikudaginn
24. nóvember kl. 20:00
fimmtudaginn
25. nóvember kl. 20:00
föstudaginn
26. nóvember kl. 20:00
Aðeins þessar
sýningar
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýninau, sýninqardaqa.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Kortasalan í fullum gangi!