Dagur - 23.11.1999, Page 12
12- PRIDJUDAGU R 23. NÓVEMBER 1999
ERLENDAR FRÉTTIR
i.
Flóttamenn frá Téténíu ásamt rússneskum hermönnum.
Búa sig undir
orrustu um Grosní
Soltsjenitsín hvetur
rússneska herinn til
dáða.
Rússneski herinn er að mestu
búinn að umkringja Grosní,
höfuðborg Téténíu, og hafa
meira en 5.000 téténskir skæru-
liðar safnast saman í borginni
og eru að búa sig undir stórsókn
Rússa.
Rússar segjast stefna að því
að vera búnir að umkringja
borgina um miðjan desember,
og þar með Ioka Ieiðum sem
skæruliðar hafa komist eftir til
og frá borginni.
I gær voru harðir bardagar
um þorpið Urus-Martan, sem
er um það bil 30 km suður af
Grosní, en um þetta þorp ligg-
ur mikilvæg samgönguleið frá
Grosní til suðurs. A fjórða þús-
und skæruliðar voru saman
komnir í þorpinu og veittu
Rússum mótspyrnu.
Urus-Martan er einnig talið
hafa verið miðstöð gíslatöku-
manna, sem hafa haft sig mjög
í frammi allt frá því í fyrra stríð-
inu um Téténíu fyrir þremur
árum.
Rithöfundurinn Aleksander
Soltsjenitsín lýsti í gær yfir
stuðningi sínum við hernaðar-
aðgerðir Rússa í Téténíu. „Það
vorum ekki við, sem hófum
árásirnar," sagði hann í sjón-
varpsviðtali á sunnudag. „Það
var ráðist á okkur.“
Frá því loftárásir Rússa á
Téténíu hófust í lok ágúst hafa
meira en 220.000 flóttamenn
flúið úr landi, ílestir til ná-
grannalýðveldisins Ingúsetíu,
og er talið að nokkur þúsund
manns komi sér burt á degi
hverjum.
Rússar hafa hvatt flóttafólkið
til að snúa aftur til þeirra
svæða, sem komin eru á vald
Rússa, og segja rússneskar
fréttastofur að meira en 20.000
manns hafi þegar farið til baka
til Téténíu. Rússar hafa heitið
því að laun og lífeyrir verði
greiddur til þeirra sem snúa
aftur, og gert verði við
gasleiðslur og annað það sem
skemmst hefur í stríðsátökun-
um og nauðsynlegt má teljast
til búsetu.
Rússar hertóku Gudermes,
næst stærstu borg Téténíu,
þann 12. nóvember síðastlið-
inn, og hefur þeim gengið mun
betur í átökum sínum gegn ísl-
ömskum skæruliðum að þessu
sinni heldur en í stríðinu árið
1994-96, en þá héldu Rússar á
brott frá Téténfu við lítinn
orðstfr eftir tveggja ára hernað,
en þó hafði þeim tekist að
leggja mikinn hluta landsins í
rúst. I því stríði fórust um
80.000 Téténar, flestir óbreytt-
ir borgarar.
Hernaðurinn nú hefur sætt
mikilli gagnrýni, einkum á
Vesturlöndum, og síðast í gær
sagði Joschka Fischer, utanrík-
isráðherra Þýskalands, að
Rússar væru að gera „risastór
mistök" í Téténíu og hvatti þá
til þess að hætta þegar í stað
þessu „nýlendustríði" sínu.
HEIMURINN
Réðust inu í fangelsi
BRASILIA - Sex vopnaðir menn réðust í gær inn í fangelsi í borginni
Sao Paulo í Brasilíu, yfirbuguðu verði og frelsuðu 60 fanga. Allt þetta
gerðist án þess að meiðsli hlytust af. Svo virðist sem þetta hafi verið
gert í þeim tilgangi að ná einum manni, citurlyfjabarón, út úr fang-
elsinu, en hinir fangarnir hafi fengið að fljóta með. Síðdegis í gær var
þegar búið að hneppa 11 hinna nýfijálsu fanga í fangelsi að nýju.
Trúarleiðtogi myrtur
ALSIR - Hátt settur trúarleiðtogi í Alsír var ráðinn af dögum í gær, og
var hann skotinn tvisvar í höfuðið og einu sinni í magann. Trúarleið-
toginn, Abdelkader Hachani að nafni, var þriðji valdamesti leiðtogi
„Islömsku hjálpræðisfylkingarinnar", sem er bannaður stjórnmála-
flokkur bókstafstrúaðra múslima í Alsír. Hachani var á leiðinni til
tannlæknis þegar óþekktur maður hóf skothríð að honum, og komst
skotmaðurinn undan. Enginn hafði síðdegis í gær lýst ábyrgð sinni á
verknaðinum.
Bjargað úr helli
FRAKKLAND - Sjö hellarannsókn-
armönnum var í gær bjargað úr helli
í suðurhluta Frakldands eftir að hafa
verið þar innilokaðir í tíu daga. Þeir
lokuðust inni þegar óveður reið yfir á
þessum slóðum með gífurlegum
rigningum, sem varð til þess að yfir-
borð vatns hækkaði þannig að þeir
komust ekki út. Leitaraðgerðirnar
hafa verið með þeim umfangsmestu í
sögu Frakklands, en mennirnir fund-
ust á sunnudag og í gær tókst að bjarga þeim út. Þeir voru vel á sig
komnir, en gífurlega þreyttir. Þeir höfðu skammtað sér af matarbirgð-
um sínum, og áttu enn eftir nokkrar birgðir í gær.
Kirkjiun lokað í ísrael
ÍSRAEL I gær var öllum ltirkjum í Israel lokað vegna deilumála milli
múslima og kristinna, sem geta ekki komið sér saman um hvort
byggja eigi mosku fyrir múslima eða torg fyrir kristna ferðamenn á
lóð einni í Nazaret, bænum þar sem Jesú Kristur er talinn hafa vaxið
úr grasi. Kirkjunum var lokað til þess að vekja athygli heimsins á
þessum deilum, og málstað kristinna sér í lagi.
Einn hellamannanna h'tur dag-
ins Ijós eftir tíu daga innilokun.
'iL/t.',, -tik.tJU iiíbl'f I £-Jfr U!l JJinte
ÍÞRÓTTIR
Ferguson reimar á sig skóna fyrir fyrsta leik United í riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu gegn Fiorentina í kvöld.
Risarnir á
útivölliun
Keppnin í úrslitariöl-
lun Meistaradeildar
Evrópu hefst í kvöld
með fjórum leikjum í
A- og B-riðlum. Stóru
risamir United,
Bayem, Barcelona,
Real Madrid og Lazio
byrja á útivöllum.
Eyjólfur Sverrisson og félagar í
Hertha Berlín taka í kvöld á móti
stórliði Barcelona á Olympíuleik-
vanginum í Berlín í fyrsta leik
sínum í A-riðli Meistaradeildar
Evrópu. Hinn leikurinn í A-riðli
fer fram á Letná leikvanginum í
Prag þar sem Sparta Prag fær
Porto í heimsókn.
I B-riðli taka Gabriel Batistuta
og félagar hjá Fiorentina á móti
Evrópumeisturum Manchester
United á Artemio Franchi leik-
vanginum í Flórens á meðan Val-
encia fær Bordeaux í heimsókn á
Mestalla leikvanginn í Valencía.
A morgun verður svo leikið í C-
og D-riðli þar sem Real Madrid
heimsækir Dynamo Kiev til
Kænugarðs og Rosenborg fær
Bayern Múnchen í heimsókn til
Noregs. Lazio ferðast til Frakk-
lands og leikur gegn Marseille á
Vélodrome leikvanginum í
Marseille á meðan Chelsea tekur
á móti Feyenoord á Stamford
Bridge í Lundúnum.
Risamir á útivöUiun
Eins og hjá Manchester United
og Bayern Múnchen, sem léku til
úrslita í keppninni í fyrra, er það
einnig hlutskipti stórliðanna
Barcelona og Lazio, sem margir
spá góðu gengi í keppninni í ár,
að heíja riðlakeppnina á útivöll-
um.
Þessi stórlið hafa ekki beint
staðið undir væntingum heima
fyrir í vetur og til dæmis mætir
Van Gaal, þjálfari Barcelona, til
leiks með lið sitt eftir að hafa tap-
að þremur síðustu leikjum sínum
í spænsku deildarkeppninni. Þar
af tapaði liðið síðasta leik sínum
um helgina með tveggja marka
mun 3-1 gegn Valencia, sem var
fimmta tap liðsins í síðustu sjö
leikjum.
Það sem Van Gaal lét hafa eft-
ir sér eftir leikinn gegn Valencia
ætti að vera hughreystandi fyrir
leikmenn Herta Berlín, því hann
sagði: „Þegar ég sá mína menn
spila gegn Valencia um helgina
missti ég allt traust á liðinu."
Barcelona án Bogarde og
Femandez
Barcelona heldur til Berlínar án
miðvarðarðanna Winston Bogar-
de og Abelardo Fernandez, sem
eru meiddir og líklega munu
Frakkinn Dehu og Hollendingur-
inn Frank De Boer taka stöður
þeirra. Einnig er ólíklegt að
Rivaldo geti beitt sér að fullu í
leiknum þar sem hann hefur átt
við meiðsli að stríða. Það er því
Ijóst að leikurinn gæti orðið Bör-
sungum erfiður, þar sem leik-
menn Hertha Berlín hafa sannað
að þeir geta verið erfiðir heim að
sækja.
Sparta taplaus í Meistaca-
deildinui
Sparta Prag, sem ekki hefur tap-
að leik í Meistaradeildinni til
þessa, ætti að eiga töluverða
möguleika gegn Porto í kvöld.
Porto er þó til alls líklegt, en lið-
ið er nú á mikilli siglingu í portú-
gölsku deildinni og vann til dæm-
is góðan 2-0 sigur á toppliði
deildarinnar, Benfica, um helg-
ina.
Enn markvarðavandræði hjá
United?
Leikur Manchester United gegn
Fiorentina er langt frá því að telj-
ast öruggur fyrir Evrópumeistar-
ana, sem nú tróna á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur
gegn Derby um helgina. Liðið á
langt í land með að ná sama
formi og í fyrra þegar það vann
þrennuna frægu og því spurning
hvort þeir hafa nokkuð í
Batistuta og félaga hjá Fiorentina
að gera í Flórens.
Alex Ferguson stendur jafnvel
frammi fyrir því að geta ekki not-
að Mark Bosnich vegna meiðsla,
sem er ekkt gott fyrir liðið eftir
öll markvarðavandræðin í upp-
hafi leiktímabilsins.
„Hann æfði á föstudaginn en
vaknaði upp á laugardaginn með
verki í hnénu. Það er því ekki vfst
að hann verði með í kvöld,“ sagði
Ferguson.
Trapattoni bjartsýnn
Giovanni Trapattoni, þjálfari
Fiorentina, er bjartsýnn fyrir
leikinn og sagði: „Það er ekkert
sérstakt að segja um þennan leik.
Þeir verða okkur ekkert erfiðari
en Perugia um helgina og því er
ég alveg rólegur. Ef eitthvað er þá
ættu þeir jafnvel að gefa okkur
meira svigrúm til að stjórna
Ieiknum."
SambastíH hjá Valencia
Lið Valencia hefur verið á mikilli
siglingu eftir að Argentínumað-
urinn Hector Cuper tók við lið-
inu í haust og því von á hörkuleik
þegar liðið mætir Bordeaux í
kvöld. Leikstíll liðsins hefur
breyst mikið með tilkomu
Argentínumannsins, sem leggur
áherslu á stuttar sendingar í sam-
bastíl að hætti suður-amerískra.
- í > t DiJú-.l i ,tj toUft » >c
. . .. V »- . W M.i.M^. . . .. - v. --ríJ M.f. . .wL