Dagur - 03.12.1999, Side 2
2 - FÖSTUDAGVR 3 . DESEMBER J9 9 9
Yljar hjartanu um rætur
Sex rithöfundar ferðast um Austfirði og segja Austfirðingum
nýskrifaðar sögur sínar dagana 3. og 4. desember. Á ferða-
laginu heimsækja þeir Vopnafjörð, Reyðarfjörð og Seyðis-
fjörð. Rithöfundarnir eru; Vilhelm Kristinsson, fsak Harðarson,
Elísabét Jökulsdóttir, Bragi Ólafsson, Sigrún Eldjárn og Elín
Ebba Gunnarsdóttir.
Elísabet Jökulsdóttir.
Heimamenn bjóða
upp á veitingar og
heimalagaða tón-
list. (Skaftfelli,
menningarmiðstöð
Seyðisfirði verður
auk þess opnuð
sýning á Ijósmynd-
um eftir Jóhann ís-
berg sem hann
nefnir heimsókn til
Seyðisfjarðar. Við-
burður sem þessi
er kærkomið inn-
legg í jólaundirbún-
inginn og yljar hjart-
anu um rætur.
Raggi þenur
jassraddböndin
Á sunnudagskvöldið mun
Ragnar Bjarnason, eða Raggi
Bjarna eins og flestir þekkja
hann, þenja jassraddböndin á
síðasta jasskvöldinu í jassviku
Múlans á Sólon íslandus.
Raggi Bjarna er kannski ekki
þekktastur fyrir að syngja jass
en þó hefur hann brugðið fyrir
sig jassfætinum endrum og
eins. Ásamt Ragga spila Ást-
valdur Traustason píanóleikari,
Gunnar Hrafnsson bassaleik-
ari og Pétur Grétarsson
trommuleikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og
er miðaverð 1000 kr. 500 fyrir
nema og eldri borgara.
Ragnar Bjarnason.
Þrír pýramídar
Raftónverkið 3 pýramídar eftir Jóhann G. Jóhannsson, tónlistar- og myndlistar-
mann er að koma út á geislaplötu. Útgáfudagur er í dag 3. desember og af því
tilefni verður verkið frumflutt í heild sinni á útgáfudegi geislaplötunnar fyrir utan
Perluna kl:15.00 í boði Amigos veitingahúss, Tryggvagötu 8, en það er Hljóð-
kerfaleigan Exton sem sér um hljóð og lýsingu. Verkið 3 pýramídar er samið í
tilefni aldamótanna og fjallar um vegferð mannsins í tíma og rúmi. Pað skiptist í
þrjá sjálfstæða jafnlanga þætti: Framtíð-nútíð-Fortíð.
■ HVflfl ER Á SEYDI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
TÓNLIST
Heill þér himneska orð
Söngsveitin Fílharmónía heldur að-
ventutónleika í Langholtskirkju sunnu-
daginn 5. þriðjudaginn 7. og miðviku-
daginn 8. desember. Hefjast þeir alla
dagana kl. 20.30.
Flutt verða jóla- og hátíðarverk frá ýms-
um tímum. Flest þeirra eru á geisla-
diski Söngsveitarinnar Heill þér
himneska orð sem nýkominn er út. Við
flutning af hluta efnisskrárinnar nýtur
kórinn fulltingis hljómsveitar sem skip-
uð er hljóðfæraleikurum úr Sinfóníu-
hljómsv'eit Islands og er konsertmeistari
hennar Rut Ingólfsdóttir. Einsöngvari
með kórnum er Sigrún Hjáimtýsdóttir.
Stjómandi er Bernharður Wilkinson.
Miðasala er í Bókabúð Máls og menn-
ingar að Laugavegi 18, hjá kórfélögum
og við innganginn.
Tónleikar Tónskóla Sigurveins
Tvö hundruð nemendur koma fram á
tvennum tónleikum Tónskóla Sigur-
sveins laugardaginn 4. desember. Kl.
11.00 verða tónleikar KI. 14.00 verða
tónleikar 130 forskólanemenda og
strengjasveitar í Langholtskirkju. A efn-
isskrá verður m.a. verkið Jólnasumbl fyr-
ir kór, blokkflautukór, trompet og
strengjasveit eftir Sigursvein D. Kristins-
son og Grím Thomsen. Jólnasumbl var
frumflutt á nemendatónleikum á jóla-
föstu árið 1978.
Englakór frá himnahöll
Jólatónleikar með yfirskriftinni „Engla-
kór frá himnahölL verða haldnir laugar-
daginn 4. desember í Fríldrkjunni í
Reykjavík kl. 14.00 og Grindavíkurkirkju
kl. 17.00. A dagskrá eru m.a. ýmis jóla-
Iög, atriði úr „Sister Act“ og „Gospef*.
Alls eru flytjendur um 70 manns: Nem-
endur Söngseturs Esther Helgu, Regn-
bogakórinn, Brimkórinn og einsöngvar-
ar. Aðgangur ókeypis.
Aðventuhátíð Strandamanna
Kór Átthagafélags Strandamanna heldur
aðventuhátíð í Bústaðarkirkju sunnu-
daginn 5. desember kl. 16.00. Þar mun
kórinn ásamt barnakór flytja jólalög
undir stjórn Ulriks Olasonar. Einsöngv-
ari er Þórunn Guðmundsdóttir og pí-
anóleik annast Hrefna Unnur Eggerts-
dóttir. Sr. Sigríður Oladóttir, sóknar-
prestur á Hólmavík flytur jólahugvekju.
Kaffihlaðborð á eftir.
Syngjandi jól í Hafharborg
22 kórar og sönghópar með samtals 800
kórfélaga munu syngja jólasöngva undir
yfirskriftinni „Syngjandi jól“ í Hafnar-
borg, menningar- og listamiðstöð Hafn-
arfjarðar laugardaginn 4. desember frá
kl. 13.00 til 20.20. Þetta er í þriðja sinn
sem „Syngjandi jól“ eru haldin í Hafnar-
borg og hafa Hafnfirðingar kunnað vel
að meta það og fjölmennt í Hafnarborg
til að hlusta.
Sungið á himnum
Á Broadway er sýningin „Sungið á
himnum“ í kvöld, sem flutt er í minn-
ingu látinna listamanna.
SÝNINGAR
Skúffugallerí
í kvöld kl. 20:00 munu 36 félagar í ís-
lensk grafik opna skúffugallerí að
Tryggvagötu 17. Þeir listamenn sem
verk eiga í skúffugalleríinu eru: Aðal-
heiður Skarphéðinsdóttir, Aðalheiður
Valgeirsdóttir, Anna G. Torfadóttir, Ás-
rún Tryggvadóttir, Benedikt Kristþórs-
son, Björg Þorsteinsdóttir, Edda Jóns-
dóttir, Friðrika Geirsdóttir, Guðbjörg
Ringsted, Guðmundur Ámann, Guðný
B. Guðjónsdóttir, Gunnhildur Olafs-
dóttir, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Hafdís
Olafsdóttir, Halldóra Gisladóttir, Harpa
Bjömsdóttir, Helga Ármanns, Ingibjörg
Jóhannsdóttir, Iréne Jensen, Jóhanna
Sveinsdóttir, Jón Reykdal, Kristín
Hauksdóttir, Kristín Pálmadóttir,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir,
Marilyn Herdís Meelk, Ragnheiður
Jónsdóttir, Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Rikharður Valtingojer, Rut Rebekka,
Sigrid Valtingojer, Sigrún Eldjárn, Sigur-
veig Knútsdóttir, Sveinbjörg Flallgríms-
dóttir, Valgerður Hauksdóttir, Þorgerður
Sigurðardóttir og Þórður Hall.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt gallerí
opnar á Islandi. 1 skúffunum eru sýnd
verk unnin á pappír, grafík, teikningar
og ljósmyndir. Skúffugalleríið er í sýn-
ingarsal félagsins að Tryggvagötu 17,
hafnarmegin. Þar mun á sama tíma
verða opnuð smámyndasýning félags-
manna. Félögum var gefinn kostur á að
senda inn verk sem eru í stærðinni 20 x
20 sm eða minni. Sýningarsalurinn er
opinn fimmtudaga til sunnudaga, kl.
14:00- 18:00.
Fávitinn í bíósal MÍR
Kvikmyndin Fávitinn, frá árinu 1958,
byggð á.skáldsögu Fjodors Dostojevskíjs,
verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
nk. sunnudag, 5. desember kl. 1 5.
Leikstjóri er Ivan Pyriev sem var þekktur
fyrir söngleikjamyndir sínar eins og t.d.
Kúban-Kósakka frá 1950 (sýnd í MÍR
12 des.) Meðal leikenda í Fávitanum
eru Jakovlév, Borisova, Podgorníj og
Martinova. Tónlistin er eftir Vladimír N.
Kijúkov. Islenskur texti. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Niflungahringurinn
í Norræna húsinu
Richard Wagner félagið sýnir nú í vetur
uppfærslu Metropolitan óperunnar í
New York á Niflungahringnum af mynd-
bandi í Norræna húsinu. Laugardaginn
4. desember kl. 12. 30 verður Valkyijan
sýnd, en hún er önnur í röðinni af
Hringóperunum fjórum. Sérstök áhersla
verður lögð á að kynna Niflungahring-
inn með hliðsjón af notkun Richards
Wagner á íslenskum fornbókmenntum,
en rannsóknir Áma Björnssonar á þessu
viðfangsefni koma út á prenti í útgáfu
Máls og Menningar eftir áramót. Árni
hefur tekið að sér að hafa umsjón með
myndbandssýningunum og leiða áhorf-
endur inn í Flringóperumar fjórar með
útskýringum og tilvísunum til notkunar
Wagners á frumheimildunum. Sýnt
verður á stóra veggtjaldinu í sal Nor-
ræna hússins. Enskur skjátexti. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill.
FUNPIR OG MANNFAGNAÐIR
Jólahátíð gleðigjafanna
Jólahátíð verður haldin í Súlnasala Hót-
el Sögu fyrir fatlaða sunnudaginn 5.
desember kl. 15.30 til 18.00. Fjölbreytt
skemmtiatriði með frábærum skemmti-
kröftum. Hljómsveitin Gleðigjafamir,
Leikhópurinn Perlan, Lúðrasveit Verka-
lýðsins og fleira og fleira. Aðgöngumið-
inn gildir sem happdrættismiði. Glæsi-
legir vinningar.
Hvað segja sögur af landi
Á mánudag 6. desember verður haldinn
fundur í fyrirlestrarsal Framhaldsskóla
Vestfjarða á Isafirði sem ber yfirskriftina
„Hvað segja sögur af landi um framtíð
byggðanna“.
Á fundinn koma þeir Stefan Jón Haf-
stein blaða- og þáttargerðarmaður og
Einar K. Guðfinnsson alþingismaður.
Fólk er eindregið hvatt til að mæta til
fundarins sem hefst kl. 20 og ræða
byggðarmálin.
OG SVO HITL..
Bamabókadagur á Súfístanum
Sunnudagurinn 5. desember verður
helgaður bamabókum á Súfistanum og í
verslun Máls og menningar Laugavegi
18. Andri Snær Magnason, Kristín
Ilelga Gunnarsdóttir, Ólafur Guðlaugs-
son, Ólafur Gunnarsson, Sigrún Eld-
jám, Stefán Aðalsteinsson, Vilborg Dag-
bjartsdóttir og Yrsa Sigurðardóttir lesa
úr bókum sínum. Súfistinn verður með
veitingar við hæfi barna á boðstólum og
ýmsar uppákomur eiga sér stað. Dag-
skráin stendur frá 14-17 og er aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
BókmenntakyTining MFIK
Lesið verður upp úr njjum bókum í
MIR salnum að Vatnsstíg 10, laugardag-
inn 4. desember kl. 14.00. Fjölmargir
höfundar lesa.
Tónlist: Elínborg Ólafsdóttir og Þórdís
Halldórsdóttir, lágfiðlur. Kaffiveitingar
og notaleg aðventustemmning. Húsið
opnað kl. 13.30. Allir velkomnir.
LANDIÐ
TÓNLIST
Jólatónleikar Rúdolfs
Söngkvartettinn Rúdolf heldur jólatón-
leika í Flveragerðiskirkju sunnudaginn
5. desember. Efnisskráin er fjölbreytt,
en þar er að finna jólalög bæði innlend
og erlend, gömul og ný, sungin án und-
irleiks. Kvarleltiiin, sem var stofnaður
árið 1992, hefur gefið út tvær geislaplöt-
ur. Núverandi meðlimir Rúdolfs eru:
Þór Ásgeirsson, Soffía Stefánsdóttir,
Skarphéðinn Þór Hjartarson og Sigrún
Þorgeirsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000.
Herbergi 313
Hljómsveitin Land og Synir heldur
áfram að kynna nýja breiðskífu sína
Herbergi 313 og nú laugardaskvöldið 4.
desember leika þeir í vinsælasta dans-
húsi Suðurlands um þessar mundir, Ing-
ólfskaffi í Olfushöllinni, milli Hvera-
gerðis og Selfos^.
Aðventutónleiicar
í Skálholtskirkju
Aðventutónleikar verða haldnir í Skál-
holtskirkju laugardaginn 4. desember kl.
16.00. Kór Menntaskólans á Laugar-
vatni ásamt Agli Ólafssyni og bræðrun-
um Amari og Rúnari Halldórssynum
syngja, einnig kemur fram Kammerkór
Biskupstungna. Stjórnandi er Hilmar
Örn Agnarsson organisti.
Björn Steinar
á hádegistónleikum
Bjöm Steinar Sólbergsson, organisti
heldur hádegistónleika í Akureyrarkirkju
laugardaginn 4. desember kl. 12.00. Á
efríisskrá tóníeikanna verður aðventu-
og jólatónlisl eftir Johann Sebastian
Bach og Louis Claude d’Aquin.
Lesari á tónleikunum er sr. Svavar Al-
freð Jónsson. Aðgangur er ókeypis. Eftir
tónleikana verður léttur hádegisverður í
Safnaðarheimilinu.
Strengja- og bíásaratónleikar
Jólatónleikar strengjadeildar Tónlistar-
skólans á Akureyri verða haldnir í Gler-
árkirkju á laugardaginn kl. 14.00. Á tón-
leikunum koma fram þrjár strengjasveit-
ir og Suzukisamspilshópur. Stjórnendur
em Anna Podhajska, Guðmundur Óli
Gunnarsson og Örnólfur Kristjánsson.
Málband
T?¥Z9l
JólatiJhoð
895 kr.
Vandað 5 raetxa
Stanley málband
HIISASMIÐJAN
Sími 460 3500 • www.husa.is