Dagur - 04.12.1999, Side 8

Dagur - 04.12.1999, Side 8
VUI-LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 MINNINGA RGREINA R Kirkjustarf Sunnudagur 5. desember - annarsunnudagur í aðventu AKUREYRARKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Beðið fyrir bágstöddum. Fræðsla um hjálparstarf í Safnaðarheimili eftir messu. Aðventukvöld kl. 20.30. HVITASUNNUKIRKJAN AKUREYRI Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30. Vakningasamkoma kl. 16.30. HJÁLPRÆÐISHERINN AKUREYRI Sunnudagaskóli kl. 11. Bænastund kl. 16.30. Almenn samkoma kl. 17.00. Ung- lingasamkoma kl. 20.00. SVALBARÐSKIRKJA Kyrrðar- og bænastund kl. 21.00. GRENIVÍKURKIRKJA Guðsþjónusta kl. 14.00. GLÆSIBÆJARKIRKJA Aðventukvöld kl. 20.30. STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA Aðventukvöld kl. 20.30. HRÍSEYJARKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11. HÓLAKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11. MUNNKAÞVERÁRKIRKJA Aðventukvöld kl. 21.00. ÞINGVALLAKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 14.00. LÁGAFELLSKIRKJA Barnastarf í Safnaðarheimili kl. 11. Messa kl. 14.00. STOKKSEYRARKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.00. HVERAGERÐISKIRKJA Sunnudagaskóli kl.11:00, litlu - jól. Guðs- þjónusta kl. 14:00 ÁRBÆJARKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. árdegis. Kristín R. Sigurðardóttir syngur einsöng með kirkjukór Árbæjarkirkju. Ilka Petrova leikur á flautu.Barnaguðsþjónusta kl. 13. BREIÐHOLTSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. (Ath. beyttan messutima). Gerðubergskórinn syngur. Kaffisala barna- og unglingakóra Breiðholtskirkju að messu lokinni. DIGRANESKIRKJA Kl. 20.30 KFUM & K. sér um helgistund í kirkjunni. Einsöngvar úr kór Digraneskirkju og sókninni syngja. Kaffisalan á eftir er til styrktar málefninu „Mismunandi kjör barna í heiminum". En það er þemaverkefni sem unnið hefur verið með í vetur. Einsöngvarar eru: Eiríkur Hreinn Helgason, Guðrún Lóa Jónsdóttir, Margrét Ásgeirsdóttir, Sigriður Sif Sævarsdóttir og Þórunn Freyja Stefánsdóttir. GRAFARVOGSKIRKJA Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11:00, barnakórinn syngur. Sunnudaga- skóli I Engjaskóla kl. 11:00. Valdís Magnús- dóttir kristniboði og kennari kemur í heim- sókn. Guðsþjónusta kl. 14:00 í Grafarvogs- kirkju. Pálmar Guðjónsson kennari við Foldaskóla og kórfélagi flytur jólasöguna „Hin fegursta rósin er fundin" eftir H. C. Andersen. Nemendur úr tónskóla Grafar- vogs leika á flautur. Kór Grafan/ogskirkju syngur. Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir 15:30. Prestur Sr. Vigfús Þór Árnason pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs- kirkju syngur. FELLA- OG HÓLAKIRKJA Tónlistarguðsþjónusta kl. 14. (Ath. breyttan messutíma). Meðal þess sem flutt verður er: Davíðs sálmur nr. 117 eftir G.Ph. Telem- ann, Lokakórinn úr kantötu nr. 147 eftir J.S. Bach o.fl. Zbigniew Dubik og Andreas Kleina leika á fiðlur. Jóhannes Georgsson leikur á kontrabassa og Peter Máté á orgel. Kirkjukór Fella- og Hólakirkju syngur. Barnaguðsþjónusta kl. 11. HJALLAKIRKJA Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kór Hjalla- skóla syngur. Vigdís Sigurðardóttir leikur á flautu, Gróa Margrét Valdimarsdóttir á fiðlu og Þórunn Vala Valdimarsdóttir á víólu. Lára Bryndis Eggertsdóttir leikur undir á pí- anó. Barnaguðsþjónusta í kirkjunni kl. 13 og í Lindaskóla kl. 11. Aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju kl. 20.30. María Guð- mundsdóttir, Gréta JónSdóttir og Gunnar Jónsson syngja einsöng. Guðrún Birgis- dóttir og Martial Nardeau leika á flautur. Undirleikari: Lenka Mátéová. Söngstjóri: Jón Ólafur Sigurðsson. KÓPAVOGSKIRKJA Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kársneskór- inn syngur. Vilborg Ólafsdóttir segir börnun- um sögu. SELJAKIRKJA Kl. 11. Krakkaguðsþjónusta. Kl. 14. Kl. 20.30. Aðventutónleikar kóra kirkjunnar. Kirkjukórinn og barnakórar syngja undir stjórn Gróu Hreinsdóttur. Seljur, kór kvenfé- lagsins syngur undir stjórn Tonje Fossnes. ÁSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjón- usta kl. 14:00. Kaffi eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA Barnamessa kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Heimsókn félaga úr Oddfell- owstúkunni Þórsteini nr. 5. Ræðurmaður Þórður H. Jónsson. DÓMKIRKJAN Messa kl. 11:00. Að lokinni messu verður fundur Safnaðarfélags Dómkirkjunnar í safnaðarheimilinu. Aðventuhátíð fermingar- barna Dómkirkjunnar kl. 17:00. ELLIHEIMILIÐ GRUND Messa kl. 14:00. Félag fyrrverandi sóknar- presta. GRENSÁSKIRKJA Barnastarf kl. 11:00. Messa kl. 11:00. Að- ventukvöld kl. 20:30. Ræðumaður: Adda Steina Björnsdóttir, guðfræðingur og rithöf- undur. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. HALLGRÍMSKIRKJA Messa og barnastarf kl. 11:00. Kvöldmessa kl. 20:00. Hópur úr Mótettukór syngur. LANDSPITALINN Messa kl. 10:00. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Messa kl. 14:00. LANGHOLTSKIRKJA Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00. Nanna Helgadóttir syngur einsöng. Barnastarf í safnaðarheimili - föndur. Hádegiserindi eftir messu kl. 12:20. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson heldur erindi í safnaðaheimilinu og fjallar um baráttu fyrir- bænarinnar. Kaffisopi - allir velkomnir. LAUGARNESKIRKJA Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór Laugarneskirkju syngur. Messukaffi og djús fyrir börnin á eftir. NESKIRKJA Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Átta til níu ára starf á sama tíma.Messa kl. 14:00. SELTJARNARNESKIRKJA Messa kl. 11:00. Barnastarf á sama tíma. Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi JÓNAS SIGURÐSSON, fyrrverandi leigubílstjóri, Akureyri verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 7. desember kl. 13:30 Laufey Sigurðardóttir, Elsa Jónasdóttir, Sigursteinn Kristinsson, Gylfi Jónasson, Guöný Kristjánsdóttir, Heiödfs Sigursteinsdóttir, Gunnlaugur Atli Sigfússon, Hjördís Sigursteinsdóttir, Brynjar Finnsson, Jónas Leifur Sigursteinsson, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir, Sævar Jóhann Sigursteinsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Jóhannes Karl Sigursteinsson, Anna Dóra Heiðarsdóttir, Katrín Gylfadóttir, Hjörtur Geirmundsson, Kristján Gylfason, Helga Svava Arnarsdóttir, Ómar Ingi Gylfason, og barnabarnabörn. Herdís Stefánsdóttir Herdís Stefánsdóttir fæddist 10. mars 1951 á Sauðárkróki. Hún lést á sjúkrahúsi f Rochest- er í New York ríki í Bandaríkj- unum þann 8. nóvember s.l. Herdís lauk sjúkraliðaprófi og starfaði lengst af á Vistheimil- inu á Sólborg og síðar á Geð- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Foreldrar hennar eru Guðný Þuríður Pétursdóttir húsmóðir og Stefán Sigurðsson skipstjóri d. 24. október 1966. Eiginmaður Herdísar er Þór Sigurðsson prentsmiður á Akur- eyri f. 9. júní 1949. Börn Her- dísar og Þórs: Stefán f. 16. október 1974, stundar nám í Danmörku, Sigurður f. 26. nóv- ember 1978, vinnur við bygging- ariðnað á Akuréyri og Þórdís f. 14. september 1989, nemandi í Brekkuskóla á Akureyri. Systir Herdísar er Anna Sjöfn Stefáns- dóttir f. 24. júli 1949. Útför Herdísar fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 23. nóvember s.l. Fyrir rúmum þremur árum kom Herdís frænka mín og vinkona upp stigann hjá mér að kvöldlagi með stóra skál af bláberjum í fanginu til að gefa mér. Hún hafði tínt þau í landi Sellands við sum- arbústaðinn sinn Lækjarkot í Fnjóskadal. Hún var brosandi, ljúf og falleg að vanda en sagðist vera þreytt. Daginn eftir var ljóst að hún gekk með þann illvíga sjúkdóm sem nú hefur dregið hana til dauða aðeins 48 ára gamla. Baráttan var löng og hörð en háð af hugrekki og æðruleysi. Fyrir rúmum mánuði kom hún aftur upp stigann hjá mér síðla kvölds og nú með körfur fullar af hríslum sem skörtuðu heimsins fegurstu haustlitum. Þær voru einnig frá Lækjarkoti, en þar hafði hún unnið alla helgina við að fegra og rækta landið sitt, gróð- ursetja og búa til gangstíga. Hrísl- urnar voru kveðjugjöfin til mín áður en hún lagði upp í för til Bandaríkjanna að leita sér enn lækninga. Eg hef á samvistarárum okkar á Akureyri þegið af henni margar gjafir þar sem efniviður- inn, form, litir og aðrar fyrirmynd- ir eru sótt í norðlenskt umhverfi og íslenska náttúru. Hún hafði óvenju ríka sköpunargáfu, auga fyrir að skreyta og fegra alla hluti í kringum sig og fá gömlum hlut- um nýtt líf og nýjan tilgang. Og hún fór ekkert endilega troðnar slóðir á því sviði fremur en öðr- um. Heimili þeirra Þórs og krakk- anna, sumarbústaðurinn og allt umhverfi þeirra bar þess stöðugt vitna að frjótt ímyndunarafl var að verki og ólatar manneskjur tóku til hendi. Þór og Herdís eignuðust þjú börn, tvo drengi, Stefán og Sigurð sem nú eru komnir yfir tvítugt og svo sólargeislann hana Þórdísi sem er nýlega orðin tíu ára og heitir eftir báðum foreldrum sín- um. Heimili þcirra í Hclgamagrastræti er einstakt, hlýjan og gestrisni þeirra allra slík að straumana leggur á móti manni langt út á götu. lnni bíður andleg næring í samvistum við þau í sorg og gleði. I fyrirrúmi eru börnin, að hlúa sem bcst að þeim og að eiga með þeim góðar stund- ir í næði var Herdísi afar mikils virði. Að því vegarnesti munu þau búa alla tíð. Hún tók lífið og sjálfa sig mátu- lega hátíðlega og skoðaði oft heiminn með kímniglampa í auga, var húmoristi og stundum prakk- ari. Frásagnargáfa hennar var mjög sérstæð, hún sagði skemmti- legar sögur af sjálfri sér og öðrum án þess að kasta rýrð á neinn. Hún var eins og glöggur bók- menntarýnir sem opnar augu manns fyrir nýjum víddum sög- unnar, en hennar sögur voru Iífið sjálft, smáu atriðin scm eru að gerast allt í kringum okkur en við sjáum oft ekki í amstri daganna. Hcrdís var mikil útivistarkona en leitaði á ferðum sínum ekki endilega langt yd’ir skammt. Dag- lega gengu þau hjónin saman hér í nágrenni Akureyrar sér til skemmtunar og heilsubótar og við þrjár stöllur og vinkonur á Akur- eyri vorum árum saman í afar óformlegum og skemmtilegum gönguhópi. A einum góðum degi gengum við Fnjóskadalinn undir leiðsögn Herdísar. Það voru henn- ar uppáhalds slóðir, þó stundum saknaði hún hérna megin Trölla- skaga víðsýnisins úr Skagafirði þar sem hún var fædd og upp alin. Síðustu gönguferðina fórum við saman í haust upp að nývígðum kirkjusteininum í hlíðum Kjarna- skógar. Þar þótti henni gott að eiga hljóða stund úti í náttúrunni og njóta útsýnisins yfir Eyjafjörð. Græðlingarnir sem Herdís gróð- ursetti skjóta nú rótum í Fnjóska- dal. Það gera líka minningar um ómetanlegar samverstundir með henni sem skjóta upp kollinum fleiri og fleiri og munu fylgja okk- ur öllum um ókomna tíð scm dýr- mæt eign. Við Haraldur, Sigrún Stella, Guðrún, Brandur og Kristín móð- ursystir Herdísar sendum Þór, Stefáni, Sigurði, Þórdísi, Þurý, Sjöfn og hennar fjölskyldu dýpstu samúðarkveðjur. Margrét Björgvinsdóttir Glaðnr og reifur skyli gumna hver uns sinn híður hana. Hávamál *** Þann 9. nóvember sl. lést vin- kona okkar, Herdís Stefánsdóttir, 48 ára gömul. Undanfarin 3 ár barðist hún eins og hetja við hvít- blæði sem heltók hana án þess að gera boð á undan sér. Það vita víst allt of margir hvað það er að eiga vini og ættingja sem berjast við svona sjúkdóm. Nagandi kvíði, von um kraftaverk og brennandi löngun til að lífið sigri dauðann móta öll samskipti. Jafnframt verða allar samverustundir svo margfalt dýrmætari en áður. í ná- vist dauðans nennum við ekki að þykjast. Fyrir tilstilli Margrétar, frænku Herdísar, gengu Magga, Júlla og Dísa í fóstbræðralag fyrir um það bil 8 árum. Makar þeirra og börn bundust vináttuböndum. Líka ömmur og frænkur. Samveru- stundir einkenndust af sameigin- legum áhugamálum: elsku á ís- lenskri sagnahefð, ljóðlist, lán- lausum skáldum, söng og trega- blöndnum textum. Þessi áhuga- mál var hægt að stunda jafnt úti sem inni, á göngu yfir brýrnar á ósunum, heima í stofu í Helgamagrastræti eða austur í Sellandi. Herdís og maður henn- ar, Þór, unnu útivist og íslenskri náttúru. Dísa elskaði lyngið, kjarr- ið, sólarlagið og Maístjörnuna. Við ræddum það stundum í gönguferðum, vinkonurnar, hvort við ættum núna að vera með sekt- arkennd yfir því að þurrka ekki rykið af sófaborðinu, þvo ekki blauta íþróttasokka af börnunum eða hlusta ekki á eldhúsdagsum- ræðurnar. Oftast var það Herdís sem sannfærði okkur um að kær- leiksríkt barnauppeldi og gott heimilislíf fælist ekki í hreinum sokkum. Ollum aðstandendum Herdísar vottum við okkar dýpstu samúð. Við kveikjum á kertum, hlýðum á „Yfir í Fjörðum allt er hljótt“ og minnumst Dísu. Hún var falleg og yndisleg kona og við þökkum fyrir að hafa átt hana að vini. ^ffyRARSTo^ /SLANDS Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega þjónustu, Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings sem er. Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti er hafá ber í huga er dauösfall ber að. Útfararstjórar Útfararstofu íslands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabil. Utfararstofa Islands sér um: Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar f samráði við prest og aðstandendur. - Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús. - Aðstoða viö val á kistu og líkklæðum. - Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef með þarf. Útfararstofa íslands útvegar: - Prest. - Dánarvottorð. - Stað og stund fyrir kistulagningu og útför. - Legstað í kirkjugarði. - Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara og/eða annað listafólk. - Kistuskreytingu og fána. - Blóm og kransa. - Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum. - Líkbrennsluheimild. - Duftker ef líkbrennsla á sér stað. - Sal fyrir erfidrykkju. - Kross og skilti á leiði. - Legstein. - Flutning kistu út á land eða utan af landi. - Flutning kistu til landsins eða frá landinu. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands - Suðurhlíð 35-105 Reykjavfk. Sími 581 3300 - allann sólarhringinn. Júlla og Bjönt

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.