Dagur - 08.12.1999, Side 1
U V
\ r\ r> i-
1
i
þeirra sem tilnefndir
eru tilíslensku bókmennta-
verðlaumnm í ár er Steinunn
I ?, _ ; ■
Sigurðardóttirfyrir Ijóðabók-
ina sím nýju „Hugástir“ og
ekki ífyrsta sinni...
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverð-
launanna voru kynntar í fyrradag og kom
þá í ljós að Steinunn Sigurðardóttir var
einu sinni sem oftar meðal tilnefndra höf-
unda en bók hennar Hjartastaður hlaut
verðlaunin fyrir fáum árum árum. Við til-
nefningunni tók Svandís Sigurðardóttir,
æskuvinkona Steinunnar sem ljóðabókin
nýja er tileinkuð, því sjálf er Steinunn á
vegum úti. Hún er sem stendur í Suður-
Frakklandi og þangað náðum við sam-
bandi við Steinunni þar sem hún sat mak-
indalega í bíl á ferð um Frakkland og svar-
aði góðfúslega spurningum með bílasíma í
hönd - þrátt fyrir truflanir, skruðninga og
önnur læti er fylgja þeirri nútímatækni.
TUraunastarf
Ljóðabókinni „Hugástir" reyndist ekki
hafa verið hespað af á nokkrum mánuð-
um, Ijóðin teygja sig alla leið aftur á síð-
asta áratug. „Sumt af þessu er úr glósu-
bókum frá áttatíu og eitthvað, þannig að
hún nær langt aftur en ég rak nú smiðs-
höggið á þetta í kringum síðustu áramót,“
segir Steinunn á milli hviðanna í bílasím-
anum og segist hreinlega ekki vera viss um
hvað hafi orðið til að ljóð ort á svo löngum
tíma hafi lent saman í bók. Hún sjái ekki
bindiefnið fyrir, yrki ekki meðvitað heilu
ljóðabálkana. „I raun og veru sér maður
það ekki fyrr en eftir á hvað maður hefur
verið að yrkja um.“
- Hvað finnst þér þú Ijóðið vera? Til-
raunamennsku með orð ogform, útrás eða
kannski besta leiðin til að skoða lífsins
sannleika?
„Eg veit það ekki almennilega, ég held
það sé ekki til neitt form fyrir sannleika
lífsins. En ég vil nú meina að ég leiki mér
að formi í ljóðunum. I þessari bók er allt
Veistu það, ég er alveg með það á hreirtu aö ég hefenga lífsspeki. Ég held að lífið sé ekki til
ég trúi ekki á líf sem einhvern samnefnara, “ segir Steinunn.
frá stuttum stemningum upp í lengri ljóð
sem er meiri „statement“ og svo eru líka
sögur í prósaljóðum. Þannig að mér finnst
sjálfri að ég sé með einhvers konar til-
raunastarf - a.m.k. miðað við sjálfa mig.“
Lífið er ekkl til
- Þú lýsir því í fyrsta Ijóðinu hvernig allt
sem skipti máli komi í hviðum, er það þín
lífsspeki, ertu lítið fyrir jafnlynda ham-
ingju?
„Veistu það,“ svarar Steinunn og hlær í
gegnum skruðningana. „Eg er alveg með
það á hreinu að ég hef enga lífsspeki. Eg
held að Iífið sé ekki til, ekki þannig að hægt ,
sé að segja í einu orði hvað sé líf. Líf fólks
eru svo ótrúlega ólík. Eg trúi ekki á líf sem
einhvern samnefnara. Þetta hviðuljóð er •
bara hugmynd sem maður fær og vinnur svo
úr henni - en ég trúi ekki á neitt, ég trúi því
ekki að neitt sem ég hef skrifað sé rétt eða
satt. Enda gengur skáldskapur sannarlega
ekki út á sannleikann. Hann er bara eitt-
hvað sem maður varpar fram,“ svarar Stein-
unn og telur að líkja megi saman rithöfund- .
inum og veiðimanninum, báðir kasti öngli
sínum út í iðuna í þeirri von að fiskur/hug- •
mynd bíti á. „Og svo má kannski líkja les- -
andanum við fisk - bítur hann á eða ekki. 1
En úr því þú spyrð um það þá finnst mér
að lífið sé svolítið hviðukennt. Stundum
líður tíminn ógnarhratt. T.d. daginn eftir
að maður flytur sig úr einum stað á annan
- þá finnst manni eins og það séu Ijórir
mánuðir síðan maður yfirgaf staðinn.
Þannig að hvort sem manni líkar betur
eða verr þá gusast lífið dálítið áfram.“
- Þií ert U'ka á mikilli ferð i bókinni, t
lestum, bílum...
„Já, ljóð er náttúrulega einhvers konar
hreyfing og þarna geri ég hana bókstaf-
lega. Og það er kannski ekkert óeðlilegt að
ég yrki þannig, það er ekki mjög mikil
kyrrstaða hjá mér. Eg hreyfi mig svolítið
mikið,“ segir Steinunn sem var í gær ný-
komin til Suður-Frakklands frá Englandi
þar sem hún hefur aðsetur um þessar
mundir. Finnst henni verða meira úr líf-
inu þegar það er á hreyfingu? O, já, svar-
aði hún um hæl. „Sérstaklega þegar það
kemur kyrrstaða á eftir hreyfingunni. Þá
nýtist manni tíminn ofboðslega vel.“
LÓA
ORBYLGJUOFNAR
GÆÐI
ÖRYGGI
ENDING
Lág
cmmmik
R-612
20 lítra • 800W
B:45 H:30 D36 sm.
R-232
20 lítra • 800W • Grill
B:45 H:30 D36 sm.
29 litra •
Grill upp og niðri
Fjölmörg eldunarkerfi • B: >2 H:31 D:41 sm.
—...."■ ' jSÍ '
Vosturtand: Híjómsýn, Akranesl. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrlmsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. Vestflröin Geirseyrarbúðin, Patreksflrði. Rafverk, Bolungarvlk. Straumur, Isafirði. Pokáhomið, Tálknafirði. NorSurtand: R
co ehf, Dalvlk. Oryggl sf, Húsavlk. Kf. Steingifmsfjarðar; Hólmavlk. Kf. V-Hún„ Hvammstarrga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðlngabúð, Sauðárkrókl. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðlnga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga.
Kf. Fáskrúósfirðinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurfand: Mosfell, Hellu. Arvlrkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes: Ljósbogin Keflavík. Rafborg, Grindavfk.
lionaust, Akureyri. Elektro
/erslunin Vfk, r ’ ‘ *