Dagur - 08.12.1999, Síða 4
20 - MIOVIKVDAGVR 8. DESEMBER 1999
■bækur
Stj ónunálakempur
síðustu aldamóta
Nýja bókafélagið
hefur gefið út
bókina Aldamót
og endurreisn,
Sjálfstæði, fjar-
skipti, fjármál. I
bókinni eru birt
bréfaskipti mág-
anna dr. Valtýs Guðmunds-
sonar, sem var mjög áberandi
í stjórnmálabaráttu síðustu
aldamóta og Jóhannesar Jó-
hannessonar bæjarfógeta,
sem einnig lét mjög til sín
taka.
Þessir menn voru trúnað-
arvinir og bréfin sem fóru
þeirra á milli veita innsýn í
atburðarásina á mikium um-
brotatímum f Islandssög-
unni. Hafa bréfin mikið
heimildargildi.
Dr. Jón Þ. Þór sagnfræð-
ingur bjó bréfin til prentunar
og ritar hann inngang að
bókinni.
List Sigurjóns
Annað bindi verksins um ævi
og list Sigurjóns Olafssonar
myndhöggvara er komið út.
Ritstjórn annaðist ekkja lista-
mannsins Birgitta Spur, en
Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur ritar megintexta og
rekur fjölbreyttan listferil
Sigurjóns.
Sfðara bindið nær yfir
tímabilið frál945 þegar lista-
maðurinn kom heim frá Dan-
mörku að Ioknu stríði, en þar
hafði hann þá dvalið og starf-
að í 17 ár, og til ársins 1982
þegar hann vann sitt síðasta
verk.
I verkinu öllu er mynd-
skreytt heimildaská yfir verk
Sigurjóns. Utgefandi er
Listasafn Sigurjóns Olafs-
sonar en Hið íslenska bók-
menntafélag annast dreif-
ingu.
Sjálfsrýni
„Þetta er bók-
in um ábyrgð
manneskjunn-
ar og leiðir til
að lifa inni-
haldsríku
lífi,“ segir í
kynningu
Forlagsins á
bókinni Leggðu rækt við
sjálfan þig eftir Onnu Valdi-
marsdóttur sálfræðing.
Höfundur leitast við að
lýsa hvernig draga megi úr
kvíða og reiði með breyttum
hugsunarhætti og styrkja sig
til að fylgja eigin sannfær-
ingu í stað þess að láta
stjórnast af kvíða um hvað
öðrum finnst.
RyMð dustað af Grýlu
Gunnar
Karlsson
ur samið
um Grýlu
gömlu og
myndskreytt
hana með
uggvænleg-
um myndum af kerlu og
Leppalúða hennar.
Grýlusaga segir frá afa þeg-
ar hann var lítill og hvernig
hann lenti í pokanum hennar
Grýlu og var borinn heim í
helli hennar. En honum tókst
að sleppa frá þeim skötuhjú-
um, og er þetta hetjusaga,
eins og annar höfundur segir
um frásögn sína af honum
Bjarti.
J
Sveinn
engumlíkur
BÆKUR
Bjorn Johann
Björnsson
skrifar
Sveinn Þormóðsson,
blaðaljósmyndari í hálfa
öld, er engum líkur. Það
kemur berlega í ljós eftir
að hafa lesið ævisögu hans,
„A hælum löggunnar“, sem
Reynir Traustason blaða-
maður hefur skrásett. I
bókinni segir Sveinn frá
uppvaxtarárum sínum á
kreppuárunum, samskipt-
um við breska hernámslið-
ið og hvernig það var að
stofna fjölskyldu aðeins sextán ára. Síðast
en ekki síst segir hann frá blaðaljósmynd-
uninni sem hann hefur haft lifibrauð sitt af
frá árinu 1950.
Frásögninni er skipt upp í yfir 40 stutta
og snarpa kafla, sem allir hafa inngang.
Þar dregur skrásetjari hvern kafla saman
og er sú aðferð vel heppnuð. Með þessu
móti verður frásögnin meira lifandi og les-
andanum tekst að setja sig betur inn í tíð-
arandann. Ævisaga Sveins er f raun heim-
ild um Reykjavík og hvernig hún byggðist
upp frá þriðja áratugnum. Lesningin er
ekki síður fróðleg fyrir allan þann fj'ölda
landsbyggðarfólks sem flust hefur til
Reykjavíkur á síðustu árum. Ljósmyndirn-
ar segja líka sína sögu um höfuðborgarlífið
og þjóðfélagið almennt um og upp úr miðri
öldinni. Sögurnar úr braggahverfinu í
Kamp Knox verða ljóslifandi og kvikmyndin Djöfla-
eyjan rennur í gegnum hugann um Ieið.
Sveinn lýsir á skemmtilegan hátt frá viðburða-
rfkri ævi þar sem skipst hafa á skin og skúrir. Þótt
skúrirnar hafi oft náð yfirhöndinni þá skín lífsgleði
Sveins allstaðar í gegn í hispurslausum frásögnum,
hvort sem það er af hans eigin lífi og starfi, sam-
ferðamönnum eða samstarfsmönnum á dagblöð-
unum. Sveinn dregur á mörgum stöðum ekkert
undan, samanber slysið sem hann verður fyrir í
Eyjum og baráttuna sem hann háði við Bakkus.
Lýsingar á samferðamönnum eru margar hverjar
bráðskemmtilegar. Ef hreinsldlnin hefur á ein-
hverjum stað verið í of stórum skömmtum þá er
það í Iýsingum á sumum slysum. Þannig hefði ein
lýsing mátt sleppa sín þar sem ökumaður missir
höfuðið og Sveinn dettur um það í svartamyrkri á
leiðinni á slysavettvang!
Fréttaljósmyndun hefur verið ær og kýr Sveins í
Sveinn Þormóðsson
blaðaljó&myndafi í háifa ðid
hálfa öld og þeim er gefinn veglegur sess í bókinni.
I raun hefðu þær mátt vera enn fleiri. Þarna eru
margar stórmerkilegar myndir á ferðinni, samanber
myndirnar af flugslysinu í Litla-Meitli árið 1964.
Góður fréttaljósmyndari þarf að hafa það sem kall-
ast fréttanef og nefið hans Sveins hefur náð ansi
langt, kannski full langt að mati lögreglunnar oft á
tíðum!
Frágangur bókarinnar er allur til fyrirmyndar og
á Reynir Traustason þakkir skildar fyrir að hafa
komið einstæðum ferli Sveins Þormóðssonar fyrir
almenningssjónir. „A hælum löggunnar" er
skemmtileg Iesning sem óhætt er að mæla með fyr-
ir alla aldurshópa. Sveinn Þormóðsson er og verð-
ur engum líkur.
Á hælum löggunnar.
Höfundur: Reynir Traustason.
Útgefandi: Islenska bókaútgáfan.
Hin hliðin á Ragnari
út er komin geisladiskurinn
„Ragnar Bjarnason - Hin hlið-
in“ þar sem Ragnar Bjarnason
gerir sínum hugðarefnum skil
og syngur sín uppáhaldslög
meðal annars gömul djasslög og
ballöður, við undirleik þekktra
hljóðfæraleikara. Þessi lög hafa
ekki komið út áður í flutningi
Ragnars en eru vel þekkt í
flutningi söngvara á borð við
Frank Sinatra, Dean Martin og
Bing Crosby svo einhverjir séu
nefndir. Þetta er hin hliðin á
Ragnari, sem hann hefur ekki
sýnt oft áður.
Astvaldur Traustason, pfanó-
leikari Milljónamæringanna, sá
um hljómsveitastjórn og útsetn-
ingar. Ragnar tileinkar diskinn
foreldrum sínum Bjarna Böðv-
arssyni og Láru Magnúsdóttur,
sem og látnum samstarfsmönn-
um og vinum. Hljóðfæraleikar-
ar á þessum diski eru Astvaldur
Traustason, sem Ieikur á píanó,
Arni Scheving á víbrafónn og
harmoniku, Björn Thoroddsen
á gítar, Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa, Ólafur Jónsson á
saxófón og Pétur Grétarsson á
trommur.
Upptökur fóru fram í hljóð-
veri Félgs íslenskra hljómlistar-
manna fyrstu dagana í október
og fyrir utan að þar legðu hönd
á plóg valinkunnir tónlistar-
mann önnuðust vanir menn
upptökustjórn - þeir bestu sem
bjóðast.
BÆKIIR
Verðir iaganna
Þjófur um nótt eftir Árna
Árnason og Halldór Baldurs-
son er bók mcð miklu mynd-
efni handa ungum lescndum.
Garpur og Gunna læra það
í skólanum að ef engin lög-
gæsla vari í samfélaginu væri
líklega mjög erfitt að búa í
því. Því fá þau að kynnast
þegar Palli fíni fer á stjá.
ÁUasaga
Kata manna-
barn og stelpa
sem ekki sést
er nútíma
álfasaga eftir
Kjartan
Árnason.
Hún er un
hana Kötu,
en foreldrar
hennar ákváðu að selja íbúð-
ina í Kópavoginum og flytja
út á land, og telpunni finnst
sem hún missti af öllu sem er
henni einhvers virði lífinu.
En í sveitinni finnur hún
hring, sem gæddur er töfra-
mætti. Þá kemst hún að því
að ósýnilegur heimur er sam-
hliða þeim sem við skynjum.
Æskan gefur út.
Glettnlr prakkarar
1 bókinni
Köflóttur
himin eftir
Karl Helga-
son segir af
Hrefu og
Lilju og
kynnum þeir-
ra sumarið
sem þær
verða tólf ára. Þær
verða góðar vinkonur og
finnst gaman að hlæja sama
og tala um strákana, stelpu-
vandamál og ýmislegt annað.
Þær eru glettnir prakkarar
sem lenda í mörgum ævintýr-
um í sumarbústað og á sólar-
strönd.
Þýddar
bamabækur
Bókaútgáfa Æskunnar gefur
út nokkrar þýddar barna- og
unglingabækur í ár, eins og
endranær. Meðal þeirra eru
Ömögulegir foreldrar eftir
breska Ijóðskáldið Brian
Patten. Hún er um Benna og
Marí, sem fyllast skelfingu
og kvíða þegar foreldradagur-
inn í skólanum nálgast. Þeim
finnst pabbi og mamma svo
ægilega hallærisleg og halda
að þau verði að athlægi í
skólanum.
Sannleikann eða áhættuna
eftir sænska rithöfundinn
Anniku Thor er saga um vin-
áttu og svik í hópi þrettán ára
stúlkna.
Blaðurskjóða eftir ástralska
höfundinn Morris Leitzman
er saga um stúlku sem lendir
í þeim aðstæðum að byrja í
nýjum skóla og afla sér nýrra
vina.
Eva&Adam með hjartað í
buxunum er fjórða bókin sem
Æskan gefur út eftir þá fé-
laga Máns Gahrton ogjohan
Unenge. Hún fjallar um til-
vistarvanda unglinga á létt-
um nótum.
Ógnaröfl er nýr spennu-
bókaflokkur í níu heftum og
eru 7. og 8. bækurnar nú
komnar út.
V
J
V.