Dagur - 14.12.1999, Qupperneq 9
8 - ÞRIÐJUDA G UR 14. DESEMBER 1999
ÞRIDJUDAGUR 14. DESEMBER 19 9 9 - 9
FRÉTTASKÝRING
i.
Thypir
FRÉTTIR
Formaður iðnaðar-
nefndar, segir að nú sé
komið að því að taka
ákvörðun uin hvort
byggja á Fljótsdals-
virkjun eða ekki.
Rannveig Guðmunds-
dóttir gagnrýnir
meirihluta iðnaðar-
nefndar íýrir ómark-
viss og ólýðræðisleg
vinnuhrögð. Ámi
Steinar Jóhannsson
segir æðihunuganginn
óskiljanlegan.
Iðnaðarnefnd Alþingis hefur lok-
ið umfjöllun sinni á þingsálykt-
unartillögu Finns Ingólfssonar
iðnaðarráðherra um að haldið
skuli áfram framkvæmdum við
Fljótsdalsvirkjun. Umhverfis-
nefnd var falin umfjöllun um um-
hverfisþátt málsins og skilaði hún
sínu áliti fyrir rúmri viku. Meiri-
hluti umhverfisnefndar var mjög
óánægður með að fá ekki lengri
tíma til að fjalla um málið og
sami meiri er fyrir því að Fljóts-
dalsvirkjun fari í umhverfismat.
Og nú er uppi afar hörð gagnrýni
hjá minnihluta iðnaðarnefndar
um ófagleg vinnubrögð hjá meiri-
hlutanum og allt of lítinn tíma
við úrvinnslu málsins.
Góð ferð til Eyjabakka
Rannveig Guðmundsdóttir er
harðorð f gagnrýni sinni á meiri-
hluta iðnaðarnefndar vegna
vinnubragða hans í málinu. Hún
segir að formaður iðnaðarnefndar
leggi mikla áherslu á langa, um-
fangsmikla og vandaða meðferð á
þessu máli. Hún segir þetta hrein
öfugmæli.
„Hann vísar til þess að Alþingi
hafi verið með málið til meðferð-
ar frá því í september. Staðreynd-
ir málsins eru að í september fór
iðnaðarnefnd, umhverfisnefnd,
Landsvirkjun ásamt fulltrúum
ýmissa félagssamtaka og héldu
með sér fund á Egilsstöðum og
heimsóttu Eyjabakka. Þetta var
gagnlegur fundur og ánægjuleg
ferð á Eyjabakka. Greinargerð
sem þá lá fyrir var frá hagsmuna-
aðilanum Landsvirkjun. Síðan
kom málið inn á þingið í nóvem-
ber. Það var tekið til umræðu á
Alþingi 16. nóvember og síðan
vísað til iðnaðarnefndar og tekið
út úr þeirri nefnd 1 I. desember.
Það geta nú allir séð hvort þetta
er langvinn og ítarlega umfjöll-
un,“ segir Rannveig.
Naumt skanuntaður timi
Hún bendir á að nefndir Alþingis
séu ekki að störfum alla daga.
Umhverfisnefnd hafí til að
mynda aðeins fengið úthlutað
fundum á tveimur nefndardögum
af fjórum í nefndarvikunni. Um-
Austfirðingar voru á meðal þeirra sem gengu á fund iðnaðarnefndar. Hér eru þeir í biðstofunni ásamt formanni nefndarinnar, Hjálmari Árnasyni. - mynd: hilmar þór
hverfisnefnd óskaði eftir því við
forseta Alþingis að fá frestinn
lengdan vegna þess að hún væri
ekki búinn að ljúka sinni vinnu.
Þessu hafi verið neitað af forseta
Alþingis þrátt fyrir þá staðreynd
að þá lifðu enn þrír dagar þar til
iðnaðarnefnd átti að hittast. Því
hafi engin ástæða verið til þess að
leyfa ekki umhverfisnefnd að
vinna með málið fram að þeim
degi.
„I áliti umhverfisnefndar kem-
ur fram að hún hafi ekki náð að
kalla í alla þá aðila sem hún hefði
viljað varðandi Iíffræðilega og
náttúrufræðilega þætti málsins.
Hún hefði viljað ráðfæra sig við
fólk frá Háskólanum og fulltrúa
frá Norsk Hydro. Nefndin náði
þessu ekki sökum tímaskorts.
Þegar málið kom til iðnaðar-
nefndar óskuðum við, fulltrúar
Samfylldngarinnar, eftir því að fá
að fylgja umhverfisþættinum eft-
ir. Við vildum taka upp ýmis álita-
mál sem umhverfisnefndin bend-
ir á í áliti sínu. Þessari ósk okkar
var synjað. Því var lýst yfir af for-
manni iðnaðarnefndar að málinu
hafi verið skipt upp, iðnaðar-
nefnd væri með þann þátt sem
snéri að virkjuninni sjálfri. Um-
hverfisþátturinn hefði verið send-
ur til umhverfisnefndar og að
iðnaðarnefnd myndi ekki taka
þann þátt málsins upp,“ segir
Rannveig.
Ófagleg vinnubrögð
Hún segist vilja taka það skýrt
fram að fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar í iðnaðarnefnd og um-
hverfisnefnd hafi sinnt málinu
vel, setið fundi, kallað inn fyrir
sig varamenn ef þeir gátu ekki
mætt sjálfir og hafa lagt alúð í þá
vinnu sem fór fram í nefndunum
báðum.
„Það er grundvallar munur á að
halda því fram að mál sem þingið
er að taka fyrir og varðar jafn
stóran þátt og kröfuna um mat á
umhverfisáhrifum og verið er að
bjóða þjóðinni upp á að þingið
sjálft ætli að leggja fram þetta
mat og að halda því fram að mál-
ið sé vel og ítarlega unnið. Eftir
að álit umhverfisnefndar barst
iðnaðarnefnd óskuðum við eftir
að fá ýmsa aðila á fund nefndar-
innar en því var synjað. Við
óskuðum eftir því að fulltrúar
Norsk Hydron yrðu kallaðir á
fund iðnaðarnefndar vegna ítrek-
aðra misvísandi yf’irlýsinga for-
ráðamanna fyrirtækisins. Þess
vegna þótti okkur eðlilegt að
nefndarmenn fengju að heyra í
þeim ekki síst eftir að yfirlýsing
kom frá þeim um að fyrirtækið
myndi sjálft framkvæma mat á
umhverfisáhrifum næsta sumar.
Þessari ósk okkar var einnig synj-
að,“ segir Rannveig.
Hún bendir á að þegar kom að
síðasta fundi iðnaðarnefndar um
þingsályktunartillöguna, sl. laug-
ardag, hafi aðeins verið einn aðili
mættur á fund nefndarinnar, það
var Landsvirkjun. Fulltrúar Sam-
fylkingarinnar óskuðu eftir öðr-
um fulltrúum til viðræðna hæði
vegna gagnrýni Landsvirkjunar á
rannsóknir á náttúrufari en því
var synjað. Miklar deilur hafa ver-
ið í umræðum sem átt hafa sér
stað vegna þess. Enn einu sinni
var óskinni hafnað.
„Við óskuðum líka eftir því að
málið yrði rætt á f'undi iðnaðar-
nefndar scm halda átti í dag,
mánudag, því var hafnað. En
fundurinn í dag var felldur niður
vegna þess að það liggja engin
verkefni fyrir hjá iðnaðarnefnd.
Það hafa komið yfir 200 erindi á
tölvupósti til nefndarinnar í
tengslum við þetta mál. Við höf-
um skoðað þessi erindi, sem eru
að miklum meirihluta þess eðlis
að fólk vill að fram fari umhverf-
ismat. Meirihluti iðnaðarnefndar
gerir ekkert með þessi erindi. Þau
eru eingöngu bókuð inn sem
málsskjöl vegna þess að fulltrúar
Samfylkingarinnar í iðnaðar-
nefnd fóru þess á leit að þau yrðu
bókuð inn sem málsskjöl í þessu
stóra og viðamikla máli. Erindin
hafa aldrei verið tekin fyrir f
nefndinni.
Okkur er bara heimilað að lesa
þau og hafa sjálf skoðanir á þeim.
Þetta er gagnrýnivert sérstaklega
vegna þess að í upp hafi máls-
meðferðar var það iðnaðarnefnd-
in sem hélt sérstakan frétta-
mannafund til að kynna þessa
ágætu vinnu og opnun fyrir al-
menning í landinu til að geta haft
áhrif á vinnu nefndar alþingis. Þá
lýsti ég því yfir að þarna væri ver-
ið að vekja upp falskar vonir.
Þetta væri einn þáttur leikrits um
að Alþingi væri að gera hið vand-
aða mat. Að öllu þessu saman-
lögðu er það mitt mat að það sé
ekki rétt hjá formanni iðnaðar-
nefndar að hér hafi verið viðhöf-
uð ítarlega og fagleg vinnubrögð í
nefnd. Það þýðir ekki að nefna
kíló af pappírum máli sínu til
stuðnings ef ekki hefur verið
unnið með þá pappíra. ítarleg og
fagleg vinna mælist ekki á þyngd
á pappír. Hún mælist í allt öðru
og m.a. því að þegar mál eru tek-
in úr nefnd sé búið að verða við
óskum þingmanna um að fá full-
trúa á fund nefndarinnar til við-
ræðna. Það var ekki gert að þessu
sinni," segir Rannveig Guð-
mundsdóttir.
Þctta er lýðræðið
Hjálmar Arnason, formaður iðn-
aðarnefndar, hafnar gagnrýni
Rannveigar Guðmundsdóttur og
annarra stjórnarandstæðinga á
vinnubrögð nefndarinnar. Hann
segist vísa henni til föðurhús-
anna.
„Lýðræðið er nú einu sinni
þannig að vinna faglega að mál-
um en síðan er það meirihlutinn
sem ræður. Samfylkingin gerir sig
seka um ómálefnalegan uppslátt í
Rannveig Guðmundsdóttir: Hrein
öfugmæli að taia um að málið hafi
fengið ítarlega og efnismikia meðferð.
þessu máli eins og hún hefur oft
gert áður og notar jafnvel útúr-
snúninga. Samfylkingarmenn
tala um nokkrar vikur í þinginu
þegar báðar nefndirnar, iðnaðar-
nefnd og umhverfisnefnd, hófu
að vinna þetta mál strax á haust-
dögum á mjög ítarlegu og faglegu
námskeiði um Eyjabakka með
helstu sérfræðingum þjóðarinnar
og hagsmunaaðilum. Og síðan
hefur iðnaðarnefnd verið að
vinna með þetta mál,“ segir
Hjálmar.
Varðandi gagnrýnina á að kalla
ekki fulltrúa frá Norsk Hydro á
fund nefndarinnar sé það einfald-
lega skoðun meirihluta iðnaðar-
nefndar að það sé ekki alþingis-
mönnum sæmandi að fara bón-
leið til Norðmanna og lýsa þar
með vantrausti á m.a. viðsemj-
endur þeirra íslenska. Vilji Sam-
Hjáimar Árnason:
Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar í
nefndinni til föðurhúsanna.
fylkingin beygja sig undir Norð-
menn sé það hennar vandamál.
Ögurstund ruimiii upp
„Varðandi gagnrýni stjórnarand-
stöðunnar um að ekki hafi verið
kallaðir til sérfræðingar hvað
varðar náttúrfarið hendi ég á að
samkomulag var um það í nefnd-
inni í byrjun að fela umhverfis-
nefnd að annast þann þátt. Um-
hverfisnefnd gerði það mjög fag-
lega. Samíylkingin hefði átt að
gera athugasemd við það strax í
byrjun málsins, en fulltrúar henn-
ar sátu nú ekki einu sinni á þeim
fundi þar sem þetta var skipulagt.
Síðan koma þessi sömu fulltrúar á
lokasprettinum og gapa um þetta.
Segja má að það hafi svo sem ver-
ið í samræmi við öll vinnubrögð
þeirra í málinu,“ segir Hjálmar.
Hann segir að á bak við önug-
Árni Steinar Jóhannsson:
Skil ekki þennan æðubunugang í
málinu.
heit Samfylkingar liggi vond sam-
viska. Hennar fólk sé mjög ábyrgt
fyrir Fljótsdalsvirkjun úr fortíð-
inni og þá ekki síst þeir sem nú
tala hæst um málið.
„Það er svo til að kóróna þeirra
viðbrögð í málinu að segja annars
vegar að það fái ekki nægan tíma
og greiði svo ekki einu sinni at-
kvæði gegn þvf að málið sé tekið
úr nefnd heldur sitji hjá. Þar voru
þó VG sjálfum sér samkvæmir.
Nú er komin ögurstund í þessu
máli. Ég sé ekki að fram komi
nein ný atriði í málinu sem hefur
verið svona rækilega til skoðunar í
langan tíma í samfélaginu öllu
sem og í fjölmiðlum. Nú er komið
að því að verða að taka afstöðu til
byggingar Fljótsdalsvirkjunar.
Mér sýnist að það sé einmitt það
sem Samfylkingin á svo erfitt
með. Það er alveg ljóst að þegar
við þurfum að virkja verðum við
að færa fórnir. Undirtónninn í
þessu öllu saman er neyslusamfé-
lag okkar Islendinga. Við sjáum
það á öllum hagtölum að Islend-
ingar eru frekir til neyslunnar.
Þessi neysla okkar felur óhjá-
kvæmilega í sér árekstur við nátt-
úruna. Þjóðin vill halda háu
neyslustigi og háu velferðarstigi.
Slíkt gerist ekki nema í gegnum
atvinnu- og verðmætasköpun,
sem er undirtónninn að þessu
öllu saman," segir Hjálmar Arna-
son.
Æðibimugangur
Arni Steinar Jóhannsson er full-
trúi VG í iðnaðarnefnd. Hann,
cins og fulltrúar Samfylkingarinn-
ar, gagnrýnir harðlega vinnubrögð
meiríhluta nefndarinnar.
„Eg var andvígur því að málið
yrði tekið út úr nefndinni svona
fljótt og greiddi atkvæði gegn því
en Samfylkingin sat hjá. Eg vildi
fá að ræða við fulltrúa frá Norsk
Hydro um afstöðu fyrirtækisins til
umhverfismats. Síðan vildi ég
verða við ósk þeirra sem sendu
okkur erindi í tölvupósti og vildu
fá fund með nefndinni. Tölvu-
póstur til nefnda þingsins var
opnaður með viðhöfn af formanni
iðnaðarnefndar á dögunum.
Hann kallaði þetta beintengingu
almennings við Alþingi. En þegar
ég bað um þennan fund með
þeim sem þess óskuðu var það
fellt af meirihluta iðnaðarnendar.
Hér var um að ræða þrjá aðila
sem óskuðu sérstakfega eftir
fundi,“ segir Árni Steinar.
Hann segist vera afskaplega
ósáttur við að fá ekki fulltrúa frá
Norsk Hydro á fund nefndarinn-
ar. Ekki síst vegna þess að sá ógn-
ar hraði sem er á málinu í gegn-
um þingið byggist á því að haldið
er fram að Norsk Hydro vilji fá
samninga strax.
„Eg vildi hara fá að heyra það af
munni þeirra sjálfra hvort vinna
við lögformlegt umhverfismat
myndi setja málið í uppnám. Þá
hafa borist mjög misvísandi yfir-
lýsingar frá fulltrúum NH og nú
segjast þeir sjálfir ætla að láta
umhverfismat fara fram næsta
sumar á verksmiðjunni. Þess
vegna skil ég ekki þennan æði-
bunugang," segir Arni Steinar Jó-
hannsson.
Kennarar fá
fria tengingu
Frá áramótiun verður
skólastofnunum boðin
M tenging við Netið
hjá Skýrr. Næst er að
bjóða nemendum fría
tengingu.
Eins og fram hefur komið keypti
Skýrr hf. Islenska menntanetið af
ríkinu. I tilcfni þessa hcfur fyrir-
tækið ákveðið að bjóða kennurum
og öðrum starfsmönnum
menntastofnana landsins, sem
hafa verið í viðskiptum við Is-
lenska menntanetið, ókeypis
tengingu frá og mcð 1. janúar nk.
Gildir einu hvort um mótald er að
ræða eða ISDN-tengingar.
Næsta skref er að veita nemend-
um ókeypis tengingu.
„Með þessari ákvörðun vill
Skýrr hf. sýna í verki þann vilja
sinn að þjóna viðskiptavinum ís-
lenska menntanetsins enn betur
en gert hefur verið og ennfremur
að tryggja þann sess sem
Menntanetið hefur haft í samfé-
lagi skóla og menntunar í land-
inu,“ segir í tilkynningu frá Skýrr.
Skýrr hefur ráðið tvo af fyrrver-
andi starfsmönnum Menntanets-
ins, þá Ingvar A. Ingvarsson, fyrr-
verandi þjónustustjóra ogjón Ey-
fjörð, fyrrverandi forstöðumann.
Þeir munu verða leiðandi í mál-
efnum Islenska menntanetsins
innan Skýrr. Nú þegar hefur ver-
ið myndaður hópur kennara sem
verður til ráðgjafar við áframhald-
andi uppbyggingu netsins.
Odýra lausn-
iriiar orsök
vandans
Pólitískur þrýstingur um hraða og
ódýra sjálfvirknivæðingu símans í
sveitum landsins fyrir allmörgum
árum er orsök þeirra vandkvæða
sem til að mynda Lýsuhólsskóli á
sunnanverðu Snæfellsnesi stend-
ur frammi fyrir nú með aukinni
tölvuvæðingu og skorti á flutn-
ingsgetu símkerfisins, sem sagt
hefur verið frá í fréttum.
Olafur Stephensen, upplýs-
ingafulltrúi Landssímans, segir
stöðuna á Lýsuhóli ekki eins-
dæmi í sveitum landsins. Vanda-
málið snerti um þrjú til fjögur
prósent landsmanna. Sjálfvirkni-
væðingin hafi á sínum tíma verið
gerð á miklurn hraða undir mikl-
um pólitískum þrýstingi og ódýr-
ustu lausnirnar hafi þá verið vald-
ar, fáar línur og langar.
Ólafur Þ. Stephensen, upplýsinga-
fulltrúi Landssimans.
Hátt í miUjarð
Olafur segir hins vegar mjög dýrt
að bæta úr þcssurn vanda en
Landssíminn sé að leggja drög að
því, þar sem nú liggi fyrir þinginu
frumvarp til nýrra fjarskiptalaga
sem væntanlega verði samþykkt.
Með því yrði ISDN að alþjón-
ustu, þannig að Landssímanum
yrði gert skyll að veita þá þjón-
ustu öllum landsmönnum á sama
verði nema þar sem sérstakar að-
stæður hamli.
„Við erum að leggja drög að því
.að„uppfylla þrssa skyldu," segir
Ólafur. „Þetta er hins vegar
kostnaður upp undir milljarð, að
koma ISDN sem víðast og bæta
úr þessum línuskorti. Fyrir vikið
verður að dreifa þessu á nokkur
ár og síðan þarf að skoða fleiri at-
riði í kringum þessa fjármögnun.
Þetta er framkvæmd sem skilar
ekki miklum tekjum á móti.“
Olafur segir að reynt hafi verið að
bregðast við þar sem þörfin er
mest, óskirnar flestar en jafn-
framt þar sem úrbætur eru tækni-
lega framkvæmanlegar og ekki
jmjiig-dýritr,______i_______=J1L
j , . , r ( ■ ,f,s-