Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 1
BLAÐ
Verð ílausasölu 200 kr.
82. og 83. árgangur - 242. tölublað
Vestfírdingar
dragast aftur úr
AtvinnutekjiLr á höfuð-
horgaxsvæðinu hækk-
uðu 5% meira en á
Vestfjörðum og 3%
umfram landsbyggðar-
meðaltal árið 1998.
Atvinnutekjur 25-65 ára Vestfirð-
inga hækkuðu aðeins um 7,6% í
fyrra, 2% minna en að meðaltali á
landsbyggðinni og 5% minna en í
Reykjavík. Frá 1995 hafa atvinnu-
tekjur Vestfirðinga hækkað helm-
ingi minna en annarra lands-
manna, aðeins 14,5% (um 20.800
kr./mán.) borið saman við 30% að
meðaltali á öllu landinu og næst-
um 32% í Reykjavík (um 41.700
kr./mán.). A fyrri helmingi áratug-
arins voru atvinnutekjur hvergi
hærri en á Vestfjörðum, kringum
10% yfir landsmeðaltali. Þetta er
nú liðin tíð og tekjur Vestfirðinga
orðnar tugum þúsunda undir
landsmeðaltali.
Árið 1998 hækkuðu atvinnu-
tekjurnar að meðal-
talium 140.000 kr.á
Vestfjörðum,
176.000 kr. á Iands-
bygðinni og 226.000
kr. á höfuðborgar-
svæðinu. Samsvar-
andi hækkanir sl.
þrjú ár voru: 250
þús.kr. á Vestfjörð-
um, tæpar 500
þús.kr. á höfuðborg-
arsvæðinu og 415
þús.kr. að meðaltali
á landsbyggðinni.
Kvótatap þýörr launalækkun
„Skýringin á þessu getur ekki ver-
ið einfaldari," segir Pétur Sigurðs-
son hjá Alþýðusambandi Vest-
fjarða. „Skýringin er bara tapaður
kvóti, sem undirstrikar það sem
við höfum alltaf haldið fram að
Vestfirðirnir verða ekkert byggðir
af sæmilega tekjuháu fólki öðru-
vísi en að þar megi menn sækja sjó
og vinna fisk.“
Vestfirðingar hafi
undanfarin ár verið
að tapa fiskveiði-
heimildum til ann-
arra landshluta.
Skipaflotinn hafi því
minnkað ískyggilega,
og þar með snar-
fækkað hálaunastörf
sem sjálfsagt hafi
híft meðaltalið veru-
lega upp. 1 kjölfarið
hafi auðvitað orðið
samdráttur í allri
fiskvinnslu, þar sem
yfirvinna sé nú m.a.
horfin. Með launalækkun og
fólksfækkun í þessum grunngrein-
um sneiðist svo af öllum þjónustu-
greinunum, segir Pétur. Með
fólksfækkun á svæðinu hætti svo
Iíka íbúðarhúsabyggingar og þar
með lepji iðnaðarmenn einnig
dauðann úr skel.
Meðaltekjux 168.000 kr. á
mánuði
Atvinnutekjur 25-65 ára framtelj-
enda voru 2.020 þús.kr. (168
þús.kr./mán.) að meðaltali á land-
inu öllu; 2.060 þús.kr. á höfuð-
borgarsvæðinu, 1.975 þús.kr. á
Vestfjörðum og 1.950 þús.kr. á
landsbyggðinni. Að vanda eru tekj-
ur lægstar á Nl.-eystra, 1.880
þús.kr. En munurinn á árslaunum
þar og á Vestfjörðum hefur t.d.
minnkað úr 258.000 kr. árið 1995
niður í 99.000 krónur í fyrra. Tekj-
ur höfuðstaðarbúa, sem voru
rúmlega 160 þús.kr. lægri en Vest-
firðinga árið 1995 voru orðnar 85
þús.kr. hærri á síðasta ári.
Tekjur sjómanna hækkuðu til
jafns við aðra á síðasta ári, en 6%
rninna en landsmeðaltal síðustu
þrjú ár. Meðaltekjur sjómanna
voru 2.920 þús.kr. í fyrra, en
4.320 þús.kr. hjá þeim sem voru
yfir 274 daga á sjó. - HEI
Umdeild
vínsala
Það eru greini-
lega skiptar
skoðanir meðal
landsmanna um
hvort leyfa eigi
sölu á áfengum drykkjum á
kristnitökuhátíðinni á Þingvöll-
um næsta sumar, ef marka má
þátttöku netverja í 'spurningu
Dags á Vísi.is. Undanfarna viku
var eftirfarandi spurning á vefn-
um: „Á að leyfa áfengissölu á
Þingvöllum á Kristnihátíð?" Þeir
sem fóru inn á vefinn og greiddu
atkvæði skiptust í tvo nokkurn
veginn jafna hópa. Naumur
meirihluti, eða 51 prósent, var
fylgjandi áfengissölu, en 49 pró-
sent voru á móti.
Blaðið er nú að kanna afstöðu
vefnotenda til jólasveinsins, þvf
nýjasta Dagsspurningin á Vísi.is
er þessi: „Trúir þú á jólasvein-
inn?“ Niðurstaðan verður birt í
síðasta tölublaði Dags fyrir jólin.
Munið slóðina: www.visir.is
vasir.as
Aðeins sex dagar eru til jóla og spennan eykst í hjörtum barna sem fuHorðinna. Jólatrésskemmtanir eru viða um
helgina, líkt og í skólum landsins í gær þegar kærkomið jólafrí hófst. Nemendur í Álftamýrarskóla í Reykjavík
gengu í kringum jólatréð við undirspil jólasveinanna. Askasleikir tók upp nikkuna og spilaði og söng, spilaði og
söng... - mynd: þök
Hæpið að taka
mark á hrósi
„Greinin fór fyrir brjóstið á yfir-
völdunum og Lögreglan í Reykja-
vík bað mig um að skýra málið
nánar fyrir sér. Síðar gerðist það á
tröppunum heima hjá mér að
sendisveinn fíkniefnasalanna birt-
ist og bar mér þau skilaboð að
héldi ég mig ekki á mottunni og til
hlés yrði ég drepinn. Þessi heim-
sókn varð ásamt mörgu öðru til
þess að ég ákvað að fara til starfa á
öðrum vettvangi og þar varð Dalvík
lendingin. Nægu var ég búinn að
fórna áður,“ segir Davíð Bergmann
í viðtali í helgarblaði Dags. Hann
er nú Iluttur til Dalvíkur og leggur
þar baráttunni gegn eiturlyljum
lið.
„Það er afskaplega hæpið að
taka mark á hrósi á yngri árum,
maður hefur gott af því að manni
sé sagt til syndanna af fólki sem
vill manni vel. Þess vegna ætla ég
ekki að nefna suma menn sem
hrósuðu mér, því mér finnst það
ekkert hrós um þá eða sjálfan
mig,“ segir Elías Mar í helgar-
blaðsviðtali Dags. Mararbárur er
úrval Ijóða eftir Elías Mar, sem
Mál og menning gefur út um þessi
jól.
I blaðinu birtist yfirlit yfir fimm
bestu skáldsögurnar og fimm
bestu ævisögurnar og fræðiritin.
Kafli úr bók Þórs Whitehead,
Bretarnir koma, birtist auk annarr-
ar bókaumfjöllunar. Þá er Ijöl-
breytt úrva! af mannlífsviðtölum,
uppskriftum og greinum af ýmsu
tagi. Góða Iestrarhelgi!
fóM Venjulegirog
IgW demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 4S2 3524