Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 4

Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 4
4 - LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 I -Xfc^wr FRETTIR i iif tii r Ákvarðanir um skatta og bætur hefur á síðustu árum korgið illa út fyrir einstæða foreldra. ---------------1.. ..... Emstæðir foreldrar skattpíndir mest Tekju- og eignaskattar hækka verulega og mest hjá einstæðum foreldrum um tæp 16%, segir Þjóð- hagsstofnuu. Með ákvörðunum um skatta og bætur hafa stjórnvöld aukið muninn á ráð- stöfunartekjum landsmanna síðustu árin, öfugt við vinnumarkaðinn, sem ekki hvað síst hefur bitnað á einstæð- um foreldrum. Samkvæmt úrreikningum Þjóðhags- stofnunar úr skattframtölum lands- manna hefur dreifing atvinnutekna heldur verið að jafnast undanfarin þrjú ár. Ojöfnuður hefur á hinn bóginn aukist í dreifingu ráðstöfunartekna vegna áhrifa af ákvörðunum stjórn- valda um skatta og bætur. Skattbyrði hefur snarhækkað á Iáglaunafólki síð- astliðin tvö ár en Iækkað um mörg prósentustig á „hálaunaaðlinum". Skattmann stórtækur Framtaldar atvinnutekjur einstæðra foreldra (96.000 krónur á mánuði að meðaltali 1998) hækkuðu um 12,6% frá árinu áður. En á sama tíma hækk- uðu ráðstöfunartekjurnar aðeins 8,7%, mun minna en hjá meðalhjónum. Tekju- og eignaskattar hækkuðu lang- mest á einstæðum foreldrum, nær 16%, á sama tíma og barnabætur lækk- uðu. Skattbyrðin jókst um 4,4 pró- sentustig, þrefalt til fjórfalt meira en hjá hjónum. Arið 1997 höfðu einstæðir foreldrar 45.000 króna afgang af barnabótum og vaxtabótum eftir skatta. En 1998 snérist dæmið við og skattarnir voru hærri en bæturnar, segir í frétt frá Þjóðhagsstofnun. Þriðjimgs lækkun bamabóta Atvinnutekjur hjóna með börn voru um 317.000 krónur að meðaltali á mánuði og heildartekjur 344.000 krónur og höfðu hækkað um 13% milli ára. En skattarnir hækkuðu um 14% á sama tíma og barnabæturnar Iækkuðu um þriðjung. Skattbyrði þessa hóps hækkaði um 1,6 prósentustig. Ráðstöfunartekjurnar hækkuðu um tæp 11% milli ára; í 273.000 krónur að meðaltali í fyrra - aðeins 22.000 krón- um hærri en meðal ráðstöfunartekjur allra hjóna, að lífeyrisþegum meðtöld- Færri og færri undir skattleysismörkiun Meðal atvinnutekjur allra launþega voru 1.656 þúsund í fyrra (138.000 krónur á mánuði). Hækkunin var 11,5% (um 14 þúsund krónur) á sama tíma og almennt verðlag hækkaði um 1,7%. Kaupmáttur atvinnutekna á mann (fyrir skatt) bækkaði því um 9,6% milli ára. A sama tíma og tekjuskattsstofninn hækkaði um rúm 12% hækkuðu skatt- leysismörk bara um 2,4%. Fyrir bragð- ið hefur þeim fækkað mjög sem eru með tekjur undir skattleysimörkum; í tæp 26% úr 28% árið áður og 35% árið 1995. Greiðendum tekjuskatts að frá- dregnum vaxta- og barnabótum, fjölg- aði úr 65% í ríflega 68% milli áranna 1997 og 1998. - hei Elín Hirst. í pottinum voru innan- hússmál á fréttastofu Sjónvarps til umljöllun- ar, nú þegar kvisast hefur út aö Bogi Ágústsson fréttastjóri liorfir löngunaraug- um á stól aðstoóarframkvæmda- stjóra Sjónvarps. Rúnar Gunn- arsson stendur sem kumiugt er upp úr þeim stól um áramótin til að gerast dagskrárstjóri inn- lendrar dagskrár. Gangi þetta eft- ir töldu pottverjar að miMll slag- ur hæfist um fréttastjórastólinn. En kannski ekki svo mikill slagur þar sem Elin Hirst er sögð sækja það fast að verða fréttastjóri. Hefur hún til þess stuðning sjálfstæðismanna, bæði imian útvarpsráðs og á æðstu stöðum. Pottverjar rifj- uðu það upp að Helgi H. lónsson hefði á sínum tíma gegnt þessari stöðu í fjarveru Boga og horfði einnig löngunaraugum á fréttastjórastól- ixm. Pottverjar töldu þó óhætt að afskrifa Helga þó ekM væri nema vegna þess að hann gæti ekM orðið fréttastjóri um leið og að eiginkona hans, Helga lónsdóttir, yrði seðlabankastjóri. Það væri of stór biti fyrir Davíð að kyngja... í pottinum heyrðist af tilraunum nokkurra Akureyringa til að taka upp nýbreytni á gamlárskvöld. Gengu þeir á fund bæjarstjóra og báðu hann liðsinnis um að fá hæjarbúa til að flykkjast á Ráð- hústorgið rétt íyrir miönætti og telja niður mínútur og sekúndur til áramóta - líkt og gert er á Times Square í New York. Kristján Þór Júlíusson mun hafa teMð fálega í erindið... Ari Edwald nýr forustumaður hjá Samtökum atvinnuhfsins er eðlilega undir smásjánni þessa dagana þegar fer að reyna á hann í nýju starfi. í pottinum var hami þó ekM valinn frumlegasti samningamaðurinn í gær, en í 4-5 mismunandi viðtölum í jafnmörgum fjölmiðlum um viðræðuslitin við VMSÍ fór hann orðrétt með sömu rulluna!!!... Kristján Þór Júlíusson. Ari Edwald. FRET TA VIÐTALIÐ Rúnar Gunnarsson nýr dagskrárstjóri itinlendrar dagskrárgerðar Sjónvarpsins Rúnar hefur starfað hjá Sjónvarpinu frá upphafiþess árið 1966,fyrstsem kvik- myndatökumaðuren síðustu 11 árin hefurhann veriðað- stoðarframkvæmdastjóri Sjón- varpsins. Landslagið er gjörbreytt - Hvað réð þeirri ákvörðun þituii að sækja um staif dagskrárstjóra ? „Einfaldlega það að mig langaði til að vera nær dagskrárgerðinni á nýjan lcik. Scm að- stoðarframkvæmdastjóri var ég kominn dálítið langt frá stúdíógólfinu. Eftir ellefu ár á einum pósti fannst mér komið tilefni til að hugsa sér til hreyfings. Ég viðurkenni að ég var farinn að þreytast á pappírsfarginu og kontóristanum í sjálfum mér.“ - Hefurðu mótað með þér hugmyndir um að livað þú villt sjá breytast í dagskrárgerðinni? „I sjálfu sér er það ekki mitt að ákveða þetta heldur framkvæma þá stefnu sem íyrir liggur. Samkvæmt Iögum er það útvarpsráð sem á að leggja meginlínurnar um dagskrána. Þannig er hlutverkaskiptingin. Síðan felur útvarpsstjóri sínum framkvæmda- og dagskrárstjórum að framkvæma stefnuna. Eg vonast að sjálfsögðu til að geta haft einhver áhrif. Fyrst og fremst er það hlutverk mitt að nýta betur það fjár- magn sem til ráðstöfunar er fyrir sem fjöl- breyttasta dagskrá hverju sinni.“ - Hvernig finnst þér íslenskt sjónvarp hafa þróast á þessum rúmu 30 árum? „Þróunin hefur í rauninni verið ævintýri Iík- ust. Landslagið hefur breýst gífurlega frá því þegar Sjónvarpið var eitt í upphafi, sem betur fer. Hræringar hafa verið miklar og eru fyrir- sjáanlegar enn meiri á nýrri öld. Tæki til fram- leiðslu sjónvarpsefnis eru alltaf að vera ódýrari og ódýrari með tilkomu stafrænu tækninnar. Flöskuhálsinn er dreifingin, hún er takmörk- uð auðlind, en það mun væntanlega breytast. Af þeim sökum er enn mikilvægara en áður að hafa íslenskt sjónvarp. Erlent efni mun flæða yfir okkur. Það er verkefni íslenskra sjónvarps- stöðva í framtíðinni að verjast þessu.“ - Hvaða afstöðu hefur þú til þeirrar um- ræðu að ríkið eigi ekki að reka útvarp og sjón- varp? „Mér finnst að ríkið eigi að reka sjónvarp. Hins vegar finnst mér að reksturinn mætti að hluta til lúta lögmálum markaðarins og þannig verður þróunin án efa. Grunnframleiðsluein- ingin verður hjá Sjónvarpinu en öll aukning á dagskrárgerð á eftir að fara út á markaðinn." - Munt þú beita þérfyrir því að svo verði, aðfleiri verhefni fari útfyrir dyr Sjónvarps- ins en verið hefur? „Eg ætla ekki að vera með yfirlýsingar um það en fyrst og fremst þarf að nást sem mest dagskrá fyrir þá peninga sem eru til hverju sinni, hvernig sem það er gert. Framleiða þarf dagskrána með eins ódýrum hætti og hægt er, hvort sem gerist innan veggja Sjónvarpsins eða utan.“ - Það standa fyrir dymm breytingar á fréttatímum eftir áramótin. Þtí kemur væntanlega þar að máli? „Ekki beint varðandi fréttirnar en breyting- ar á dagskránni í heild sinni hafa verið til um- fjöllunar um nokkurn tíma. Eftir fréttatímann verður fréttatengdur þáttur og markmiðið er að fá eina heild á klukkutímann milli sjö og átta. Síðan byrjar kvölddagskráin ldukkan átta og stefnan er að þessi kjörtími til klukkan tíu verði ansi þéttur og við allra hæfi. Stuttur fréttatími verður svo ldukkan tíu og annað efni á eftir honum af ýmsu tagi. Þetta kemur í kjöl- far þeirrar ákvörðunar sl. sumar að færa aðal- fréttatímann til ldukkan sjö.“ - Hvað með frekari dagskrárbre)iingar, eins og t.d. á morgunsjónvarpi barnanna líkt og Stöð 2, sem byrjar sínar útsendingar klukkan sjö? „Ekkert er ákveðið í þeim efnurn. OII dag- skrá er stöðugt í endurskoðun og við erum alltaf tilbúin til breytinga eftir því sem áhorf- endur vilja.“ - RJB miiÓTOBÓ .nnebrsíiv-OOUS enuov b johi,/

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.