Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 - S
Ðagur
FRÉTTIR
Kalda strídinu
lauk fyrir 10 árum
Halldór vildi frekar ræða um önnur mál en kalda stríðið á Alþingi í gær.
Halldór Asgrúnsson
setti oían í við þá sem
stóðu fyrir utandag-
skrárumræðu um
fréttafhitning af kjarn
orkuvopnum á íslandi.
Hann sagði að Kalda
stríðinu hefði lokið íyr
ir 10 árum. Mörg hrýn
mál, sem snerta ífam-
tíðina, væri eðHlegra
að ræða.
„Kalda stríðinu er lokið. Því lauk
fyrir 10 árum og ég tel að það séu
önnur utanríkismál sem skipti
meira máli að taka hér fyrir á Al-
þingi en þau mál sem snúa að
kalda stríðinu. Það er verkefni
sagnfræðinga, en ekki verkefni
háttvirtra þingmanna að kry'fja til
mergjar í ræðustól á Alþingi. Það
eru önnur mál sem væri ástæða til
að tala um eins og t.d. nýafstaðin
Helsinkisráðstefna og framtíðin,
sem ég hefði haldið að væri meiri
ástæða til að beina athyglinni að,“
sagði Halldór Asgrímsson utanrík-
isráðherra í dálítið sérkennilegum
utandagskrárumræðum á Alþingi í
gær, sem formaður utanríkismála-
nefhdar Alþingis bað um.
Tómas Ingi Olrich, formaður ut-
anríkismálanefndar, hóf umræð-
una um „fréttaflutning af kjarn-
orkuvopnum á Islandi." Hann
skammaði þau Margréti Frí-
mannsdóttur og Steingrím J. Sig-
fússon fyrir að hafa trúað frétta-
flutningi vísindatímarits og er-
lendra stórblaða um að hér á landi
hefðu verið kjarnorkuvopn og haf-
ið utandagskrárumræðu um málið
í október. Síðan spurði hann utan-
ríkisráðherra hvort ekki væri tíma-
bært að ljúka endanlega umræð-
unni hér á landi um þetta mál?
Áttu fjölmiðlar að þeygja?
Halldór Asgrímsson sagði sem svar
við spurningunni vildi hann ekkert
frekar en að þessari umræðu lyki
en það væri ekki í sínu valdi að
stjóma því hvenær umræðum lyki
og hvenær ekki. Hann sagði að í
gegnum tíðina hefðum við íslend-
ingar fengið fullnægjandi upplýs-
ingar frá Bandaríkjunum um að
hér á landi hefðu ekki verið kjarna-
vopn. Umræður um málið hefðu
margoft hafist þegar birst hefðu
fréttir erlendis um að hér hefðu
verið geymd kjarnavopn. Nefndi
hann skrif Williams Arkins scm
dæmi þar um.
Margrét Frímannsdóttir spurði
hvað væri eðlilegra en að taka mál
sem þetta upp þegar í virtu vís-
indatímariti segði að hér hefðu
verið geymd kjarnavopn. Sömu-
Ieiðis hefði fréttin verið birt í
heimspressunni.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
að í þessu máli væru alls ekki öll
kurl komin til grafar og því skyldu
menn tala varlega. Hann gagn-
rýndi hins vegar að þetta sérkenni-
lega mál skyldi tekið fram yfir
fjöldann allan af utandagskrárum-
ræðumálum sem hefðu beðið lengi
eftir að komast að.
Það vakti athygli að Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
tók til máls í umræðunni en það
gera ráðherrar nánast aldrei nema
málið snerti þeirra málaflokk.
Þórunn Sveinbjamardóttir sagð-
ist furða sig á að Tómas Ingi skyl-
di tala um að ljúka þessari um-
ræðu. Hún sagði að málið ætti
alltaf að vera opið og að kryíja ætti
það til mergjar. Hún spurði Tómas
Inga hvort íslenskir fjölmiðlar
hefðu átt að þegja málið í hel þeg-
ar það birtist í erlendum blöðum
og tímaritum í október. — S.DÓR
valdið vonbrigðum.
Spáir 4%
verðbólgu
FBA gaf í gær út rit um þróun
og horfur verðbólgu hér á landi.
Bankinn spáir 4,2% hækkun
verðlags frá áramótum og til
loka ársins 2000 og að hækkun
verðlags milli ársmeðaltala ár-
anna 1999 og 2000 verði 4,9%.
Þeir FBA-menn segja að þróun
verðlags á árinu hafí valdið von-
brigðum. Helsta orsökin sé
launahækkanir sem þrýst hafa á
innlenda kostnaðarliði og aukið
eftirspurn í þjóðfélaginu.
„Aukinnar eftirspurnar hefur
helst orðið vart á húsnæðis-
markaði, en húsnæði hefur
hækkað um 14,4% frá því í jan-
úar. Viðsnúningur á viðskipta-
kjörum hefur líka áhrif, og má
segja að batnandi viðskiptakjör í
fyrra hafi leitt til vanmats á
verðbólgu og versnandi kjör til
ofmats á þessu ári,“ segir í
Morgunkorni FBA í gær.
Sýknað í rifhin-
armáliÞÞÞ
Fjölskipaður Héraðsdómur Vest-
urlands sýknaði í fyrradag Bif-
reiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar
ehf. af kröfum þrotabús Þórðar
Þórðarsonar, sem vildi að rift yrði
þeirri ráðstöfun Þórðar fyrir gjald-
þrot hans að selja íjölskyldu sinni
fyrirtækið, að mati þrotabúsins á
undirverði sem nam 26,7 milljón-
um króna.
Dómararnir töldu ósannað að
það verð sem Þórður seldi fjöl-
skyldunni fyrirtækið á væri of
lágt, miðað við rekstraraðstæður
og efnahagsástand. Með öðrum
orðum töldu dómararnir að þótt
Þórður hafi selt fyrirtækið ódýrt
hafi ekki verið sannað að það hafi
verið meira virði á þeim tíma. Fyr-
ir fyrirtækið var greitt með tveim-
ur umdeildum skuldabréfum,
samtals uppá 87 milljónir króna,
en raunvirði bréfanna var metið á
67;5 milljónir.
I júlí síðastliðinn dæmdi hér-
aðsdómur eiginkonu Þórðar, til að
greiða þrotabúinu 10 milljónir
króna, þar eð gjafaráðstöfun
Þórðar á andvirði helmings hins
selda fyrirtækis skömmu fyrir
gjaldþrot bifreiðastöðvarinnar var
talin ólögmæt. Dómararnir
komust að þeirri niðurstöðu að
Ester hlyti að hafa vitað um
ógjaldfærni eiginmanns síns
gagnvart skattyfirvöldum og að
við þær aðstæður hafi gjöf hans til
hennar á helmingi fyrirtækisins
verið ótilhlýðileg. Gjafargerningn-
um var því rift. - FÞG
Gott heildarútlit
2000-nefndin liefur
gert riMsstjórninni
grein fyrir stöðu mála
iiiii áramótin. Heildar-
myndin lítur vel út en
aUt getur þó gerst.
Nefnd fjármálaráðherra sem skip-
uð var í maí í fyrra til að kort-
leggja 2000-vandann á íslandi
skilaði í gær af sér lokastöðu-
skýrslu á þessu ári. Samkvæmt
henni bendir allt til þess að mik-
ilvægustu innviðir þjóðfélagsins
séu vel undir ártalsbreytinguna
búnir. Litlar líkur er sagðar á því
að hefðbundin starfsemi fyrir-
tækja og opinberra stofnana rask-
ist alvarlega vegna 2000-vandans.
Þó segir 2000-nefndin að reikna
verði með hnökrum á rekstri ein-
hverra tölvukerfa, þar sem ekki sé
við því að búast að allar villur hafi
fundist né öll kerfi verið prófuð.
Nefndin telur einnig hugsan-
legt að villur óskyldar 2000-vand-
anum hafi slæðst inn í kerfin við
breytingarnar. Truflanir af því
tagi verði líklega einangraðar og
því viðráðanlegar. „Hins vegar
getur vandinn orðið alvarlegur ef
svo illa vill til að margar smærri
truflanir falla saman," segir m.a. í
skýrslunni.
Vakt til 7. janúar
Þær stofnanir og fyrirtæki sem
nefndin hefur fylgst reglulega
með síðustu mánuðina hafa lokið
endurbótum á kerfum og öðrum
aðgerðum í sámr'æmi við áætlan-
ir. Víða verður vakt um áramótin
til að fylgjast með ef skakkaföll
verða og bregðast við. I samráði
við þessa aðila, Almannavarnir
ríkisins og Ríkisútvarpið mun
2000-nefndin starfrækja sérstaka
vakt frá 31. desember 1999 til 7.
janúar árið 2000.
1 skýrslu nefndarinnar kemur
fram að fátt bendi til þess að hér
á landi þurfi menn að óttast
hræðsluviðbrögð almennings, s.s.
fjárúttektum í stórum stíl eða
hamstur matvæla og eldsneytis. 1
könnunum Gallups undanfarið
hefur þeim fækkað verulega sem
búast við miklum truflunum um
áramótin. I febrúar sl. var það
hlutfall 36% en í nóvember voru
þeir svartsýnustu 8% aðspurðra.
- BJB
Fjögur kíló á sex vikuiu
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði í vikunni 42 ára gamlan íslend-
ing, sem búsettur er í Kaupmannahöfn, og hirti af honum hálft kíló af
hassi. Samkvæmt upplýsingum Kára Gunnlaugssonar, deildarstjóra fíkni-
efnadeildar syðra, hefur tollurinn þá náð fjórum kílóum af hassi á síðustu
6 vikum.
Þetta magn hefur náðst í alls fímm atvikum og lætur því nærri að með-
altalið hafí að undanfömu verið 700 grömm á viku. Kári segir að ekki sé
búið að taka saman heildarárangur ársins og segir árangurinn að undan-
förnu góðan en ekki einsdæmi. — FÞG
Milljarður í ólöglegum forritum
Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér skýrslu um lögmæti hugbúnaðar hjá
ríflega 300 opinberum fyTÍrtækjum og stofnunum. Könnun leiddi f ljós að
hlutfall lögmæts hugbúnaðar var 40% og áætlað verðmæti hans 700 millj-
ónir. Töluvert reyndist því um ólögmætan hugbúnað eða hugbúnað sem
skýringar fengust ekki á, sem Ríkisendurskoðun verðmetur á alls 1 millj-
arð. Þar af liggja 550 milljónir í hugbúnaði sem ekki var vitað hvort var
Iögmætur eða ekki, 300 milljónir í hugbúnaði sem þarf að eyða sökum
óljóss lögmætis og 150 milljónir í hugbúnaði sem ríkisstofnanir ætluðu
að kaupa leyfi fyrir. Kannaðar voru rúmlega 8 þúsund tölvur og telur Rík-
isendurskoðun að í könnunina vanti nærri 3 þúsund vélar.
Gemsar á vefniun
Kvikmyndafyrirtækin Zik Zak og
Plúton opnuðu í gær kvik-
myndavef í samstarfi við Vísi.is.
A velinum verður hægt að fylgj-
ast með gerð kvikmyndarinnar
Gemsar, sem Mikael Torfason
leikstýrir. Stafrænar kvikmynda-
vélar gera þetta mögulegt og því
verða tökur hvers dags birtar
samstundis á Netinu. Mun
þetta vera í fyrsta sinn í kvik-
myndaheiminum, að Holly-
wood meðtalinni, sem þetta er
gert. Það var kvikmyndamógull-
inn, Siguijón Sighvatsson, sem
opnaði vefínn í stigagangi Ijöl-
býlishúss í Breiðholti, þar sem
tökur stóðu yfír í gær.