Dagur - 18.12.1999, Page 6

Dagur - 18.12.1999, Page 6
6 - LAUGARDAGUR 18 . DESEMBER 19 9 9 ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjaid m. vsk.: Lausasöiuverð: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.900 KR. A MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAV(K)563-i6i5 Ámundi Ámundason (REYKJAV(K)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir Símbréf augiýsingadeiidar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavIk) Butamat - nei takk í fyrsta lagi Það vekur nokkra undrun að skipulagsstjóri ríkisins hafi yfir höfuð ljáð máls á því við undirbúning skýrslu um frummat fyrir álver í Reyðarfirði, að til að byija með yrðu einungis metin umhverfisáhrif fyrsta áfanga fyrirhugaðs álvers, eða áhrif 120 þúsund tonna bræðslu. Eins og greint var frá í Degi í vikunni höfnuðu fram- kvæmdaaðilar því, enda hugmyndin að reisa þama 480 þúsund tonna álver í fyllingu tímans. Yfirlýsingar þeirra um að áfangamat hafi verið eðlilegra, eru seinni tíma söguskýringar. Skipulagsstjóri sjálfur hefur áður mótað þá stefnu að líta beri til stórframkvæmda í heild sinni þegar verið er að meta umhverfisáhrifin, en búta þær ekki niður í byggingatæknifræðilega áfanga og umhverfismeta síð- an hvem um sig. í ððru lagi í úrskurði Skipulagsstofnunar um álver á Gmndartanga er þessi heildarsýn aðalatriði og það gert að öðm helsta skilyrði fyrir fram- kvæmd bæði fyrri og síðari áfanga, að fyrir lægi mat á áhrifum tengdra framkvæmda. Þetta ákvæði var raunar kært til ráðherra, sem felldi það úr gildi svo framkvæmdir gætu haldið áfram án fyr- irstöðu. Það segir hins vegar ekkert um gildi hins heildræna sjón- armiðs, sem er eftir sem áður hin eina skynsamlega leið. Bútamat á umhverfisáhrifum gengur einfaldlega ekki upp ef menn vilja vera heiðarlegir í því sem þeir em að gera. 1 þriðja lagi Oumdeilt er að byggja á 480 þúsund tonna álver á Reyðarfirði ekki bara 120 þúsund tonna ver - arðsemi málsins alls veltur á stækk- unarmöguleikanum. Framkvæmdin gmndvallast á því að ávinning- urinn sé meiri en fómarkostnaðurinn. Hugsanlegur viðbótarfóm- arkostnaður, sem upp kann að koma í umhverfismati síðari áfanga, yrði því að vera gríðarlegur til að ásættanlegt væri að stofna arð- semi stækkunar í tvísýnu. Hagsmunirnir yrðu svo miklir eftir að búið væri að fóma Eyjabökkum, byggja virkjunina og fyrsta áfanga álversins. Sömu upplýsingar hafa hins vegar allt aðra stöðu áður en lagt er út í framkvæmdir. Þess vegna er það afar vond afstaða ef kæra á úrskurð sldpulagsstjóra til ráðherra í því augnamiði að knýja fram bútamat á umhverfisáhrifum. Birgir Gitðmundsson. Botasjóður bófanna Ríkissjóður, þessi „bótasjóður bófanna1', hefur verið dæmdur til að greiða Franklín Steiner 40 þúsund krónur í skaðabætur fyr- ir ólöglega handtöku. Hæstirétt- ur felldi þennan dóm og hefur þar með enn einu sinni umbvlt dómi undirréttar, en þar töldu menn að Franklín ætti ekki krónu skilið og ætti eiginlega að skammast sín fyrir að hafa vald- ið þjóðinni ómældu tjóni með fíkniefnasölu sinni. En hæstiréttur telur sem sé að allir eigi að vera jafnir fyrir lög- unum, líka glæpamenn, fyrrver- andi og núverandi og er á vissan hátt ánægjuleg niður- staða. Og vonandi held- ur hæstiréttur sig við þetta heygarðshorn í dómum sínum, að það skipti sem sé ekki máli hvort sakborningar eru prófessorar við háskól- ann eða múrarar í Breið- holti, hvort þeir heita Franklín Steiner eða Jón Steinar, svo dæmi séu tekin af handahófi. Bætur fyrir Briggs líka Hinsvegar virðist þessi dómur í fljóti bragði hafa ákveðið for- dæmisgildi fyrir annan meintan fíkniefnasala, Kio nokkurn Briggs. Kio hefur sem sé farið fram á 27 milljónir í skaðabætur fyrir að hafa setið saklaus inni mánuðum saman fyrir meint fíkniefnamisferli. Hann var dæmdur í undirrétti, en sýknað- ur í hæstarétti. Og þar með hlýt- ur hann að eiga rétt á skaðabót- um, þar sem hann er saklaus maður að dómi hæstaréttar og skiptir engu þó nú séu komnar fram upplýsingar sem benda sterldega til að maðurinn hafi í raun verið sekur. Því eins og all- ir vita þá skipta nýjar upplýsing- ar aldrei máli í íslensku dóms- kerfi. Þannig voru sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmál- um dæmdir sekir á sínum tíma Franklín Steiner. og eru það enn í augum hæsta- réttar, þrátt fyrir margvíslegar upplýsingar sem fram hafa kom- ið síðan sem benda til þess að „dómsmorð" (orðalag forsætis- ráðherra) hafi átt sér stað. Með þetta í huga, þá er úti- lokað annað en hæstiréttur dæmi Kio Briggs bætur, a.m.k. ef rétturinn vill vera sjálfum sér samkvæmur. AlsaMaus Garri Og talandi um ólögmætar hand- tökur og mistök í réttarkerfinu, þá vill Garri upplýsa það hér og nú að hann varð fyrir ólögmætri handtöku á Akranesi fyr- ir 25 árum. Þar var hann gripinn af lögreglunni, blásaklaus og allt að því bláedrú, vegna gruns um að hann hefði verið að brjóta rúður í miðbæ Akraness. Garra var fleygt inn í fanga- geymslu og látinn dúsa þar í þrjá klukkutíma, ásamt og með sauð- drukknum og hrútleiðinlegum Húnvetningi. Þetta var skelfileg Iífsreynsla sem fordjarfað hefur sálarlíf Garra upp frá því og valdið honum óbætanlegu and- legu tjóni. Á endanum kom svo löggan hálf skömmustuleg, hleypti Garra út og sagði: „Þú varst víst vitlaus maður.“ Aungvar bætur hefur Garri fengið fyrir þessa ólögmætu handtöku og skemmdir á sálu sinni. En fyrst þeir borguðu Franklín og munu borga Briggs, þá er Garri ákveð- inn í því að fara í mál við ríkið. Og hann mun að sjálfsögðu vinna þetta mál. Skaðabótakrafa Garra, með vöxtum og verðbótum, nemur tuttugu milljónum. Og nú er bara spurningin hvort Jón Stein- er er á lausu og vill taka að sér málið. — GARRI ELIAS SNÆLAND JONSSON SKRIFAR Þegar frakkur viðmælandi sagði við rithöfundinn Joseph Heller að hann hefði aldrei skrifað jafn góða skáldsögu og þá fyrstu - „Catch 22“ - svaraði hann að bragði: „Hefur einhver gert það?“ Þessi snöggu og skemmti- legu viðbrögð komu ósjálfrátt í hugann nú þegar fréttir berast af því að Heller sé allur. Þessi fyrsta skáldsaga hans er fyrir löngu orðin sígild, og nafn hennar hefur fest sig í ensku máli sem tákn um vanda sem er óleysanlegur. En það var ekki alltaf svo. Ekki skáldsaga! Þegar „Catch-22“ kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1961 hlaut hún afar misjafna dóma gagn- rýnanda. Þótt sumir áttuðu sig strax á því hvílíkt stórvikri væri hér á ferðinni, fór það svo að gagnrýnendur áhrifamestu fjöl- miðlanna voru almennt nei- Sígild saga unt stríð kvæðir. Sá sem skrifaði fyrir stór- blaðið New York Times hrósaði að vísu einstökum köflum í verk- inu en kvað upp þann lokadóm að „Catch-22“ væri ekki skáldsaga! Þetta má vafalít- ið einkum skýra með því að þessi fyrsta skáldsaga Hellers var allt öðru vísu en hefð- bundnar banda- rískar sögur úr síð- ari heimsstyrjöld- inni. Höfundar á borð við Norman Mailer (The Naked and the Dead) og James Jones (From Here to Eternety ) héldu sig sem mest við raunsannar lýsingar á stríðinu. Svo kom Heller og skrifaði um heimsstyrjöldina sem farsakenndan hrylling og eins konar fjöldageðveiki. Bókin seldist því til að byija með fyrst og fremst af góðu orð- spori; þeir sem höfðu lesið hana mæltu með henni við vini og kunn- ingja. Það var einkum unga fólk- ið sem kveikti á perunni, og þegar bandarískir her- menn voru sendir unnvörpum til að berjast í kolrugl- uðu stríði í Ví- etnam fann unga kynslóðin að „Catch-22“ átti í raun við um allar Biðin langa Joseph Heller settist að sjálfs- sögðu ekkj í helgan stein þótt hann yrði frægur og rikur á sjö- unda áratugnum. En þegar al- mennt var farið að líta á „Catch- 22“ sem sígilda skáldsögu reynd- ist honum erfitt að keppa við sjálfan sig. Þau verk sem á eftir fylgdu voru alltaf borin saman við frumraunina og máttu sig loft lítils í þeim samanburði. Fljótlega var mjög þrýst á Hell- er að skrifa framhald „Catch-22“ og hann fór snemma að huga að því verki. En lengi vel gekk það ekki upp - árin og áratugirnir liðu án þess að framhaldssagan um Youssarian og Minderbinder og aðrar söguhetjur fyrstu skáld- sögunnar kæmi á markað. Það gerðist ekki fyrr en árið 1994, þegar Heller var komínn nokkuð yfir sjötugt. Eins og vænta mátti þótti „Closing Time“ ekki jafnast á við fyrri söguna. Joseph Heller var 76 ára þegar hann lést á heimili sínu í New York úr hjartaslagi. Joseph Heller. styrjaldir. .Djtgwr Hvemig finnast þér nýju jóhisveimibúning amirhafa heppnast? EinarÞórBárðarson framkvæmdastjórí Hard Rock Café. „Hinn klassíski Kóka Kóla jóla- sveinn í rauð- um búningi með hvítt skegg er sá sveinn sem ég kann alltaf best við. Lopapeysur og ullarsokkar eru sannarlega þjóð- leg klæði, en í huga mínum og sjálfsagt margra annarra nútíma- barna er útilokað að tengja slíkt neitt við jólaklæði. Niðurstaðan er því sú að mér finnast þessi jólasveinabúningar alveg út úr kortinu.“ Katrín Björg Ríiiarðsdóttir safnkenmrí við Minjasafiiið á Aktir- eyrí. „Það sem ég hef séð til þess- ara búninga finnast mér þeir koma mjög vel út. Eg vænti þess að þeir muni festast í sessi hér á landi og muni að einhverju leyti taka yfir þessa rauðu jólasveinabún- inga sem þekktir eru og gjarnan kenndir við Kóka Kóla. Menn- ingarbylting f jólasveinabúning- um kann að reynast erfið, en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.“ Skúli Lórenzson rafvirki ogjólasveinn á Akureyrí til fjölda ára. „Það verður að viðurkennast að mér þykja þeir Ijótir. Eg lít á jólasveininn þannig að hann sé barnakarl, en ekki ófreskja einsog hann er gerður með þessum búningum. Jólasveinarnir eru auðvitað hrekkjóttir, en það er ekki þar með sagt að þeir þurfj að vera leiðinlegir og vondir einsog gefið er í skyn með jólasveinum í þess- um klæðum. Eg ætla að halda mig við þennan rauða og hvíta búning, sem ég hef raunar gert síðustu 38 árin. Sá búningur sem ég klæðist fyrir þessi jól er spánnýr og ég vonast til að hann dugi mér út ævina, en búningur- inn sem ég átti fyrir dugði mér í tæp tuttugu ár.“ . Hállgrímur Sveinsson bókaútgefandi á Hrafnseyri. „Það er jákvætt að íslenski jóla- sveinninn klæðist íslensk- um fötum. Það sem ég hef séð til þessa bún- ings þá þykir mér hann einn- ig vera fallegur. Hinsvegar er þjóðin alin upp við og þekkir máske mest þennan ameríska Kóka Kóla jólasvein, sem ég hef aldrei verið sérstaklega hrifinn af - enda er sá jólasveinn mest fyrir kaupmennsku og glamúr.“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.