Dagur - 18.12.1999, Page 11
LAUGARDAGUR 18. DESEMBF.R 1999 - 11
FramJiald eftir tvær vikiir
BANDARÍKIN -
Ehud Barak for-
sætisráðherra lsra-
els og Farouk al-
Sharaa, utanríkis-
ráðherra Sýrlands,
samþykktu á fundi
sínum í Was-
hington að hittast
aftur þann 3. janú-
ar næstkomandi.
Hvorki þeir né Bill
Clinton Banda-
ríkjaforseti létu
neitt nákvæmt
uppi um inntak Clinton Bandaríkjaforseti ásamt Barak og
viðræðnanna í al-Sharaa.
Washington, en -----------------------------------
Clinton sagði að
mikilvæg skref hefðu verið stigin í átt að friðarsamningi.
I
Rússar velja sér
nýtt þing á morgiui
Þrír flokkar berjast
um hituna í þingkosn-
iiiguuum í Rússlandi
á morgun.
Á sunnudaginn verða þingkosn-
ingar í Rússlandi. Búast má við
verulegum breytingum á
pólistísku landslagi þar í kjölfar
kosninganna. Engri kúvendingu
þó.
Kommúnistar hafa undanfarið
notið mests fylgis samkvæmt
mælingu í skoðanakönnunum,
með 17-24%. í öðru sæti
er Eining (Jedvinsto),
flokkabandalag sem styð-
ur ríkisstjórnina og Boris
Jeltsín forseta, sem mælst
hefur með 16-21% í skoð-
anakönnunum. Þriðji
flokkurinn nefnist Föður-
land - Allt Rússland
(OVR), sem er miðju-
bandalag með Jevgení
Prímakov fyrrverandi for-
sætisráðherra og Júrí
Lúskov borgarstjóra
Moskvu í fararbroddi.
OVR hefur verið með 9-
12% í síðustu skoðana-
könnunum.
Minni öfgar
Þótt Kommúnistaflokkurinn
verði að öllum líkindum stærsti
flokkurinn á Dúmunni, eins og
neðri deild rússneska þingsins
heitir, má hann þó tvímælalaust
muna fífil sinn fegri. Fylgi hans
hefur dalað jafnt og þétt, þótt
það hafi náð sér eitthvað á strik
aftur upp á síðkastið. Leiðtogi
flokksins, Jevgení .Sjúganov, virð-
ist höfða lítt til kjósenda og
flokkurinn virðist ekki hafa hljó-
mað sannfærandi í málflutningi
sínum.
Sömu sögu er að segja af þjóð-
ernissinnum, sem áður voru auk
Kommúnista önnur helsta ógn-
unin við stöðu Jeltsíns og stjórn-
arinnar á þinginu. Þjóðernis-
bandalag hins skrautlega æsinga-
manns, Vladimirs Zhirinovskís,
má tvímælalaust muna sinn fífil
fegri, jafnvel þótt bandalagið
gæti rétt svo sloppið inn á þing -
mælist einhvers staðar nálægt
5% marldnu.
Jeltsín og ríkisstjórn hafa í
kosningabaráttunni því getað lit-
ið á OVR sem helsta óvin sinn,
jafnvel þótt Kommúnistar hafi
verið með meira fylgi. Jeltsín hef-
ur lítinn áhuga á að sjá Lúskov
eða Prímakov á forsetastólnum
síðar á næsta ári, en forsetakosn-
ingar verða haldnar í Rússlandi
næsta sumar og meðal þeirra
sem þar þykja koma sterklega til
greina eru einmitt þeir Lúskov
og Prímakov.
Stríðið í Téténíu hefur annars
sett meiri svip á kosningabarátt-
una en nokkurt annað mál, og
hefur tvímælalaust átt sinn þátt í
gengi stjórnarbandalagsins Ein-
ingar. Svo virðist líka sem stjórn-
inni hafi orðið nokkuð ágengt í
baráttu sinni gegn OVR, því íylgi
þess hefur dvínað heldur í skoð-
anakönnunum upp á sfðkastið.
Forsetiim og stjórnin áfram í
minnihluta
En þótt mestu öfgarnar til hægri
og vinstri hafi dvínað í pólitíska
litrófinu og miðjan virðist ætla
að fá aukið vægi, er líklegasta út-
koman úr kosningunum engu að
síður sú að Jeltsín og ríkisstjórn-
in njóti áfram stuðnings minni-
hluta þingsins.
Sjálfur Jeltsín hefur þó ekki
gegnt jafn veigamiklu hlutverki í
þessari kosningabaráttu og áður,
enda er hann á förum úr emb-
ætti um mitt næsta ár og hefur
átt við veikindi að stríða.
Frjálslyndum flokkum sem að-
hyllast vestræn gildi og stjórnar-
hætti hefur ekki heldur vegnað
sérlega vel í kosningabaráttunni.
Jabloko, flokkur frjálslyndra,
gæti komist yfir 5% múrinn, sem
er skilyrði til þess að koma
manni á þing, en flokkurinn hef-
ur mælst með 5-8% í skoðana-
könnunum undanfarið. Sömu-
leiðis gæti Bandalag hægri afla
náð þingsætum, en sá flokkur er
hlynntur vestrænum stjórnar-
háttum og efnahagskerfi.
Sjálfri kosningabaráttunni
Iauk formlega í gær, föstudag.
Frambjóðendum er bannað að
koma fram opinberlega í dag,
daginn fyrir kosningar. Alls eru
þingsætin 450 og er bæði kosið
um lista á landsvísu og
frambjóðendur í einmenn-
ingskjördæmum. Ekki hef-
ur mátt birta neinar skoð-
anakannanir frá því á
fimmtudag, þannig að ein-
hver breyting gæti hæglega
hafa orðið á fylgi flokka
þegar talið er upp úr köss-
unum.
Stalinistar í framboði
Einn af fjölmörgum smá-
flokkum og jaðarflokkum
sem tekið hafa þátt í kosn-
ingabaráttunni er Stalín-
blokkin, flokkur stalínista
sem hefur hengt upp kosn-
ingaplaköt nokkuð víða þar
sem einræðisherrann gamli
starir stíft á vegfarendur.
Litlar líkur þykja á því að
stalínistarnir nái manni á þing,
hafa mælst með innan við eitt
prósent í skoðanakönnunum,
jafnvel þótt einn frambjóðenda
flokksins sé afkomandi Stalíns
sjálfs.
AIIs eru 27 flokkar í framboði,
og má meðal þeirra nefna Flokk
lífeyrisþega og Konur Rússlands,
en báðir þessir flokkar berjast
fyrir sterkara velferðarkerfi.
Það er svo talandi tákn um þær
breytingar sem orðið hafa á
flokkakerfinu í Rússlandi að
flokkur Viktors Térnómyrdíns
fyrrverandi forsætisráðherra,
Heimkynni vor eru Rússland, er
langt innan við 5% mörkin, en
þessi flokkur var næst stærsti
flokkurinn árið 1995 og einn af
þeim þremur flokkum sem
mynduðu „Valdaflokkinn" svo-
nefnda í kringum Jeltsín.
Forseti Þýskalands biðst
fyrirgefningar
ÞYSKALAND - Johannes Rau, forseti Þýskalands, baðst í gær fyrir-
gefningar fyrir hönd þýsku þjóðarinnar vegna nauðungar- og þræla-
vinnu Gyðinga hjá þýskum fyrirtækjum í skjóli nasistastjórnarinnar
fyrir meira en hálfri öld. Afsökunarbeiðnin kann að þykja síðbúin, en
Rau sagðist finna til léttis vegna þess að nú væri loks búið að semja
um skaðabætur til handa þeim, sem þýsk fyrirtæki höfðu í þræla- og
nauðungarvinnu hjá sér. Samkomulagið var kynnt í gær, og standa að
því stjórnvöld í Þýskalandi og Bandaríkjunum ásamt fulltrúum fórn-
arlamba nasismans. Þýska stjórnin hefur heitið því að greiða helm-
ing skaðabótanna, en hinn helmingurinn kemur frá fyrirtækjunum,
sem mörg hver eru enn starfandi og í góðu gengi. Upphæðin nemur
10 milljörðum þýskra marka, jafnvirði um 375 milljarða íslenskra
króna.
Gamla stjómin áfram?
AUSTURRIKI - Hátt á þriðja mánuð er nú liðið frá því þingkosning-
ar voru haldnar í Austurríki og hefur illa gengið að koma saman nýrri
stjórn. Hægriflokkur Jörgs Haiders vann mikinn kosningasigur, og
hefur lagt mikla áherslu á að vera í nýju stjórninni, en aðrir flokkar
hafa verið tregir til að ganga til stjórnarsamstarfs með Haider, sem
þykir vera einum of mildll þjóðernissinni fyrir smekk hófsamari lýð-
ræðissinna. Nú ætla stóru flokkarnir tveir, Sósíaldemókratar og hinn
íhaldssami Þjóðarflokkur, að kanna hvort þeir geti ekki þrátt fyrir allt
haldið áfram stjórnarsamstarfi sínu, sem varað hefur í 13 ár. Þjóðar-
flokkurinn var ákveðinn í að halda sig í stjórnarandstöðu þetta kjör-
tímabil, en virðist ekki ætla að komast upp með það.
Islamskur gmunskóli í Noregi
NOREGUR - Ákveoið hefur verið að stofnaður verði íslamskur
grunnskóli í Osló, og er þetta sá fyrsti sinnar tegundar þar í landi.
Norska utanríkisráðuneytið hefur fallist á að styrkja skólann, sem
verður einkarekinn. Gert er ráð fyrir allt að 350 nemendum fyrsta
árið, en skólinn verður ætlaður börnum í fyrsta til tíunda bekk.
Sameiuuðu þjóðimar ekki saklausar
SAMEINUÐU ÞJOÐIRNAR -
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, viðurkenndi
á fimmtudaginn að Sameinuðu
þjóðirnar hafi brugðist illilega þeg-
ar þjóðarmorðið niikla vár framíð í
Rúanda árið 1994, en í nýút-
kominni skýrslu er viðbrögðum
Sameinuðu þjóðanna lýst ná-
kvæmlega. Sagðist Kofi Annan
finna til mikillar sorgar vegna þess
að ekki var meira gert af hálfu S.Þ.
til þess að koma í veg fyrir morð-
æðið, sem stóð í 100 daga. Skýrsl-
an er verk nefndar, sem Kofi Ann-
an lét skipa í mars síðastliðnum,
til þess að fara ofan í saumana á
því sem gerðist. Megin niðurstaða
skýrslunnar er að S.Þ. hafi hvorki haft pólitískan vilja né getu til þess
að koma í veg fyrir þjóðarmorðið né heldur til þess að stöðva það eft-
ir að það var hafið. Hátt í 800.000 manns létust í Rúanda árið 1994,
flest tútsar og hófsamir hútúar.
Kofi Annan baðst afsökunar.
Tíu mairns fórust
PAKISTAN - Tíu manns hið minnsta fórust þegar sprengja sprakk í
pakistanska hluta Kasmír-héraðs, sem skiptist milli Indlands og
Paldstans. Sprengjan sprakk á Ijölfarinni götu um miðjan dag, og
meðal þeirra sem fórust voru nokkur börn. Einungis fáir dagar eru
frá því annað sprengjutilræði varð í Kasmír og telja Pakistanar að
lndvcrjar beri ábyrgð á þessu.