Dagur - 18.12.1999, Side 12

Dagur - 18.12.1999, Side 12
12 - LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 ÍÞRÓTTIR l KNATTSPYRNA Wilcox til Leeds Leeds United gekk í gær frá kaupum á enska landsliðsmanninum Jason Wilcox frá fyrstu deildar liðinu Blackbum Rovers og er kaupverðið litlar 3 milljónir punda. Kaupin á Wilcox koma til vegna mikilla meiðsla hjá Leedsliðinu, þar sem þeir David Hopkin, David Batty og Alan Smith sem allir verða frá keppni til áramóta vegna meiðsla. Einnig hefur Lee Bowyer verið meiddur þó hann hafi verið látinn spila að undaförnu og er fyrirsjáan- legt að hann þurfi að taka sér ein- hveija hvíld. Einnig er fyrirsjáanlegt að Michael Bridges, gæti þurft að taka út leikbann á næstunni, en hann þarf aðeins eina bókun í viðbót til að lenda í banni. Wilcox sem er 28 ára gamall, gerði fjögurra og hálfs árs samning við Leeds. Hann var einn af lykilmönnum Blackburn sem vann enska meistaratitilinn árið 1995 og er vanur að leika á kantinum þó hann geti líka brugðið sér á miðjuna. Að sögn Peters Risdale, stjómarformanns Leeds, hafa Leedsarar lengi haft augastað á Wilcox. „Við munum áfram hafa vakandi auga með leik- mannamarkaðnum og munum ekki hika við að opna pyngjuna ef með þarf,“ sagði Risdale. Belgi til Derby Enska úrvalsdeildarliðið, Derby, keypti í gær belgíska framheijann Bran- ko Strupar frá belgíska Islendingaliðinu Genk í Belgíu. Kaupverðið var 3 milljónir punda og skrifaði Stmpar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Strupar, sem er fæddur í Króatíu en hefur belgískan ríkisborgararétt, mun fljótlega byrja að leika með Derby og spurning hvort takist að ganga frá málum fyrir leikinn við Leicester í dag. Lið Derby hefur átt mjög erfitt uppdráttar í ensku úrvalsdeildinni í vetur og er aðeins með 12 stig í 18. sætinu, eftir 17 Ieiki. Jim Smith, framkvæmdastjóra liggur því mik- ið á að styrkja lið sitt og gerir allt til að Ilýta fyrir því að Belgíumaðurinn fái leikheimild sem fyrst. Vialli fékk eins lciks bann Gianluca Vialli, framkvæmdastjóri Chelsea, hefur verið dæmdur í eins leiks bann í Meistaradeild Evrópu vegna uppákomunnar í leiknum gegn Lazio í Róm í síðustu umferð Meistaradeildarinnar, þegar hann lenti í þrasi við eftirlitsdómara leiks- ins. „Eg varð fyrir vonbrigðum með þennan dóm, en verð að sætta mig við hann,“ sagði Vialli, sem bar sig vel og sagði í gríni að eflaust væru Ieikmennimír kátir yfir því að þurfá nú ekki að hlusta á öskrin í honum frá hliðarlínunni. Redknapp frá út tímabilið? Nú lítur út fyrir að Jamie Redknapp, fyrirliði Liverpool, sé úr leik út tíma- bilið eftir að Ijóst var að skurðaðgerð sem hann fór í á hné fyrir stuttu hefur ekki heppnast sem skyldi. Læknar voru í upphafi mjög bjartsýnir fyrir hans hönd eftir aðgerðina sem var framkvæmd fyrir sautján dögum og var honum þá lofað að hann yrði klár í slaginn eftir þijár vikur. Læknar liðsins úrskurðuðu svo nýlega að hinn 26 ára gamali Red- knapp gæti ekki leikið knattspyrnu fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjá mánuði, sem þýddi að hann yrði ekki tilbúinn £ slaginn fyrr en einhvern tíma í mars. Eftir læknisskoðun í gær var svo tilkynnt að ólíklegt væri að hann yrði meira með á leiktímabilinu. Þetta setur heldur betur strik í reikn- inginn hjá Gerard Houllier, framkvæmdastjóra, sem nú verður að leggja allt sitt traust á unglinginn Steven Gerrard, til að leika við hliðina á Didi Hamann á miðjunni. Sumir segja þó að líklega muni Houllier neyðast til að opna pyngjuna að þessu sinni og þegar hefur nafn Norðmannsins Erik Mykland verið nefnt í því samabndi. Mykland sem leikur með gríska liðinu Panathinaikos er laus samninga í sumar og því líklegt að hann fá- ist fyrir gott verð áður en samningurinn rennur út. Houllier mun einnig hafa fylgst vel með þeim Enzo Maresca hjá West Bromvich Albion og Claus Jensen hjá Bolton, sem líklega yrðu of dýrir fyrir félagið. Edwarás varar United-stj örmirnar við Martin Edwards, aðalframkvæmdastjóri Manchester United, hefur var- að stórstjörnurnar á Old Trafford við því að reyna að stilla félaginu upp við vegg þegar kemur að endurnýjun samninga. I kjölfar samningsins sem gerður var við Roy Keane, sem tryggir fyrirliðanum 50 þúsund pund í vikulaun, hefur Edwards sent þeim Ryan Giggs og David Beckham, skilaboð um að félagið muni enn sem áður halda sig við áður ákveðið launaþak. ,,Ef leikmenn eða umboðsmenn þeirra halda að við séum til viðræðu um það að opna flóðagáttirnar fyrir einhveija aðra en Keane, þá er það mesti misskilningur," sagði Edwards. „Við munum skoða hvert mál fýrir sig og meta það út frá hagsmunum félagsins. Það getur því vel verið að einhverjir verði óánægðir með það sem við höfum að bjóða, en víð þurfum fyrst og fremst að hugsa um afkomu felagsins. Við munum undir engum kringumstæðum hleypa félaginu í stórskuldir. Það er á hreinu,“ bætti Edwards við og heldur fast um budduna. ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM Laugard. 18. des. Handbolti Kl. 10:45 Þýski handboltinn Kiel - Nordhorn Fótbolti Kl. 14:25 Þýski fótboltinn 1860 Munchen - Kaiserslautern Fimleikar Kl. 16:30 Jólasýning FSÍ Bein útsending frá Laugardals- höll. Fótbolti Kl. 12:00 Alltaf í boltanum Kl. 14:45 Enski boltinn West Ham - Man. United Körfubolti Kl. 12:30 NBA-tilþrif Snóker Kl. 16:00 Snóker með Davis Bretinn Steve Davis, sexfaldur heimsmeistari í snóker, sýnir ýmsar undraverðar brellur. Hnefaleikar Kl. 01:00 Hnefaleikar Bein útsending frá keppni í Bandaríkjunum þar sem m.a. mætast þungavigtarkapparnir Oliver McCalI og Ray Mercer. ■Simmid. 19. des. WBmmw— Fótbolti Kl. 16:00 Markaregn Endursýnt ld. 23.40 Iþróttir Kl. 21:45 Helgarsportið Körfubolti Kl. 12:20 NBA-leikur vikunnar Fótbolti Kl. 15:45 Enski bikarinn Chelsea - Leeds Kl. 19:25 ítalski boltinn Fiorentina - Juventus Golf Kl. 17:55 Golfþrautir Kl. 18:50 19. holan Kl. 21:15 Heimsbikarkeppnin Frá heimsbikarmótinu sem haldið var í Malasíu í nóv. s.l. Kl. 00:00 19. holan Oðruvísi golfþáttur. ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 18. des ■handbolti 2. deild karla KI. 16:00 Fjölnir - ÍH Kl. 14:00 Fram b - Breiðablik Kl. 13:30 Þór Ak. - Selfoss ■ körfubolti 1. deild karla KI. 16:00 Breiðablik - ÍR ■ blak 1. deild kvenna Kl. 14:00 Víkingur - KA ■ fimleikar lólasýning FSI Kl. 16:30 Fimleikasýning í Laugardalshöll. Fimleikafólk frá félögum á höfuðborgarsvæðinu tekur þátt í sýningunni. Ahalda- fimleikar, trompfimleikar, þolfimi og fimlcikadansar. Simnud. 19.des. ■ körfubolti Urvalsdeild karla KI. 20:00 Keflavík - KFÍ Kl. 16:00 UMFN -Tindastóll Sími 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio Laugard. kl. 21 & 23 Laugard. kl. 21 Sunnud. kl. 21 & 23 Sunnud. kl. 21 Mánud. kl. 21 & 23 Mánud. kl. 21 * Laugard. kl. 23 Sf ” Sunnud. kl. 23 Sunnud. kl. 15 0KEYPIS > Mánud. kl. 23 PRINSESSAN 0G DURTARNIR - Sunnud. kl. 15 - ÓKEYPIS OQt.BY D I G I T A L RÁÐHÚSTORGI . ... <-.yy SÍMI 461 4666 TPTX Laugard. kl. 16.30,18.40, 21 og 23.30. Sunnud. kl. 16.30,18.40,21 og 23.30. Mánud. kl. 16.30,18.40, 21 og 23.30. Laugard. kl. 16.40 og 21. Sunnud. kl. 16.40 og 21. Mánud. kl. 16.40 og 21. Laugard. kl. 23.15. Sunnud. kl. 23.15. Mánud. kl.23.15. Laugard. m/ísl. tali kl. 15 og 16.50. Sunnud. m/ísl. tali kl. 15 og 16.50. Mánud. m/ísl. tali ki. 16.50.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.