Dagur - 18.12.1999, Page 1
Laugardagur 18. desember - 48. tölublað
■ ■ - .
m
Kirkjuvogskirkja.
Kirkj uvog skirkj a
í Höfnimi
FREYJA
JÓNSDÓTTIR
skrifar
Hafnir eru á vestanverðu Reykja-
nesi, sunnan Miðness. I bókinni
„Landið þitt ísland“, eftir Þor-
stein Jósepsson og Steindór
Steindórsson segir að Hafnir
skiptist í þrjú hverfi, Kirkjuvogs-
hverfi, Merkineshverfi og Kalm-
anstjarnarhverfi. Einnig segir í
sömu bók að stórhýli sveitarinnar
hafi verið þrjú, Kirkjuvogur, Kot-
vogur og Kalmanstjörn. Sand-
höfn og Kirkjuhöfn voru einnig
stórbýli á árum áður og mun
nafnið Hafnir vera dregið af
þeim.
Vitað er að kirkja var í Kirkju-
höfn um 1 350 en talið er að hún
hafi lagst af nokkru síðar. Þá er
getið um hálfkirkju að Gláma-
tjörn. Síðar var sóknarkirkja
Hafnanna að Vogi. Þegar Svarti
dauði geisaði 1402 var kirkja í
Vogi. Heimildir herma að kirkjan
hafi verið flutt að Kirkjuvogi
laust lyrir 1575 en frá því ári eru
heimildir um að Gísli hiskup hafi
vísiterað þar. Þegar kirkjan var
fiutt frá Vogi að Kirkjuvogi voru
l)ein flutt frá Kirkjuhöfn í Kirkju-
vogsgarð.
Þegar Brynjólfur biskup í Skál-
holti vísiteraði í Höfnum árið
1642 segir hann að kirkjan í
Kirkjuvogi sé að mestu ný, með
sex stafgólfum og kapellu inn af.
Þá áttu sókn að kirkjunni nokkur
stórbýli sem mest hlunnindin
höfðu eins og Vogar, Ytri-Njarð-
vík, Innri-Njarðvík, Narfakot,
Merkines, Gálmatjörn, Sand-
höfn og Kirkjuhöfn. Þá er þess
getið að kirkjan hafi fengið stórar
gjafir frá Hákoni Brandssyni,
sem gaf kirkjunni laesta kistu, og
Erlendi Hjaltasyni sem gaf kaleik
og messuklæði.
Brandur Guðmundsson hrepp-
stjóri, sem þá bjó í Kirkjuvogi,
ritaði sóknarlýsingu Kirkjuvogs-
sóknar árið 1840 eftir beiðni séra
Sigurðar Sívertsen á Utskálum.
Brandur var fæddur á Rangár-
völlum 1771. Faðir hans var
Guðmundur Brandsson, bóndi á
Brekku á Rangárvölum, sonar-
sonur Bjarna Halldórssonar á
Víkingalæk. Guðmundur flutti
suður að Kirkjuvogi og drukknaði
á góu árið 1801. Brandur sonur
hans þótti siðavandur, smiður
góður og smíðaði fjölda skipa,
bæði stór og smá. Hann andaðist
í Kirkjuvogi, 74 ára gamall. Gróa
Hafliðadóttir hct kona hans, orð-
lögð fyrir heppni í starfi en hún
var ljósmóðir. Gróa lést árið
1855.
Hákon Vilhjálmsson fæddist í
Kotvogi árið 1753, sonur Vil-
hjálms Hákonarsonar og Ingiríð-
ar Tómasdóttur sem ólst upp í
Miðbænum i Kirkjuvogi. Hann
var hreppstjóri og hafnsögumað-
ur á Básendum. Hann byggði
nýja kirkju í Kirkjuvogi árið 1805
fyrir 239 ríkisdali. I ofsavcðrinu
mikla 1799 þegar Bátsendakaup-
stað tók af, skemmdist kirkjan í
Kotvogi mikið sem Iíklega hefur
orðið til þess að ný kirkja var
reist. Hákon gaf nýja söngtöflu f
kirkjuna og var Ijárhaldsmaður
hennar alla sína tíð. Hákon Vil-
hjálmsson lést 1820. Ketill Jóns-
son (elsti Ketill í Kotvogi) og
Guðni Ólafsson í Merkinesi gáfu
kirkjunni nýja prestshempu og
hökul af rauðu flaueli með gulln-
um krossi og knipplingum um-
hverfis. Ketill Jónsson sem tók
við kirkjunni eftir að Hákon lést,
lét endurbæta kirkjuna árin
1844, 1848 og 1851. Hann lét
einnig steypa silfurkaleik og gaf
kirkjunni til minningar um konu
sína, Önnu Jónsdóttur. Arið
1859 afsalar Ketill Jónsson sér
kirkjunni til Vilhjálms Hákonar-
sonar, en Vilhjálmur byggði hana
í þeirri mynd sem hún er nú.
Tómas faðir Ingigerðar konu
Vilhjálms Hákonarsonar byggði
Kirkjuvogsbrunninn sem lengi
var vatnsból byggðarinnar.
Brunnurinn er nú aflagður og
búið að fylla hann af grjóti, þó
enn sjáist vel hvar hann var.
Kirkjan í Höfnum var annexía
frá Utskálum, áður lá hún til
Hvalsnesprestakalls. Prófastur-
inn á Kjalarnesi skoðaði kirkjuna
24. ágúst árið 1862. Þá er bygg-
ingu hennar lokið og tekið fram
að hún sé öll máluð að innan. I
húsvitjunarbókum frá árinu
1865 sem prófasturinn f Kjalar-
nesþingi skráði, þegar hann
vísiteraði í Höfnum í byrjun sept-
embermánaðar, segir að kirkjan
sé í prýðisástandi eins og hirðing
hennar til sóma. Þá skuldaði
kirkjan 685 ríkisdali sem þótti
ekki mikið vegna byggingar
hennar því talið er að bygging
kirkjunnar hafi kostað 1 800 rík-
isdali. Stefán Sveinsson á Kal-
marstjörn gaf kirkjunni nýja
kirkjuklukku. Kaupmaður P.
Duus í Keflavík gaf kirkjunni
glerhjálm og Vilhjálmur Kristinn
Hjálmarsson gaf nýtt altaris-
klæði, gert af rauðu silkiflosi með
gullnum krossi og leggingum,
einnig gaf hann hvítan altarisdúk
með blúndu í kring. Gjöfin var
talin afar höfðingleg og tekið er
fram að hún hafi kostað yfir 50
ríkisdali.
Fratnhald á hls. 3
V -
Leiöi Vilhjálms Kristins Hákonarsonar og Þórunnar Brynjólfsdóttur: