Dagur - 18.12.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 18.12.1999, Blaðsíða 8
VIII-LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 KIRKJUSTARF Ragnheiður Kristín Kristjánsdóttir Sunnudagur 19. desember fjórði sunnudagur f aðventu AKUREYRARKIRKJA Jólatré sunnudagaskólans I Safnaðarheimili kl. 11.00. Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju „Syngjum jólin inn“ í kirkjunni kl. 20.00. HJÁLPRÆÐISHERINN HVANNAVÖLLUM Kl. 17.00 syngjum við jólin inn. Athugið engin sunnudagaskóli kl. 11.00. Vænst er að bæði fullorðnir og börn verði með um þessa stund. Kveikt á jólatrénu. KAÞÓLSKA KIRKJAN - AKUREYRI Laugardagur - messa kl. 18.00. Sunnudagur - messa kl. 11.00. KFUM OG K - SUNNUHLÍÐ Aðventusamkoma kl. 16.30. Jólasaga, jóla- hugvekja og veitingar. SJÓNARHÆÐ - HAFNARSTRÆTI Sameiginlegur jólafundur sunnudagaskólans í Lundarskóla og barnafundanna á Sjónar- hæð kl. 13.30 á Sjónarhæð. Almenn sam- koma á Sjónarhæð kl. 17.00. HVÍTASUNNUKIRKJAN - AKUREYRI Laugardagur - bænastund kl. 12.00. Sunnu- dagur - sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30. Kennsla fyrir alla aldurshópa. LAUFÁSKIRKJA Aðventukvöld kl. 21.00. Söngur, hljóðfæra- leikur, upplestur og Ijósahelgileikur. Ræðu- maður Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður. SVALBARÐSKIRKJA Kyrrðar- og bænastund mánudagskvöldið 20. des. kl. 21.00. STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA Helgistund og kveikt á leiðalýsingu í kirkju- garðinum kl. 18.00. HVERAGERÐISKIRKJA Tónlistar-guðsþjónusta kl. 17:00. Sr. Jón Ragnarsson. SELFOSSKIRKJA Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Hádegisbænir með tíðangjörð kl. 12.10. Aft- ansöngur á aðventu fimmtudaga kl. 18.10. Samvera 10-12 ára miðvikudaga kl. 16.30. STOKKSEYRARKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. ÁRBÆJARKIRKJA Ath. Engin guðsþjónusta kl. 11. Jólastund fjölskyldunnar kl. 13.00. Jótasaga lesing. Hugleiðing út frá jólaguðspallinu. Barnakór kirkjunnar syngur. Eftir jólastundina veróur jólatrésskemmtun í safnaðarheimilinu á veg- um barnastarfs kirkjunnar og Fylkis. Foreldr- ar, afar, ömmur eru boðin hjartanlega vel- komin með bömunum. BREIÐHOLTSKIRKJA Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11. Barnakór- arnir syngja. Tekið við söfnunarbaukum frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Organisti Daníel Jón- asson. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA Jólaball sunnudagaskólans kl. 11. Gengið í kringum jólatré, sungin jólalög, heitt súkku- laði og piparkökur. Jólasveinar koma í heim- sókn. Fjóðra sunnudag í aðventu kl. 20.30 syngur Kvennakór Reykjavikur á seinasta að- ventukvöldinu. Við þetta tækifæri ætlum við einnig að taka á móti söfnunarbaukunum „brauð handa hungruðu heimi" og selja frið- arkerti fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Fé sem safnast við kaffið á eftir rennur óskipt til hjálparstarfsins. Kaffisalan er á vegum sókn- arnefndar en stjórnun og undirbúningur er i höndur kórs Digraneskirkju. FELLA- OG HÓLAKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Umsjón Margrét Ólöf Magnúsdóttir. Jólahelgistund í kirkjunni, tekið á móti baukum fyrir hjálparstarf kirkj- unnar og þeir lagðir á altari. Eftir helgistund er farið í kirkjuna og gengið í kringum jóla- tréð. GRAFARVOGSKIRKJA Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Prestur Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Eldri barnakór kirkjunnar kemur í heimsókn og flytur helgisöngleik. Stjórnandi: Oddný Þor- steinsdóttir. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Org- anisti Hörður Bragason. Sunnudagaskóli í Engjaskóla kl. 11:00. Prestur Sr. Sigurður Arnarson. Litli kórinn úr Engjaskóla kemur i heimsókn og flytur jólalög. Stjórnandi: Skarp- héðinn Hjartarson. Umsjón: Signý, Guðrún og Guðlaugur. Guðsþjónusta kl. 14:00 í Graf- arvogskirkju. Prestur Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafar- vogskirkju syngur Organisti Hörður Braga- son. LAUGARNESKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11:00 og ekta jólaball í umsjá Mömmumorgna. HJALLAKIRKJA Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. íris Krist- jánsdóttir þjónar. Kór Snælandsskóla syng- ur jólalög og leiðir safnaðarsöng. Stjórn- andi: Heiðrún Hákonardóttir. Undirleikari: Lóa Björk Jóelsdóttir. Barnaguðsþjónusta í kirkjunni kl. 13 og í Lindaskóla kl. 11. KÓPAVOGSKIRKJA Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Börnin skreyta piparkökur. Guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónustunni verður útvarpað. Prestur sr. Guðni Þór Ólafsson. Organisti: Hrönn Helgadóttir. SELJAKIRKJA Krakkaguðsþjónusta kl. 11. Lúðrasveit Breiðagerðisskóla undir stjórn Odds Björnssonar kemur i heimsókn. Tekið verður við söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunnar. Guðsþjónusta kl. 14.Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Drengjakór Laugar- neskirkju flytur tónlist undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Organisti við athafnirnar er Gróa Hreinsdóttir. Jólatónleikar Seljanna, kórs kvenfélagsins kl. 20.30. ÁSKIRKJA Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA Barnamessa kl. 11:00. Léttir söngvar, bibl- íusögur, bænir, umræður og leikir við hæfi barnanna. Foreldrar hvattir til að koma með börnum sínum. Guðsþjónusta kl. 14:00. Jólasöngvar fjölskyldunnar, helgi- leikur og jólalög. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Jóhönnu Þórhallsdótt- ur. Börn úr Fossvogsskóla flytja jólaguð- spjallið í helgileik. Látum jólasöngvana hljóma með allri fjölskyldunni og syngja saman um frið og helgi hátíðarinnar. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór félagsstarfs aldraðra syngur. Prestur sr. Hjalti Guð- mundsson. Kolaportsmessa kl. 14:00 i samstarfi við Miðbæjarstarf KFUM&K. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Æðruleysismessa kl. 21:00. Anna Sigríður og Bræðrabandið sjá um tónlist. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. GRENSÁSKIRKJA Jólaskemmtun fjölskyldunnar kl. 11:00. Allir velkomnir. Tónleikar Kirkjukórs Grens- áskirkju kl. 14:00. Ókeypis aðgangur. HALLGRIMSKIRKJA Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Helgileikur barna. Barnakór Hall- grímskirkju leiðir sönginn undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur. Tekið við söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunnar. Sr. Sigurður Pálsson. Ensk guðsþjónusta kl. 16:00. Jólatónleikar kl. 20:00 til styrktar tónlistarlífi Hallgríms- kirkju. Mótettukór Hallgrímskirkju, Marta G. Halldórsdóttir, sópran, Sigurður Flosa- son, saxófónn. LANDSPÍTALINN Messa kl. 10:00. Sr. Ingileif Malmberg. HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Helga Soffís Konráðsdóttir. Messa kl. 14:00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. Aðventusöngvar við kertaljós kl. 20:30. Kór Háteigskirkju og organistinn, Douglas Brotchie, flytja tónlist eftir Bach, Verdonck og Hassler. Hulda Guðrún Geirs- dóttir, sópran, syngur verk eftir Franck og H%«ndel. Almennur söngur. Ræðumaður Ólafur Skúlason, biskup. LANGHOLTSKIRKJA Kirkja Guðbrands biskups. Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11:00. Helgistund við kertaljós. Tekið við söfnunarbaukum Hjálp- arstarfs kirkjunnar. Eftir stundina verður boðið upp á kakó í safnaðarheimilinu. Komið með sýnishorn af smákökubakstrin- um. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Org- anisti Jón Stefánsson. NESKIRKJA Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Áttatil níu ára starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14:00. Barnakór Landakotsskóla syngur undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Magdalena Dubik leikur á fiðlu. Órganisti Reynir Jónasson. Sr. örn Bárður Jónsson. Jólatónleikar sinfóníu- hljómsveitar áhugamanna kl. 20:30. Ein- söngvari Inga J. Backman, einleikari Jónas Ingimundarson. Barnakór úr vesturbænum, stjórnandi Ingvar Jónasson. Á efnisskrá: El- egía eftir Hildigunni Rúnarsdóttir, Kantata eftir Jakob Hallgrímsson, Exultate, ubilate og píanókonsert nr. 11, K413 eftir Mozart. Jólalög. SELTJARNARNESKIRKJA Jólasöngvar allrar fjölskyldunnar kl. 11:00. Börn úr barna- og unglingastarfinu sýna helgileik. Mikill almennur söngur. Prestur sr. Sigurður Grétar Helgason. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Tekið á móti söfnunar- baukum Hjálparstarfs kirkjunnar. „Ég fylgi öldinni", var amma Kristín vön að segja þegar hún var spurð um aldur. Hún hefði því áreiðanlega fyllt þann flokk sem telur öldinni lokið um næstu áramót því 8. desember sl. hefði hún orðið 100 ára. Ragnheiður Kristín Kristjánsdóttir fæddist á Sveinseyri við TálknaQörð 1899 og andaðist 31. júlí 1981. Hún var hreppstjóradóttir og þriðja barn foreldra sir.na í hópi níu systkina. Faðir hennar var Krist- ján Kristjánsson frá Mýri í Bárð- ardal, búfræðingur, bóndi og kennari, sem var mikill félags- málafrömuður í sinni sveit og gegndi þar margháttuðum trún- aðarstörfum. Kristján og Stefán G. Stefánsson voru systkinasynir. Móðir hennar var Þórunn, dóttir Jóhannesar Þorgrímssonar Dannebrogsmanns og útvegs- bónda og Ragnheiðar Kristínar Gísladóttur frá Neðrabæ, fjórðu konu hans, sem var mikil atgerv- iskona með fagra söngrödd. Hjónin voru náskyld og bæði komin af Selárdalsprestum. Heimili þeirra var gestrisið myndarheimili og þar var nægi- legt að bfta og brenna, fugl í bjargi og fiskur í sjó, eins og oft- ast hefúr verið á Vestfjörðum. Aldrei gat Kristín amma kannast við sveitalífslýsingar Halldórs Laxness eða síðar Tryggva Emils- sonar þar sem minnst var á sóða- skap, svíðingshátt gagnvart börn- um og niðursetningum, bjargar- leysi og heimóttarskap. Þannig var þetta ekki fyrir vestan á hennar tíð. Faðir Kristínar kom að norðan sem kennari til Tálknafjarðar og að sunnan kom Matthías Einar Guðmundsson sömu erinda og kvæntist heimasætu á Sveinseyri eins og tengdafaðir hans hafði gert. Þau Kristín gengu í hjóna- band árið 1923. Þau settust að á Sveinseyri og fyrir vestan fædd- ust börnin þeirra þrjú, Sigríður Kristbjörg verslunarmaður, gift Haraldi M. Sigurðssyni kennara á Akureyri, Guðmundur fram- kvæmdastjóri hjá Flugmála- stjórn, giftur Astu Hannesdóttur snyrtifræðingi í Reykjavík og 100 ára mínmiig Þórunn sjúkraliði, gift Pétri Valdimarssyni hafnarverði í Reykjavík. Arið 1930 fluttust þau til Reykjavíkur, þar sem Matthías gerðist lögregluþjónn. Árið 1939 lauk hjónabandi þeirra með skilnaði. Þar með tók líf Kristínar nýja stefnu, hún fluttist til Akureyrar með börn sín, og við tók þrotlaus barátta einstæðrar móður í Iok heimskreppu við að koma þeim til nokkurs þroska. Hún vann á saumastofu Gefjunar um tíu ára skeið þar til doði og máttleysi í fingrum gerðu hana að öryrkja. Þrátt fyrir þessa fötlun sína var hún sísaumandi alla tíð og var listamaður í tilsniði og sauma- skap. Hún fataði börn og barna- börn, fjölda vinkvenna og ýmsa óvandabundna sem Ieituðu til hennar vegna orðsporsins sem fór af saumaskap hennar. Stáss- konur fóru af hennar fundi létt- stígar í nýjustu tísku upp úr gömlum fötum og efnum og barnabörnin slógu í gegn í nýj- ustu bítlabúningunum frá hendi Kristínar. Rimmurnar fyrir fram- an spegilinn þar sem hagnýt sjónarmið og reynsla saumakon- unnar tókust á við vægðarlausar kröfur tfskunnar urðu margar og langar, en þeim lauk ætíð á þann veg að fötin pössuðu óaðfinnan- lega og fullnægðu tískuduttlung- um. Þakklætið var ekki alltaf í samræmi við kröfuhörkuna en þeim mun meir er hún nú dáð fyrir verk sín í minningum Ijöl- skyldumeðlima. Mesta afrek hennar var að koma myndarbörnum sfnum vel á legg. Þau luku öll gagnfræða- prófi á Akureyri, síðan fór Sigríð- ur í kvennaskólann á Laugum, Guðmundur lauk loftskeytaprófi og Þórunn fór á kvennaskóla í Kaupmannahöfn. Það var henni stuðningur að systur hennar bjtiggu á Akureyri og í nágrenni og norður fluttust foreldrar hennar eftir starfsævina í Tálknafirði. Aldrei man ég eftir því að amma mín mælti orð á danskri tungu. Samt var danski tíminn á íslandi svo runninn henni í merg að hún las alla tíð mikið á dönsku og norsku, herragarðs- rómana, sveitalífssögur og „dönsku blöðin" sem voru sam- heiti okkar á Akureyri yfir Familie Journal, Hjemmet o.fl. skandinavísk vikublöð, sem var oft embætti okkar barnabarn- anna að sækja í bókabúð fyrir ömmu. Það sem hún ekki vissi um kóngafólk á Norðurlöndum var ekki vert að vita. Kristín var heimilisföst hjá dóttur sinni á Akureyri en dvaldi oft á heimilum foreldra sinna og barnabarna í Reykjavík þegar þar þurfti á hjálpandi hönd að halda. Hún var þeirrar gerðar að gefa öðrum allt. Allt sem hún vann sér inn með saumaskap fór jafn- harðan í að kaupa nýtt efni til að sauma úr og gefa. Hún gaf ellilíf- eyrir sinn og örorkubætur og hélt engu eftir fyrir sjálfa sig, en stundum talaði hún um, að hún þyrfti að eiga fyrir útförinni sinni. Lífsspekin sem fólst í verk- um hennar leitar sífellt á hug- ann. Kristín amma fylgdi öldinni og hún var henni á margan hátt óblíð. Guðstrúin var henni óbif- anlegt bjarg á vegferðinni og í bænir fyrir sér og sínum sótti hún styrk og þolgæði. Afkomend- ur Kristínar hafa ákveðið að ánafna Akureyrarkirkju, sem var henni kær, litlum þakklætisvotti í tilefni af 100 ára minningu hennar. Síðustu árin dvaldi Kristín á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri við góða aðhlynningu. Hún var ófær um að tjá sig nema með snertingu. Það verður okkur öll- um sem heimsóttum hana á banaleguna ógleymanleg stund þegar saumakonan og bænakon- an, sem var okkur svo góð, þreif- aði krepptum en næmum fingr- um um efnið í fötum okkar. Það er fögur minning um öll hennar handarverk í okkar þágu. Riiað fyrir hönd fjölskyldna Sigríðar, Guðmundar og Þórunn- ar Matthíasarbama. Einar Karl Haraldsson íslendingaþættir birtast í Degi alla laugardaga. Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds. Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má en ákveðnum birtingardögum er ekki lofað. Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á tölvutæku formi. ^______________Iteir _____ ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.