Dagur - 22.12.1999, Qupperneq 4

Dagur - 22.12.1999, Qupperneq 4
20 — MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 Jólaflækja á Höfn „Ekki geta unglingarnir á sér setið að kíta þótt komin séu jól." mynd: gun Jólaflækja ernýtt leikritsem frum- flutt var nú á að- ventunni austurá Homafirði. Höf- undurinn er Guð- jón Sigvaldason semjafnframt er leikstjóri og samdi hann leikritið að hluta til á staðnum fyrir leikhóp- inn og í samvinnu við hann. Jólaflækja gerist á aðfangadagskvöld á ís- lensku heimili. Við sögu koma foreldrar með þrjú hálf uppkomin börn og eina tengdadóttur, auk ungs frænda sem er hjá þeim á aðfangadagskvöld, samkvæmt venju. Ekki geta unglingarnir á sér setið að kíta þótt komin séu jól. Gemsinn hjá dótturinni hringir á óheppilegustu tímum, yngri sonurinn er á yrkinu og má varla vera að því að matast. Stressið á heimilinu nokkuð dæmigert fyrir íslenskan veru- leika. Húsmóðirin reynir að leysa öll vandamál sinnar ofdekruðu Qölskyldu á harða hlaupum en skeytir skapi sínu á kettinum. Enda kannski ekki furða því hann ruddi um Orabaunadósinni svo inni- haldið fór út um allt en Orabaunir mega ekki vanta á jólaborðið að mati húsbónd- ans. Að öðru Ieyti stefnir allt í tiltölulega hefðbundið aðfangadagskvöld á íslensku heimili - eins og fjölskyldufaðirinn Ieggur reyndar ofurkapp á. Og eins og títt er um menn í hans stöðu þá sinnir hann aðal- lega seríuskreyting- unum og keppir þar af miklum móð við nágrannana. En undir öllu puntinu og prjálinu íeynast vandamálin. Það er ekki bara raf- magnið sem slær út hvað eftir annað heldur taka samræð- urnar í stofunni óvænta stefnubreyt- ingu, einmitt þegar allt átti að verða svo vel heppnað. Hús- móðirin reynir allt hvað hún getur að berja í brestina og hafa stjórn á aðstæð- um en Ijölskyldufað- irinn á í miklum erf- iðleikum enda at- burðarrásin komin Iangt út úr hefð- bundnu mynstri í „hans fjölskyldu." Upp- gjör verður óhjákvæmilegt. Blanda af gamni og alvöru Jólaflækja er stutt, íjörlegt leikrit og hefði jafnvel þolað meiri hraða á köflum. Ágæt blanda af húmor og römmustu alvöru. Einræður leikara gengu upp þar sem þær voru stuttar en söngur í lok þeirra var óþarfur og virkaði dálítið tilgerðarlegur. Pakkhúsið reyndist afar notalegt leikhús og konfekt á borðum áhorfenda jók á jólastemmninguna. Lýsing og tónlist fag- mannlegt. Ingvar Þórðarson sýndi tilþrif í hlutverki húsbóndans og Kristbjörg Guð- munds var sannfærandi móðir sem stjórn- aði oftast af mildi en átti til festu þegar á þurfti að halda. Elsti sonurinn, Júlíus Val- geirsson, fór einkar eðlilega með sína ein- ræðu, kærastan Jóna Benný Kristjánsdótt- ir sýndi ágætan svipbrigðaleik og Ingvar Árni Ingvarsson, Sædfs Karlsdóttir og Tryggvi Valur Tryggvason stóðu sig líka vel. Guðjón Sigvaldason er lunkinn náungi. Hann hefur áður unnið gott starf með Leikfélagi Hornafjarðar. Sett upp klassa- sýningar eins og Djöflaeyjuna og Strætið og stjórnað götuleikhúsi af snilld á humar- hátfðum. Jólaflækjan er ekki stórvirki en hún skilur eftir umhugsunarefni í bland við skopið. LEIKUST Akstur strætisvagna mnhátíðamar Strætisvagnar Reykjavíkur Þorláksmessa: Ekið eins og á virkum degi. Aðfangadagur og gamlársdagur: Ekið eins og á virkum dögum til kl. 13:00. Eftir það samkvæmt tímaáætlun helgi- daga ffam til ld. 16:00, en þá lýkur akstri. Jóladagur og nýársdagur: Ekið á öllum leiðum samkvæmt tímaáætlun helgidaga að því undanskildu að allir vagnar hefja akstur um kl. 14:00. Annar jóladagur: Ekið eins og á sunnudegi frá kl. 10:00 til 24:00. Næturvagnar: Akstur fellur niður að- fangadagskvöld en ekið samkvæmd áætlun jóladag og annan í jólum. Ekið samkvæmt áætlun á nýársdagskvöld. Allar nánari upplýsingar má fá í þjón- ustu- og upplýsingasíma SVR, 551 2700. Strætlsvagnar Akureyrar Aðfangadagur: Ekið verður til hádegis frá kl. 06.25 til kl. 12.04 sem er síðasta ferð. Jóladagur: Ekkert er ekið á jóladag. Annar í jólum: Ekið eins og á sunnu- dögum, eða frá ld. 10.40 til kl. 23.05 sem er sfðasta ferð. Gamlársdagur: Ekið til hádegis eins og á aðfangadag. Nýársdagur: Ekkert er ekið á nýárs- dag. Eftir áramótin tekur nýtt leiðarkerfi við og verður upplýsingum dreift í öll hús á Akureyri milli jóla og nýárs. Afl: Allt aö fjórir 550MHz Intel Pentium III Xeon örgjörvar ásamt allt aö 46B ECC SDRAM, innbyggö RAID diskstýring, 10/100 Ethernetkort. Áreiöanleiki: Heitútskiptanlegir íhlutir, heitísetjanleg PCI kort. Forvarnaábyrgö á ihlutum. "Lightpath" öryggi. Hugbúnaöur: Lotus Notes Domino R5 og 5 útstöövaleyfi, Norton Antivirus, Netfinity Manager, APC PowerChute ofl. 3ja ára ábyrgö. Verðlaun: Miölari ársins 1999 I flokki stærri miölara hjá PC Computing - Comdex nóv. 1999 Sölu- og þjónustuaöilar Nýherja: Suöurland: Tölvu- og rafeindaþjónustan Selfossi, Tölvun Vestmannaeyjum. Austurland: Tölvusmiöjan Egilsstööum og Neskaupsstaö. Noröurland: Nett Akureyri, Element Sauðárkróki, Ráöbaröur Hvammstanga. Vestfiröir: Tölvuþjónusta Helga Bolungarvík. Skaftahllð 24 • Sfmi 569 7700 Slóö: www.nyhcrji.is Netfjjnity netþjónninn ei til að skil hámark með öflugum er hann margverðlaunaður. tm 0g framleiddur af IBM. I <Ö> NÝHERJI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.