Dagur - 29.12.1999, Síða 1
Hækkanir
á gjöldum
1. janúar n.k. hækka gjöld leik-
skóla, heilsdagsskóla og fleiri
stofnana á Húsavík um 5%. Þetta
var samþykkt á fundi bæjarstjórn-
ar Húsavíkur í fyrri viku með at-
kvæðum meirihluta og eins full-
trúa minnihluta, Aðalsteins
Skarphéðinssonar. Dagbjört Þyri
Þorvarðardóttir, D-lista, var mót-
fallin hækkun á gjaldskrám leik-
skóla og heilsdagsskóla og taldi
það ekki rétta leið hjá H-listanum
„að fæla barnafólk frá Húsavík
með því að svíkja kosningalof-
orð.“
A fundinum var álagningarstigi
fasteignagjalda til umræðu, en
gjaldstofn fasteignamats hækkar
um 4,32%, ekki síst vegna þenslu
f Reykjavík. Kristján Ásgeirsson
H-lista lagði til lækkun á álagn-
ingarstiga til að draga úr hækkun
fasteignagjaldanna og Dagbjört
Þyri lagði fram tilögu um enn
meiri lækkun. Tillaga Kristjáns
var samþykkt með atkvæðum
meirihlutans sem felldi um leið
tillögu Dagbjartar. Hækkun fast-
eignagjalda og vatnsgjalds verður
því að meðaltali um 13,8%, en til-
laga Dagbjartar gerði ráð fyrir
4,6% hækkun milli ára.
Fulltrúar meirhlutans sögðu að
minni hækkun þýddi einfaldlega
meiri lántökur sem væru nógar
fyrir. JS
Þorgeir
kaupir
KÞhusið
Þorgeir Björn Hlöðversson, fyrr-
verandi kaupfélagsstjóri Kaupfé-
lags Þingeyinga, fer fyrir hópi
fjárfesta sem fest hafa kaup á
aðalverslunarhúsi KÞ á Húsavík
og mun kaupverðið vera um 40
miljónir. Ekki hefur verið upp-
lýst hverjir eru með Þorgeiri f
þessum kaupum né heldur í
hvaða tilgangi kaupendur hyggj-
ast nota húsið. Atvinnuþróunar-
félag Þingeyinga og fleiri aðilar
höfðu áður gert tilboð í skrif-
stofuhæð hússins.
Þetta stóra hús var byggt á ár-
unum 1947-1949 og hefur síð-
an eiginlega verið „flaggskipið“ í
verslunarrekstri Kaupfélags
Þingeyinga. En nú er því greini-
lega ætlað nýtt hlutverk.
JS
Bretar á Húsavík
umáramót
Hópur breskra ferðamanna mun
dvelja á Húsavík um áramótin. I
hópnum eru unt 35 manns sem
munu gista á Hótel Húsavík og
væntanlega fara þar á áramóta-
dansleik, fylgjast með áramóta-
brennu og flugeldaskothríð óg-
urlegri, sem sagt upplifa ís-
lenska áramótastemmningu eins
og hún gerist magnþrungnust.
Þetta mun í fýrsta sinn sem
hópur útlendinga kemur til
Húsavíkur gagngert til að vera
þar um áramótin.
. . JS
Víkurblaðið útnefnir hér með harmonikuna sem hljóðfæri aldarinnar á íslandi. Hún heldur enn velli þrátt fyrir tilkomu glamurgítara og hljóðgerfla.
Þeir félagarnir Hákon Jónsson og Kári Árnason eru menn tveggja kynslóða, en gamla góða nikkan er þeim báðum kær.
Fjárhagsáætlim Húsa-
vUmr fyrir árið 2000
var tíl fyrri iimræðu í
hæjarstjóm í fym
viku. Lántökur hæjar-
sjóðs og bæjarfyrir-
tækja aukast gríðar-
lega á árinu og fara í
fyrsta skipti yfir millj-
arð.
Orkuveita Húsavíkur sem stendur
1 mjög fjárfrekum framkvæmdum
vegur þarna þyngst, en áætlaðar
lántökur Orkuveitunnar á árinu
nema 754 milljónum. Hafnarsjóð-
ur mun taka um 11 milljónir að
láni og bæjarsjóður 272 milljónir.
Aætlaðar heildarlántökur bæjar-
sjóðs og bæjarfyrirtækja á árinu
2000 nema því samtals rúmum
einum milljarði.
Rekstrartekjur bæjarsjóðs og
bæjarfýrirtækja eru áætlaðar 707
milljónir, rekstrargjöld 631 milljón
og tekjuafgangur 76 milljónir.
Tekjuafgangur sem hlutfall af tekj-
um verður um 11%. Afborganir
lána á næsta ári verða um 83 millj-
ónir.
Nettólangtímaskuldir bæjar-
sjóðs og bæjarfýrirtækja verða í lok
næsta árs, samkvæmt áætluninni,
1380 milljónir, en voru í fyrra 403
Rekstrartekjur bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja eru áætlaðar 707 milljónir, rekstr-
argjöld 631 milljón og tekjuafgangur 76 milljónir.
milljónir, árið 1998 436 milljónir
og árið 1997 333 milljónir.
Tekjur bæjarsjóðs á árinu eru
áætlaðar 476 milljónir, þar af eru
357 milljónir útsvör, 62 milljónir
fasteignaskattar, 40 milljónir úr
jöfnunarsjóði og 16,6 milljónir frá
World Minerals Island hf. (Kísil-
iðjunni).
Skuldasöfnun bæjarsjóðs
Fjárhagsáætlunin var rædd ítar-
lega á fundi bæjarstjórnar. Bæjar-
stjóri lýst því yfir að það væri alveg
ljóst að bæjarsjóður gæti ekki búið
við það til margra ára að hafa ekki
meiri tekjuafgang en nú stefndi í
og undanfarin ár. I gangi væru við-
ræður milli ríkis og sveitarfélaga
um tekjuskiptingu þeirra í millum
og ef niðurstöður úr þeim skiluðu
sveitarfélögunum engu þá horfði
illa á Húsavík og víðar. Hann gat
þess og að þó mikil skuldaaukning
væri framundan hjá Orkuveitunni
þá væri staða hennar í jafnvægi og
stefndi ekki í hættu.
Aðalsteinn Skarphéðinsson B-
lista sagði það alvörumál þegar
tekjur bæjarsjóðs dygðu ekki leng-
ur fyrir vöxtum og afborgunum
milli ára. Menn væru að skera nið-
ur en samt ykjust skuldir. Hann
kvaðst styðja upbygginguna í orku-
geiranum en gagnrýndi skulda-
söfnun bæjarsjóðs og sagði að
henni yrði að ljúka. OgAðalsteinn
Iagði fram tillögu þess efnis að láta
gera rekstrarlega úttekt á stolnun-
um bæjarins með það að mark-
miði að ná fram hagræðingu og
sparnaði í rekstri. Tillögunni var
vísað til hæjarráðs.
Rekstur á yflrdrætti
Jón Asberg Salómonsson, H-lista,
sagði að allt framkvæmdafé næsta
árs væri lánsfé og það væri einfald-
lega ekki nógu gott. En staðreynd-
in væri sú að á sama tíma og ríkis-
valdið gumaði af því að greiða nið-
ur skuldir um milljarða, væru
sveitarfélögin að auka skuldir sín-
ar um milljarða. Þarna þyrfti að
taka á málum.
Sigurjón Benediktsson, D-lista,
sagði að bæjarsjóður og bæjarfyrir-
tæki væru rekin á 500 milljóna yf-
irdrætti í Landsbankanum á með-
an tekjur slefuðu í 700 milljónir.
Lánshæfi kaupstaðarins hefði
lækkað á mili ára úr 4,7 í 3-,2. íbú-
um hefði fækkað um 51 á milli ára
eða um 2,2%.
Kristján Asgeirsson H-lista,
sagði að fólksfækkunin þýddi ein-
faldlega að við gætum ekki dregið
úr þjónustunni og skorið þar niður
því þá fækkaði fólkið bara enn
frekar og þar með lækkuðu tekjur
bæjarins sjálfkrafa. „Við verðum
að gera okkur grein fýrir því að
Húsavík, eins og aðrir staðir á
landinu, eru í samkeppni um fólk-
ið,“ sagði hann.
Fjárhagsáætlunin verður lögð
fram til síðari umræðu á bæjar-
stjórnarfundi í janúar.
JS
Milljarður í lán-
tökur árið 2000