Dagur - 13.01.2000, Page 6
22- FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 200 0
LIFIÐ I LANDINU
SMATT OG STORT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Davíð Oddsson.
Verðleikar eða ótti
Davíð Oddsson er sagður
mikill vinur vina sinna og
óvinur óvina sinna. Öllum
ætti að vera í fersku minni
þegar þáverandi útvarps-
stjóri neit-
aði að ráða
Hrafn
Gunnlaugs-
son, einn
besta vin
Davíðs, í
embætti
sjónvarps- ----
stjóra. Sjón-
varpsstjórinn var settur í frí,
Hrafn var ráðinn og útvarps-
stjórinn hætti ekki löngu síð-
ar. Einn af betri vinum Dav-
íðs sagði ekki alls fyrir löngu
að ef hann sækti um eitthvað
opinberlega og fengi, væri
hann aldrei viss hvort það
væri vegna eigin verðleika
eða ótta manna við reiði
Davíðs vinar síns ef hann
fengi ekki.
Hvar er vinnmguriim
Það gerðist eitt sinn í janú-
ar þegar nýtt happdrættisár
hófst hjá SÍBS að inn á
skrifstofu happdrættisins
kom góðglaður náungi og
keypti miða. Hann fékk ekki
vinning þegar dregið var
frekar en margir aðrir. En
um næstu mánaðarmót
mætti hann til að endurnýja
miðan. Enn var hann góð-
glaður, beygði sig í átt að
afgreiðslustúlkunni og
sagði: „Fröken, mig er nú
farið að lengja eftir vinn-
ingnum.“
Kynferðisleg áreitni
Sjálfsagt er
flestum
fresku
minni þeg-
ar Össur
Skarphéð-
insson al-
þinigsmað-
ur spurði í
ræðustól
Alþingis
hér um árið
hefði heyrt
Ússur
Skarphéðinsson.
hvort hann
rétt að Árni
Johnsen væri að hrista höf-
uðið. Þessu reiddist Árni
mjög, gekk að Össuri og
kleip hann í eyrað. Þá orti
Hjálmar Jónsson:
Atvik í þinginu athygli
fékk,
ungmeyjar grétu af
trega.
Árni Johnsen að Össuri
gekk
og áreitti kynferðislega.
Slitmháttur
Sem kunnugt er missti Stef-
án Jónsson, fréttamaður og
alþingismaður, fótinn á
unga áldri og gekk á gervi-
fæti eftir það. Kallaði hann
fótinn „tréfót" eða „staur-
fót“ og gerði grín að eins
og þessi vísa um ferðalög
hans um kjördæmi sitt ber
með sér og enn yrkir hann í
slitruhætti:
Víís er -muna ekki án,
eykur -halds í- grandið.
staur- á sínum fæti -fán
fer Ste- yfir landið.
FINA OG FRÆGA FOLKIÐ
Ronaldo í það heilaga
Brasilíski fótboltakapp-
inn Ronaldo kvæntist á
jóladag kærustu sinni
til fimm mánaða,
Milene Dominques.
„Við erum mjög ham-
ingjusöm," sagði hinn
23 ára gamli leikmaður
Inter Milan. Ronaldo og
Milene giftust við borg-
aralega athöfn á heim-
ili móður Ronaldos í
Rio De Janeiro. Brúð-
hjónin klæddust fötum
hönnuðum af Armani.
Að lokum má geta þess
að ungu hjónin eiga
von á barni með vor-
inu.
Ronaldo gifti sig á jóladag
og hjónin eiga von á barni
með vorinu.
liDiifuiunDiiin
ílugferð
Vesalings Snati er orðinn
þreyttur á að hanga svona í
lausu lofti! Hann langar til að
komast niður á jörðina sem
fyrst, hvaða strengir halda
honum á lofti?
Við viljum hvetja alla sem
Dagur - Barnahorn
Strandgata 31
600 Akuroyri
Tölvupóstur: pjetur@dagur.is
ANDRÉS ÖND
ST JÖRNUSPA
Vatnsberinn
Hættu að vera
einræðisherra á
heimilinu. Afsal-
aðu þér völdum
og reyndu að ná
þér í konu.
Fiskarnir
Ekki svara í sím-
ann í dag. Þú ert
vitlaust númer.
Hrúturinn
Farðu aldrei út í
kafbátarigningu
án sundfata og
súrefnis.
Nautið
Framundan er
ánægjulegur tími
ef þú tekur réttar
ákvarðanir.
Hlýddu stjörnu-
spánni á hverjum
degi í hvívetna.
Tvíburarnir
Þú sérð fram á
sjóðþurrð á miðju
fiskveiðiári.
Brjóttu upp spari-
bauka barna
hinna kvótalausu.
Krabbinn
Brostu á bak við
tárin og fáðu þér
hárkollu. Þú ert
enginn Bubbi og
hefur ekki
skrokkinn til að
standa undir
skalla.
Ljónið
Safnaðu kröftum
og safnaðu fé.
Stundaðu sport
og láttu ekki spé-
hræðsluna keyra
þig í kút.
Meyjan
Ef þú hefur efni á
að fjárfesta í
Stoke, þá er mál
til komið að þú
hættir að svindla
þig inn á heima-
leiki Fjölnis í
Grafarvogi.
Vogin
Notaðu höfuðið
til annars en að
berja því við
steininn. Farðu á
handahlaupi með
veggjum.
Sporðdrekinn
Ættingjarnar eru
eitthvað að
bögga þig um
þessar mundir en
samt er óþarfi að
hringja í Neyðar-
línuna á hverjum
degi.
Bogamaðurinn
Skráðu þig í
Flóttann mikla til
Fiji-eyja undir far-
arstjórn Davíðs
áður en Hæsti-
réttur staðfestir
sóknarfrelsis-
dóminn.
Steingeitin
Þú lifir ekki til
æviloka á snöp-
um. Ekki frekar
en vændiskonan
á sköpum. Skiptu
um starf.