Dagur - 15.01.2000, Side 5
LAVGA titiX G lf R' r 5 . ) A A' Ú Á K 1 5 0 6'íf t K ‘l
FRÉTTIR
Frænk-
an víkur
ekki
Nafnaslagur koniinn
upp inill! háskóla
Rektor Viðskiptaháskólans, Guðfinna Bjamadóttir, kynnti nýtt nafn skólans, Háskólinn í Reykjavík
fyrír nemendum og kennurum í gær. mynd: e.ól.
Háskól íslands mót-
mælir nafnabreytmgu
Viðskiptaháskólans í
„Háskólinn í Reykja-
vík.“ Ráðherra hefur
áhyggjur af ágrein-
ingnum.
Mikil gremja er í háskólasamfé-
laginu við Háskóla Islands út af
þeirri ákvörðun Viðskiptaháskól-
ans að breyta nafni sínu í Há-
skólinn í Reykjavík, eða „Reykja-
vík University." Háskóli Islands
hefur mótmælt þessu harðlega
og hefur skorað á skólann að
endurskoða ákvörðun sína. Páll
Skúlason rektor Háskóla Islands
útilokar ekkert í frekari við-
brögðum skólans, en lögfræðing-
ar hans funduðu um málið í gær
og m.a. út frá hefðarrétti. Stefán
Ólafsson forstöðumaður Félags-
vísindastofnunar segir að ef
þetta hefði gerst í atvinnulífinu
sé líklegt að talað hefði verið um
yfirtöku á vöruheiti.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra sagði í samtali við Dag
að ágreiningur háskólanna valdi
sér áhyggjum, deilur á milli há-
skóla væru ekkert gleðiefni.
Hann sagði rektora skólanna
hafa rætt þessi mál við sig en
ljóst væri í lögum að ráðherra
gæti ekki hlutast til um nafngift-
ir einkaskóla. Hins vegar væri
brýnt að ekki kæmi upp mis-
skilningur og leiða ætti ágreining
til lykta í sæmilegri sátt. Vonað-
ist Björn eftir því að skólarnir
ræddu saman og kæmust að ein-
hverju samkomulagi.
N afnaruglingtix
A blaðamannafundi HI í gær
kom fram að mótmæli skólans
byggðust einkum á þremur
ástæðum. Fyrir það íyrsta væri
Háskóli Islands staðsettur í
Reykjavík og hefði oft verið
nefndur „Háskóli íslands í
Reykjavík“ eða einfaldlega Há-
skólinn í Reykjavík," og m.a. til
aðgreiningar frá Háskólanum á
Akureyri. Þá hefði Háskóli Is-
lands í áratugaskeið iðulega ver-
ið kallaður „University in
Reykjavík" eða „University of
Reykjavík“ sem stytting á „Uni-
versity of Iceland in Reykjavík.“
Háskóli íslands telur þvf að
nafnaruglingur blasi við á þess-
um tveimur háskólum sem muni
valda misskilningi og óhagræði
og skaða Háskóla Islands og Við-
skiptaháskólann í Reykjavík,
heima sem erlendis. Stúdenta-
ráð HI og Vaka- félag lýðræðis-
legra stúdenta mótmæltu þessu
einnig í gær.
„Loglegur“ háskóli
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rekt-
or Háskólans í Reykjavík, eins
og Viðskiptaháskólinn heitir
eftir nafnabreytingu, segir að
þótt misjafnar skoðanir geti
verið á henni, þá sé skólinn há-
skóli samkvæmt háskólalögum
og starfsleyfi. Hún segir að það
séu einkum þrjár ástæður fyrir
þessari breytingu. Það sé m.a. í
samræmi við það starf sem
fram fari í skólanum, erlend
samskipti og síðast en ekki síst
vegna framtíðarmöguleika skól-
ans. Þá sé það mun betra fyrir
nemendur skólans sem hyggja á
framhaldsnám erlendis að
koma úr háskóla en Viðskipta-
háskóla. Það helgast m.a. af því
að fyrra heiti skólans „Reykja-
vík School of Business" þýðir
nokkurs konar viðskiptadeild
meðal erlendra skóla en ekki
sem sjálfstæður skóli á háskóla-
stigi. Þessutan sé erfitt að fá
rannsóknarfólk í tölvunarfræð-
um til að vinna við viðskiptahá-
skóla, öndvert við háskóla.
-GRH/BJB
Hervör Þor-
valdsdóttir hér-
aðsdómari og
náfrænka Dav-
íðs Oddssonar
forsætisráð-
herra kvað upp
þann úrskurð í
gær að hún
myndi ekki
víkja sæti í
meiðyrðamáli
framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins gegn
Sigurði G. Guðjónssyni lög-
manni. „Verður ekki séð að
niðurstaða eða meðferð máls-
ins varði Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, með nokkrum
hætti,“ segir Hervör.
Meiðyrðamálið lýtur að um-
mælum Sigurðar í garð Kjart-
ans Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra í grein í Degi.
Hervör frænka Davíðs var á
öðru máli og taldi sakarefnið
alls óviðkomandi störfum eða
persónu Davíðs og það það lei-
ddi heldur ekki til vanhæfis að
Kjartan og Davíð séu vinir.
Sigurður segir aðspurður að
hann eftirláti Gesti Jónssyni,
lögmanni sínum að taka
ákvörðun um hvort úrskurður
dómarans verði kærður til
Hæstaréttar. „Hann hefur um
það skýrar línur frá mér að
kæra, en ég verð að leyfa hon-
um að meta réttmæti þess,“
segir Sigurður.
- FÞG
Stáltak svar við
samkeppni
Frá blaðamannafundi á Akureyri ígærþar sem nýja fyrírtækið var kynnt F.v. Valgeir Hallvarðsson
framkvæmdastjóri, Lárus Ásgeirsson stjórnarformður og Ingi Björnsson aðstoðarframkvæmda-
Stjórí. . MYND BRINK
Stáltak stendur vel að
verki, eru eiukuuuar-
orð fyrirtækisius,
stærsta málmiðnaðar-
fyrirtækis landsins
Nýtt fyrirtæki, Stáltak, er orðið
til við sameiningu Slippstöðvar-
innar á Akureyri og Stálsmiðj-
unnar í Reykjavík, sem verður
stærsta málmiðnaðarfyrirtæki
landsins. Tilgangurinn er sá að
bregðast við harðnandi sam-
keppni innanlands, skapa sterk-
ari stöðu gagnvart erlendum
keppinautum og skapa verkefni
erlendis.
Samrunaferlið hófst 31. ágúst
síðastliðinn en stjórnir félag-
anna samþykktu samrunann
fyrr í mánuðinum. Á hluthafa-
fundi í fyrradag voru teknar
ákvarðanír um framhaldið og
nýtt skipurit fyrir félagið sam-
þykkt. Gengið verður á næst-
unni frá sameiningu verktöku-
og þjónustudeildar Kælismiðj-
unnar Frosts við Stáltak, en
hluti af starfsemi þess fyrirtæk-
is var á dögnunum keyptur af
Stálsmiðjunni-Slippstöðinni.
Með því næst fram meiri hag-
ræðing og áhættudreifing en ef
fyrirtækin væru þrjú, þar sem
verkefni og vinnustaðir falla í
mörgum tilfellum saman og
Stáltak getur betur nýtt starfs-
menn og aðstöðu í álagssveifl-
um en félögin gerðu áður.
Eftir sameiningu við Frost
verða starfsmenn um 300, bæði
á Akureyri og Reykjavík, en
starfsmönnum fækkar ekki með
sameiningunni. Velta fyrirtæk-
isins er þá áætluð um 2 millj-
arðar króna á ári. Heimili og
varnarþing fyrirtækisins verður
í Reykjavík. Stálsmiðjan hefur
verið á Verðbréfaþingi Islands
og það mun hið nýja fyrirtæki,
Stáltak, einnig verða áfram.
Hlutafé er um 400 millj. kr.
Framkvæmdastjóri Stáltaks
verður Valgeir Hallvarðsson
tæknifræðingur, sem verið hef-
ur framkvæmdastjóri Stálsmiðj-
unnar, með aðsetur í Reykjavík,
en Ingi Björnsson hagfræðing-
ur, framkvæmdastjóri Slipp-
stöðvarinnar, verður aðstoðar-
framkvæmdastjóri með aðsetur
á Akureyri, og þar verður m.a.
framleiðslusviði og fjármála-
sviði fyrirtækisins stjórnað.
Markaðs- og tæknisviði og kæl-
isviði verður stjórnað frá
Reykjavík. Sérstakt undirverk-
takafyrirtæki, Stálverktak, mun
sérhæfa sig í stærri tilboðum,
s.s. virkjunum og einstaka þátt-
um stærri verkefna.
Slippfélagið er stærsti hlut-
hafinn í sameinuðu félagi með
31% hlutafjár, en í hópi fimm
stræstu hluthafa eru einnig
Marel, Burðarás og Málning
með 9,8% og Olíuverslun Is-
lands með-5,8%. GG
Lakari afkoma SÍF
SIF hf. sendi Verðbréfaþingi afkomuviðvörun á neikvæðu nótunum í
gær þar sem í Ijós væri komið að afkoma síðasta árs yrði lakari en
rekstraráætlanir reiknuðu með. Hins vegar er reiknað með að óreglu-
legar tekjur samstæðunnar verði hærri en áætlað var. Ástæða fyrir
lakari afkomu eru margvíslega, að sögn SIF-manna, einkum afleitt
rekstrarumhverfi í norskum fiskiðnaði, óhagstæð verðþróun ufsaaf-
urða á seinni hluta ársins, erfitt efnahagsástand í Brasilíu og hækk-
að hráefnisverð á laxi.
61 innherji Bmiaöarbanka
Verðbréfaþingi barst í gær tilkynning um að innherjar í Búnaðar-
bankanum, alls 61 að tölu, hefðu keypt hlut í félaginu í áskriftarhluta
nýafstaðins útboðs á 15% hlut ríkissjóðs í bankanum. Samtals voru
þessi kaup að nafnvirði 909 þúsunda króna. Miðað við útboðsgengi
upp á 4,10 er andvirði kaupanna 3,7 milljónir hjá starfsmönnum
bankans. Dagsetning viðskiptanna er 17. desember sl. -BJB
Vísir kaupir öflugasta
lutemetmiðlara landsins
Vísir.is festi í gær kaup á nýjum vélbúnaði til að halda utan um
þennan umfangsmesta frétta- og upplýsingavef í landinu. Vélin er
af gerðinni Hewlett Packard L2000, en hún er nýjasta gerð sinnar
tegundar og sú öflugasta á Islandi. Tilefni þessarar fjárfestingar er
stórfjölgun heimsókna á Vísi.is en fjölgun þeirra hefur numið frá
fimmtungi upp í fjórðung á milli mánaða. Uppsetning kerfisins
byggir á klasalausn frá HP og sem er með tvöfalt öryggiskerfi til að
hámarka áreiðanleika og afköst kerfisins.
ísafold kvartar
Áburðarsalan Isafold á Selfossi, sem flytur inn erlendan áburð
hefur sent kvörtun til Samkeppnisstofnunar vegna „rangra og vill-
andi“ auglýsinga Áburðarverksmiðjunnar í Bændablaðinu í síðasta
mánuði og Degi fyrr í þessum mánuði. Þar sé fullyrt að Áburðar-
verksmiðjan framleiði áburð „sem hentar betur íslenskri náttúru
en erlendar tegundir", Iíkt og kom meðal annars fram í auglýsing-
unum. Þetta telja Isafoldarmenn að sé villandi, röng og ósönn
staðhæfing. Farið er fram á það við Samkeppnisstofnun að hún
■ banni þessar auglýsingar.