Dagur - 02.02.2000, Qupperneq 1

Dagur - 02.02.2000, Qupperneq 1
Verð í lausasö/u 150 kr. 83. og 84. árgangur - 22. tölublað BLAÐ Margar íbúðir standaauðar Afskriftarreglur félags- legra íbúða duga ekki öllum. Víða úti á landi er framboð á húsnæði meira en eftirspum. Miljarður í skuld hjá Ísaíjarðarbæ. Ovíst er hvaða áhrif það hefur fyrir mörg byggðarlög úti á landi þótt samkomulag sé um skipt- ingu kostnaðar vegna afskrifta á félagslegum eignaríhúðum. A sumum stöðum er meira fram- boð af húsnæði en eftirspurnin vegna flóttans mikla á höfuð- borgarsvæðið og sem ekki virðíst vera á undanhaldi. Það getur því farið að svo að í mörgum minni sveitarfélögum á landsbyggðinni verði lítið um afskriftir á þessum íbúðum vegna þess að forsendan fyrir þátttöku varasjóðs viðbótar- Iána er að kaupsamningur sé fyr- Smá söknuður „Eg fer út úr Samherja með smá söknuði, því þarna hef ég eignast margt gott samstarfsfólk gegnum lífið og fólk sem ég var í daglegum samskiptum við, bæði á skrifstofu, vélaverkstæði, skipaþjónustu og sjómennirnir. Þessi tengsl munu auövitað eitthvað slitna. Eg er hins vegar búinn að gera upp hug minn gagnvart íyrirtækinu, þessum kafla í Iífi mínu er lokið og ég sný mér að öðru, meðal annars umsýslun eigna,“ sagði Þorsteinn Vilhelms- son m.a. í samtali við Dag í gær, skömmu eftir að tilkynnt var um sölu á öllum 21,6% hlut hans og íjölskyldunnar í Samheija. Kaup- þing keypti bréfin fyrir 3,1 milljarð króna. Þorsteinn hefur ákveðið að flytja búferlum frá Akureyri til Reykjavíkur. Nánar er rætt við Þorstein í blaðinu í dag. Einnig er í opnunni íjallað um sameiningar sem átt hafa sér stað í sjávarútvegi að und- anförnu. - Sjd bls. 5 og 8-9. Fjölmargar félagslegar íbúðir standa tómar á ísafirði. Skuldir bæjarins vegna íbúðanna nema einum milljarði. ir hendi fyrir hverja íbúð. Á með- an aukast kostnaður og skuldir þessarar sveitarfélaga vegna fé- lagslegu íbúðana. Bíða og sjá Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Isafjarðarbæjar, segir að þár muni menn bíða og sjá hvaða af- stöðu félagsmálaráðherra tekur til tillögu nefndar um kostnaðar- skiptingu vegna afskrifta á sölu félagslegra eignaríbúða áður en bærinn auglýsir sínar íbúðir til sölu. Hann segist hefði kosið að ríkið lánaði sveitarfélögum fyrir sínum hlut í afskriftunum, eða 10%. Miðað við heildarfjölda þessara íbúða í sveitarfélaginu þýða 10% um 30 til 40 miljónir króna kostnað fyrir bæinn, sem má ekki við neinum íjárútlátum. Milljaiðsskuld Félagslegar eignaríbúðir í Isa- fjarðarbæ er um 260 og hefur bæjarsjóður orðið að innleysa til sín um 180 íbúðir. Skuldir bæj- arsjóðs vegna þessara íbúða nema um einum miljarði króna sem er meira en þriðjungur af heildarskuldum hans sem eru um 2,3 miljarðar króna. Árlegur kostnaður bæjarins vegna rekst- ur íbúðana er á milli 10 og 12 miljónir kr. ári þrátt fyrir leigu- tekjur. Halldór segir að nýting á þessum íbúðum sé um 85%. Hann segir að þegar verður farið að reyna að selja þessar íbúðir á almennum markaði, verði að fara varlega í það til að raska ekki stöðunni á fasteignamark- aðnum. Þótt einhver fjöldi af þessum íbúðum hafi verið byggður á Isafirði á sínum tíma, þá sé fjöldi þeirra hlutfallslega mestur í minni plássunum innan sveitarfélagsins, Suðureyri, Flat- eyri og Þingeyri. — GRH Alþingi kom saman að nýju í gær eftir jólafrí. Eftir umfjöllun nokkurra þingmála fór fram utandagskrárumræða um gagnagrunnsmálið. Ögmundur Jónasson, sem hér er í pontu, var málshefjandi og beindi nokkrum spurning- um til heilbrigðisráðherra. Nánar er fjallað um umræðuna á bls. 5 i blaðinu í dag. - mynd: teitur Eitt kattabúranna sem er verið að koma fyrir. - mynd: gun Síma- hótanirí kattaátaM Starfsmenn hreinsunardeildar Reykjavíkurborgar hófu í gær- morgun að koma kattabúrum fyrir vegna átaksins í hreinsun flækingskatta í borginni. Guð- mundur Björnsson, verkstjóri hjá Meindýravörnum Reykjavíkur, sagði við Dag að starfsmönnum sínum væri gert erfitt fyrir með símahótunum frá kattaeigend- um. „Við erum alls eldd vel- komnir gestir alls staðar. Okkur er hótað og eins þeim sem panta búrin, að ráðist verði á þá af kattaeigendum í nágrenninu. Ofstopinn er mikill í þessu og lætin eftir því. Viðbrögðin eru mun harkalegri en við áttum von á, ekki síst þar sem við auglýst- um sérstaklega að við værum ekki að ásælast heimilisketti. Við höfum beðið fólk að halda heim- ilisköttum inni svo við getum einbeitt okkur að þeim dýrum sem eru týnd og eru útigangsdýr. Þess vegna skil ég ekki þessi við- brögð kattaeigenda. Þeir taka þetta svo persónulega inn á sig, eins og að við ætlum að banka upp á og sækja dýrin,“ sagði Guðmundur. Efast tun lögmætið Formaður Dýraverndunarfélags Reykjavíkur, Sigrfður Ásgeirs- dóttir, hefur sent formanni heil- brigðisnefndar Reykjavíkur, Helga Péturssyni, bréf þar sem efast er stórlega um lögmæti að- gerðanna gegn flækingsköttum. Jafnframt er skorað á nefndina að fresta átakinu sökum vetrar- kulda. Sigríður segir átakið ekki aðeins beinast gegn flæk- ingsköttum, heldur gegn öllum köttum, jafnt merktum sem ómerktum heimilisköttum. Hún segir enga heimild í lögum um að það megi egna fyrir merkta ketti til að veiða þá í búr og halda þeim fyrir lögmætum eig- endum þar til þeir borgar „lausn- argjald". Slíkar „þvingunar- greiðslur" varði við lög og skapi bótaskyldu á hendur Reykjavík- urborg. — BJB S KALDIRDAGAR 0inDesiT I v/ ©Husqvama Tílboð á

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.