Dagur - 02.02.2000, Síða 2
2 - MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
FRÉTTIR
Axet Björnsson.
Prófessorí
íunhverfis-
vísiiiduni
viðHA
Axel Björnsson jarðeðlisfræð-
ingur hefur verið ráðinn pró-
fessor í umhverfisvísindum við
Háskólann á Akureyri og mun
hann sinna kennslu og rann-
sóknum í jarðvísindum og um-
hverfisfræðum. Axel lauk dokt-
orsprófi í jarðeðlisfræði frá Há-
skólanum í Göttingen í Þýska-
landi árið 1972. Hann starfaði á
jarðhitadeild Orkustofnunar frá
1972 til 1990. Axel var deildar-
stjóri jarðeðlisfræðideildar og
síðar yfirverkefnisstjóri og stað-
gengill forstjóra Jarðhitadeildar
Orkustofnunar. Arið 1990 hóf
Axel störf hjá Vísindaráði og var
framkvæmdastjóri ráðsins og
Vísindasjóðs til ársins 1994,
þegar Vísindaráð og Rannsókna-
ráð ríkisins voru sameinuð. Frá
1995 starfaði Axel á Norrænu
eldfjallastöðinni í Reykjavík við
grunnrannsóknir í jarðvísindum,
eldQallafræði og rannsakaði um-
hverfisáhrif eldsumbrota á jök-
ulár. Axel hefur áður kennt við
Háskóla íslands, Háskólann á
Akureyri, Jarðhitaskóla Samein-
uðu þjóðanna og við erlendar
stofnanir og verið faglegur ráð-
gjafi Sameinuðu þjóðanna í er-
lendum jarðhitaverkefnum.
Fékk 16 ár fyrir
morðið á Agnari.
Vitnið á efri hæðinni
réð úrslitum og
breyttur framburður
Þórhalls án skýringa.
Hinn seki boðar
dómsmál gegn „lög-
valdinu“. Með allra
þyngstu dómum.
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson
var í undirrétti í gær dæmdur í
16 ára fangelsi eftir að hafa verið
fundinn sekur um morðið á Agn-
ari Agnarssyni nóttína 14. júlí sl.
og stuld á skartgripum og pen-
ingum í eigu Agnars. Þórhallur
sýndi engin svipbrigði við upp-
kvaðninguna, en óskaði áfrýjunar
málsins til Hæstaréttar.
Fyrir helgi sendi Þórhallur bréf
til dómaranna „og annarra sem
málið varðar“, með afritum til
allra ráðuneyta, forseta Islands,
Umboðsmanns Alþingis, mann-
réttindasamtaka og Dags, og
kveðst þar hafa verið upplýstur
um að ákveðið hefði verið, áður
en réttað var í málinu, að dæma
hann í 17 ára fangelsi, sem væri
alvarlegt mannréttindabrot. Boð-
ar hann að „lögvaldið11 sjálft verði
dregið fyrir dóm og getur sérstak-
lega um hegningarlagabrot Ríkis-
saksóknara.
Lykilvitui á elri hæðtnni
Dómararnir töldu sannað að
Þórhallur hefði verið að verki og
fundu honum engar refsilækk-
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson og verjandi hans Hilmar Ingimundarson hlýða á upplestur dómsorðsins. í fyrsta skiptið við
málsmeðferðina reyndi Þórhallur ekki að dylja andllt sitt mynd: hilmar þór.
andi ástæður í hag. „Agnar [var]
stunginn samtals 11 hnífsstung-
um í hol, þ.e. inn í bijóstholið
bæði framan og aftan. Þá var
honum veitt sár á háls, sem náði
inn í loftveg, eftir að hann var
látinn... Þar að auki voru á hon-
um fjölmargar aðrar hnífsstung-
ur sem gengu inn í mjúkvefi eða
særðu hörundið. Af þessu má
ráða að árásin var hrottaleg og
ber merki um einbeittan og
styrkan vilja ákærða til að ráða
Agnari bana.“
Ekkert þótti hafa komið fram
um að Agnar hefði átt upptökin
að þeim átökum sem áttu sér
stað. Mikilvæg forsenda sektar-
dómsins er frásögn vitnis um að
nær sköllóttur maður hefði yfir-
gefið íbúð Agnars skömmu eftir
að þaðan heyrðust óp og skruðn-
ingar og kom lýsingin á útliti og
fatnaði mannsins heim og saman
við Þórhall þá er hann var hand-
tekinn alblóðugur stuttu síðar
sömu nótt vegna gruns um ölv-
unarakstur.
Almennt þóttu dómurunum
lýsingar Þórhalls „með miklum
ólíkindablæ" og fengju ekki stað-
ist og engar haldbærar skýringar
voru fyrir hendi um hvers vegna
Þórhallur breytti framburði sín-
um, eftir að hafa játað morðið á
sig í fyrstu yfirheyrslum og hjá
geðlækni.
Með allra þyngstu dónnini
Ljóst þótti að Þórhallur væri á
mörkum þess að geta talist sak-
hæfur og að hann hcfði tapað
verulegri dómgreind vegna mik-
illar fíkniefnaneyslu. Hann hafi
þó verið að fullu fær að stjórna
gerðum sínum þegar verknaður-
inn var framinn, ekki haldinn al-
varlegum geðsjúkdómi og þar
með sakhæfur.
Dómurinn er með þeim þyn-
gstu hin síðari ár. Fáeinir 16 ára
dómar hafa verið kveðnir upp, en
í fljótu bragði muna menn aðeins
eftir þremur Hæstaréttardómum
þar sem þyngri dómar hafa verið
kveðnir upp; Þórður Eyjólfsson
var dæmdur í 20 ára fangelsi árið
1994 fyrir sitt annað morð. I
Stóragerðismálinu fékk annar
sakborningana 17 ár og einnig
Sævar Ciesielski 1980. Bæði
Þórður og Sævar, ásamt Kristjáni
Viðari Viðarssyni, hlutu ævilangt
fangelsi í undirrétti, sem Hæsti-
réttur mildaði. - FÞG
Sextán ára dómur
yfír Þórhalli Olverl
Aðstoð við skattframtal
Þjóðernisfélag íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem sagt er
frá ókeypis aðstoð við gerð og frágang skattframtala láglaunafólks,
þeirra sem höfðu innan við 100 þúsund króna mánaðarlaun á síðasta
ári. Þetta boð gildir um þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu, Suður-
landi og á öðrum landssvæðum eftir því sem við verður komið. Þetta
gerir félagið „í tilefni af viðvarandi góðæri og yfirlýstrar láglauna-
stefnu ríkisstjórnarinnar í vaxandi verðbólgu og væntanlegu hruni ís-
lenska efnahagskerfisins," eins og segir m.a. í tilkynningunni. Upp-
lýsingar og pantanir má nálgast í síma 552-5322 milli kl. 17 og 19
alla daga til loka framtalsfrests einstaklinga þann 29. febrúar nk.
Ragnar Aðalstcinsson hæstaréttar-
lögmaður hefur látið af störfum á
Logos, nýstofnaðri lögmannaþjón-
ustu sem varð til í ársbyrjun við
sameiningu A&P lögmanna og
Málflutningsskrifstofunnar við
Suðurlandsbraut 4a. í tilkynningu
frá Ragnari og Pétri Guðmunds-
syni, framkvæmdastjóra Logos,
segir að Ragnar ætli að sinna færri
verkefnum en áður og einkum á
sérstökum áhugasviðum sínum,
svo sem mannréttinda- og mann-
verndarmálum.
Ragnar Aðalsteinsson hrl.
Hættir hjá Logos
TUlögum vel tekið
Össur Skarphéöins-
son og Guðmundur
Árni lýsa yfir ánægju
meö tillögur níu-
manna nefndarinnar
um formannskjör. Jó-
hanna Siguröardóttir
vill skoða þær betur.
Sú tillaga undirbúnings-
nefndar að stofnfundi
Samfylkingarinnar, að
gefa öllum félögum
samfylldngarfélögunum
og félögum A-flokkanna
og Kvennalista kost á að
taka þátt í að kjósa for-
mann Samfylkingarinnar
áður en til stofnfundar
kemur, virðist falla flest-
um vel í geð. Svanur
Kristjánsson, prófessor í stjórn-
málafræði, lagði til á fundi hjá
Samfylkingunni í Reykjavík fyrir
nokkru að þessi leið yrði farin.
Níu manna nefndin hefur nú
skilað af sér tillögunum til fram-
kvæmdastjórnar samtakanna.
Gera má ráð fyrir að mjög IJölgi í
Samfylkingarfélögunum á næst-
unni vegna þessa, enda gert ráð
fyrir að þeir sem hafa kosninga-
rétt hafi gengið í félögin ekki síð-
ar en tveim vikum áður en kosið
verður. Þcssi aðferð við for-
.mannskjörið er sú stima og AI-
þýðubandalagið byrjaði með
1995 og þykir hafa gefist vel.
Undirbúningsnefnd að stofn-
fundi Samfylkingarinnar leggur
til að formaður verði kjörinn í
allsherjar atkvæðagreiðslu fé-
lagsmanna. Tíu félagar verði að
baki hverjum stofnfundarfull-
trúa.
Þeir sem tíðast hafa verið
nefndir sem þátttakendur í for-
mannsslagnum, þau Jóhanna
Sigurðardóttir, Ossur Skarphéð-
insson og Guðmundur Arni Stef-
ánsson voru spurð hvernig þeim
lítist á þessa aðferð.
Sem flestir taki þátt
Guðmundur Árni Stefánsson
sagði að sér litist prýðilega á
þessar tillögur níumanna nefnd-
arinnar, enda hefði hann alltaf
sagt að því fleiri sem taka þátt í
formannskjörinu því betra. Hann
sagðist í sjálfu sér ekki gera nein-
ar athugasemdir við að val full-
trúa á stofnfundinn verðí- einn
fulltrúi á hverja 10 félagsmenn í
fyrrnefndum félögum. Hins veg-
ar hefði, sér að meinalausu, mátt
fjölga fulltrúm þannig að það
væri einn á móti hverjum fimm
félögum.
Ossur Skarphéðinsson sagði
að sér litist í sjálfu sér ckkert illa
á þetta fyrirkomulag, enda vildi
hann að sem flestir taki þátt í
formannskjörinu. Hann sagði að
samt yrði að hafa ákveðin bönd á
þessu. Sér myndi þykja
það miður ef formanns-
kjörið þróaðist út í ein-
hverskonar prófkjörsslag,
þar sem menn reyndu að
sippa inn í félögin eins
mörgum og frekast væri
unnt, einungis til að taka
þátt í kjörinu. Það yrði
hlægilegt og hrcyfingunni
ekld til sónia.
„Almennt er ég þeirrar
skoðunar að því víðtækara
sem kjör formanns er, því traust-
ari verður viðkomandi formað-
ur,“ sagði Ossur.
Jóhanna Sigurðardóttir vildi
ekki segja neitt um málið á þess-
ari stundu. Hún sagðist vilja
skoða tillögur níumanna nefnd-
arinnar betur. Það er Ijóst að
hugmyndin að fulltrúavali á
stofnfundinn er ekld í samræmi
viö hugmyndir Jóhönnu þar um,
en hún hefur viljað opna stofn-
fundinn miklu meira. - S.DÓR
Jóhanna Össur Guðmundur Árni
Sigurðardóttir. Skarphéðinsson. Stefánsson.