Dagur - 02.02.2000, Síða 4

Dagur - 02.02.2000, Síða 4
4 - MIÐVIKVDAGUR 2. FEBRÚAR 2 0 00 FRÉTTIR íslendingar greiða minna úr eigin vasa til heilbrigðismála en Norðurlandaþjóðirnar, sem stangast á við útbreiddar „þjóðsögur" um að allt sé frítt í útlöndum. MiðlunjJsþj óð 1 heilbrigðismálum í heilbrigðisútgjöldiun vora íslendingar í 13. sæti OECD-þjóða árið 1997 hvar af beinar greiðslur sjuklinga era hér lægri en víðast annars staðar. Með 7,9% vergra- landsframleiðslu (VLF) í heilbrigðisútgjöld 1997 (rúm- lega 670.000 kr. á hveija 4ra manna fjöl- skyldu í landinu) voru Islendingar miðl- ungar meðal OECD-ríkja, samkvæmt tölum samtakanna. Þar af borguðu þeir um 15% (um 100.000 kr. á fjölskyldu) beint úr eigin vasa, sem er lægra hlutfall en víðast annars staðar - t.d. heldur lægra en í nokkru hinna Norðurland- anna, sem stangast á við útbreiddar „þjóðsögur" um allt frítt í útlöndum. Af Norðurlöndum verja Svíar hlut- fallslega mestu til heilbrigðismála, 8,6% af VLF og Danir líka heldur fyrir ofan okkur, þrátt fyrir mikla og stöðuga Iækk- un í báðum þessum Iöndum ffá fyrri hluta 9. áratugarins. Norðmenn náð hins vegar hámarkinu 1991-93 og eru FRÉTTAVIDTALIÐ nú orðnir nokkru „sparsamari" en við (7,5% VLF) og Finnar einnig. Langdýrast í Bandaríkjununi I Bandaríkjunum hafa heilbrigðisút- gjöld hækkað jafnt og þétt sfðustu tvo áratugi og eru nú miklu hærri en í nokkru öðru landi - eins og nýlegt dæmi sýnir um hálfa til 1 milljón króna spítalakostnað á dag fyrir íslenskan fyr- irbura þar vestra. Heildarútgjöld til heilbrigðismála í Bandaríkjunum eru tæp 14% VLF (um 1,2 milljónir á fjöl- skyldu) hvar af það opinbera borgar ekki einu sinni helminginn. Kanar verða því að borga se,m svarar 7,4% VLF beint úr eigin vasa - eða litlu Iægri upphæð en nemur öllum heil- brigðisútgjöldunum hér á landi. Þjóðverjum virðist líka hafa gengið misjafnlega að hemja heilbrigiðsút- gjöldin á síðustu árum og voru 1997 ásamt Svisslendingum einu Evrópu- þjóðirnar sem vörðu yfir 10% VLF í þennan málaflokk 1997, hvar af sá hlutur sem það opinbera borgar ekki var ríflega tvöfalt hærri en hér. Frakk- ar eru síðan rétt neðan við 10% mörk- in. Bretar og írar „sparsaiiiastir“ Bretar hafa á hinn bóginn verið með lægst heilbrigðisútgjöld á Vesturlöndum síðustu tvo áratugina a.m.k. - að vísu ásamt með Spánveijum og Portúgölum framan af níunda áratugnum, en þær þjóðir eru nú löngu komnar langt fram úr Bretum - sem skýrir kannski að hluta þá miklu gagnrýni sem heilbrigðisyfír- völd í Bretlandi hafa orðið fyrir, sérstak- lega í flensufaraldrinum undanfarnar vikur. Heildarútgjöld þeirra til heil- brigðismála er aðeins 6,9% VLF árið 1997, á meðan beinar greiðslur sjúk- linga eru svipað hlutfall og hér. I okkar heimshluta hefur Irum einum tekist að komast niður fyrir Breta, nú á allra síð- ustu árum, eftir ríflega Ijórðungs lækk- un heilbrigðisútgjalda á Irlandi síðan 1980. Árið 1998 fóru 54% heilbrigðisút- gjalda hins opinbera hér á Iandi til sjúkrahúsa, 15% í hjúkrun/endurhæf- ingu, 15% í heilsugæslu og 12% í lyf - alls um 600.000 kr. að meðaltali á 4ra manna fjölskyldu. Þá er ótalinn 100.000 kallinn sem hún borgar beint úr eigin vasa. - HEI í allii meiiniiigargusumii sem gekk yfir höfuðborg- ina um helgina með við- burðum um alla borg, þar sem mjög víða mátti sjá borgarstjórann, forsetann og aðra mikilvæga framámenn í borghmi og víðar, vakti það at- hygli eftirtektarsamra borgar- búa að lyrsti þingmaður Reykjavíkur og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík virtist hvergi sjáanlegur. Taldi einn pottverji víst að þessi huldu- maður hefði verið svo óhepp- inn að vera í útlöndum akkúrat þessa helgi en stað- festing um hið gagnstæða fékkst þó reyndar við messu í Garðabæ á sunnudag. Haim var ekki í út- löndum og því er von að nú spyrji Reykvíkingar hvort maðuiinn hefur ekki áhuga á menningu eða hvort hann sé bara í fýlu vegna þeirrar athygli sem borgin fær undir stjóm höfuðandstæðingaima... Hvar var Davíð? Við höldum okkur áfram við memúngarborgarævintýiið. Eins htið og sást nú tíl Davíðs þá tóku pottverjar eftir því að menntamálaráðherrami, Bjöm Bjamason, var alls stað- ar þennan dag sem hátíðin var sett af stað. Merki þess má glöggt sjá á heimasíðu Bjöms þar sem rekur gang mála síðastliðinn laugardag. Ráðherrann nefnir einnig að við samkomu í Borg- arleikhúsinu um kvöldið hafi einn fullyrt að hann hefði heyrt Bjöm flytja sjö ræður þann daginn. Bjöm segist hafa leiðrétt manninn, ræðumar hafi ekki verið „nema“ fimm... Pottveijar höfðu tekið eftir þvi á heimasíðu Grósku, ungra samfylkingarmamia, að þar er und- ir fyrirsögninni „Ekki bara Svanur" gert óbeint grín að þeim fregnum að skorað hafi verið á Svan Kristjánsson prófessor til formannskjörs í Sam- fylkingunni. Þar segir að skorað hafi verið á vefrit Grósku, bæði frá innlendum og erlendum aðilum, að fara í framboð til fomianns Samfylkingariimar. Ákvörðun verði tekin í nánu samráði við fjöl- skyldu og nánustu stuðningsmeim á mörgum plottfundum næstu vikumar... Björn Bjarnason. Pálmi Kristinsson framkvæmdastjóri Smáralindar Ný risaverslun í Kópavogi á næsta ári. Kostnaðurminnst um 6 milljarðar. 100 verslan- irogþjónustufyrirtæki. 3 4 þúsund bílastæði. AJþreying- arhöll. Alltað 1400 manna vinnustaður. Markaðurinn er æðsti dómariim - Hvaða rök eru jýrir jrvt að byggja 60 }nís- ittui fermetra verslunarrými í Kópavogi á sama tíma og sumir telja að jramboðið af verslun sé yfrið nóg á höfuðborgarsvæðinu? „Þau eru ekkert flóknari gagnvart okkur en svo að við teljum að það sé ekkert yfirfullt af verslunarrými. Við rökstyðjum það einfald- lega með þeim undirbúningsrannsóknum og markaðssetningu og vinnu sem við höfum unnið í fjögur ár. Utkoman er sú að við teljum einsýnt að það sé veruleg éftirspum eftir há- gæða verslunarhúsnæði." - Er þá ekhert ojframboð af verslunar- plássi á svæðinu? „Það er alltaf umdeilanlegt hvað er offram- boð og hvað er þörf og svo framvegis. Að lok- um er það auðvitað markaðurinn einn sem er æðsti dómarinn í þeim efnum. Þannig að ef húsið fyllist af verslunum og fólki, þá er kom- ið svar við þessarí spurningu. Auðvitað er það svo, eins og alltaf þegar um er að ræða tak- markaða auðlind, þá gefur alltaf einhvers staðar eftir. Það mundi gera það í hvaða stór- borg sem er í heiminum þegar jafn stórt hús kemur inn á markaðinn." - Eru það forsendur hagvaxlar og tbtia- þróunar á svæðinu sent liggja kannski til grundvallar? „Það er margt sem veldur eins og t.d. íbúa- þróun og hagvöxtur. Það eru t.d. breyttir verslunarhættir, meiri kröfur til verslunarhús- næðis, afþreyingar, bílastæða og staðsetningu verslunarhúsnæðis. I löndunum allt í kring- um okkur og vfðar er verulegur þrýstingur og eftirspum í svona hús.“ - Hvenær á að optta og hvað kostar þetta? „Við ætlum að opna húsið í lok september á næsta ári, 2001. Við munum ekki gefa upp kostnaðinn að sinni en þétta 'eru töluverðar (járfestingar.“ - Er það rétt að þetta muni kosta um sex miljarða króna? „Byggingarkostnaðurinn er eitthvað á þeirri stærðargráðu." - Hvað verða margar verslanir í bygging- unni? „Við reiknum með þvf að það verði um 100 verslanir og þjónustufyrirtæki í húsinu sem verður yfirbyggt verslunarrými og um 3 þús- und bílastæði á opunardegi. Það verður síðan hægt að fjölga þeim í 4 þúsund. Allar rann- sóknir og upplýsingar erlendis frá benda ótví- rætt til þess að með auknum frítíma og hærri Iífaldri, þá sæki almenningur sífellt meira í svona verslunarhús." - Verða einhverjar nýjungar í verslun, af- þreyingu og öðru? „Já, þær verða ýmsar. Það mun koma fram í dagsljósið á næstu vikum og mánuðum. Það verður t.d. stór hluti hússins, eða 5-7 þúsund fermetrar sem verða í afþreyingarstarfsemi. Fyrir utan bíó og stóra og mikla veitingastaði og annað, þá verðum við með stórt hús sem nefnist Vetrargarðurinn sem er gríðarlega mikið sýninga,- skemmti- og afþreyingarhöll." - Hvað munu margir vintta þanta? „Við reiknum með að það verði um 800- 1000 manns og þegar mest verður á bilinu 1200-1400 manns. Þannig að þetta verður ansi stór vinnustaður." - Hverjir eru helstu jjárfestar? „Það voru fimm stofnhluthafar í upphafi. Síðan þá hafa Baugur og Gaumur bæst við sem sjötta aflið. Fyrir voru Olíufélagið - Esso, Byko, SaxhóII sem er eignarhaldsfélag Nóatúnsfjölskyldunnar, Skeifan 15 sem er eignarhaldsfélag Valfellsfjölskyldunnar og Byggingarfélagið Gylfi og Gunnar. Þarna erum við með þrjú stærstu verslunarfyrir- tæki landsins og stærsta olíufélagið. I þess- um hópi er gríðarleg reynsla og þekking í verslun, auk mikillar þekkingar í umsýslu og rekstri fasteigna." — GRH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.