Dagur - 02.02.2000, Blaðsíða 12

Dagur - 02.02.2000, Blaðsíða 12
12- MIDVIKUDAGU R 2. FF.BRÚAR 2000 ERLENDAR FRETTIR Skæruliðamir famir frá Grosní Rússar sögðust þó í fyrstu ekki hafa orðið varir við brottförina. Islömsku skæruliðarnir íTéténíu sögðu í gær að allir liðsmenn þeirra væru farnir frá Grosní, höfuðborg landsins. Þeir sögðu ennfremur að þeir hefðu verið búnir að skipuleggja brottförina fyrir allnokkru og hefði alltaf staðið til að fara þann 1. febrúar. Bæði rússneski herinn í Téténíu og rússneskir ráðamenn í Moskvu sögðust þó draga þess- ar yfirlýsingar í efa. Þeir hefðu ekki orðið varir við brottförina og fullvissuðu fjölmiðlamenn um að þeir hefðu áreiðanlega sagt frá ef þeir hefðu séð téténska skæruliða flýja borgina. Hins vegar viðurkenndu þeir að sókn inn í borgina hefði reynst mun auðveldari í gær en dagana og vikumar á undan. Herinn væri að ná stöðugt stærri svæðum í Grosní á sitt vald. Einhver fýrir- staða væri samt enn fyrir hendi á nokkrum stöðum f borginni. Grosní er umkringd rússnesku herliði og ekki var Ijóst hvernig þeir 1 500 til 2000 skæruliðar, sem talið er að hafi verið í horg- inni undanfarið, hafi farið að því að komast á brott án þess að Rússar yrðu þess varir. Auk skæruliðanna eru þúsundir óbreyttra borgara í Grosní, sem nú er nánast rústir einar eftir Rússneskur hermaður leitar á Téténa í útjaðri Grosní: Téténsku skæru- iiðarnir segjast vera farnir frá Grosní eftir að þrír leiðtogar þeirra létust. stöðugar árásir rússneska her- liðsins vikum saman. Fjöldi óbreyttra borgara er væntanlega á bilinu 15.000 til 40.000, en þetta fólk hefur hírst í kjöllurum og átt erfitt með að nálgast allar nauðsynjar. Ovíst er hve stór hluti þess hefur fallið í átökunum eða látist úr vosbúð. Skæruliðarnir sögðu jafnframt að þrír helstu leiðtogar þeirra í Grosní væru fallnir, þar á meðal Lecha Dudajev borgarstjóri í Grosní og Aslambek Ismaílov yf- irmaður heraflans í Grosní. Þeir fullyrtu einnig að margir úr þeirra röðum hafi fallið á jarð- sprengjusvæði skammt utan við Grosní, þar sem rússneski her- inn króaði þá inni um hríð og hélt uppi stöðugri skothríð. Að sögn skæruliðanna voru þeir engu að síður búnir að ná því markmiði sínu að veijast rúss- nesku sókninni í meira en mán- uð. Eftir að Grosní er fallin færast aðalátökin í Téténíu til íjalla- svæðanna í suðri, þar sem meira en 5000 skæruliðar hafast við. Mun erfiðara er um vik fyrir rússneska herinn að athafna sig á fjallasvæðunum heldur en annars staðar í Téténíu. Augusto Pinochet. HEIMURINN Pmodiet bíöur að minnsta kosti í viku BRETLAND - Jack Straw, innanríkisráðherra Bretiands, skýrði frá því í gær að hann hygðist ekki leyfa Augusto Pinochet, fyrrverandi einræð- isherra í Chile, að snúa heim fyrr en áfrýjun dómsúrskurðs þar að lútandi hefur verið tekin fyrir, sem verður í byijun næstu viku. Fylgst verður með Austurnki Framkvæmdastjóm Evrópusambandsins kom saman á neyðarfundi í gær í tilefni af væntanlegri stjórnarmyndun íhaldsmanna og hægri þjóðernissinna í Austurríki. Framkvæmdastjórnin sá ekki ástæðu til þess að hóta einangrun Austurríkis ef af stjórnarmyndun verður, líkt og 14 aðildarríki ESB, þ.e. öll nema Austurríki, samþykktu á mánu- dag. Hins vegar minnti framkvæmdastjórnin Austurríki á skyldur sínar samkvæmt samningum Evrópusambandsins þar sem frelsi, lýðræði og mannréttindi eru í hávegum höfð. Framkvæmdastjórnin ætlar að fylgjast vel með verkum austurrísku stjórnarinnar og grípa til aðgerða ef þurfa þykir. Þjóðarflokkur íhaldsmanna og Frelsisflokkur hægri þjóðernissinna náðu í gær samkomulagi um stefnumál stjórnarinnar og stjórnar- myndun verður væntanlega að veruleika á allra næstu dögum. Allir iim borð fórust BANDARÍKIN - Flest bendir til þess að allir hafi farist sem voru um borð í farþegaflugvél semhrapaði út af strönd Kaliforníu í gær. Alls voru 88 manns um borð í vélinni. Svo virðist sem flugvélin hafi hrap- að úr 5000 metra hæð. Leitarsveitir höfðu fundið lík, hrot úr vélinni og farangur, en ólíklegt þótti að nokkur hafi lifað af. Vélin var í eigu flugfélagsins Alaska Airlines. Trúarleiðtogar dæmdir KINA - Tveir leiðtogar kínverska trúfélagsins Falun Gong hlutu í gær þunga dóma ásamt 30 meðlimum safnaðarins. Þyngstu dómana hlutu leiðtogarnir tveir, sem eru systur, og fengu þær sex og sjö ára fangelsisdóma. Hinir þrjátíu hlutu fjögurra mónaða til tveggja ára fangelsisdóma. Friðiirí uppnámi Framkvæmd friðar- samkomulagsms á N- írlandi væntanlega frestað. David Trimhle, Ieiðtogi Sam- bandsflokks Ulsters á Norður-Ir- Iandi, sagðist í gær sannfærður um að frekari framkvæmd á frið- arsamkomulaginu sem gert var á páskum árið 1998 verði frestað um óákveðinn tíma meðan end- urskoðun þess fer fram. Kanadíski hershöfðinginn John de Chastelain skilaði seint á mánudagskvöld skjirslu sinni um framgang afvopnunarmála, en samkvæmt samkomulaginu áttu hryðjuverkasamtök að vera byijuð á afvopnun í janúarlok. Stjórnvöld á írlandi og Bret- landi skoðuðu skýrsluna í gær en létu ekki strax uppi neitt um innihald hennar. David Trimble fullyrti hins vegar að í henni kæmi fram að írski lýðveldisher- inn hefði enn ekki hafið afvopn- un. Hann sagðist ekki geta tekið áfram þátt í heimastjórn Norð- ur-írlands við þær aðstæður, þó ekki væri nema vegna þess að hann gæti ekki réttlætt það (yrir flokksfélögum sínum. Fyrir tveimur mánuðum náð- ist málamiðlun um endurskoðað friðarsamkomulag, sem fólst í því að sambandssinnar sættust á að Sinn Fein tæki þátt í heima- stjórninni gegn því að IRA hæfi þegar að vinna að afvopnun í samvinnu við sérstaka nefnd undir forystu Chastelains. ÍÞRÓTTIR Úr leik Val og Víkings í fyrrakvöld. Spennan eykst Heil ninferð fer fram í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í kvöld, þar sem vænta má hörku leikja í jafnri og spennandi haráttu á toppi deildarinnar. Fimm leikir fara fram í úrvals- deild kvenna í handknattleik í kvöld, þar sem topplið Gróttu-KR fær FH-inga í heimsókn á Nesið, ÍR-ingar Val í íþróttahúsið við Austurberg, Stjarnan Hauka í íþróttahúsið í Garðabæ, Fram Aft- ureldingu í Safamýrina og Víking- ar IBV í Víkina. Það má búast við hörkuleikjum á öllum vígstöðv- um, því nú styttist í lok deildar- keppninnar sem aldrei hefur verið eins jöfn og spennandi. Grótta-KR - FH Grótta-KR sem komst á topp deildarinnar eftir 24-26 sigur á Haukum á sunnudaginn, hefur sigrað í fimm af sex leikjum sfnum í deildinni eftir áramótin, eða frá því þær töpuðu heima fýrir ÍR í fyrsta leik á nýju ári, með einu marki. FH-Iiðið, sem byrjaði illa í upphafi móts hefur heldur verið að sækja í sig veðrið og hefur ekki tapað leik síðan 13. nóvember í fyrra, þegar þær töpuðu með tveimur mörkum, 22-20, gegn Stjörnunni í íþróttahúsinu Garða- bæ. Síðan hafa þær spilað ótta leiki og unnið sjö þeirra en gert eitt jafntefli gegn Víkingum. Það má því búast við hörkuleik á Nes- inu, en þar vann Grótta-KR sjö marka sigur, 35-28, á FH í bikarn- um fyrr í vetur. VíkingUT - ÍBV Víkingar, sem taka á móti ÍBV í Víkinni í kvöld, hafa unnið fjóra síðustu leiki í deildinni nokkuð örugglega og nú síðast Val um síð- ustu helgi með sjö marka mun, 16-23, að Hlíðarenda. Þær hafa aðeins tapað einum leik í deild- inni í vetur og var það gegn Stjörnunni í Garðabæ með eins marks mun, 16-15, í fyrsta leik eftir áramót. ÍBV sem er í sjöunda sæti deild- arinnar með 17 stig eftir 15 leiki hefur verið að sækja í sig veðrið eftir áramótin og þó þær hafi ekki unnið nema tvo af fimm Ieikjum á nýju ári eru þær til alls líklegar. Þær byijuðu nýja árið með því að vinna Hauka heima með tveimur mörkum, 22-20, en steinlágu svo gegn FH í Kaplakrika í næsta leik. Þá komu tveir tapleikir, gegn Gróttu-KR og Stjörnunni, sem þær töpuðu aðeins með eins marks mun. Á föstudaginn unnu þær svo Fram með þriggja marka mun í Eyjum, 28-25, sem var þeirra sjötti heimasigur í deildinni í vetur. Ef þær ná svipuðum leik gegn Víkingum er aldrei að vita hvemig fer. Stjaman - Haukar Af sex leikjum í deildinni eftir ára- mótin hefur Stjaman unnið fjóra, en tapað tveimur gegn Val að Hlíðarenda og 1R í Austurbergi. Tveir síðustu leikirnir hafa unn- ist, gegn ÍBV heima með aðeins eins marks mun og núna síðast gegn Aftureldingu að Varmá með fjögurra marka mun, sem verður að teljast lítið miðað við fyrri ár- angur Aftureldingar í deildinni í vetur. Haukarnir hafa staðið í ströggli eftir áramót og aðeins unnið tvo af fimm leikjum. Það var gegn Val og síðan Aftureldingu í íþrótta- húsinu við Strandgötu, þar sem Haukarnir töpuðu eins og áður sagði gegn Gróttu-KR með tveggja marka mun, í sfðasta Ieik á sunnudaginn. I síðustu viku töp- uðu þær gegn erkifjendunum FH f Kaplakrika, þar sem sigurmarkið var skorað úr aukakasti eftir venjulegan Ieiktíma. Það er því ör- ugglega komið að sigurleik í hug- um Haukanna og öruggt að það ættu þær að geta í Ásgarði, þar sem þær eru þaulvanar að kljást við Stjörnurnar í úrslitakeppnum síðustu ára. Það er því örugglega hægt að lofa hörkuleik, þar sem ekkert verður gefið eftir. ÍR Valur ÍR-ingar sem fá Val í heimsókn í Austurbergið í kvöld eru nú í þrið- ja neðsta sæti deildarinnar með tíu stig eftir 16 leiki. Liðið byrjaði vel á nýja árinu með því að vinna bæði Gróttu-KR og Stjörnuna í tveimur fyrstu leikjunum eftir áramótin, en hefur síðan tapað síðustu þremur leikjum, gegn Fram, Víking og núna síðast gegn KA á Akureyri á Iaugardaginn. Liðið virðist á góðum degi geta unnið hvaða lið sem er og því óvarlegt að afskrifa þær gegn Val i kvöld. Val hefur ekki gengið vel eftir áramótin og tapað fimm af sex leikjum sínum. Þeim hefur aðeins tekist að leggja Stjörnuna á nýja árinu og hafa tapað tveimur síð- ustu Ieikjum gegn Víking í fyrra- kvöld og Fram í síðustu viku. Það er klárt að ÍR-stelpurnar munu ekki taka þær neinum vettlinga- tökum í Breiðholtinu í kvöld og öruggt að þar verður hart barist. A Safamýrinni mæta heima- menn botnliði Aftureldingar þar sem hægt er að bóka nokkuð ör- uggan sigur Framara. Allir leikirn- ir byrja klukkan 20:00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.