Dagur - 08.02.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 08.02.2000, Blaðsíða 1
í baðhúsinu í Nauthólsvíkinni stunda yfir 100 manns gufuböð í víku hverrí. Á föstudagskvöldið hafði einn þeirra átta karlaklúbba sem þangað koma reglulega pantað sér þorramat og til- heyrandi mjöð til að gæða sér á eftir baðið. eru menn sem ganga hér um götur borgarinn- ar og ég hef hitt síðan, suma hverja." Veisla í baðhúsinu: Þessi hópur er búinn að mæta reglulega í baðhúsið í 8 ár. baðs og sturta, tækjasalur, Ijósalampi, hvíldarherbergi og fundarsalur. Hluti hússins var byggður af hernum sem baðhús og klúbbur fyrir liðsforinga. Þá voru þar einungis sturtur en engin gufa. Síðan tók Flugmála- stjórn við því og Iét gera á því miklar endurbætur. Þá var gufubaðinu bætt við og í fram- haldinu var farið að leigja það út til hópa. Fyrir 8 árum stækk- aði Vigfús það um helming. Karlmenn hafa verið í miklum meirihluta gesta í baðhúsinu en einstaka kvennahópar hafa einnig notið þægindanna þar. Vigfús segir hópana samsetta með ýmsu móti, vinnufélaga, skóla- félaga eða starfsstéttahópa. Meðal þekktra einstaklinga sem komu reglulega í húsið fyrr á árum nefnir hann Geir Hall- grímsson forsætisráðherra og Kekkonen Finnlandsforseta. Ekki harður bisniss Vigfús er búinn að sjá um húsið í 22 ár. „Þetta hefur ekki verið rekið sem harður bisniss. Eg hef lagt meira upp úr að hafa dálít- ið heimilislegt hér og afslappað andrúmsloft. Enda koma menn hingað til að láta sér líða vel.“ Skrifstofa Vigfúsar er hlýleg, klædd panel úr oregone pine sem fenginn er úr Offisera- klúbbnum á Keflavíkurflugvelli og leðurstólar njóta sín vel inn- an um bækur, myndir og ýmsa skrautmuni. Hann kveðst halda mikið til í baðhúsinu enda hafi innbrot verið þar tíð áður en hann hóf þar stöðuga gæslu. „Einu sinni heyrði ég þrusk hér um 4 leytið um nótt og fór að aðgæta hvað um væri að vera. Þá voru fjórir fullorðnir karlmenn hér úti fyrir á sendi- ferðarbíl og stólar, þorð og sjón- varp komið hér út á stétt. „Get ég ekki hjálpað ykkur strákar mínir?“ spurði ég og þeim varð alveg rosalega hverft við. Þetta Aukaglös handa góðum öndum Klúbbfélagar voru nú sestir við borðið og til- búnir að hefja snæðing. Þeir voru: Geir R. Tóm- asson, Jóhann Löve, Kristján Olason, Jó- hannes Pétursson, Sig- fús Brynjólfsson, Bjarni Jónasson, Gísli Guð- mundsson, Stefán O. Magnússon, Ragnar EIí- asson, Jón Arnason, Stefán Gunnarsson, Guðni J. Ottósson og Erlingur Reyndal, for- ingi hópsins. Aðspurðir kváðust þeir allir mjög óhressir með að missa húsið. „Okkur finnst það sóun á almannafé að eyði- leggja hús í svo góðu ásigkomulagi og elsti hluti þess hefur auk þess ótvírætt minjagildi. Við erum búnir að finna annan og miklu betri stað fyrir nýja húsið við litla vík hér svolítið frá. Sá staður liggur enn betur við sól en þessi og er alveg við hlið- ina á þeim stíg sem fólk gengur niður að ströndinni. Eftirlits- maður gæti haft aðsetur í bað- húsinu og þannig yrði því fund- ið enn eitt hlutverkið." Þeir voru sammála um að góðir andar væru í baðhúsinu. „Þeir mæta oft í samkvæmin hjá okkur. Við hellum alltaf í nokk- ur aukaglös og þau tæmast alltaf svo það leynir sér ekki að hér eru fleiri en fljótt á litið virðist," sögðu þessir hressu baðgestir og sneru sér að veit- ingunum. GUN. Óneitanlega bregður blaða- konu Dags dálítið þegar hún snarar sér úr hríðar- hraglandanum inn í húsið og áttar sig á því að hún er stödd í búningsherbergi karla. Þar er einn maður fá- klæddur. Ekki lagast það þegar hurð opnast innan úr húsinu og beðið er um hand- klæði. Karlmaðurinn lætur sér hvergi bregða, enda eflaust oft lent í þvílíku áður því hann kveðst hafa stundað baðhúsið í 40 ár. Hann afgreiðir hand- klæðamálið og vísar svo blaða- konunni inn í skrifstofu Vigfús- ar Guðbrandssonar húsvarðar. Einstaka kveimahópar Baðhúsið hefur verið í fréttum að undanförnu vegna þeirrar ákvörðunar borgarráðs að rífa það til að rýma fyrir nýju þjón- ustuhúsi. I húsinu er auk gufu- ■ ■ VDRUBÆR HÚ5GAGNAVERSL U N Tryggvabraut 24, Akureyri, sími 462 1410 Úrval húsgagna á frábæru verð' Heimilishúsgögn - Skrifstofuhúsgögn Svefnherbergishúsgögn - Borðstofuhúsgögn Sófasett - Hornsófar... GOLFEFN ABUÐIN traust undirstaða fjölskyldunnar BORGARTÚNI 33 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 56} 7800^ ( tAUFÁSGATA 9 - 600 AKUREYRI - SÍMÍ.461,491Ö ÍIO'Ti IA . HmtmiMC Flísar í miklu úrvali Forbo parket, korkur Hreinlætistæki, blöndunartæki Innréttingar i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.